sunnudagur, desember 30, 2007

Búið er að taka jólatréið niður, setja Herra Níels á "hótelið" sitt og er nú liðið mætt til Vail í Colorado sem er í um 2.500 metra hæð og mun verða dvalið hér í 8 daga og skíðaíþróttin duglega stunduð. Það var ekki þrautalaust að komast á svæðið þar sem þurfti tvær tilraunir til lendingar vegna slæms veðurs og var aðflugið því ansi langt og "bumpy". Það er búið að snjóa óhemju mikið á svæðinu og eru skíðaskilyrði mjög góð ef veður er í lagi. Mikill spenningur er í liðinu að kanna 2.100 hektara skíðasvæði Vail sem hæst nær um 3.400 metra hæð og samanstendur af um 33 lyftum og 193 skíðabrautum með lengstu brautinni frá toppi niður í þorp um 6,4 km ... það ætti því að vera nóg að gera framundan!!

laugardagur, desember 29, 2007

Jólin hjá okkur hafa verið mjög góð ... mikið borðað af góðum jólamat og slappað vel af. Margt fallegt og gott kom uppúr jólapökkunum og fékk ég meðal annars hlaupaskó og jogging galla frá Ingu Huld og Jóu og fékk Jóa 500 blaðsíðna desertuppskriftabók eftir Ducasse frá mér og Ingu Huld ...



Annars hefur verið að mestu rólegt hjá okkur fyrir utan að við fengum góða gesti í mat á annan í jólum þar sem boðið var uppá dádýralund með ýmsu góðgæti.

mánudagur, desember 24, 2007

GLEÐILEG JÓL


MEÐ JÓLAKVEÐJU FRÁ VALDIMAR, JÓHÖNNU OG INGU HULD (OG HERRA NÍELS)

ps. klikkið á myndina

Við byrjuðum aðfangadag á því að ég hitti stelpurnar í hádeginu og fórum við í Met óperuna að sjá uppfærslu á Hans og Grétu eftir Engelbert Humperdinck sem var fyrst sett upp 23 Desember 1893 í Weimar. Óperan var bara skemmtileg og uppsetningin flott ... allavega hélt hún athygli Ingu Huldar í rúma tvo klukkutíma þannig að þetta var vel heppnað. Óperu-uppfærslan er aðeins öðruvísi en sagan sem við höfum lært en við bjuggumst sosum við að óperan hefði verið skrifuð eitthvað aðeins öðruvísi. En þráðurinn er svipaður og endar á norninni sem bakar piparkökur úr krökkum og tekst Hans og Grétu að sleppa með því að ýta norninni sjálfri í ofninn og breytast þá allar piparkökufígúrurnar í húsinu aftur í lifandi börn þegar nornin er dauð ... skemmtileg og falleg jólasaga ...

sunnudagur, desember 23, 2007

Ekki var ástandið gott hér nokkrum dögum fyrir jól!! Roomban vildi ekki í gang og ekki verið jafn mikið ryk í lengri tíma. Ég hringdi í iRobot og tjáði þeim vandræði mín ... eftir nokkur "test" á Roombunni þá var mér tilkynnt að hún væri biluð ... ég þakkaði kærlega fyrir hjálpina en spurði nú hvað ég gæti gert ... lausnin var einföld, þeir myndu senda mér nýja þar sem eins árs ábyrgð væri á tækinu. Fengum við þessa nýju svo mjög fljótlega og kom hún í tæka tíð fyrir jólin!!

fimmtudagur, desember 20, 2007

Það var jólaball fyrir krakkana í vinnunni og þar sem skólinn hjá Ingu Huld var búinn í gær þá bauð Inga Huld henni Rosie með sér. Ýmislegt var í boði og var jólasveinninn að sjálfsögðu á svæðinu og var síðan face paint, föndur, matur, sögustund svo eitthvað sé nefnt ...

mánudagur, desember 17, 2007

Það ljáðist að nefna að um helgina var jólatréið keypt, sett upp og skreytt þannig að það vantar bara pakkana undir tréið, en þeir eru reyndar á víð og dreif um húsið á hinum og þessum góðu stöðum og finnst Ingu Huld miklu sniðugra að geyma þá undir jólatrénu heldur en hér og þar ...

Tréið okkar er nú ekki alveg jafnstórt og það sem búið er að setja upp á Rockefeller Centre.


sunnudagur, desember 16, 2007

Helgin var öðruvísi að því leytinu til að Jóa var loksins, loksins komin í jólafrí og þurfti nú ekki að læra!! Ég og Jóa byrjuðum því á því að fara bara tvö út á föstudagskvöldið eftir vinnu þar sem það þurfti að kaupa jólagjöf fyrir suma ... fengum okkur svo sænskan og jólalegan kvöldmat á Aquavit á leiðinni heim. Laugardagurinn var svo notaður að miklu leyti í afslappelsi en við fórum þó aðeins út að versla og komum við á Farmers markaðnum meðal annars á Union Square ... erum nú byrjuð að kaupa mjólkina þar milliliðalaust frá Ronnybrook í glerflöskum og ég er ekki frá því að hún bragðist betur en önnur mjólk í pappa- eða plastumbúðum. Á sunnudagsmorgninum dröslaði ég mér svo eldsnemma á fætur fyrir allar aldir til að hitta tvo íslenska félaga á írskum bar til að horfa á Liverpool-ManUtd fótboltaleik sem byrjaði kl. hálfníu ... úti var rok, rigning, slabb, skaflar og hálka þannig að veðurfærið var nú ekki beysið ... hápunktur leiksins var írski morgunmaturinn. Stelpurnar byrjuðu jólabaksturinn og er nú orðið ansi jólalegt heima í öllu jólaskrautinu, jólaljósunum og kökuilminum ... við erum einnig byrjuð á Mince Pie´unum frá Harrods sem bragðast alveg meiriháttar og við keyptum meira að segja líka Stollen en Sainsbury´s stollenið slær sko heldur betur út þetta stollen úr Whole Foods. Helgin endaði á jólaglöggi hjá Sigga þar sem margt var um manninn ... þar var jólaglögg í lítratali í orðsins fyllstu merkingu þar sem einn þrjátíu lítra pottur og annar fjörutíu lítra pottur voru fullir af veigunum (seinna um kvöldið voru þeir tómir og einhverjir aðrir fullir en þá vorum við löngu farin sem betur fer ...) ... einnig komu allir með smávegis kræsingar með sér og bættum við heimabökuðum smákökum í sarpinn ... meiriháttar flott og rosalega gott. Inga Huld hitti meira að segja Söndru og Unni og leiddist því ekki dvölin í glögginu.

cheers

miðvikudagur, desember 12, 2007

Inga Huld spilaði á píanótónleikum í BIS í síðustu viku ... var þar afrakstur haustsins sýndur og fannst mér bara vel til takast eftir einungis þriggja mánaða lærdóm á píanói.

sunnudagur, desember 09, 2007

Skellti mér út eina ferðina enn og grillaði ... hitastigið var sosum ágætt eða um 5 gráðurnar. Rib-eye var fyrir valinu einsog svo oft áður en nú var bætt um betur og settum við ristaðar paprikur og geitaost ofan á steikina síðustu mínúturnar á grillinu ... tókst það mjög vel og var fín tilbreyting!

laugardagur, desember 08, 2007

Fengum góða sendingu að heiman í gær sem innihélt slatta af jólapökkum og ýmsu góðgæti til að gera jólin íslensk. Bjössi flugmaður var á ferðinni og dugði ekkert minna en ein cargo vél ... við gátum líka sent eitt og annað á klakann, t.d. leðurjakkann hans Óla sem hann hefur eflaust saknað mjög mikið síðan hann var hérna fyrir mörgum vikum! Buðum kappanum í staðinn útað borða fyrir ómakið á Turkish Kitchen sem klikkar ekki frekar en fyrri daginn.

þriðjudagur, desember 04, 2007

Nýlega fengum við nýja skenkinn okkar loksins loksins afhentan eftir rúmlega sex mánaða bið sem var farin að ílengjast ískyggilega. Það var nú ekki einfalt mál að ljúka málinu þar sem flutningamennirnir neituðu fyrst að halda á öllum níu kössunum upp allar fimm hæðirnar og kröfðust aukagjalds þar sem þetta myndi taka þá tvö klukkutíma ... viku seinna komu þeir aftur á svæðið og greiddum við aukalega um tvöhundruð dollara fyrir ómakið og voru þeir farnir eftir ca tuttugu mínútur. Daginn eftir átti síðan að koma maður til að setja herlegheitin saman en mér fannst nóg komið af einhverju rugli og settum við skenkinn sjálf saman sem tók eina góða kvöldstund ... allavega er hann glæsilegur á að líta og er gott að vera búið að koma ýmsum eldhúsáhöldum og leirtaui inní lokaðan skáp. Ivar hillurnar koma þó enn að gagni og voru þær settar upp og geyma nú allt mögulegt sem geyma þarf og ekki má henda ...

sunnudagur, desember 02, 2007

Það hefur kólnað hér í New York borg, hitastigið búið að vera nálægt frostmarki í vikunni og í morgun vakti Inga Huld okkur með látum og sagði að það væri að snjóa!! Það snjóaði bara talsvert og náði ca 2 centimetrum áður en það fór að bráðna og var svo að mestu horfið í kvöld. Ég og Inga Huld brugðum okkur í húsmóðurhlutverkið þessa helgina þar sem Jóa er á fullu að fínpússa fyrir lokaskilin á þessari önn ... keyptum við því kökumix og bökuðum gula köku, settum á súkkulaðikrem og höfðum þeyttan rjóma með ... bættum síðan um betur í dag í tilefni snjókomunnar og hituðum ekta súkkulaði ... alltaf gott að bæta dáldið af hitaeiningum utan á sig. Við héldum okkur að mestu innandyra þar sem Inga Huld náði sér í smá hóst- og kvefvírus ... notuðum tækifærið og byrjuðum að jólaskreyta eilítið og spiluðum 100 jólalög. Sá að jólatrésalarnir eru byrjaðir að koma sér fyrir þannig að jólastemningin er að leggjast yfir allt saman hérna.

cheers

sunnudagur, nóvember 25, 2007

Inga Huld vann innistæðu hjá D´Agostina þar sem kalkúnateikningin hennar fékk fyrstu verðlaun. Hún gat nú verslað sér allt sem hana langaði til ... oreokex, nammi, ís, morgunkorn o.s.frv. Rosa flott hjá henni!!

föstudagur, nóvember 23, 2007

Black Friday

Svartur föstudagur í dag og skýrist nafnið af því að daginn eftir Thanksgiving byrjar útsölutímabilið og fara búðirnar að sýna hagnað eftir tap haustsins þ.e.a.s. tölurnar snúast úr því að vera rauðar yfir í að vera svartar ... nafnið er sem sagt ekki neikvætt einsog ætla mætti í fyrstu. Ég ætlaði að dröslast í ræktina í morgun eftir að hafa belgt mig út af kalkún í gær en þar var auðvitað lokað ... fékk mér því smávegis göngutúr uppá 5th til að athuga stemmninguna. Viti menn, fyrir klukkan sjö um morguninn var slatti af fólki á ferli og komið með verslunarpoka úr H&M og Armani ... kíkti inní eina búð sem var búin að vera opin frá klukkan 5 og var mikið stuð þar á fólki, músíkin í botni og allt á fullu!!

Ég hætti síðan snemma í vinnunni þar sem markaðirnir lokuðu klukkan tvö og hitti stelpurnar. Við kíktum aðeins á útsölurnar og gátum græjað eina jólagjöf. Fengum okkur kvöldmat á Fransk-Bavarian Brasserie sem er nálægt okkur. Þeir eru búnir að stútfylla staðinn af jólaskrauti og er alltaf fullt af fólki þar einnig. Fannst við hæfi að fara á jólalegan stað og hlusta á jólalög á meðan borðað var vínarsnitsel ...

Inga Huld á 5th Avenue fyrir utan glæsilega jólaskreytta Cartier búðina.

fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Happy Thanksgiving!

Við kíktum aftur á skrúðgönguna þetta árið og var veðrið töluvert betra heldur en í fyrra þegar það rigndi látlaust. Núna var sól og blíða með 15 stiga hita ... enda var líka töluvert meira af fólki að horfa. Skrúðgangan leit út fyrir að vera mjög flott - við sáum nokkrar risablöðrur svífa hjá og vakti Shrek mikla lukku hjá áhorfendum. Nenntum ekki að vera lengi í mannmergðinni og fórum heim og fengum okkur sveppasúpu ...

Um kvöldið fórum við í þakkargjörðarmáltíð til Sigurgeirs og fjölskyldu þar sem Elín var búin að töfra fram kalkúna með öllu tilheyrandi að amerískri venju. Það var því heldur betur hægt að belgja sig út og auðvitað var pumpkin pie í desert!

sunnudagur, nóvember 18, 2007

Það var kominn tími á steik þessa helgina ... það var girnileg og einföld uppskrift í nýju bókinni hans Jamie Olivers, "Jamie at Home". Trixið samkvæmt Jamie þegar eldað er Ribeye er að taka dáldið af fitunni sem er í miðjunni og dreifa því um kjötið með því að þrýsta litlum bitum af því hér og þar inn í kjötið ... þannig verður kjötið safaríkara og bragðbetra. Kjötið var síðan kryddað með olíu, salti, pipar og rósmarínstönglum og á grillinu var það penslað reglulega með olíu, sítrónusafa og rósmarín ... grillaði úti og lét 5 stiga hitann ekki á mig fá. Með þessu var borið fram Rocket og grillaðar kartöflusneiðar kryddaðar með olíu, rósmarín og sage. Kom mjög vel út og verður að segjast að kjötið var mjög bragðgott og safaríkt! Fengum okkur í desert Pecan pie með Haagen Dazs vanillu ís.

cheers

laugardagur, nóvember 10, 2007

Skráðum okkur í "car sharing" hjá ZipCar og notuðum okkur þessa þjónustu núna í fyrsta skipti. Dáldið sniðugt apparat og virkar þannig að bílar eru geymdir í bílageymslum víðsvegar um borgina og er t.d. ein 2 götur frá okkur. Hægt er að panta bíla á netinu og er lágmarkstími 1 klukkutími ... þetta er því mjög þægilegt ef það á að snattast eitthvað. Við skráningu fengum við kort sem er notað til að opna bílinn sem pantaður hefur verið og eru lyklarnir til reiðu í bílnum. Það er hægt að panta ýmsa bíla og við notuðum tækifærið og prófuðum Mini Cooper sem var mjög skemmtilegt að keyra. Fórum til New Jersey þar sem okkur langaði í nokkrar búðir og komum einnig við í IKEA og keyptum eitt og annað eins og skrifborðsstól fyrir Ingu Huld og piparkökur ...

sunnudagur, nóvember 04, 2007

Jæja, það kom að því ... það styttist sem sagt í jólin ... hér er ekkert verið að slóra við þetta í búðunum þar sem að um leið og Halloweenskreytingarnar eru teknar niður þá eru jólaskreytingarnar settar upp og jóladiskurinn í græjurnar ... mér fannst einsog ég hefði misst einn mánuð úr og það væri 4. desember en ekki 4 nóvember ...

Við græddum einn klukkutíma í nótt þar sem klukkan var færð aftur um einn tíma ... er þá fimm tíma munur nú til Íslands ... það var skrítið þegar við löbbuðum heim rétt rúmlega fimm í dag og það var farið að myrkva ...

laugardagur, nóvember 03, 2007

Inga Huld tók þátt í dag í Kids Charity Fun Run til að safna pening fyrir Ronald McDonald House ... í Central Park voru samankomnir krakkar af öllum aldri úr flestöllum skólum New York borgar. Mikið skipulag var á svæðinu og hljóp hver aldur fyrir sig - Inga Huld í sjö ára hópnum hljóp fjórðung úr mílu og fannst þetta skemmtilegt en samt erfitt.

miðvikudagur, október 31, 2007

Halloween

Inga Huld var klædd sem hvít norn í dag í skólanum þar sem haldið var uppá Halloween ... þar fengu þau "goodie bag" og farið var í skrúðgöngu. Um kvöldið fórum við síðan út í smá trick or treat, fengum okkur hamborgara á Shakeshack sem klikkar ekki (líklega síðasti hamborgarinn hér þetta árið þar sem það er farið að kólna) og kíktum síðan á Halloween Parade sem kom upp 6th Avenue frá Spring street til 23rd. Margir skemmtilegir og flottir búningar og alls konar hugmyndaríki í gangi. Drösluðumst síðan heim um níuleytið og vorum þreytt eftir langan Halloween dag.


mánudagur, október 22, 2007

Vorum dáldið menningarleg á laugardagskvöldið og fórum á Carmen hjá City Opera í Lincoln Center. Þrælskemmtileg ópera og var hún léttari heldur en La Boheme þrátt fyrir að endirinn hafi að sjálfsögðu verið mjög sorglegur. Fyrir óperuna var Jóa búin að bóka borð fyrir tvo á Restaurant Daniel sem var súper! Franskur staður var valinn þar sem ekki er gott að vera of saddur í óperunni en það var engin leið að stoppa þjóninn í að bera fram réttina ... þrátt fyrir að hafa barað pantað 3 rétti hvort okkar þá enduðum við á að fá einn aukaforrétt og 2 aukadeserta. Ameríkaninn ber fram risastóran rétt sem þú springur af en Frakkinn ber fram marga litla rétti í þig þangað til þú springur ...

Gærdagurinn var vel skipulagður í tilefni dagsins! Byrjuðum á brunch á Pastis sem er franskt bistro í Meatpacking, fengum okkur síðan göngutúr í blíðunni, sem er búin að vera ótrúleg undanfarna daga, meðfram Hudson River og fórum svo í keilu í Chelsea Piers áður en við röltum yfir í Chelsea Market sem við þekkjum svo vel núna eftir matargöngutúrinn mikla þar. Keyptum okkur gelato hjá íssalanum og nautafillet hjá Frank´s til að grilla í kvöldmatinn. Þegar heim var komið þá var hrært í köku sem var uppáhaldsmarengstertan mín en með góðu ívafi í þetta skiptið frá hr Oliver ... ekki amalegt!

laugardagur, október 20, 2007

Daniel

Þessi frábæri franski staður hans Daniel Boulud, staðsettur á 60 E 65th milli Park og Madison, er vel þess virði að fara á. Einn af þeim bestu sem við höfum farið á, með afbragðsþjónustu og ýmsum serimóníum einsog t.d. var komið með sér koll fyrir handtöskuna hennar Jóu og jakki er skilyrði og mælt með bindi fyrir herra. Staðurinn hefur alveg efni á því að vera með smávegis stæla þar sem maturinn eru magnaður. Ég fékk mér frábæra squash súpu í forrétt sem er haustréttur og var hún það góð að ég held að ég hafi vöknað aðeins um augun. Aðalrétturinn var lund, cheeks og lifur af mjólkurkálfi sem var alveg eðal ... í mínum huga alveg ekta franskt. Fiskurinn er ekki síðri þar sem Jóa fékk frábæran Sea Bass. Fyrir matinn og milli rétta var sífellt verið að koma með litla rétti þannig að við vorum í raun með 7-8 rétti til að borða og var hver öðrum ljúffengari. Desertúrvalið er frábært, í boði eru tveir listar, einn sem er með ávöxtum og annar með súkkulaði. Það má til dæmis nefna Upside Down Souffle og Apple Confit með mjúkri karamellu.

Daniel er einn af fjórum stöðum í New York með tvær Michelin stjörnur og á þær svo sannarlega skilið. Gef honum 5 stjörnur þar sem allt var perfect!

Versluðum ferskt grænmeti úr nærliggjandi sveitum New York borgar á farmers market á Union Square. Mjög flottur markaðurinn núna og mikið úrval þar sem nú er uppskerutíminn. Fundum einnig Halloween skreytingar og er nóg af graskerum í öllum stærðum og gerðum víðs vegar um borgina.

miðvikudagur, október 17, 2007

Í kvöld var eldað hér heima í fyrsta skipti í eina viku ... take-out og út að borða hefur verið þemað. Nýgiftu brúðhjónakornin sneru aftur heim til sín í gær og virtust ánægð (vonandi ...) með ferðina ...

Við fengum aðeins að vera með þeim nýgiftu og á föstudeginum fórum við á þrælskemmtilega tónleika með portúgölsku fado söngkonunni Marizu sem haldnir voru í Carnegie Hall ... mjög skemmtilegt að koma í þennan stórglæsilega og sögufræga sal. Laugardagskvöldið var svo djammkvöldið og var byrjað á kokteil á Gramercy Hotel fyrir matinn sem var á Buddah Bar í Meatpacking ... eftir matinn lá leiðin á þakbarinn/klúbbinn á Hotel Gansevoort sem er staðsett handan hornsins og gátum við fengið okkur dáldið af kampavíni þar ... sosum ekki amalegt. Mikið fjör langt frameftir nóttu og náðum við rétt að rífa okkur á fætur fyrir hádegi á sunnudagsmorgninum til að drífa okkur í matargöngutúr um Chelsea Market og svæðið þar í kring í Meatpacking sem var einmitt þar sem við vorum kvöldið áður ... göngutúrinn var mjög sniðugur og fengum við að borða og smakka eitthvað í annarri hverri búð þannig að maður var vel mettur.

cheers

miðvikudagur, október 10, 2007

Komum heim í gær eftir góða ferð til Íslands. Mikið var gert í því að keyra á milli staða og fá eitthvað gott að borða ... alltaf gott að sækja góða heim!! Við komumst einnig í partý og á laugardagskvöldinu var frábært brúðkaup hjá Elvu og Óla þar sem dansað var frameftir rauðri nóttu undir góðu spili og tjútti hjá ýmsustu tónlistarmönnum sem tróðu upp. Núna eigum við svo einmitt von á nýgiftu brúðhjónunum í brúðkaupsferð til New York ... búið er að reyna að gera allt sæmilega huggulegt en við klikkuðum þó á súkkulaðibitunum á koddana ...

föstudagur, október 05, 2007

Þá erum við mætt á klakann í rigningu og 5 gráður ... það var kuldalegt um að litast á Keflavíkurflugvelli í morgun og leið okkur einsog það væru að koma jól þar sem við vorum með nokkrar jólagjafir með okkur í töskunum og erum ekki vön að ferðast hingað á haustin fyrr en um jólin. Það er þó alltaf gott að koma heim í góða og fríska loftið !!

sunnudagur, september 30, 2007

Enn ein helgin sem notuð var til rólegheita og afslappelsis ... við þurftum þó aðeins að dressa okkur upp fyrir Íslandsferðina um næstu helgi, sumir fengu kjól og aðrir hlýja peysu ... ég og Inga Huld hlupum/hjóluðum niður að Brooklyn Bridge, vorum ekki á svo góðum tíma núna þar sem við tókum nokkra útúrdúra á leiðinni til að breyta aðeins til ... einnig fórum við í bíó og sáum The Gameplan með Rock, var hún bara glettilega skemmtileg og alveg hægt að hlæja öðru hvoru að henni. Grilluðum okkur ljúffenga nautalund í gærkvöldi ... um að gera að nota grillið áður en það verður of kalt, hitastigið er nefnilega að detta niður fyrir 20 gráðurnar hér ...

cheers

þriðjudagur, september 25, 2007

Skelltum okkur á tónleika með Björk í Madison Square Garden þar sem hún spilaði fyrir nánast fullum sal í stóru höllinni sem tekur hátt í tuttugu þúsund manns. Vorum mætt á svæðið rétt rúmlega átta og tókum með okkur sushi á leiðinni til að borða í kvöldmatinn ... Björk byrjaði ekki fyrr en klukkan tíu þannig að við þurftum að hlusta í misskemmtileg upphitunarbönd á meðan biðinni stóð. Tónleikarnir voru stórskemmtilegir og stóð fólk nærri allan tímann og dansaði og söng á meðan hún spilaði í tvo klukkutíma. Lögin voru mjög fjölbreytt og ýmis þeirra sem við höfum ekki heyrt áður sem er kannski ekki skrítið þar sem við höfum ekki keypt nýju plötuna Volta en það er núna komið á dagskrána. Einni var showið flott og voru smávegis sjónhverfingar, ljósashow og bombur notaðar til að bæta stemninguna. Okkur fannst orðið tímabært að við færum á tónleika með frægustu persónu Íslands þar sem eitt af því fáa sem margir þekkja um Ísland er að þaðan er Björk.



cheers

sunnudagur, september 23, 2007

Helgin hjá okkur var róleg þar sem Jóa þurfti að læra mikið. Það hefur hlýnað aftur hjá okkur og er loftkælingin komin aftur í gang þar sem hitastigið er farið að nálgast þrjátíu gráðurnar aftur og er spáð hlýju og góðu veðri út þessa viku. Ég var farinn að fara í jakkafatajakkanum í vinnuna þar sem það var orðið dáldið svalt á morgnana í síðustu viku en líklega fær hann að vera heima næstu vikuna ...

Við kíktum þó aðeins í nokkrar búðir í Soho í gær og fundum meðal annars Soy bean paste í asískri sérvörubúð sem samkvæmt uppskrift Jamie Olivers er notað til að gera Miso paste sem er síðan notað til að marinera hinn rómaða og margsnædda Black Cod ... ég sá nefnilega svartan þorsk í fiskborðinu hjá Whole Foods um síðustu helgi og keypti þar sem hann er ekki oft til ... okkur hefur nefnilega lengi langað til að búa til þennan rétt sjálf frá grunni. Fyrir nokkrum vikum sáum við Miso marineringu sem við prófuðum á seabass frá Chile og bragðaðist það vel en var ekki nógu líkt orginalnum. Þar sem fiskurinn þurfti 24 tíma í mareneringunni þá var ekki hægt að hafa þennan rétt í laugardagsmatinn heldur keypti ég kálfa-rifjasneiðar ... um síðustu helgi sá ég kálfa-tbone en lagði ekki í að kaupa þá en núna skellti ég mér á rifjasneiðarnar, við marineruðum þær aðeins í olíu og tarragon samkvæmt uppskrift úr Larousse Gastronomique og grillaði ég þær uppi á grillinu í 14 mínútur ... með þessu voru svo ofnbakaðir kartöflubitar og salat og boðið var uppá kalt rósavín með sem okkur fannst við hæfi með kálfakjöti. Þvílíkt nammi ... kálfakjötið var svo mjúkt og ljúffengt undir tönn að það var einsog hin besta lund ... reyndar dáldið feitt en það var af því að rifjasneiðarnar eru líkar rib-eye´inu. Í desert var síðan heitt Farmer´s Apple Pie sem við fengum á markaðnum á Union Square og bárum við fram léttan vanillu Haagen Daz ís ... mjög gott þar sem eplauppskerutíminn er genginn í garð þá er mikið af uppskeru núna frá nálægum bændum. Við sulluðum svo saman Miso marineringunni sem þurfti að sjóða með sake og fleira ílæti og lögðum þorskinn í marineringuna sem mátti svo bíða til sunnudagskvölds.

Í dag gátum við keypt nokkrar afmælisgjafir og ég og Inga Huld fórum í nótna og músíkbúð, Colony, þar sem við þurftum að kaupa píanóbækur fyrir Ingu Huld vegna þess að hún er byrjuð að læra á píanó í skólanum sínum ... mjög skemmtileg búð sem virtist eiga allar mögulegar nótnabækur sem manni gæti vantað. Ég hljóp svo túrinn okkar en Inga Huld vildi vera heima þar sem það var tea party picknic hjá dúkkunum hennar ... mér tókst að bæta tímann okkar um 6 mínútur og var sem sagt 68 mínútur á leiðinni ... það sem flýtti dáldið fyrir var að núna þurfti ég ekki að stoppa við umferðargötuljósin og leiða hjólið yfir fyrir Ingu Huld og bera það yfir göngubrúnna yfir FDR ... líklega hef ég ekkert bætt hlaupatímann sjálfan en var þó nokkuð ánægður með árangurinn. Það var náttúrulega alveg ákveðið hvað átti að vera í matinn í kvöld, allt saman að forskrift Jamie´s ... gufusoðið Pak Choi og agúrkur ásamt Black Cod. Þetta bragðaðist mjög vel og var þorskurinn mjúkur og safaríkur og vel hægt að borða með prjónum ... við vorum þó ekki alveg 100% ánægð með árangurinn, líklega ekki nema svona 75% en lærðum heilmikið af reynslunni og ætlum að betrumbæta þetta næst t.d. á að reyna að nota hvítvín en ekki sake næst og reyna að þynna marineringuna meira þar sem hún var mjög bragðsterk.

cheers

laugardagur, september 15, 2007

I Trulli

Okkur langaði í gott pasta í kvöldmatinn og leist vel á að prófa stað í nágrenninu á 27th milli Park og Lex. Staðurinn er með formlegan veitingastað og einnig huggulegan vínbar við hliðina og hinum megin vð götuna er vínbúð eingöngu með ítölsk vín. Við byrjuðum á því að deila anda-prosciutto með þurrkuðum fíkjum ... sem betur fer fengum við okkur bara einn forrétt þar sem skammturinn var vel stór. Við fengum okkur síðan pasta og risotto og bragðaðist það mjög vel. Tiramisu og gelato í desert var síðan vel við hæfi. Þægilegur og góður staður sem við eigum eflaust eftir að stoppa við á aftur ... gef honum fjórar stjörnur.
Í gærkvöldi fórum við í partý yfir til New Jersey ... þetta var heljarinnar ferðalag og þurfti að taka ferju sem var nú bara skemmtilegt þar sem hægt var að sjá ljósadýrðina á Manhattan á meðan siglt var yfir. Við dvöldum ekki of lengi þar sem Jóa þurfti að halda áfram lærdómnum í dag. Ég og Inga Huld fórum enn einu sinni niður að Brooklyn Bridge og settum nýtt met sem var einn klukkutími og fjórtán mínútur. Síðan þar sem ég nennti ekki að elda kvöldmat þá var fórum við út að borða á ítalskan hér í nágrenninu sem var bara mjög góður. Eftir matinn kíktum við í Macy´s og gátum við verslað eitt og annað.

miðvikudagur, september 12, 2007

Insieme

Þessi staður opnaði nýlega á Times Square á 7th Avenue milli 50th og 51st. Kemur í rauninni á óvart að finna flottan, modern ítalskan stað hér þar sem flest er ofur-amerískt og stílað inná túristann. Sömu eigendur eru með Hearth sem er einnig ítalskur staðsettur í Lower East Village á 12th, ekki svo langt frá okkur. Við báðum þjóninn að setja saman matseðil fyrir okkur og stóð hann sig vel í því, einnig skemmtilegt að mörgum réttunum er hægt að deila. Til að byrja með fengum við kálfapate og Fish Crudo sem samanstóð af bass, yellowfin tuna og white tuna. Í millirétt var Potato Gnocchi og Ravioli di Spinaci et Ricatta ... bæði var mjög gott og mæli sérstaklega með þessum tveimur réttum. Eftir þetta var borin fram svínalund og Piemontese t-bone steak sem var mjög mjúk og safarík, jafnvel betri en á mörgum steikhúsunum. Ég hafði því miður ekki mikla lyst á desert eftir allar þessar kræsingar en það var þó látið vaða á ricotta og appelsínu ostaköku, nokkra Bombolonis og að sjálfsögðu smávegis Gelato með. Mæli sterklega með staðnum og kemur hann verulega á óvart miðað við staðsetninguna ... líklega mjög gott að fara þarna fyrir söngleik eða leikhús. Ég gef staðnum fjórar og hálfa stjörnu.

sunnudagur, september 09, 2007

Það var stefnt á stóran brunch í dag með fullt af fólki ... við pöntuðum borð í kjallara Blue Water Grill fyrir 13 manns þar sem live djazz músík var í gangi, sem sagt jazz brunch. Á svæðið mættu, Gísli, Habbý, Sveinn, Sigurgeir og fjölskylda ásamt þeirra gestum. Brunchinn heppnaðist vel og var staðurinn góður. Við fengum svo Gísla og Habbý í heimsókn seinnipartinn og fengum við okkur bjór, hvítvín og heilsusamlegt snakk uppi á palli ... þau tóku svo pakkann leyndardómsfulla með sér í sérflutning ...

Hér er annars búið að vera hrikalega gott veður í gangi ... stöðugt glampandi sól og yfir þrjátíu stiga hiti ... nú er spáð að það eigi að fara að detta niður í tuttuguogeitthvað gráður sem verður bara frískandi og gott.

cheers
Blue Water Grill

Blue Water Grill er á 16th og Broadway alveg við Union Square og hefur okkur oft fundist girnilegt að setjast þarna niður þar sem þeir eru með borð úti. Eigandi þessa staðar á einmitt líka Dos Caminos ásamt fleiri stöðum þannig að við þekktum aðeins til. Okkur datt í hug að það gæti verið sniðugt að fara hér í jazz brunch þegar við vorum spurð hvort að það væri einhver áhugaverður staður sem við vissum um. Matseðillinn býður upp á mjög áhugaverðan brunch þar sem við sáum suma fá sér kampavín og ostrur en það var ekki alveg það sem ég var allavega að leita að ... af löngum lista af ommelettum fékk ég mér Farmers´ Market Egg White Omelette með kalkúnabeikonu og tómatasalsa sem bragðaðist mjög vel, Jóa fékk sér mjög góða Open Face Potato Omelette og Inga Huld fékk sér Strawberry & Mascarpone French toast sem bragðaðist einsog nammi ... það sem virtist þó vekja lukku á borðinu var Filet Mignon Benedict með Hollandaise sósu, leit vel út og get ímyndað mér að hafi bragðast vel. Síðan var í boði alls konar skelfiskur, sushi, sashimi og að sjálfsögðu kavíar ... það var því hægt að belgja sig út. Góður brunch í skemmtilegu umhverfi með frábærum live jazz ... allt í lagi að koma hér ... fær 4 stjörnur.

laugardagur, september 08, 2007

Hittum í gærkvöldi Gísla, Habbý og Svein á Jewel Bako sem er ofboðslega góður sushi staður í Lower East Village. Annað skiptið sem ég kem þangað og Chef´s Omakase Tasting Menu klikkaði ekki ... fórum svo á þakgarðsbarinn á Hotel Gansevoort í Meatpacking district þar sem við sátum úti í góðu yfirlæti frameftir nóttu.

Vorum því ekkert alltof hress í morgun en Jóa þurfti þó að læra ... einsog alltaf ... og svo drifum við okkur út í göngutúr á Upper East Side þar sem við þurftum að ná í kjól fyrir vinkonu Jóu sem á að fá far heim á mánudaginn ... lúxusheimsendingarþjónusta fyrir þá sem þurfa fötin sín frá Manhattan :-) ... Ég og Inga Huld skelltum okkur svo í hjóla/hlaupa túrinn okkar ... náðum ekki metinu okkar frá fimmtudeginum sem var 1 klukkutími og 17 mínútur ... vorum þó einungis þremur mínútum lengur sem mér fannst í rauninni ekki svo slæmt miðað við þreytleikann eftir gærkvöldið. Pöntuðum okkur svo bara dominos í kvöldmatinn ... voða þægilegt að panta bara á netinu, þarf ekki að tala við neinn eða svoleiðis og er síðan þeirra háþróuð þar sem hægt er að velja hvort maður vill áleggið á vinstri eða hægri hliðina eða þá báðar hliðarnar og hvort það eigi að vera í litlu, miklu eða passlegu magni. Var ekki alveg að treysta því að þetta myndi virka en þetta gekk allt saman upp og fengum við pizzuna fljótlega.

mánudagur, september 03, 2007

Eldsnemma í gærmorgun var tekinn leigubíll út á LaGuardia þar sem við áttum pantaðan bílaleigubíl ... ákveðið var að taka convertible til að spóka sig aðeins á í blíðunni. Leiðin lá fyrst í út á Long Island í IKEA ... við lifum svoooo spennandi lífi hérna ... þar sem það vantaði hillur og þvíumslíkt fyrir prinsessuna á heimilinu. Það var nefnilega pantað skrifborð fyrir skvísuna sem hún fékk í afmælisgjöf í sumar og styttist í að það komi ... þarf því að gera dáldið huggulegt í kringum það. Eftir þetta var stefnan tekin í norður í áttina að ströndinni þar sem við hittum Íslendinga í sveitinni ... dóttir þeirra Brynja var með Ingu Huld í íslenskuskólanum og náðu þær vel saman ... það var mikið fjör hjá okkar stelpu sem fékk að hoppa á trampólíni, synda í sjónum, leika sér í sandinum og safna tonni af steinum sem þurftu einhverra hluta vegna allir að fara svo uppí hillu sem skraut ... það var gott að fá að sprikla dáldið áður en skólinn byrjaði ... síðan var grillað í sveitasælunni og vorum við komin heim rétt fyrir miðnættið í skarkalann í borginni. Þá var búið að loka bílaleigunni þannig að við fundum stæði og lögðum bílnum og vonuðum að hann yrði í heilu lagi daginn eftir ...

Þar sem ég mátti hafa bílinn síðan til klukkan 10 í morgun þá var rokið enn einu sinni eldsnemma á fætur í fríinu til að taka rúntinn um Manhattan. Með blæjuna niðri og Ingu Huld að frjósa í aftursætinu í rokinu þá keyrðum við upp Madison til 112th strætis þar sem við beygðum yfir á Central Park West og keyrðum hana sem leið lá niður á Columbus Circle ... vorum við þá komin hringinn í kringum Central Park ... mér hefur alltaf verið sagt að Columbus Circle sé eina hringtorgið á Manhattan en ég hefði samt haldið að ég hafi lent á hringtorgi uppi í norðvesturhorni Central Park. Við keyrðum svo niður Broadway í gegnum Times Square og enduðum á Union Square þar sem við gátum skilað bílaleigubílnum ... mjög skemmtilegur rúntur.

Jóa þurfti svo að læra og fara í skólann seinni partinn þannig að ég og Inga Huld skelltum okkur einu sinni enn leiðina okkar niður að Brooklyn Bridge ... hún á hjólinu og ég á tveimur jafnfljótum. Vorum núna 15 mínútum fljótari en á fimmtudaginn þannig að framfarirnar voru sæmilegar ... Inga Huld sparaði sig á leiðinni niður að brúnni en svo á leiðinni tilbaka þá setti hún upp "race" þar sem við þurftum reglulega að keppa á milli tveggja ákveðinna staðarleita. Vann Inga Huld 5 sinnum, ég 2 sinnum og gerðum við 2 jafntefli ... var Inga Huld því champion og vann the big cup ... vegna þessa kappsemi þá vorum við töluvert fljótari á heimleiðinni og var engin miskunn!!

laugardagur, september 01, 2007

Það er löng helgi hjá okkur núna ... Labor Day weekend hefst á hálfum degi á föstudegi þ.e.a.s. markaðurinn lokar klukkan tvö og svo er Labor Day sjálfur á mánudaginn og þá er frí. Við byrjuðum þessa helgi, sem er ein mesta ferðahelgi ársins með tilheyrandi töfum og vitleysu á flugvöllum og hraðbrautum, með því að bjóða Sigurgeiri og fjölskyldu í mat ásamt Sigga skyrframleiðanda í gærkvöldi. Við grilluðum ribeye á beini sem lukkaðist stórvel að því mér finnst og pavlovan í desert klikkaði ekki ... skemmtum okkur konunlega frameftir nóttu og fannst Ingu Huld gaman að fá stelpurnar í heimsókn til að leika við.

Vöknuðum ekkert alltof hress í morgun en drösluðumst út eftir brunch og fór Inga Huld á scooternum og sýndum við mömmu gönguleiðina niður að Brooklyn Bridge ... fórum aðeins lengra í þetta skiptið eða alveg niður að Pier 17 og gátum að sjálfsögðu fundið Haagen Dazs búð þar sem hægt var að fá sér hressingu. Planið var svo að labba inn á Wall Street og taka metro heim en Inga Huld fékk þá hugmynd að fara bara sömu leið tilbaka þannig að úr varð heljarinnar göngu- og scootertúr. Grilluðum okkur svo kalkúnaborgara í kvöldmat og snæddum uppi á palli í blíðunni ...

cheers

fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Skólinn hjá Jóu er að byrja en Inga Huld byrjar ekki fyrr en í næstu viku og hlakkar mikið til. Það hefur því verið feðginatími hjá mér og Ingu Huld ... í gær löguðum við til hjólið hennar sem hefur ekki verið notað lengi, hækkuðum hnakkinn og stýrið, pumpuðum í dekkin og þurrkuðum af því rykið ... svo fékk ég scooterinn hennar lánaðan og við skelltum okkur út. Það var dáldið erfitt að hjóla fyrst en svo kom þetta allt saman og var það svipuð saga hjá mér, dáldið erfitt að höndla þennan scooter til að byrja með svo að vel færi en svo var ég orðinn ansi lunkinn. Við höfðum ekkert takmark í sjálfu sér og áður en við vissum af þá vorum við komin niður að Williamsburg bridge ... þannig að þá var stefnan að sjálfsögðu sett á Manhattan bridge og þegar þangað var komið þá var náttúrulega ekkert annað en að fara að Brooklyn bridge. Það er einmitt góð leið til að muna í hvaða röð brýrnar koma að neðanfrá talið er það Brooklyn, Manhattan, Williamsburg sem sagt BMW ... en það er nú aukafróðleikur. Í dag kom ég svo heim eftir hádegi og þá var að sjálfsögðu farið í annan hjólatúr nema að núna var ég á hlaupaskónum ... kominn tími til að hreyfa sig aðeins núna eftir sumarið. Það er ansi langt síðan ég hef farið út að hlaupa og þá sérstaklega í 32ja stiga hita ... það kom þó svalandi vindur af East River þannig að þetta var ekki svo slæmt. Við stefndum aftur að Brooklyn Bridge og hvöttum hvort annað áfram ... Inga Huld vildi snúa við þegar við vorum hálfnuð og svo vildi ég snúa við þegar við vorum komin 3/4 leiðarinnar þannig að á endanum komumst við alla leiðina með reglulegum hvíldum og stoppum á leiðinni ... heimleiðin var í rauninni einhverra hluta vegna styttri þrátt fyrir að vera nákvæmlega sama leiðin. Þetta ferðalag tók okkur einn klukkutíma og fjörutíuogfimm mínútur sem er ekki svo slæmt miðað við að samtals voru þetta um 6.8 mílur eða rétt tæplega 11 kílómetrar ... ágætis æfing það fyrir bæði okkur.


cheers

sunnudagur, ágúst 26, 2007

Á föstudeginum hætti ég tiltölulega snemma í vinnunni og hitti stelpurnar í bíóhúsi á Times Square þar sem við fórum að sjá Ratatouille ... skemmtileg mynd sem er alveg hægt að hlæja að. Annars gerðum við ekki mikið um helgina annað en að slappa af, njóta lífsins og borða góðan mat ... Jóa heldur áfram að útbúa nýja framandi og spennandi matrétti fyrir okkur !! Við fórum svo í góðan göngutúr í dag og röltum um Moma þar sem við skoðuðum skemmtileg verk Richard Serra. Á heimleiðinni keyptum við okkur svo japanska græn-te köku sem bragðaðist mjög vel ... við hliðina á Rockefeller Center er einmitt japanskt bakarí sem selur kökur og annað góðmeti frá Japan.

föstudagur, ágúst 24, 2007

Rosa Mexicano

Þessi rosa-legi mexikanskí staður er á 18th á milli 5th og Broadway og opnaði frekar nýlega þarna en er fyrir með tvo aðra staði á Manhattan. Staðurinn er mjög flottur og er stór bar þar sem gott er að byrja á Margaritu áður en lengra er haldið. Annars er hann mjög líkur Dos Caminos nema að matseðillinn hér er líklegra ívíð stærri og ég mæli með því að panta borð. Matseðillinn býður ekki bara uppá burritos og tacos heldur er hann mjög fjölbreyttur og býður upá marga möguleika. Einsog á Dos Caminos byrjuðum við á að fá ferska guacamole sósu, sem er útbúin við borðið, og nachos ... klikkar ekki. Í aðalrétt fengum við okkur heilsteiktan karfa sem var mjög góður og réttur sem ég taldi að væri nokkurs konar fajitas en þeir kölluðu tacos al asador ... allavega var það niðurskorin steik á pönnu og ýmis konar meðlæti með sem hægt var að setja í mjúka tacos köku. Maturinn var mjög góður og ekki var slæmt að núna var í boði aukalega í desert ísveisla sem við gátum ekki látið fara framhjá okkur. Við fengum okkur því guacamole ís sem var avocado sorbet ís létt maukaður með jarðarberjum og myntu ... yfir þetta var síðan bætt við súkkulaði sósa og með voru djúpsteiktar tacos kökur með súkkulaðimylsnu.

Staðurinn er frískur og flottur ... ekta til að fara á ef leiðin liggur á lífið, mun ekki valda vonbrigðum. Ég á erfitt með að gera upp á milli Rosa Mexicano og Dos Caminos og ef staldrað er við stutt við hér þá er nóg að prófa bara annan staðinn ... gef honum fjórar stjörnur.

miðvikudagur, ágúst 22, 2007

Herra Níels fékk nýtt dót um helgina. Hann var mjög upprifinn yfir nýja dótinu sem var mús með bjöllu á og var fest með teygju á stutta plaststöng ... nokkurs konar veiðistöng ... þetta skoppaði hann og hoppaði á eftir í smá tíma. Dótið var svo skilið eftir á gólfinu í smástund og þegar að var komið þá var Herra Níels búinn að naga músina af teygjunni ... sem og naga teygjuna af stönginni ... og það sem meira er að teygjan er horfin ... þykir líklegt að hún sé nú einhvers staðar í meltingarveginum hans.

laugardagur, ágúst 18, 2007

Þá erum við bara þrjú í kotinu aftur og er þetta fyrsta helgin síðan í júní sem við erum hér ein í rólegheitum. Jóa sýndi bræðrum sínum Manhattan, gaf þeim að borða og hugsaði vel um þá og nutu þeir dvalarinnar bara vel. Meðal annars var farið í dýragarðinn í Bronx, tívolíið og ströndina á Coney Island, frelsistyttuna, Empire State svo eitthvað sé nefnt.

Maturinn fór vel í þá og virtust hamborgararnir og nautasteikurnar fara vel í þá. Það var líka byrjað á því að grilla dry-aged Porterhouse sem sló í gegn ... í rauninni var þetta ein sú best heppnaða nautasteik sem við höfum sjálf boðið uppá. Þeir gátu líka verslað eitt og annað af fötum og raftækjum og var allt á kostakjörum. Inga Huld nýtti tækifærið að hafa rafvirkja í heimsókn og var lagt rafmagn í Playmohúsið og er nú hægt að lýsa upp öll herbergin.

fimmtudagur, ágúst 16, 2007

Butai

Við höfum séð þennan huggulega japanska veitingastað oft á leið okkar heim frá Union Square á 18th á milli Park og Irving Place og það var kominn tími til að prófa. Butai er "Robata Japanese cuisine" sem lauslega merkir grillaður japanskur matur. Það er erfitt að velja af matseðlinum úr fjölda rétta en eftir útskýringar þjónsins og sú staðreynd að verðið á hverjum rétti var ekki hátt þá kom í ljós að réttirnir eru mjög mjög litlir ... mun minni heldur en t.d. á Nobu eða öðrum japönskum stöðum þar sem ætlast er til að réttunum sé deilt einsog hér. Mikið er um grillaðan mat á teini, sushi og sashimi. Við pöntuðum slatta og prófuðum ýmislegt ... það sem stóð uppúr var túnfisk-sashimi, sushi með ál og makríl, skirt-steik og nautalund grilluð á teini, önd, lambakótilettur, risarækjur, quail egg og túnfiskrúllan. Það sem olli einna helst vonbrigðum var að soft shell crab var ekki uppá sitt besta þarna ... mæli með því að sleppa honum. Þjónninn stóð sig einnig miður vel, talaði illa ensku og var lengi að koma með drykkina ... ekkert er hægt að kvarta yfir matnum og held ég að við höfum einfaldlega verið óheppin með þjón, líklega var hann nýr. Þetta er ekta staður til að sitja á lengi og drekka gott sake og borða rólega mikinn fjölda af mjög góðum smáréttum á alveg ágætis verðlagi - ég gef þessum fjórar og hálfa stjörnu.

mánudagur, ágúst 13, 2007

Keens Steakhouse

Við höfðum fyrir því að finna nýtt steikhús til að fara á og fundum Keens Steakhouse, á 36th milli 5th og 6th, eða Keens Chophouse einsog stendur utan á staðnum og leit afskaplega vel út. Staðurinn er frá 1885 og er frá þeim tíma þegar leikhúshverfið var á þessu svæði. Fram til 1901 var staðurinn einungis fyrir karlkynið þangað til bresk leikkona lögsótti þá fyrir að meina sér aðgöngu. Staðurinn býður uppá formlegan veitingastað þar sem panta þarf borð en hluti af barnum er einnig með sama matseðil og veitingastaðurinn og þar er borðum úthlutað á "first come, first serve basis". Loftið á staðnum er fyllt gömlum pípum og var það þannig áður fyrr að menn geymdu pípurnar sínar á stöðunum og þjónarnir sóttu síðan pípuna sem maður átti. Það er einkar skemmtileg steikhúsastemning á staðnum og maturinn er fyrsta flokks. Sjálfur fékk ég mér "Keens legendary mutton chops" sem var hálfur lambahryggur af 10 mánaða gömlu lambi ... mjög gott og held ég að ég hafi ekki prófað svona "gamalt" lamb áður, en kjötið af því var aðeins grófara heldur en af því sem ég hef prófað áður. Nautalundinni er hægt að mæla með og er fyrsta flokks! Ef kjöt fellur ekki í kramið þá eru nokkrir sjávarréttir í boði og fengum við okkur risarækjur líka sem voru mjög ljúffengar. Það var lítið pláss fyrir desert en þó var pantaður ís með heitri súkkulaðisósu og rjóma þ.e. hot fudge sundae og berjatart. Desertinn var ekki jafngóður og aðalrétturinn og er betra að fá sér bara kaffi og kannski einn viskí en það er hægt að velja úr meira en 200 single-malt tegundum. Mæli með staðnum ef einhver vill góða steik og gef honum fjóra og hálfa stjörnu.

miðvikudagur, ágúst 08, 2007

Það var ausandi rigning þegar ég vaknaði í morgun en sem betur fer var búið að stytta upp þegar ég lagði af stað í vinnuna ... það dugði nú skammt þar sem metróið var lokað vegna flóða. Ekki var hægt að sjá lausan leigubíl í mílufjarlægð og raðirnar í strætóana voru ævintýralega langar. Ég lagði því að stað í ca. 30 mínútna göngu upp Park Avenue frá 23ja stræti til 52rs strætis sem er sosum ekki frásögur færandi nema að eftir 5 mínútur var ég orðinn kófsveittur og útlitið ekki gott í ca 85% raka og 30 stiga hita. Það var ekki um annað að ræða en að hægja á sér og reyna ekki of mikið á sig og mikið skelfing var gott þegar ég labbaði í gegnum loftkælda Grand Central bygginguna ... þessi skúr í morgun olli hinsvegar miklum samgöngutruflunum og ýmsir sem komust yfirhöfuð ekki í vinnuna í dag ...

Herra Níels er líklega ekkert of ánægður að vera skilinn eftir einn svona lengi þar sem að hann vekur mig undanfarnar nætur um klukkan 5 með miklu mjálmi og vill fá athygli ... það er ágætt að á morgun koma stelpurnar og með þeim koma bræður Jóu og verður þá nóg um að vera í kotinu.

þriðjudagur, ágúst 07, 2007

Vong

Vong er í eigu Jean-Georges Vongerichten sem á nokkra staði í New York, meðal annars Spice Market og flaggskipið Jean-Georges sem skartar þremur Michelin stjörnum. Þessi fær eina Michelin stjörnu, var opnaður 1992 og er staðsettur á 54ða stræti við 3ja avenue skreyttur asísku ívafi. Eldamennskan er franskt/tælenskt fusion og kemur bara vel út. Mér fannst forréttirnir þó betri heldur en aðalrétturinn en það var sosum ekki hægt að kvarta neitt mikið yfir svarta bassanum sem ég fékk í aðalrétt með kókoshnetusafa og parsnip. Í forrétt fengum við ýmsa smárétti og runnu þeir ljúft niður án nokkurra vandkvæða ... vorrúllur með krabbakjöti, túnfiskrúllur með grænmeti og avocado, Quail læri og pork satay. Eftirrétturinn var einnig samsafn rétta og bragðaðist tapioka búðingurinn mjög vel ásamt mjög ljúffengri heitri súkkulaðiköku. Þjónustan var eilítið fyrir ofan garð og neðan þar sem þeim lá stundum á að vilja taka diskana af okkur þrátt fyrir að við værum ekki búnir. Annars mjög góður staður og mæli eindregið með honum - gef honum fjórar stjörnur.

mánudagur, ágúst 06, 2007

Ég kom heim í gær frá London eftir smávegis útúrdúr um helgina til Kaupmannhafnar þar sem ég hitti Jóu og við heimsóttum Evu og hennar danska kærasta. Það er skemmtilegt að koma til Köben um sumar og geta notið veðurblíðunnar á hafnarkantinum í Nyhavn sötrandi Carlsberg úr dós sem keyptur var í Nettó ... hygge sig ... það er það sem málið snýst um. Við borðuðum smörrebröd, drukkum öl, skelltum okkur í Tívolí, röltum upp og niður Strikið og keyptum fallega skandenavíska hönnum sem ég dröslaði síðan heim í handfarangri langt umfram leyfilegri handfarangursvigt þar sem kertastjakarnir sem Jóa keypti eru níðþungir. Kertastjakarnir fengu meira að segja hrós frá öryggisvörðunum á Heathrow vegna þess að glerið í þeim er svo massíft að gegnumlýsingartækið þeirra sá ekki í gegnum þá ... þurftu þeir þar sem að handleita sérstaklega í mínum farangri.

Eftir vinnu sótti ég svo Herra Níels sem var ánægður að sjá mig ... stelpurnar í afgreiðslunni hrópuðu upp yfir sig þegar ég opnaði dyrnar ... "ææ ertu kominn að sækja Niels ..." ... hann er alveg búinn að heilla þær upp úr skónum!

cheers

mánudagur, júlí 30, 2007

Í gær kom ég heim frá Íslandi en stelpurnar dvelja áfram í tvær vikur. Ferðin heim tók tveim tímum lengra en venjulegt er og virtist maður alltaf vera að bíða í röð hvar sem maður var staddur. Þegar ég var svo kominn út af flugstöðinni á JFK þá er ekki það skemmtilegast að lenda í því að það er reynt að plata mann í svartan leigubíl ... þetta var eiginlega dáldið fyndið og ég gat ekki annað en brosað að manninum en sem sagt þá ætlaði í röð eftir yellow cab og tilkynnti manni það sem stóð fyrir utan og var að bjóða mér leigubíl ... þá spurði hann mig hvert ég væri að fara og sagði að leigubílaröðin til Manhattan væri ekki þar sem ég væri að fara og skyldi hann beina mér á réttan stað ... mér finnst líklegt að margir falla í gryfjuna sem eru að koma í fyrsta skipti en allavega svona til vonar og vara þá veit fólk það sem þetta les að gulu leigubílarnir eru bara í einni röð á JFK og þeir fara allir hvert sem þú vilt að þeir fari.

Það er alltaf gott að fara í frí heim til Íslands og gátum við afrekað ýmisleg. Inga Huld hélt meðal annars uppá afmælið sitt heima og var að sjálfsögðu boðið uppá amerískar bollakökur. Var þetta í rauninni í þriðja skiptið þá sem haldið var uppá sjö ára stórafmælið.


Við dvöldum líka í miklu afslappelsi í sumarbústaðnum og nutum þar góðs félagsskapar og Inga Huld sprellaði með frænku sinni og gátu farið í indíánaleik með dótið frá Húron indíánunum. Okkur tókst meira að segja að fara í menningarlega ferð á Heklusetrið sem er áhugavert að skoða ef einhver á leið þar framhjá. Að sjálfsögðu unnum við fyrir dvöl okkar og fórum nokkrar grjótaferðir í gilið og gátum því með góðri samvisku grillað góðan mat og notið kyrrðarinnar í heita pottinum.


Svo gátum við aðeins skellt okkur á lífið frameftir nóttu og notið dagsbirtunnar á nóttinni ... en kuldinn fór þó að segja til sín og var því betra að vera innandyra. Fengum okkur fisk á Silfri og má mæla með þeim stað þrátt fyrir að þjónustan hafi verið fyrir ofan garð og neðan. Að lokum var fjölskylduferðin í Gljúfurá og fyrir einskæra tilviljun þá náði ég í einn lax í annars laxlausri á og bjargaði það veiðisumrinu mínu!! Jóa tók sig vel út í sínum veiðiútbúnaði og renndi þolinmóð fyrir laxinn sem vildi þó ekki bíta hjá henni.


Ég er svo á leið til London að vinna og mun svo hitta Jóu í kóngsins Köben um helgina í húsmæðraorlofinu hennar ásamt fröken Evu og efa ég ekki að hún ásamt nýkrýndum dönskum kærasta sínum taka starf sitt alvarlega að sína okkur allt hið besta og skemmtilegasta sem þar býðst.

miðvikudagur, júlí 18, 2007

Fengum Bryndísi, Torfa og Konráð í kvöldmat en það vantaði eitt og annað í kvöldmatinn þar sem þegar ég var staddur á Grand Central að versla á markaðnum þar þá fór fólk að birtast hlaupandi úr öllum áttum og í allar áttir. Þegar ég kom út á Lexington þá hristist allt og skalf með miklum látum og steyg mikill reykur tugi metra upp í loftið úr götunni rétt hjá. Lögreglan og slökkviliðið birtist fljótlega og var öllum vísað burt (og ég án kvöldmatsins ...) og þurfti ég því að haska mér heim með smávegis krók á leiðinni til að sneiða framhjá gosinu úr jörðinni ... gekk framhjá einu pari af svörtum háhæluðum skóm sem einhver hefur sparkað af sér til að hlaupa hraðar heim. Þegar heim var komið með stoppi í annarri fiskbúð sem átti svo ekki til það sem vantaði þá kom í ljós að leiðsla hafði sprungið í jörðinni á Lexington á milli 41 og 42 strætis.

laugardagur, júlí 14, 2007

Þá erum við komin aftur í kotið og náðum að sækja Herra Níels fyrir lokun "hótelsins" hans. Gott og skemmtilegt ferðalag í frísku og notalegu loftslagi í Kanada. Að baki liggja um 1.000 mílur (1.600 kílómetrar) í valnum ... bíllinn var rúmgóður og leiddist engum á leiðinni ... Inga Huld dundaði sér í tölvuspilinu sínu og horfði á DVD til skiptis og leit einstöku sinnum upp þegar ég benti henni á fallegu náttúruna ... Jóa var að sjálfsögðu upptekin við að skemmta mér og passa að við værum alltaf á réttri leið. Gistum eina nótt á leiðinni heim í Hamptons þar sem Bryndís, Torfi og Konráð eru með hús í láni ... gátum þar komist á ströndina, á kanó og fengum grillaða hamborgara í kvöldmatinn. Þrátt fyrir gott frí þá er alltaf gott að koma heim.


fimmtudagur, júlí 12, 2007

Quebec er meiriháttar skemmtileg borg með evrópsku miðaldaryfirbragði samofnu með frönskum, breskum og amerískum áhrifum. Það var auðvitað Pain au Chocolate í morgunmat úr Boulangeri´inu og einsog í Mont Tremblant var hægt að nota franska orðaforðann daginn út og inn. Við vorum bara í gamla bænum sem er innan virkisveggja og í einu horninu er rammgert virki sem Bretar byggðu gegn innrás Ameríkana á sínum tíma ... þetta virki er nú vaktað af mönnum íklæddum sama búningi og lífverðir drottningar í Bretlandi ... dáldið skemmtilegt.



Yfir borginni blasir rúmlega 600 herbergja lúxushótel sem byggt var við upphafsstöð lestarlínu sem lá þvert yfir Kanada. Þar sem lestarnar réðu ekki við að draga matar- og svefnvagna yfir hóla og hæðir Kanada þá voru byggð lúxushótel með reglulegu millibili svo fínir farþegarnir gætu nú fengið sinn fína mat og fegurðarblund. Fórum þar í skemmtilega skoðunarferð þar sem leiðsögukonan sagðist vera fædd árið 1863 og hafði búið á hótelinu síðan ... fengum við að skoða ýmsa sali og íverur, meðal annars þar sem Winston Churchill plottaði D-daginn ásamt fleirum ... það herbergi var með tveimur stórum arinstæðum svo hann gæti askað af vindlinum sínum ...


Á leiðinni frá Quebec var stoppað í þorpi Húrona sem er skammt utan Quebec en þeir fengu þar smáskika til að byggja sér hús og eru með lítið safn þar ásamt búð þar sem er hægt að kaupa ýmislegt indíánadót og voru þar seld mörg falleg skinn af refum, úlfum, ísbjörnum, björnum og fleiri dýrum ...

cheers

mánudagur, júlí 09, 2007

Í morgun lauk dvöl okkar í fjallasælunni í Mont Tremblant og haldið var til Quebec með stoppi í Montreal. Við brölluðum ýmislegt í fjöllunum t.d. fórum við í river rafting þar sem við fórum í family rafting 7km niður River Rouge - Ingu Huld fannst það meiriháttar og fékk hún að sitja fremst í bátnum þannig að það gusaðist mest yfir hana þegar við fórum niður flúðirnar ... síðan syntum við í ánni, hentum okkur í strauminn og fengum að hoppa ofan af kletti og útí ... mikið fjör og vorum við lúin eftir róðurinn.

Við fórum einnig í 30km hjólatúr sem tók okkur hálfan dag ásamt nestisstoppi en þar sem við þurftum einnig að hvíla okkur og slappa af þá vorum við líka dugleg að hanga í sundlauginni, sóla okkur og rölta um fjallaþorpið. Óvænt var einnig byrjunin á 9 daga International Blues Festival og var af því tilefni búið að setja upp slatta af sviðum víðs vegar um þorpið ... okkur gafst þar tækifæri til að hlusta á ýmsa blúsara eins og Jimmy James, Mike Deway, Harry Manx og Janiva Magness ásamt fjölda annarra sem ég hef ekki hugmynd um hverjir eru.

Við stoppuðum aðeins nokkra klukkutíma í Montreal þar sem það rigndi mestallan tímann. Okkur gafst þó tækifæri til að kíkja á tvær stórar og fallegar kirkjur, fyrri kirkjan var St. Joseph´s Oratory sem er að ég held stærsta kirkja sem ég hef séð og slær hún út bæði St. Pauls í London og Notre Dame í París, seinni kirkjan var Notre Dame Basilica sem var ólíkt þeirri fyrri öll skreytt innandyra í gulli og öðru fagurlegheitum.


Einnig kíktum við í jólavörubúð og fengum okkur crepes ásamt því að rölta eilítið um gamla bæinn áður en við brunuðum áfram á áfangastað.

þriðjudagur, júlí 03, 2007

Inga Huld varð sjö ára gömul í dag! Við komum í gær til á Hotel du Lac í Mont Tremblant í Laurentian fjöllum sem eru í rúmlega klukkutíma fjarlægð í norðvestur frá Montreal. Á leiðinni frá Niagara fossum sem var um 490 mílna keyrsla, gistum við eina nótt og gaf það okkur tækifæri til að skoða Toronto í hálfan dag. Toronto lítur út fyrir að vera róleg og þægileg borg en samt með nóg af kaffihúsum og öðru skemmtilegu að skoða. Við fengum okkur kaffi á Queen Mother cafe sem bauð uppá alveg rosalegar tertur. Merkilegt hvað mikið er tengt við ensku kóngafjölskylduna hér. Aftur fannst okkur merkilegt þegar við keyrðum frá Ontario sýslunni yfir í Quebec sýsluna að þá tók franskan yfirhöndina og skyndilega voru allar vegamerkingar á frönsku og þar sem við stoppuðum var manni heilsað á frönsku og það alltaf fyrsta tungumálið til að vera notað.


Í tilefni dagsins í dag þá mátti Inga Huld plana daginn og það átti sko að gera mikið. Sem betur fer skein sólin glatt og valdi hún að byrja á því að fara í útisundlaugina hér og minigolf um morguninn.



Síðan var haldið í picknic og gengum við uppí skíðasvæði Mont Tremblant og komum okkur svo fyrir í einni brekkunni með nestið okkar. Á leiðinni niður sáum við að þeir eru búnir að malbika hlykkjótta braut niður neðri hlutann af fjallinu og gat maður setið á litlu og lágu hjóli og brunað þar niður. Þetta féll í kramið hjá Ingu Huld og skelltum við okkur eina ferð.




Mont Tremblant skíðaþorpið sjálft er lítið og rólegt þorp og fengum við okkur göngutúr þar. Inga Huld var búin að sjá í einhverjum bæklingi að það væri góður Crepes staður í boði og vildi hún fá kaffitímann þar. Hún fékk sér rosalegt banana split crepes með vanilluís, rjóma og súkkulaðisósu ... var að sjálfsögðu allt allt of mikið en það var vel við hæfi. Þegar komið var aftur á hótelið var ekki hægt að slappa af og gengum við því niður að vatninu og fengum hjólabát sem við sigldum á vatninu í um klukkutíma. Við enduðum þennan góða dag á Prime Rib steik á hótelveitingastaðnum og var hún meiriháttar góð. Maturinn hér töluvert betri en á Niagara fossum sem er gott þar sem við eigum eftir að eyða heilli viku hér og er þá betra að geta fengið gott að borða.

cheers

laugardagur, júní 30, 2007

Vöknuðum eldsnemma í morgun og var ég mættur rétt rúmlega sjö í morgun til að ná í bílaleigubíl svo hefja mætti sumarleyfisferð okkar. Stefnan var tekin á Niagara fossa sem er um 500 mílna keyrsla og mættum við á svæðið klukkan fjögur eftir ekki alltof átökumikla keyrslu. Eftir að hafa keyrt yfir Niagara ána og þar af leiðandi yfir landamærin til Kanada og komið okkur fyrir á hótelinu, á sautjándu hæð með útsýni yfir allt hafurtaskið, byrjuðum við að túristast einsog allir aðrir á svæðinu og hófum að virða náttúruundrið fyrir okkur. Fórum í bátsferð, Maid in the Mist, sem siglir alveg uppað fossunum og kemur að góðum notum að vera í einnota regnkápum sem skaffaðar eru þar sem allt fryssið frá fossunum fryssast yfir allt og alla. Borðuðum kvöldmat í Skylon Tower sem er útsýnisturn og veitingastaður í um 160 metra hæð ... maturinn ekkert spes en við bjuggumst sosum ekki við miklu þar sem túristayfirbragðið var yfirþyrmandi yfir öllu saman á svæðinu. Meiriháttar gaman að sjá fossana frá hinum ýmsustu sjónarhornum en við myndum ekki vilja dvelja hér í marga daga.

cheers

sunnudagur, júní 24, 2007

Fórum í þetta líka fína tívolí í Central Park þar sem Inga Huld fór hamsförum í tækjunum og dröslaði mér í nokkur þeirra sem henni fannst ekki hættandi á að fara ein í.

laugardagur, júní 16, 2007

Inga Huld bauð bekknum sínum í afmælisveislu í dag þrátt fyrir að rúmar tvær vikur séu í afmælið. Ástæðan er sú að skólanum lýkur í næstu viku og eftir það eru allir komnir eitthvert í sumarfrí og ekki margir á svæðinu. Við ákváðum því að vera snemma á ferðinni og var það þá líka óvæntur glaðningur fyrir Ingu Huld að geta fengið afmælispakka svo snemma. Veislan var haldin í Brooklyn Childrens Museum sem er leik- og athafnasvæði fyrir börn á ýmsum aldri. Byrjað var á "Scavenger Hunt" þar sem búið var að fela ýmsa hluti á víð og dreif um safnið, á meðan leitinni stóð var einnig hægt að nýta safnið og var farið í búðarleik, leikið á hljóðfæri og haldið stutt leikrit um unga mey ...

sem bjargað var úr háska af Spiderman sjálfum sem leikin var af Rahul.

Næst á dagskrá var "arts & crafts" og eftir það var boðið uppá pizzu og afmælisköku sem voru listilega gerðar og skreyttar bollakökur í blómaþema af Jóu og Ingu Huld.



Að lokum var hægt að klappa eðlum og snákum sem féll í kramið hjá flestöllum en samt ekki alveg öllum ...




Eftir afmælið gátu allir leikið sér meira á safninu og nýtti Inga Huld tækifærið óspart ... við gátum þó loksins komið henni heim fljótlega eftir að allir aðrir voru farnir. Um kvöldið var ég búinn að bóka "surprice" útaðborða á Lever House fyrir komandi afmælisbörn fjölskyldunnar.

sunnudagur, júní 10, 2007

Jóa fékk myndavél í gjöf um daginn í tilefni dagsins.....hér má sjá mynd af heimasætunni, sem bíður eftir nýrri framtönn, tekna á nýju canon vélina á þakpallinum.


laugardagur, júní 09, 2007

Herra Níels fékk nýja hálsól í dag og fékk þar af leiðandi að kíkja út í fyrsta skipti. Við fórum með hann upp á þakpall og fannst honum það sérstaklega spennandi og velti hann umhverfinu mikið fyrir sér.

föstudagur, júní 08, 2007

Aftur var balletsýning og að þessu sinni hjá Joffrey Ballet school. Jóa sá muninn á kennslunni og var mun klassískari ballet kenndur hér þrátt fyrir að hún Stephanie kennarinn virðist ekki hafa mikinn áhuga á því að kenna þessum "gemlingum" og er dauðfegin að sumarfríið sé komið ...




Hér má svo sjá vídeó frá Joffrey sem er frumraun mín sem klippari ...



cheers

þriðjudagur, júní 05, 2007

Það var foreldrasýning í ballettklúbbnum hjá BIS eftir skóla í dag. Sýningin var kennslusýning þar sem kennarinn sýndi hvernig tíminn fer fram og hvaða æfingar eru gerðar.



Stelpurnar fengu svo að sýna frumsamda dansa og dansaði Inga Huld ásamt Evie vinkonu sinni dans sem þær sömdu um vorið.

mánudagur, júní 04, 2007

Skelltum okkur á Lay Low sem tróð upp á Club Midway í kvöld. Staðurinn er í stafrófshverfinu, nánar tiltekið á Avenue B á milli 2rs og 3ja strætis ... nálægt Tompkins Square Park sem lesa má um fyrir neðan ... við lögðum snemma af stað og fengum okkur ís í ástralskri ísbúð á leiðinni sem við höfðum séð á 8nda stræti um helgina. Hverfið er skemmtilegt með fjöldann allan af börum og veitingastöðum og var ótrúlegt hversu margir voru úti svona á mánudagskvöldi ... hver fer eiginlega út á mánudagskvöldi ?? Ég get ómögulega ímyndað mér hvernig þetta hverfi leit út fyrir 20 árum þegar um stafrófshverfið var sagt ... if you are on Avenue A, your are All right, on Avenue B you are Brave, on Avenue C you better be Careful and on Avenue D you are probably Dead ...

Þegar við mættum á barinn vorum við send niður í kjallara sem hefði eflaust verið reykmettaður ef það mætti reykja og náðum við í endann á hressum rokkurum. Gátum síðan horft á Lay Low setja upp í um 30 mínútur áður en þau spiluðu í 20 mínútur. Mjög skemmtilegt að horfa og hlusta á en hefði mátt vera dáldið lengur ... maður var rétt að komast í gírinn.

cheers

sunnudagur, júní 03, 2007

Fórum í skemmtilegan göngutúr um Lower East Side með guide í morgun ... gangan er nú ekki mikil en byrjað er á Astor Place og gengið St. Marks Place (einnig nefnt 8nda stræti) yfir til Tompkins Square Park eða sem nemur um "five blocks". Ýmislegt merkilegt hefur farið fram í þessu hverfi en einna minnisstæðast frá lýsingunum er að fyrir ca 20-30 árum var þetta eitt mesta glæpa- og dóphverfi í Ameríku. Til að mynda þegar tekið var til í Tompkins Square Park og hann endurhannaður þá er þetta fyrsti garðurinn sem hannaður er með "crowd control" í huga. Hér hófst einnig mikið af nútímalistastefnum vegna þess að fólk hafði nákvæmlega ekkert að gera og var að reyna að drepa tímann ... þess vegna fékk sköpunargáfan að njóta sín svona mitt á meðal þess sem ýmislegt annað fékk að njóta sín ...

Hér á Holiday Cocktail Lounge hékk til dæmis Madonna oft þegar hún var að reyna við frægðina og samdi lagið Holiday tileinkað honum, en það lag var einmitt fyrsta lag hennar sem slær í gegn.



cheers

laugardagur, júní 02, 2007

Við vorum lögð af stað eldsnemma í morgun fyrir klukkan átta til Philadelphiu þar sem Jóa átti að hitta nokkra skólafélaga sína á Philadelphia Museum of Art. Ástæðan var sú að þarna er að geyma eina heilstæða safn Duchamp sem gerði mörg merkileg nútímalistaverk fyrir ca. 100 árum og þóttu þá ekki uppá marga fiska. Ástæða þess að verkin eru hér er að ekkert annað safn vildi á sínum tíma ganga að skilmálum Duchamp um að eignast verkin gegn því að þau yrðu sýnd öll saman samfellt í 25 ár eftir að safnið fengi þau. Núna eru þessi 25 ár löngu liðin og safnið eflaust ánægt með að hafa gengið að þessum skilmálum á sínum tíma.


Merkilegast fannst mér við safnið að upp tröppurnar fyrir framan það hljóp Rocky Balboa og hoppaði um og veifaði höndunum í allar áttir ... styttan var því miður ekki á sínum stað en hún var þó í seilingarfjarlægð.


Inga Huld var nýbúin að fara á MOMA hér í New York með bekknum sínum og gat því frætt okkur um nokkur listaverk sem hún sá og skapara þeirra ... má þar meðal annars nefna Van Gogh, Matisse, Picasso og Jackson Pollock.



Eftir nokkra klukkutíma hér var haldið á annað safn sem var gamalt fangelsi þar sem meðal annars Al Capone dvaldi um tíma. Þetta fangelsi var eitt það fyrsta sem var byggt með stökum klefum og var föngum meinað að hitta annað fólk, þar með talið hvora aðra, á meðan dvölinni stóð ... var meiningin að þeir ættu að iðrast og hugsa um sakir sínar og koma síðan út sem bættir menn ... merkilegur staður og er hönnunin athyglisverð. Fangelsið er hannað með verðina staðsetta í miðju fangelsins og út frá miðjunni koma langir gangar þar sem fangaklefarnir eru ... þetta gerir vörðunum kleift að fylgjast með öllu fangelsinu frá einum punkti.


Að lokum fórum við síðan á Rodin safnið en einhverjum hér datt í hug að safna höggmyndum eftir þennan franska listhöggvara og koma þeim fyrir hér í Philadelphiu.



Eftir að hafa rölt síðan aðeins um og skoðað miðbæinn drifum við okkur aftur heim og prófuðum nýjan stað hér í nágrenninu þar sem við nenntum ekki að elda okkur neitt almennilegt svona seint ...

cheers

þriðjudagur, maí 29, 2007

Þá eru amma og afi farin og við aftur ein í kotinu og þar sem Jóa var í fríi í kvöld frá skólanum grilluðum við SS pylsur uppi á verönd og borðuðum úti ... sólin settist á bakvið eina blokkina í vesturátt um hálfsjö og var þá notalegt hitastig til að sitja úti við ... þar sem án sólhlífar er fullheitt í sólinni.

Annars verður farið snemma að sofa í kvöld þar búið er að túristast alveg ótrúlega mikið þessa löngu og góðu helgi ... í stuttu máli þá var farið í skoðunarferð um Manhattan í "double decker" strætó, 3ja tíma bátsferð í kringum Manhattan, farið á ballettsýningu í The Met, jazz tónleikar í Dizzy´s club, hestakerruferð í Central Park, göngutúrar hingað og þangað og að sjálfsögðu góður matur snæddur í hvert mál.

cheers

laugardagur, maí 26, 2007

Tao

Tao er asískur fusion staður, staðsettur á 58nda stræti á milli Madison og Park, í anda Nobu og gefur ekkert eftir. Við bókuðum borð með mánaðarfyrirvara til að fara með ömmu og afa út að borða áður en haldið væri á balletsýningu í The Met. Allt sem við fengum okkur bragðaðist vel og ég held bara að ekkert hafi valdið vonbrigðum. Við deildum með okkur vorrúllum með Peking önd, Chicken Satay og risa tempura rækjum í forrétt. Í aðalrétt mælti þjónninn með að við myndum panta okkur rétti fyrir hvert okkar en ekki deila þeim einsog við erum vön á þessum stöðum. Allir réttirnir eru þó þannig settir upp að það er alveg hægt að borða þá saman sem okkur finnst yfirleitt skemmtilegra með þennan mat þar sem það er þá hægt að prófa meira. Ég mæli sérstaklega með túnfiskinum ... matseðillinn sagði að það ætti að vera hvítur túnfiskur sem mig langaði dáldið til að smakka en þar sem kokkinum fannst hann ekki nógu ferskur og góður á markaðnum í morgun þá var boðið uppá Yellowtail ... mjög gott! Við héldum okkur við sjávarréttina, Miso gljáður Sea Bass frá Chile bráðnaði í munninum og Hong Kong XO rækjurnar voru meiriháttar. Enginn prófaði steikina en meðal annars var boðið uppá Kobe beef sem ég efa ekki að er gott hjá þeim. Það er nauðsynlegt að sleppa ekki desert hér en það er alveg í lagi að deila þeim þar sem stærðin dugar auðveldlega fyrir tvo og mun ekki verða deilt um þá þrátt fyrir að þeim sé deilt. Ég held ég verði bara að gefa þessum stað 5 stjörnur ... ég get ómögulega fundið eitthvað neikvætt.

miðvikudagur, maí 23, 2007

Ég hef ekki horft á fótboltaleik í lengri tíma þannig að þegar úrslitaleikur Liverpool og AC Milan var spilaður í dag hugsaði ég mér gott til glóðarinnar og laumaðist úr vinnunni í kaffitímanum til að horfa ... ég hefði sosum betur getað sleppt því þar sem mínir menn töpuðu þrátt fyrir að hafa verið mun betri allan leikinn !!

Inga Huld bíður nú með mikilli eftirvæntingu eftir ömmu og afa sem eru væntanleg með morgunfluginu á morgun og dvelja hér framyfir helgi. Veðurspáin er heit og góð og spáð er um og yfir 30 gráðu hita ... ekki er búið að setja saman of þétta dagskrá en ýmislegt er planað.

sunnudagur, maí 20, 2007

Veðrið í dag var betra heldur en rigningardagurinn í gær þannig að við ákváðum að skella okkur í laaangan göngutúr. Við byrjuðum heima og héldum suður Manhattan í gegnum Gramercy Park og Union Square og áfram niður Broadway alla leiðina niður að Brooklyn Bridge sem er hægt að ganga á yfir til Brooklyn. Þessi brú er merkilegt mannvirki og var byggð um 1880, tók um 14 ár að byggja og var hæðsta mannvirki á Vesturlöndum í nokkur ár.


Við röltum niður að ströndinni og fundum skemmtilegar búðir fyrir einskæra tilviljun, meðal annars eina sem seldi notuð dönsk húsgögn og aðra sem seldi flott "modern" barnahúsgögn, ModernTots. Það var einnig hægt að fá ís þarna og keyptum við ís á línuna í Brooklyn Ice Factory ... leit út fyrir að vera mjög gott og vorum við um 45 mínútur í röðinni og komumst við að því að ísinn þarna var mjööög góður. Þar sem við vorum búin að vera á gangi í 4 klukkutíma ákváðum við að taka lestina tilbaka og hentaði það vel að hún stoppaði nálægt Bed, Bath & Beyond. Þar áttum við eftir að kaupa borð á pallinn en stólana keyptum við um síðustu helgi. Grilluðum okkur svo kjúklingaborgara og snæddum þá úti við í blíðunni.


cheers