laugardagur, desember 27, 2008

Fórum í dag öll þrjú á Töfraflautuna í The Metropolitan Opera. Sýningin var fjörug og skemmtileg og mikið hlegið og dáðst að flottum búningunum. Ingu Huld fannst óperan bara skemmtileg enda var talað aðeins á milli atriða líka og sagan skemmtileg. Við fengum okkur svo afternoon tea á Four Seasons á leiðinni heim sem smakkaðist vel.

miðvikudagur, desember 24, 2008

GLEÐILEG JÓL

Þriðju jólin okkar hér í New York voru róleg og góð. Við ákváðum að sleppa hamborgarahryggnum þetta árið og höfðum önd sem heppnaðist vel. Að sjálfsögðu var rækjukokteillinn og jólaísinn á sínum stað - ekki má breyta of mikið út af hefðinni. Við hlustuðum svo á íslensku messuna klukkan 18 á okkar tíma og höfðum jól að íslenskum sið á New York tíma.

Herra Níels var hæstánægður með hina og þessa kassa og jólaskraut sem kom undan jólatrénu og skemmti sér konunglega - hann var hinsvegar ekki á því að hafa jólaslaufu!

laugardagur, desember 20, 2008

Inga Huld er lengi búin að tala um að fara á skauta og fundist það mjög spennandi. Loksins skelltum við okkur á skauta og fengum Pétur, Auði og Brynju með okkur og fórum á Lasker Rink efst í Central Park. Sjálfur hef ég aldrei skautað og var því ekki mjög spenntur eða yfir mig hrifinn af hugmyndinni. Þetta gekk þó betur en ég hélt og gátum ég og Inga Huld skautað án þess að halda í mömmu eða handriðið eftir nokkra hringi ... aðrir virtust hafa tæknina á hreinu og skautuðu með glæsibrag!


Við fórum svo öll á Turkish Kitchen sem er ekta í vetrarkuldanum og smakkaðist vel einsog og endranær ásamt tyrknesku hvítvíni. Heima buðum við svo uppá jólaglögg og smákökur og var dagurinn því vel planaður og vel heppnaður!

föstudagur, desember 19, 2008

Í dag snjóaði slatta - hann Herra Níels skemmti sér konunglega í glugganum við að selta snjókornin og stundum var hann alveg viss um að hann væri að ná einu og hoppar þá á gluggann. Eftir um 20 mínútur fór hann að fatta að þetta var ekki að ganga upp og fór og lagði sig enda dauðþreyttur!


Jóa kom með þá snilldarhugmynd að fara í Miðgarð og leika sér í snjónum. Það var mjög merkilegt að það var líklega um tvöfalt meiri snjór inni í garðinum en utan hans. Hitinn frá bílunum og byggingunum gerir hitastigið á götunum töluvert hærra þannig að snjórinn verður strax að leiðindaslabbi. Í garðinum var líklega um 10-15cm snjór sem er nú bara talsvert ... við skelltum upp Snæfinni snjókarli við miklar eftirtektir gangandi vegfarenda ... og sáum við svo fólk stilla sér upp með honum fyrir myndatökur þegar við vorum að fara.


Röltum síðan á Tavern on the Green og fengum okkur heitan drykk í kroppinn. Þaðan lá leiðin svo í lestina niður í Dean & Deluca til að versla ýmislegt góðgæti fyrir jólin ... hér er nú alveg hægt að missa sig.

Það lá þá náttúrulega beint fyrir að hafa jólahlaðborð heima með pate, síld, síldarsalati, graflaxi, reyktum laxi, kavíar, foie gras, ostum, rúgbrauði og flatkökum ásamt dönskum jólabjór og egils malt og appelsín ...

miðvikudagur, desember 17, 2008

Það var tap rehearsal hjá Ingu Huld í tap skólanum í dag. Við fórum og fylgdumst með einum tíma ... rosa fjör!


Síðan fór Inga Huld í heimsókn til vinkonu sinnar sem er með henni í tap og þær vildu náttúrulega endilega hafa "sleep-over". Við leyfðum það í þetta skiptið og ákváðum að nota tækifærið og skella okkur út ... hringdum því í Sigurgeir og Elínu sem voru til í að koma með okkur í skandinavískan jólamat á Aquavit.

föstudagur, nóvember 28, 2008

Í gær fórum við í fullbúinn Thanksgiving dinner hjá Sigurgeiri og Elínu. Vantaði ekkert uppá herlegheitin nema kannski magamál til að geta torgað í sig meira af kræsingum! Það er síðan erfiður föstudagur í vinnunni þar sem maður vildi helst enn liggja á meltunni. Reyndar gott að dagurinn er stuttur og er ég kominn heim um hálffjögur. Þessi vika er frekar róleg og stutt þar sem miðvikudagurinn var einnig búinn snemma.

laugardagur, nóvember 22, 2008

Ég átti "date" með eiginkonu minni í gærkvöldi ... hittumst eftir vinnu og fórum á nýju James Bond myndina ... sosum ekkert voðalega rómó en stoppuðum svo á nýjum vínbar sem opnaði þar sem byggingavöruverslun og lyklasmiður var fyrir ári síðan áður en það kviknaði í hjá þeim. Á vínbarnum var nóg að gera og fengum við sæti eftir um hálftíma og gátum fengið okkur litlar samlokur, skinkur og osta sem var skolað niður með rauðvíni ... þetta var meira rómó en bíóið ...

Það var svo ekki mikið planað í dag. Hitastigið var um mínus fjórar gráður á celcius þegar vaknað var og langaði okkur ekki mikið út í kuldann. Við létum okkur þó hafa það og skruppum í nýja IKEA búð sem opnaði í Brooklyn og höfðum við ekki farið þangað enn ... þetta er þá fjórða IKEA búðin sem við förum í á svæðinu og gátum ekki sleppt þessari. Þeir bjóða uppá fría leigubátsferð frá Pier 11 hjá Wall Street og tekur hún um korter ... var þetta því bara skemmtileg ferð til Brooklyn og fengum við að sjá frelsisstyttuna og strandlínu Manhattan í kaupbæti. Að sjálfsögðu vantar alltaf eitt og annað úr IKEA og var ýmislegt smálegt nauðsynjadót verslað ásamt því að kaupa sænskar piparkökur og annað sænskt góðgæti úr matvöruhorninu ... slepptum þó sænsku kjötbollunum í þetta skiptið sem og pylsu í brauði sem var á tilboði 50 cent stykkið. Wall Street var orðið jólalegt og var verið að skreyta jólatréið þar fyrir utan kauphöllina.

þriðjudagur, nóvember 11, 2008

Í dag var frí hjá mér vegna Veterans Day en það olli smá svekkelsi hjá Ingu Huld þar sem venjulegur skóladagur var hjá henni. Við hjónin vorum því bara tvö þennan daginn í rólegheitum! Byrjuðum daginn á því að fara að skokka meðfram eystri ánni eftir að hafa farið með Ingu Huld í skólann. Eftir að hafa byrjað daginn svo heilsusamlega fengum við okkur göngutúr niður í Meatpacking og fengum okkur hádegismat á Fig & Olives og fórum síðan í menningarlegt gallerírölt í Chelsea og sáum þar meðal annars áhugaverða sýningu Zaha Hadid. Keyptum svo Wicked Witch brownies á Chelsea Market á leiðinni heim að sækja Ingu Huld sem var ánægð að fá köku eftir skólann. Spiluðum svo Scrabble þar sem við erum að æfa okkur öll sömul í íslenskunni.

mánudagur, nóvember 10, 2008

Babbo (Waverly Place á milli 6th & Washington Sq Park)

Vinsælasti staður NYC í boði Mario Patali. Bóka þarf borð með mánaðarfyrirvara og er samt ólíklegt að þú fáir borð á venjulegum tíma. Sagt er að kreppan sé skollin á fyrir alvöru þegar þú óskar eftir borði og símadaman spyr hvaða tíma þú vilt! Þeir eru samt með nokkur borð sem ekki eru teknar pantanir á og er sett á þau á "first served, first come basis". Við vorum því mætt á svæðið klukkan 5.35 og var laust 1 borð af þeim 6 sem í boði voru eftir að staðurinn var búinn að vera opinn í 5 mínútur. Það er þó alveg þess virði að ströggla við það að fá borð þarna og eru vinsældir staðarins auðskildar. Staðurinn er ekta ítalskur og gerir allt vel nema kannski desertinn sem sló ekki jafn rækilega í gegn og forrétturinn, pastað og aðalrétturinn. Merkilegt að Babbo missti Michelin stjörnu sína þetta árið og veit ég ekki alveg hvað gerðist þar en mér finnst hann fjögra og hálfrar stjörnu virði.

sunnudagur, nóvember 09, 2008

Skelltum okkur í outlet´ið í gær til að versla eitt og annað sem vantaði ásamt flestallar jólagjafirnar ... ákváðum að vera snemma í því þetta árið! Það er líka komið jólaskraut í búðirnar hér í borginni þannig að jólastemningin er að bresta á ... stutt í Thanksgiving og jólin komin áður en maður veit af ...

Nú er bara að pakka inn!

mánudagur, nóvember 03, 2008

Adour (55th á milli 5th og Madison)

Nýi staðurinn hans Alain Ducasse á St Regis hótelinu. Flottur og huggulegur staður í rólegu umhverfi. Maturinn er franskur í hágæðaflokki en þjónustan er því miður slök og dregur niður stemninguna. Mæli með Foie Gras og venison! Tvær Michelin stjörnur og fjórar og hálf frá mér ...

sunnudagur, nóvember 02, 2008

Í gær tók Inga Huld aftur þátt í Kids Charity Fun Run þar sem krakkar í flestum grunnskólum Manhattan safna pening og hlaupa síðan stuttan hring í Central Park. Núna hljóp hún hálfa mílu en í fyrra einungis fjórðung úr mílu þar sem hún var aðeins sjö ára. Um 20 krakkar úr skólanum hennar tóku þátt og virtist þeim ekki veita af því að komast út og skvettast dáldið ... mikil orka í sumum. Inga Huld tók vel á því í hlaupinu og stóð sig með prýði en var alveg uppgefin á eftir þangað til við komum heim.


Sunnudagurinn var notaður til meiri rólegheita og byrjuðum við eldsnemma klukkan tíu um morguninn í brunch á Balthazar. Það var sosum í lagi að vera snemma á ferðinni í morgun þar sem klukkunni var breytt í nótt þ.e. klukkan 2 varð klukkan aftur 1 og græddum við þar með einn klukkutíma. Við erum búin að passa okkur að breyta öllum klukkum til að lenda ekki í neinni vitleysu þetta árið. Eftir hádegið fórum við í bíó og sáum High School Musical 3 ... afskaplega mikil Disney saga ... við bökuðum svo gómsæta pizzu í kvöldmatinn ...
Balthazar (Spring St á milli Broadway & Crosby St)

Flott franskt bistro í Soho (eitt af þeim fyrstu í NYC) sem býður uppá góðan brunch. Betra að panta borð hér með fyrirvara á hvaða tíma dags sem er. Nýbakaða brauðið þeirra er frábært sem og eggin og vöfflurnar. Væri gaman að koma hér í kvöldmat og fá steik og franskar. Fjórar stjörnur.

föstudagur, október 31, 2008

Á hverju hausti er mikil pæling hvað á að vera fyrir Halloween. Inga Huld hafði ákveðið fyrir löngu síðan að vera Hannah Montana sem er í uppáhaldi núna. Farið var með búningana í skólann og í lok dags var skipt og haldið í Halloween skrúðgöngu skólans sem allir nemendur tóku þátt í.


Ég hitti svo stelpurnar hjá Bryant Park eftir vinnu og við röltum upp 5th Avenue þar sem við gátum trick or treat´að smá súkkulaði áður en við fórum á Jekyll and Hyde Restaurant sem var vel við hæfi á Halloween.

Jekyll & Hyde Club (6th Avenue á milli 57th & 58th St)

Þemastaður sem byggir á sögu Jekyll and Hyde og gerir það vel. Staðurinn er draugalegur með mikið af alls konar drasli uppi á veggjum og ganga leikarar um og hrekkja fólk og eru með ýmsar uppákomur og fíflalæti. Allt er stórfínt þangað til kemur að matnum ... hann er alveg skelfilega vondur og furðulegt að þeir geti ekki einu sinni eldað almennilega hamborgara og franskar. Óþarfi að koma hingað tvisvar. Ein stjarna.

laugardagur, október 25, 2008

Þetta árið var ákveðið að vera eins og hver annar Ameríkani og skyldi kaupa grasker fyrir Halloween. Við fórum því á Farmers market í morgun á Union Square til að kaupa stórt og fallegt grasker. Nú er tíminn fyrir squash og annað furðulegt grænmeti sem kemur frá bændum í nágrenni New York borgar.


Við fundum okkur sæmilega stórt grasker sem okkur leist vel á. Fundum okkur leiðbeiningar í graskersútskurði til að gera ekki bara einhverja vitleysu. Fyrst þurfti að opna það á toppnum með því að skera lok af og hreinsa út steina og annað gums. Síðan átti að taka kjöt innan úr því þangað til það var orðið um 1,5-2 cm þykkt.

Þá var hægt að skera út mynd.


Okkur fannst hann bara dáldið flottur og prýðir hann nú heiðurssess í stofunni okkar !!


Kjötið innan úr var síðan notað í ljúffenga graskerssúpu ...

fimmtudagur, október 23, 2008

Craft (19th á milli Broadway & Park)

Flottur staður hér í nágrenninu sem býður uppá góðan amerískan mat ásamt góðum amerískum vínum. Tasting listinn leit mjög vel út en lagði ekki í hann núna. Réttirnir eru bornir fram með það í huga að deila þeim og virkar það vel og gerir stemninguna skemmtilega. Fjórar stjörnur.

þriðjudagur, október 21, 2008

Það var mikil veisla í kvöld í tilefni dagsins þegar ég kom heim! Grillaðar íslenskar lambakótilettur (alltaf að styrkja Ísland!) ásamt tómötum fylltum með kúrbít, argúrkum og papriku ... í eftirrétt var síðan marengsterta með döðlum, bönunum, súkkulaði og rjóma ... nammi namm ...

sunnudagur, október 19, 2008

Við tókum á menningunni þessa helgi og fórum í gær á San Fransisco ballettinn undir stjórn Helga Tómassonar í New York City Center. Inga Huld kom með og fannst fínt að ballettinn voru þrír dansar sem voru ca 35 mínútur og 10-15 mínútna hlé á milli þannig að það var hægt að standa upp og slaka á. Sýningin var rosalega flott og skemmtileg og var mikið klappað og hrópað í lokin. Við fórum síðan í afternoon tea á The London þar sem Gordon Ramsey býður uppá eftirmiðdagskaffi að breskum stíl sem borið er fram á þremur hæðum með samlokum, skonsum og kökum. Mjög gott og saðsamt og þurfti því engan kvöldmat eftir þessa veislu.

Í dag slöppuðum við af og fórum í Soho að hanga ... fengum okkur hádegismat á Le Pain og dunduðum okkur aðeins í búðunum áður en við gengum upp í Whole Foods á Union Square og svo heim. Grilluðum hamborgara í matinn ... það var næstum því of kalt til að grilla úti núna þar sem hitastigið er að detta niður fyrir tíu gráður en maður lætur sig hafa það.

mánudagur, október 13, 2008

Vöknuðum í morgun með suð í eyrunum eftir að hafa skemmt okkur konunglega á tónleikum með Madonnu. Hin fimmtuga Madonna dansaði og söng af miklum krafti og innlifun og hreif flestalla af fimmtíuþúsund áhorfendum með sér sem stóðu og dönsuðu og sungu með ...

sunnudagur, október 12, 2008

Sushisamba (Park Avenue á milli 19th and 20th)

Hér er boðið uppá brasilískt-perú-japanskt fusion sem kom bara mjög vel út. Mjög áhugaverð blanda af mat sem hægt er að deila saman í ágætis umhverfi og skemmtilegri tónlist. Við höfum reyndar fengið betri sushirúllur en við sáum aðrar bornar fram sem litu girnilegar út en þær sem við fengum. Fínn staður til að fara á þegar stemmingin á að vera góð. Gef honum þrjár og hálfa stjörnu.
Það er löng helgi núna þar sem Columbus Day er á mánudaginn. Inga Huld er búin að vera í fríi fimmtudag og föstudag og ég var kominn heim um klukkan fjögur á föstudaginn og svo er mánudagurinn frí. Stelpurnar voru búnar að plana góðan mat fyrir helgina.

Á föstudaginn höfðum við íslenska lambalærið og var gerð ný uppskrift sem búið var að benda Jóu á þegar við vorum á Íslandi í sumar. Það er uppskrift frá Jamie sjálfum Oliver sem sker skurð meðfram beininu og fyllir þar með rósmarín og öðrum góðum kryddum, síðan er krydd og olía sett í skurði sem skorin eru í lærið og að lokum eru stórir rósmarínstönglar bundnir utan um lærið. Þetta heppnaðist mjög vel og bragðaðist lærið mjög vel og var alveg passlega eldað líka. Meðlæti voru kartöfluskífur í ofni og gulrótarmús sem var algjört nammi. Í desert var jógúrtís sem Inga Huld hjálpaði mömmu sinni að gera og var með marshmallows og súkkulaðismákökum í.

Í gær settum við saman hillur sem við keyptum fyrir Ingu Huld og er þá alveg búið að skipta út og endurhanna herbergið hennar. Kemur rosa vel út og er miklu léttara og rúmbetra heldur en það sem hún hefur haft. Við fórum síðan í Chinatown til að kaupa rækjur, hörpudisk og fisk hjá kínversku fisksölunum ... það er gott veður þessa helgina og hefur hlýnað aftur hjá okkur og var því gott og gaman að fara í göngutúr í Chinatown og Little Italy. Kvöldmaturinn var mikil tilraunastarfsemi og átti í raun að elda hann um síðustu helgi en þá kom í ljós að ómögulegt væri að elda hann nema á sértilgerðri pönnu sem var þá pöntuð. Nú var pannan komin og var því hægt að matreiða Paellu að uppskrift Mario Batelli sem leggur mikla áherslu að hræra alls ekki í henni og elda hana aðeins lengur en þú heldur að þurfi. Útkoman hjá okkur var algjört nammi og sem betur fer var pannan stór þannig að það er til afgangur!! Í desert var svo lystilega gott Tiramisu ...


Eftir að hafa gert vel við okkur í mat um helgina var kominn tími á hreyfingu og fengum við okkur góðan göngutúr í dag með Ingu Huld á scooternum meðfram Eystri ánni. Svo skal haldið á Sweet and Sticky tónleika Madonnu og er búið að hita upp með Madonnu músík nú í nokkra daga til að hita upp ...

sunnudagur, október 05, 2008

Tókum því að mestu rólega um helgina ... gott að ná aðeins andanum eftir síðastliðnar vikur og geta sofið vel út og svoleiðis. Það var gerð tiltekt í herberginu hjá Ingu Huld þar sem hún er búin að fá nýtt og gott rúm og það er stefnt á nýjar hillur ...

Við lögðum okkar til í íslenskan gjaldeyri þegar við versluðum í Whole Foods í gær og versluðum skyr.is og íslenskt lambalæri!! Var ánægjulegt að sjá það komið í borðið og kostaði pundið (1 pund = 0.453 kíló) $7.99 ... ekki svo slæmt fyrir íslenska lambakjötsútflytjendur. Ætlum samt að geyma það til næstu helgi og keyptum Rib Eye í matinn sem var marinerað í paprikukryddi, muldum bleikum piparkornum og rauðvíni og síðan grillað í 4 mínútur á hvorri hlið ... ansi gott.

Annars er tekið að kólna hjá okkur og það er merkilegt að á nokkrum dögum hefur farið úr því að þurfa hafa kveikt á loftkælingunni í íbúðinni í það að nánast þurfa að setja hitarana í gang. Veðrið er þó enn gott og hangir á milli 14 og 18 gráðanna ...

sunnudagur, september 28, 2008

Primehouse (Park Avenue á milli 26th & 27th)

Steikhús sem opnaði nýlega og er í B.R. Guest Restaurants keðjunni sem Dos Caminos er t.d. líka í. Umhverfið er ekki eins og á klassísku gamaldags New York steikhúsunum en steikurnar eru frábærar og það sem betra er einnig að þeir bjóða uppá mjög góðan fisk. Nauðsynlegt að fá Donuts in a box í desert ... mjög vinsælt. Fjórar stjörnur.

laugardagur, september 27, 2008

Við keyrðum með Kristján og Rögnu í Six Flags til að skemmta okkur þar í rússibönum. Það var spáð rigningu um daginn en við ákváðum að drífa okkur hvort sem er og reyndist það rétt ákvörðum þar sem mjög fáir voru á svæðinu og voru því næst sem engar raðir. Það var að sjálfsögðu byrjað á því að fara í Kingda-Ka sem einsog áður hefur verið nefnt er stærsti og hraðasti rússibani í heimi sem fer uppí 204km hraða á 3,5 sekúndum og fer í hæð á við 40 hæða blokk ... fékk lánað vídeó af YouTube fyrir neðan þar sem orð fá þessu ekki alveg líst. Ragna var sú eina sem lagði í þennan með mér en svo fórum við í Superman og Nitro sem voru mjög skemmtilegir ... meira að segja Jóa skellti sér í ferðir en Kristján passaði Ingu Huld.

Á leiðinni heim fengum við okkur kvöldmat á Americano sem er huggulegur diner í nágrenni Six Flags ...

laugardagur, september 20, 2008

Fórum yfir í Queens í dag og fórum og skoðuðum skúlptúra og önnur verk eftir Isamu Noguchi á Noguchi safninu. Þaðan gengum við um hálftíma í gegnum hverfið yfir á PS1 og kíktum á uppsetningu Young Architects Award ... sáum þar meðal annars þessar vinalegu hænur.

sunnudagur, september 14, 2008

Vorum komin upp í Central Park um klukkan 10 búin að leigja okkur hjól og tilbúin að hjóla hringinn í garðinum. Planið hafði verið að mæta snemma til að það væri ekki of mikið af fólki svo það væri nóg pláss fyrir okkur. Þeir sem skipulögðu göngu til styrktar krabbameini höfðu greinilega hugsað á svipuðum nótum og var því gatan í garðinum troðfull af fólki ... við vorum nú ekki alltof ánægð með okkar lukku en hjóluðum af stað við hliðina á mannmergðinni. Eftir um eina mílu kláraðist gangan og við höfðum götuna að mestu fyrir okkur og kláruðum 6.1 mílu langan hringinn sem var stórskemmtilegur með þó nokkrum brekkum upp og niður og tók á stundum.

sunnudagur, september 07, 2008

Tengdó eru í heimsókn og við vorum að koma úr nokkurra daga ferðalagi. Við byrjuðum í síðustu viku í Old Greenwich sem er lítill bær við hliðina á Greenwich þar sem ég gat verið í vinnunni á daginn og liðið slappaði af á daginn í huggulegum bænum eða flatmagaði á ströndinni. Á föstudeginum keyrðum við síðan í norðurátt til New London og gistum þar eina nótt áður en við tókum ferjuna yfir til Orient Point á Long Island. Keyrðum á nokkrar vínekrur og fengum að skoða og smakka uppskeruna áður en við héldum til East Hampton þar sem við gistum eina nótt. Fellibylurinn Hanna gekk yfir með mikilli rigningu og einhverjum vindi og mátti sjá nokkrar trjágreinar á víð og dreif á sunnudeginum þegar við keyrðum um svæðið og voru brimbrettamenn mjög ánægðir með brimið hjá Montauk vitanum þar sem þeir voru í bunkum.

sunnudagur, ágúst 31, 2008

Benoit (55th street á milli 5th & 6th)

Alain Ducasse opnaði þennan stað síðastliðið vor og er mjög skemmtilegt og hefðbundið franskt brasserie. Maturinn var mjög góður ... sniglar, lauksúpa, kjúklingur og kálfaskankar en desertinn olli smávegis vonbrigðum því miður. Franski þjónninn okkar var dáldið klikkaður en það jók bara á frönsku stemninguna. Gef honum þrjár og hálfa stjörnu.

sunnudagur, ágúst 24, 2008

Við drifum okkur út í hjólatúr og Inga Huld var á nýja hjólinu. Mikill munur fyrir hana og komst hún nú hraðar yfir og þreyttist ekki alveg eins mikið ... gírarnir eru reyndar dáldið stífir til að skipta í léttari gír en það kemur þegar hún styrkist. Í þetta skiptið fórum við 21st alla leið yfir á vesturhliðina og hjóluðum upp að stræti 85 þar sem við fundum búð og keyptum okkur samlokur og ávexti sem við gátum gætt okkur á við árbakka Hudson River og notið veðurblíðunnar.

laugardagur, ágúst 23, 2008

Keyrðum í Six Flags í New Jersey til að fara í nokkur tæki sem ekki var búið að prófa. Ætluðum að vera mætt snemma en töfðumst í umferð á leiðinni sem var þung líklega vegna þess að þetta er síðasta helgi áður en skólarnir byrja þannig að margir eru að nota tækifærið fyrir langa helgi eða fríviku. Höfðum samt nægan tíma í skemmtigarðinum og byrjuðum á Dark Coaster sem er nýr Batman rússibani en hann olli því miður vonbrigðum og var lítið fútt í honum þrátt fyrir mikla uppbyggingu í röðinni þannig að Inga Huld ætlaði varla að þora í hann. Síðan skelltum við okkur í vatnsrússibana, fallhlífartæki og ýmis önnur minni tæki sem Inga Huld vildi fara í. Að lokum sáum við tígrisdýrashow sem vakti mikla lukku ... sáum ýmiskonar tilþrif sem hann Herra Níels sýnir stundum heima. Á leiðinni heim stoppuðum við á Americana Diner sem við fórum einnig á síðast þegar við vorum á ferðinni ...

sunnudagur, ágúst 17, 2008

Ákváðum að vera dugleg í dag og leigðum okkur hjól á fjórtánda stræti. Fórum þaðan út að East River og hjóluðum alla leiðina niður Manhattan og upp meðfram Hudson River á vestur hliðinni þangað til við gátum farið yfir aftur á 20th þar sem búið er að útbúa hjólaakrein á götunni ... þótti Ingu Huld það mikið sport og gleymdi alveg hvað hún hafði verið orðin þreytt áður á hjólastígnum.

En um leið og heim var komið var keypt nýtt hjól fyrir Ingu Huld þar sem hjólið sem hún fékk þegar við fluttum til London þegar hún var þriggja ára er orðið allt of lítið fyrir hana. Maður varð í rauninni sjálfur orðinn þreyttur bara við það að horfa á hana hamast að hjóla á því til að komast áfram. Pöntuðum því stærra hjól með dempurum og sjö gírum!! Það ætti því að vera auðveldara fyrir hana að hjóla í næsta skiptið og er biðið eftir nýja gripnum með mikilli eftirvæntingu ...

Um kvöldið grilluðum við svo slatta af nýja ferska grænmetinu okkar frá því í gær og var maísinn alveg sérstaklega góður ásamt eggaldinu og paprikunum ... namminamm ...

laugardagur, ágúst 16, 2008

Fórum í morgun í bíltúr útí sveit þar sem hægt er að tína ávexti og grænmeti sjálfur. Stelpurnar voru búnar að plana ferð til Lawrence Farms Orchards sem bauð upp á "Pick Your Own" ...


Fylltum körfur og poka af maís, paprikum, chilli, kúrbít, eggaldin, mörgum tegundum af tómötum, ferskjum, perum, eplum, nektarínur og plómum! Fullur ísskápur af brakandi fersku og hollu góðgæti ...


Á heimleiðinni var ekki hægt annað en að staldra aðeins við í Woodbury Outlet og var hægt að versla skíðabuxur á 75% afslætti ásamt stuttbuxum, peysum og bolum ... ýmislegt sem vantar ... þegar heim var komið horfðum við á upptöku af æsispennandi jafnteflisleik við Dani á ÓL 2008.

sunnudagur, ágúst 10, 2008

Fengum góða gesti í mat í gærkvöldi þegar Sigurgeir, Elín og Sandra komu og nutu veðurblíðunnar með okkur uppi á palli. Grilluðum NY strip steik marineraða í rauðvíni að hætti Gordon Ramsay og desert var hafður eftir Jamie Oliver með smá ívafi frá Alan Ducasse... ekki amalegur mannskapur það! Það er líka skemmtilegt að versla á Farmers Market á sumrin þar sem allt er brakandi ferskt og safaríkt ... reynum að gera það á laugardagsmorgnum.

Erum annars dugleg að nota pallinn og er notalegt að grilla þar í góða veðrinu eftir vinnu, borða úti og slaka aðeins á ... dagurinn lengist einhvern veginn aðeins við það.

Inga Huld fékk síðan óvæntan næturgest þar sem Sandra fékk að gista og fannst þeim það sniðugt ... byrjuðum svo morguninn á því að fá okkur belgískar vöfflur og annað hollt á Friend of a Farmer áður en við leyfðum þeim að skvettast aðeins á leikvellinum á Madison Square Garden. Við fórum síðan seinni partinn á Met museum þar sem Inga Huld hefur komið áður með skólanum og vildi endilega sýna okkur Egypsku deildina þar sem ýmsar múmíur og aðrir fornmunir eru til sýnis ... röltum síðan aðeins um safnið og höfum líklega náð ca 10% á þessum 3 tímum sem við vorum þarna ...

cheers

miðvikudagur, júlí 09, 2008

Road Trip ...

Það eru góðir gestir í heimsókn og var búið að plana bíltúr með góðum fyrirvara þar sem rúnta átti aðeins um sveitir Bandaríkjanna og kíkja á eitt og annað. Leigður var Chevy til að flytja liðið og dugði ekkert annað en hálfgerð langferðabifreið.

Byrjað var í Six Flags sem er skemmtitækjagarður í New Jersey og býður uppá vatnsleikjagarð, tækja- og rússibanagarð og "drive-thru safari" sem ku vera eitt það stærsta í Bandaríkjunum. Ég og Palli gátum að sjálfsögðu farið í hraðasta og hæsta rússibana í heiminum sem nefnist Kingda-Ka og var skemmtilegt 23 sekúndna kikk ... Hérna var haldið uppá afmælið hennar Ingu Huldar þar sem skvísan varð 8 ára gömul og var boðið uppá köku eldsnemma um morguninn og var síðan skemmt sér í garðinum allan daginn í blíðunni!

Frá Six Flags héldum við til Washington á sjálfum þjóðhátíðardeginum fjórða júlí og vorum komin um kvöldið og náðum í flugeldasýninguna ... daginn eftir var síðan Washington könnuð nema ég lenti í að fara með bílinn í viðgerð þar sem reynt hafði verið að brjótast inní hann og var lásinn skemmdur en ekki höfðu ómennin þó komist inní bílinn sem betur fer.

Eftir að hafa kannað Washington í einn dag var haldið í bæ sem nefnist Hershey (borið fram hörsjí) þar sem Hershey sjálfur þróaði Hershey súkkulaðið og byggði Hershey bæ í kringum Hershey verksmiðjuna sína. Ekki er lengur framleitt Hershey súkkulaði þarna í Hershey heldur er búið að breyta versksmiðjunni í Hershey safn og annað skemmtilegt. Við fræddumst mikið um sögu súkkulaðsins og hvernig það er búið til ásamt því að geta keypt og borðað dáldið mikið af því ...

Eftir tvær nætur í Hershey var haldið til New Hope sem er lítill og huggulegur bær í Bucks County í Pennsylvaniu. Gistum þar á rólegu Bed & Breakfast og var lífinu tekið með miklum rólegheitum áður en haldið var aftur heim til New York eftir 8 daga ferðalag ...

mánudagur, júní 23, 2008

Fimmtudagurinn 19. júni var síðasti dagur Ingu Huldar (þetta árið) og Jóu (alfarið) í skólanum og ég bauð því uppá surprice ferð til Jamaica í tilefni þessa merku tímamóta! Sólstrandafötunum var því skellt í tösku og síðan var haldið af stað á föstudagsmorgninum. Flugið til Montego Bay á Jamaica er um 4 tímar og hótelið okkar var síðan um korters keyrsla. Gistum á skemmtilegu hóteli við ströndina sem var með golfvöll í hlíðunum fyrir ofan ... við notuðum golfvöllinn nú ekki en borðuðum þar hádegis og kvöldmat þó. Þessi tími virðist góður til að ferðast til Jamaica þar sem hann er off-season og ekki var mikið af ferðamönnum en nóg af starfsfólki til að stjana við okkur og veðrið var súper! Notuðum því tímann til að slappa af og fagna námslokum Jóu á viðeigandi hátt.


mánudagur, júní 16, 2008

Var vakinn í morgun með rosa fínu korti og pakka sem í var skyrta og bindi ... einmitt einsog ég hafði verið að tala um daginn um að mig vantaði ... síðan var mér tjáð að heilmikil dagskrá væri framundan ... plan A og plan B ... tilefnið var að sjálfsögðu feðradagurinn. Byrjað var á brunch á Friend of a Farmer sem var sameiginlegt plani A og B ... síðan þar sem byrjaði að rigna (enn einu sinni ...) þá var haldið á plan B og byrjað í Bloomingdales þar sem maðurinn var dressaður í fleiri skyrtur og bindi og stuttbuxur og stuttermaboli. Eftir það lá leiðin í Bowlmore í keilu þar sem ég fékk að vinna 2 leiki með herkjum áður en haldið var í bíó að sjá Indiana Jones. Þegar heim var komið átti ég svo að grilla nautalundir en þar sem gasið kláraðist þá sá Jóa um að steikja á grillpönnuninni ... mega skemmtilegur feðradagur!

Hittum góða kunningja í gær og fórum út á lífið ... það var heilmikil dagskrá og var reynt að láta ekki sífellda ausandi rigningu slá hana útaf laginu. Byrjuðum á format og fordrykk á Rose Bar áður en haldið var til Carnegie Hall að sjá Begga og Diddú þenja raddböndin ásamt nokkrum íslenskum kórum í mjög öflugu verki. Eftir það var haldið út að borða á indverskan stað Devi og endað var á barnum á W á Union Square ... þegar barinn þar lokaði var látið gott heita!

laugardagur, júní 14, 2008

Devi (18th street á milli Broadway & 5th)

Lítill, fallegur og huggulegur indverskur veitingastaður sem lætur lítið yfir sér utan frá en er með mikinn indverskan blæ innandyra. Tandoori er allsráðandi og heppnast vel ásamt öðru indversku góðgæti! Ein Michelin stjarna ... og fjórar frá mér.

sunnudagur, júní 08, 2008

Það er heitt þessa helgina með um 35 stiga hita sem er óvenjuheitt í júní ... eru ýmis hitamet að falla. Við fórum í göngutúr til að njóta veðurblíðunnar og sáum m.a. skrúðgöngu Puerto Rico sem einhver sagði að væri sú fjölmennasta í borginni ... veit ekki hvort það sé satt en fannst hún að mestu leyti snúast um að gera hávaða. Gátum verslað lítillega og fengum okkur meiriháttar flott Afternoon Tea á Maze sem Gordon Ramsey er með á The London ... þetta var í ekta breskum stíl með þriggja hæða diskum en við fengum þó að skipta heita teinu í íste sem var vel.


Í gær skelltum við okkur í bíltúr í Storm King Art Center sem er skúlptúrgarður með stór verk. Fengum okkur nesti þar, nutum lífsins og sleiktum sólina í menningunni ...

fimmtudagur, júní 05, 2008

Inga Huld spilaði á píanótónleikum í BIS í dag. Henni hefur farið mjög mikið fram og hefur sjálfsöryggi hennar aukist til mikilla muna. Því miður gat ég ekki verið viðstaddur þar sem ég var á leið til Amsterdam í tveggja daga vinnuferð og var því "bara" mamma að horfa ... fannst Ingu Huld það miður.

sunnudagur, júní 01, 2008

Við byrjuðum daginn á staðgóðum morgunmat með stelpunum á Friend of a Farmer sem samanstóð af hollum og góðum ávöxtum með belgískum vöfflum og sírópi ... nauðsynlegt að hafa góða orku þegar arkað er um Manhattan. Ég og Inga Huld fórum svo bara heim að dunda okkur en hittum svo Jóu og Elvu og fórum í rólegheitunum í Greenwich að rölta og fengum okkur að sjálfsögðu bollaköku í Magnolia sem klikkar aldrei. Bættum í sarpinn bananabúðing sem var vel þess virði að prófa! Keyptum nokkrar kökur að auki til að eiga heima ... alltaf gott að eiga nokkrar bollakökur í kælinum ...

laugardagur, maí 31, 2008

Á fimmtudaginn kom hér fríður hópur ungra kvenna og mun dvelja í nokkra daga í vellystingum í New York. Fimm vinkonur Jóu lögðu svæðið undir sig og gerðu sitt besta til að smyrja hjól bandaríska efnahagslífsins og koma hringrás peningamálanna í sitt fyrra horf ... að sjálfsögðu var gætt að tollamörkum og innflutningshömlum ... Ég hef nú lítið orðið var við hersinguna þar sem ég er farinn í vinnuna áður en þær hefja sig á fætur og kominn í bólið þegar þær koma aftur heim. Annars sýnist mér að allar sex hafi þær hafa náð að skemmta sér vel á þessum stutta tíma ... búið er að borða á Rosa Mexicano, Pure Food and Wine og á Morimoto og hápunkti ferðarinnar var svo náð á frumsýningu Sex and the City hér í borg þar sem allar voru á háum hælum. Nú líður þó að endalokum og haldið er heim á morgun og þurfti að passa að panta leigubíl með stærra skotti en þeim sem sótti þær á flugvöllinn þar sem það hafði bæst í töskufjöldann.
Það var langur dagur hjá Ingu Huld í dag. Við mættum í sal á 138th street lengst uppi í Harlem klukkan 11 um morguninn þar sem Inga Huld þurfti svo að vera allan daginn við æfingar fyrir tap dance sýningu. Ég og Jóa mættum síðan á svæðið klukkan fjögur þegar sýningin sjálf byrjaði og stóð hún yfir í ca 2 klukkutíma. Sýningin samanstóð af ýmiskonar dansatriðum hjá krökkum í ýmsum aldurshópum t.d. ballet, jazz, hip-hop og svo tap ... held ég hafi í raunar aldrei séð tap dansaðan á sviði áður ... mjög hresst og skemmtilegt!


mánudagur, maí 26, 2008

Við ákváðum að nota tækifærið þessa löngu helgi og fara í borgarferð til Boston. Tókum lestina eldsnemma á laugardagsmorgni og brunuðum með Acela Express á rúmum þremur tímum á áfangastað. Gistum á Taj Boston sem er borið fram Tash Boston og olli nokkrum vandræðum í upphafi ferðar til að koma leigubílstjóra í skilning um það hvert í ósköpunum við vildum fara ... allavega var bara mjög gaman í Boston sem virðist vera róleg og afslöppuð borg með ýmislegt að sjá og skoða. Ítalíuhverfið með fjölda ítalskra staða, kaffihúsa og bakaría var einna vinsælast ... einn leigubílstjórinn sagði að í hverfinu væru 107 ítalskir staðir og einn tour guide sagði að þar væru rúmir 90 ítalskir staðir ... líklega rétt um 100 ítalskir staðir þá í þessu hverfi. Fundum að sjálfsögðu Cheers en tveir þeirra eru til ... annar er eftirlíking af staðnum í þáttunum og hinn er er fyrirmyndin og var notað til að taka upp utanvið en er síðan öðruvísi að innan. Notuðum annars bara tækifærið til að slappa af og vera í rólegheitunum og röltum mikið um hverfin og nutum lífsins vel og vandlega. Við komum svo heim seinnipartinn á mánudeginum og var bara þægilegt að skjótast svona með lestinni og þurfa ekki að ganga í gegnum flugvallarstressið.

cheers

sunnudagur, maí 18, 2008

Fyrir tveimur vikum síðan fórum við á sýningu Ólafs Elíassonar í MoMA og skoðuðum ýmsar skemmtilegar innsetningar hans.


Í dag skelltum við okkur á hinn hluta sýningar hans sem er í PS1 í Queens, rétt hinum megin við eystri ána.

Þar mátti sjá nokkur verk í viðbót ásamt töluvert af tilraunamódelum og myndaröðum af náttúru Íslands ... mjög skemmtilegt og áhugavert.


Hittum aftur Magga & Bryndísi og núna á Chocolate by the Bald Man þar sem við gátum gætt okkur á ýmislegu lostæti og belgt okkur út! Enduðum daginn á bíóferð að sjá nýju Narnia myndina sem olli ekki vonbrigðum ...

laugardagur, maí 17, 2008

Það var farið eldsnemma á fætur í morgun og drifum við okkur út á Farmers market á Union Square þar sem við gátum verslað ferskt grænmeti og ávexti ... kláruðum svo innkaupin fyrir helgina í Whole Foods þar sem nú er Frú Jóhanna tekin til hendinni í eldhúsinu og farin að kokka ýmislegt góðgæti þar sem nú gefst tími til eftir að það léttist aðeins vinnuálagið í skólanum. Inga Huld þurfti að fara á æfingu fyrir tap dance sýningu sem er í lok mánaðarins og fórum við með hana til vinkonu hennar þar sem þær ætluðu að verða samferða. Á meðan hittum við góða vini í heimsókn frá Íslandi, Magga & Bryndísi, og fórum í hádegismat á Maze sem Gordon Ramsey er með á The London ... eftir matinn gátu konurnar síðan verslað skó - að sjálfsögðu - í lítilli huggulegri búð sem er í sömu götu. Við sóttum síðan Ingu Huld sem var búin að dansa allan eftirmiðdaginn og var því orðin frekar þreytt og lúin ...

sunnudagur, maí 11, 2008

Inga Huld dröslaði okkur út eldsnemma í morgun á nýja veitingastaðinn á horni 24th og 3rd, Bar Milano sem er partur af nýju hóteli. Þetta var sem sagt í tilefni mæðradagsins að móðurinni var boðið uppá morgunmat ... og hafði Inga Huld haft augastað á þessum stað í dáldinn tíma til að fara annaðhvort með mömmu sína í kvöldmat eða morgunmat á mæðradaginn.

Það er dáldið síðan að við ákváðum að það væri orðið of þröngt um okkur í íbúðinni ... leigðum okkur því ZipCar og fylltum bílinn af drasli sem við notum aldrei og skelltum því í geymslu útí bæ. Þarna leyndist ýmislegt sem mátti náttúrulega alls ekki henda og því vissara að geyma það aðeins lengur þrátt fyrir að vera aldrei notað. Ætluðum svo að nota tækifærið og stoppa í Magnolia á leiðinni heim til að kaupa bollakökur með kaffinu en nenntum ómögulega að standa í 40 mínútna röðinni sem var einsog iðulega um helgar. Höfðum vonast til að röðin væri styttri þar sem klukkan var einungis um tvöleytið. Skiluðum því bílnum og löbbuðum á kaffihús á Union Square þar sem hægt var að fá góða köku. Við versluðum síðan í Garden of Eden en Inga Huld var búin að plana matinn í tilefni mæðradagsins ... í forrétt var reyktur lax á litlu ristuðu brauði með rjómaosti ... síðan voru grillaðar hamborgarar og í desert var sumarávaxtadraumur. Ég hjálpaði aðeins til en Inga Huld sá um þetta mest allt saman sjálf og gekk meira að segja frá líka.

cheers

mánudagur, maí 05, 2008

Í kvöld var kynning 'Proto-Urban Tower Space' lokaverkefninu í masternáminu. Kynningin gekk vel og ýmar áhugverðar spurningar og skoðanir voru ræddar meðal nemenda og prófessora.



Verkefnið var samvinna 11 nemenda sem byggðu 8 metra hátt turnrými með þremur hangandi lóðréttum turnum og einum hallandi turn sem skar í gegnum hina þrjá.



Áherslan var lögð á rýmið milli turnanna og upplifunina af turnrýminu frekar en ytra skinn þeirra. Stærsta þrekraunin reyndist oftar en ekki vera sú að komast að sameiginlegri niðurstöðu en einnig voru tíðar umræður um hvort turnarnir myndu standa.



Samvinnan og verkefnið sem stúdíóið fékkst við var virkilega gefandi og hiklaust besta stúdóið sem ég tók þátt í í Pratt.

mkv
Jóa

laugardagur, apríl 26, 2008

Stelpa frá Ástralíu byrjaði nýlega í bekknum hennar Ingu Huldar. Ég og Inga Huld hittum hana ásamt systur sinni og föður og fórum í Central Park Zoo þar sem við nutum veðurblíðunnar og höfðum það gott ...

sunnudagur, apríl 20, 2008

Nú er Jóa öllum stundum í skólanum þar sem hún og hennar hópur leggja lokahönd á lokaverkefni sitt sem er risastórt módel, um 15 metra hátt, af þremur háhýsum sem þau hafa hannað af mikilli natni í vetur. Í dag bakaði Inga Huld fullt af rískökum og okkur fannst upplagt að koma færandi hendi í kaffitímann til mömmu ... leigðum okkur því ZipCar og komum að auki við í WholeFoods og keyptum íste og límonaði (mjög amerískt það ...). Ingu Huld fannst þó ekki sniðugt að keyra um með blæjuna niðri þar sem hárið hennar ruglaðist og það var líka dáldið erfitt að sjá á tölvuspilið ... fannst pabbi sinn greinilega ekkert sérstaklega svalur á blæjubílnum ...

cheers

miðvikudagur, apríl 16, 2008

sunnudagur, apríl 13, 2008

Inga Huld gerði alveg útaf við mig um helgina þar sem hún var svo viljug að fara út að hjóla og var ég hlaupandi á eftir ... hún hefur greinilega styrkst mikið frá því í fyrra og heldur því góðum meðalhraða núna. Við fórum bæði laugardag og sunnudag að Brooklyn Bridge. Veðrið er tekið að hlýna og er komið gott vorveður með um 15 stiga hita og heitara þegar sólin brýst fram. Nú líður að lokum vorannarinnar hjá Jóu og var hún því alla helgina í skólanum - ég og Inga Huld tókum svo ZipCar á laugardaginn og sóttum hana við mikinn fögnuð. Nú er ekkert sem stoppar grillmeistarann og voru grillaðar lambalærisneiðar töfraðar fram á sunnudagskvöldinu ...

fimmtudagur, apríl 10, 2008

Amma og afi fóru í dag og erum við þrjú í kotinu aftur hér eftir en það er næstum mánuður síðan við vorum þrjú hér þar sem við vorum öll saman á Íslandi, svo var Inga Huld eftir á Íslandi og svo voru amma og afi hjá okkur. Það er því orðið langt síðan við höfum eldað okkar heimilismat og haft það rólegt fyrir framan sjónvarpið ... Ýmislegt var brallað með ömmu og afa og gat Inga Huld platað þau í ýmislegt, meðal annars á National History Museum og Guggenheim ásamt því að fara á kaffihús og fá sér smoothies ... við fórum líka á góða veitingastaði og var Smith & Wollensky góður sem endranær og klikkar ekki Prime Rib steikin þar og er óbreytt í gæðum frá því í fyrra og frá árinu 1978 þegar sumir komu þangað og er enn í fersku minni ...

laugardagur, apríl 05, 2008

Inga Huld kom til okkar í gær með ömmu og afa sem ætla að dvelja hjá okkur í viku og voru miklir fagnaðarfundir!! Við byrjuðum á rólegu nótunum og tókum bílaleigubíl og keyrðum upp til Greenwich til að sýna liðinu nýja vinnustaðinn og við röltum síðan um huggulegt þorpið í meiriháttar blíðu. Þegar komið var tilbaka til Manhattan var ég kominn með vorlegan grillfíling og leist liðinu vel á að kaupa steik á grillið. Það heppnaðist bara mjög vel og var meira að segja splæst í að opna Beringer Private Reserve frá 1997 og BV frá 1995 og var sammælst um að þau væru mjög góð.

miðvikudagur, apríl 02, 2008

Þegar við vorum að bíða eftir jökkunum okkar á Dos Caminos eftir alltaf jafngóðan mexíkóskan kvöldmat sagði ég við Jóu, "sjáðu þessu huggulegu skælbrosandi konu þarna að panta borð ... hún er alveg einsog Julia Roberts" ... "já, kannski" sagði Jóa og hélt áfram "sjáðu manninn sem stendur þarna við hliðina á henni ... hann er alveg einsog hvað hann þarna heitir maðurinn hennar Juliu Roberts" ... "guð minn góður, þetta er Julia Roberts og maðurinn hennar" sögðum við svo bæði :) ... dáldið spaugilegt. Fengum svo staðfestingu á því þar sem yfirþjónninn kom fljótlega hlaupandi að og spurði þann sem vann í afgreiðslunni "er þetta sú sem ég held að þetta sé" ... og var fljótlega svarað "já, þetta er hún!!" og þar með hljóp yfirþjónninn aftur inní sal til að redda borði. Jóa mundi svo að þau væru að taka upp mynd núna hér í NY þannig að þetta stemmdi allt saman. Þau voru bara líbó á málinu og voru hress með málin en hafa mjög líklega fengið borð fljótlega ... en mikið ótrúlega getur konan brosað :)

þriðjudagur, apríl 01, 2008

Jæja, þá er maður orðinn starfsmaður RBS GCM ... Royal Bank of Scotland, Greenwich Capital Markets ... og er ABN AMRO að líða undir lok. Þeir þurfa endilega að vera staddir í næsta fylki, Connecticut, nánar tiltekið í Greenwich sem er huggulegur bær í um 45 mínútna lestarferð frá Manhattan. Ferðatíminn í vinnuna er því orðinn rúmur klukkutími í stað hálftíma göngutúrs eða korter í subway ...

sunnudagur, mars 30, 2008

Það er langt síðan við höfum verið barnlaus í nokkra daga og hvað gerir barnlaust fólk? Okkur datt í hug að nota tækifærið og skella okkur til Las Vegas og fórum því þangað í stutta helgarferð. Hótelið, Bellagio, bauð uppá allt sem hugurinn gat hugsanlega girnst og hefði því ekki þurft að yfirgefa það í nokkra daga áður en leiðinn sækti að. Veðrið var frábært, um 20-25 stiga hiti og þurrt loft ... gott að sitja því á sundlaugarbarnum og sötra hvítvín og kokteila á milli þess sem reynt var á heppnina í spilavítinu. Eini gallinn er að veitingastaðirnir þarna eru því miður ekki alveg nógu góðir og reyndum við þriggja stjörnu Michelin stað hans Joel Robuchon á MGM Grand en hann Joel á víst veitingastaði með flestar stjörnur í heiminum en hann olli vonbrigðum og var 6 rétta matseðillinn ekki alveg nógu vel heppnaður ... sem betur fer fórum við ekki í 15 rétta matseðilinn hans! Besta frá honum var kveðjugjöf sem var risastórt Panettone brauð sem við gæddum okkur á í morgunmat áður en við fórum í 40 mínútna þyrluferð til Grand Canyon þar sem hádegismatur vær snæddur í góðu yfirlæti og mjög svo mikilfenglegu umhverfi í miðju gljúfrinu við hlið Colorado árinnar. Annars nutum við bara lífsins í allsnægtum og höfðum það mjög gott ...

Við komumst allavega að því að við erum ekki heppin í spilum (eða rúllettu ...) þannig að við hljótum að vera heppin í ástum ...

mánudagur, mars 24, 2008

Við hjúin erum nú komin aftur frá Íslandi eftir stórfínt páskafrí og verðum tvö í kotinu í eina og hálfa viku þar sem Inga Huld mun dvelja í miklu yfirlæti hjá ömmum sínum. Nutum þess vel einsog alltaf að koma heim og fórum í hvert matarboðið á fætur öðru á milli þess sem við borðuðum páskaegg ... það var því lítið lagt af í þessari ferð enda var það sosum ekki markmiðið.

Aðalumræðuefnið á hverjum stað var hrun krónunnar og lok velmegunar Íslands ... það er þó eitt sem margir öfunda Íslendinga af ... og það er að geta lagt pening inn í banka og fá 15% ávöxtun á sparifé eða 7,5% raunávöxtun ... það eru því tvær hliðar á peningnum ...

föstudagur, mars 14, 2008

Le Bernardin (51st street, á milli 6th & 7th)

Við vorum með miklar væntingar um þennan lofaða sjávarréttastað en urðum því miður fyrir vonbrigðum. Þrátt fyrir að maturinn væri ekki slæmur þá var hann ekki æðislegur einsog ætla mætti miðað við toppeinkunn frá Michelin. Þrjár Michelin stjörnur og ég gef honum fjórar stjörnur með herkjum ...

sunnudagur, mars 09, 2008

Það rigndi þokkalega þessa helgi - byrjaði náttúrulega þegar vinnudeginum var að ljúka á föstudeginum og rigndi svo nánast stanslaust fram á laugardagskvöld með nokkrum hellidembum inná milli ... birti svo til með sól og köldu lofti á sunnudeginum. En nóg af veðrinu ... hjúin hittust tvö eftir vinnu á föstudeginum og skelltu sér í bíó til að sjá Juno ... ég hafði nú ekki háar væntingar til myndarinnar en var til í að sjá mynd þar sem enginn var drepinn og enginn var með einhvern fíflagang. Kannski er alltaf best að fara í bíó með litlar væntingar en allavega kom myndin verulega á óvart og var bara glettilega fyndin og skemmtileg á að horfa. Við ætluðum svo á Gramercy Tavern á eftir en þar var fullt og fólk sat lengi við þar sem enginn vildi út í rigninguna ... fundum því huggulegan pizzastað nálægt sem bauð uppá mjög góðar thin crust pizzur.

Á laugardaginn hafði verið ákveðið að fara að versla þar sem eitt og annað vantaði einsog vant er og því var farið út að versla ... byrjuðum í Conran shop og stukkum síðan yfir í Bloomingdales. Þar sem pokarnir voru orðnir þungir og rigningin mikil þannig að regnhlífin náði ekki að dekka bæði mann og poka þá fórum við yfir í Dylan´s Candy Bar og fengum okkur nammi, köku, ís og drykki ... versluðum svo í Food Emporium við hliðina á Conran shop þar sem við buðum okkur í veislumat um kvöldið. Heilsteiktum 1,5kg af RibEye á beini með gulrótum, hvítlauk, parsnips, rauðlauk og ýmsu góðu kryddi, bárum þetta fram með horseradish og Beringer Private Reserve 1997 ... alveg ótrúlega gott! Hafði meira að segja fjárfest í kjöthitamæli en hann virkaði ekki sem skyldi og sýndi að steikin væri enn "rare" þrátt fyrir að hún væri "medium" ... leitun er því enn að betra tæki ...

Í dag hefði verið betra að fara útað versla en í dembunni í gær þannig að við fórum bara líka í dag ... röltum núna niður í Container store og Gap sem eru í kringum 20th Street og 5th Avenue. Enduðum á því að rölta yfir í Chelsea Market og fengum okkur Cupcakes þar með miklu kremi ... og var labbað heim eftir þau herlegheit ...

Má kannski benda á það í lokin að við misstum einn klukkutíma í nótt og erum nú komin á sumartíma ... það er því aftur myrkur á morgnana og bara fjögra tíma munur til Íslands ... Evrópa (utan Íslands) breytir þó ekki fyrr en eftir þrjár vikur þannig að ekki láta þetta rugla ykkur í ríminu eða tímanum ...

föstudagur, mars 07, 2008

La Pizza Fresca (20th St, á milli 5th og Broadway)

Mjög góður ítalskur pizzastaður með thin crust pizzur ... pastað leit líka vel út en við vorum í pizzustemmningu. Flottur vínlisti og úr nógu að velja - mæli algjörlega með þessum til að droppa inná fyrir léttan kvöldmat. Fjórar og hálf stjarna fyrir pizzustað ...

mánudagur, mars 03, 2008

Þar kom að því að við værum rænd!! Það var þó farið mjög pent í það og biðum við ekki neinn sálrænan skaða af ráninu. Ránið fór sem sagt fram að mestu rafrænt ... á föstudaginn þegar ég fór í hraðbankann þá var engin heimild til úttektar þar sem hámarkinu hafði verið náð þann daginn í hraðbankaúttekt. Ég hélt að Jóa hefði tekið út pening til að kaupa eitthvað fallegt handa mér og minntist ekki á þetta fyrr en á laugardaginn í rólegheitunum þar sem ég var ekki búinn að fá neinn pakka. Hún þvertók fyrir að hafa farið í hraðbankann á föstudaginn og kíkti ég því í heimabankann sem ég kíki nú reglulega í til að tékka á stöðunni einmitt til að koma auga á svona lagað snemma. Þá kom í ljós að á hverjum degi síðan á þriðjudaginn var búið að taka út hámarksfjárhæð í hraðbankanum af kortinu okkar!!! Hringdi snarlega í þjónustuver Citibank og urðu þeir afskaplega leiðir yfir tilvikinu ... komumst að því að ef til vill var kortið afritað í sjálfsala sem selur kort til að nota í lestarnar hér. Þeir lokuðu kortinu strax og gáfum við sérstakri deild hjá þeim skýrslu ... fáum síðan pappíra sem við skrifum undir og sendum tilbaka með samþykki að þeir megi nota upplýsingarnar til að lögsækja aðilann ef hann finnst. Að þessu loknu þá endurgreiða þeir okkur stuldinn hvort sem þeir finna þjófinn eða ekki ...

... betra að fara varlega ...

laugardagur, mars 01, 2008

A Voce (26th St, á milli Madison & Park)

Flottur og góður ítalskur staður hjá Madison Square Park. Kokkurinn lærði hjá stjörnunni Daniel Boulud og var maturinn mjög góður, þjónustan hélt samt ekki í við matinn og hefði mátt vera betri. Ein Michelin stjarna ... fjórar stjörnur frá mér ...

þriðjudagur, febrúar 26, 2008

Það mætti halda að við værum hætt að fara útað borða á þessum bænum ... ég hef þó komist að hvað er málið ... ég held að ég nenni ekki að skrifa svona mikinn texta um staðina og ákvað að prófa að stytta mál mitt. Hér kemur því upptalning á stöðum sem ég man í augnablikinu eftir því að við höfum farið á ...


Per Se (10 Columbus Circle, Time Warner Center)
Franskur 9 rétta matseðill ... ekki viss um hvort eða hvernig hægt sé að gera betur. Best að vera ekki í tímapressu á þessum stað því það er ekki verið að flýta sér og líka betra að njóta lífsins vel í þessari matarhimnasælu. Þrjár Michelin stjörnur ... fimm stjörnur frá mér ...


Del Posto (10th Av, á milli 15th &16th St)
Meiriháttar ítalskur staður - rosalegur ítalskur vínlisti. Tvær Michelin stjörnur ... fimm stjörnur frá mér ...


Buddah Bar (Little West 12th, á milli Washington St & 9th Av)
Flottur staður til að fara í hóp á ... stór og mikill staður og dáldil læti en maturinn góður sem er asískt fusion. Fjórar stjörnur ...


Vezzo Pizza (Lexington, á milli 31st & 32nd)
Frábær thin crust pizza ... höfum þó bara prófað heimsendinguna. Fjórar stjörnur fyrir pizzu ...


Nobu 57 (57th St, á milli 5th & 6th Av)
Nobu klikkar aldrei! Asískt fusion einsog það gerist best ... verður að panta Black Cod í miso sósu ... algjört nammi! Fimm stjörnur ...


Koi (40th St, á milli 5th & 6th Av)
Skemmtilegur og flottur staður hjá Bryant Park sem býður uppá asískt fusion. Fjórar og hálfa stjörnu ...


Gordon Ramsey at the London (54th St, á milli 6th & 7th Av)
Klassískt franskt með Ramsey tvisti. Tvær Michelin stjörnur og fimm stjörnur frá mér ...


Union Square Cafe (16th St, á milli 5th & Union Sq. West)
Zagat segir að þetta sé vinsælasti staðurinn í New York. Mjög góður og hefðbundinn matur hjá Danny Meyer sem veldur því líklega að maður vill koma aftur ef oft er farið útað borða. Fjórar stjörnur ...


Aquavit (55th St, á milli Madison & Park)
Eini skandinavíski veitingastaðurinn á Manhattan - flott skandinavísk hönnun. Fórum einmitt hér fyrir jólin og fengum síld og þessháttar góðgæti. Fjórar og hálfa stjörnu ...


Ben Benson´s (52nd St, á milli 6th & 7th Av)
Týpiskt amerískt steikhús þar sem gott er að fá skelfisk í forrétt og stóra steik í aðalrétt. Virðist vera einn af fáum stöðum þó í Manhattan þar sem hægt er að fá sneið af ekta-heilelduðu prime rib. Fjórar stjörnur ...


City Crab (Park, á milli 19th & 20th)
Góður amerískur sjávarréttastaður ... humar, krabbi, ostrur og þannig háttar. Þrjár og hálfa stjörnu ...


Momofuku Noodle Bar (1st Av, á milli 10th & 11th)
Ódýr, góður og vinsæll núðlubar með ótrúlega góðar núðlusúpur! Þrjár og hálfa stjörnu ...


Shilla (32nd St, á milli 5th & 6th Av)
Skemmtilegt kóreanskt BBQ þar sem steikin er grilluð á borðinu þínu. Nokkrir svona staðir í þessari Kóreugötu og eru ef laust flestir í svipuðum gæðum. Þrjár og hálfa stjörnu ...

sunnudagur, febrúar 24, 2008

Hér snjóaði töluvert á föstudeginum og voru komnir litlir skaflar á tímabili en svo breyttist snjókoman í ísrigningu með tilheyrandi frostkulda og svo fór að rigna. Við erum að reyna að vera umhverfisvænni og verslum stundum mjólk í glerflöskum á Union Square markaðnum beint frá bóndanum ... síðan er hægt að skila glerflöskunni og er $1 í skilagjald ... við gleymum náttúrulega alltaf flöskunum heima og tókum því 5 með okkur á laugardaginn og keyptum svo flösku af súkkulaðimjólk og venjulegri mjólk og greiddum bara $1,5 fyrir ... ekki svo vitlaust ef munað er eftir flöskunum.

Fengum góða gesti í heimsókn á laugardagskvöldið og skemmti Inga Huld sér vel með Brynju vinkonu sinni langt frameftir kvöldi. Við áttum íslenskt lambalæri sem við höfðum hlakkað lengi til að bjóða uppá. Byrjuðum á antipasti þar sem við keyptum sneiðar af hinum ýmsustu pylsum í Whole Foods ... best var að afgreiðslumaðurinn (sem var af stærri gerðinni) gaf alltaf tvær sneiðar að smakka þegar hann var búinn að sneiða niður, maður var því vel mettur eftir verslunina. Síðan var lambalærið eldað á ítalskan máta að hætti Jamie og kom vel út en komumst þó að þeirri niðurstöðu að við þurfum að fjárfesta í kjötmæli svo fylgjast megi betur með steikinni. Í desert var pavloa sem Jóa er búin að mastera svo vel. Gátum lokið við tvær koníaksflöskur (það má kannski taka fram að það var ekki mikið í þeim fyrir ...) og ljóst að það þarf að fjárfesta í nýjum birgðum. Með matnum prófuðum við ágætis rauðvín frá Sterling í Napa Valley, árgerð 2004 ... virkaði mjög vel!

Jóa þurfti svo að fara í skólann á sunnudeginum ... ekki hægt að treysta hópnum til að sjá um þetta án hennar! Ég og Inga Huld bókuðum Mini Cooper hjá Zipcar og sóttum hana ... notuðum svo tækifærið og fórum í smárúnt um Manhattan áður en við skiluðum bílnum. Ekki mátti vera sein heim þar sem útsending frá rauða teppinu á Óskarnum byrjaði klukkan 6 og ekki mátti missa af því! Pöntuðum okkur thin-crust pizzu og held ég bara að við höfum loksins fundið góðan stað, Vezzo pizza á 31st og Lex ...

cheers

mánudagur, febrúar 18, 2008

Það var feðginahelgi hjá okkur feðginunum þar sem Jóa skellti sér til Íslands á fimmtudagskvöldið til að mæta í brúðkaup. Við byrjuðum því tvö á því að fara í Virgin megastore á föstudaginn eftir skóla og vinnu og keyptum okkur bíómyndir og geisladiska til að dunda okkur við yfir helgina ... horfðum meðal annars á allar Indiana Jones myndirnar sem Ingu Huld fannst bara mjög skemmtilegar þar sem hún er nýbúin að vera að læra um sögu Egyptalands og ýmis konar fornleifauppgröft í tengslum við það. Á laugardaginn fórum við í bíó á Hannah Montana og fengum okkur svo kvöldmat á Chocolate by the bald man þar sem desertinn var að sjálfsögðu aðalatriðið, súkkulaðifondue með ávöxtum og marshmallows ... ekki amalegt! Í dag var svo frí í vinnunni og skólanum hjá Ingu vegna Presidents Day sem opinberlega heitir líka Washington´s Birthday og er haldinn árlega þriðja mánudag í febrúar. Ákváðum því að gera eitthvað menningarlegt og skelltum okkur á safn ... hmmm sem sagt Madame Tussaud og sáum ýmislegt skemmtilegt þar.

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Stelpurnar komu og hittu mig eftir vinnu á föstudeginum og fórum við á lokaútsöluhnykkinn hjá Saks ... var hægt að finna eitt og annað þar á góðu og hagstæðu útsöluverði ásamt sumu sem ekki var á útsölu. Við röltum svo niður á Kóreugötuna sem er á 32 stræti á milli 5th og 6th avenu ... völdum einn stað þar, Shilla, sem var með um 20 mínútna bið eftir borði og fengum okkur kóreanskt BBQ sem fer þannig fram að komið er með steikina eða fiskinn sem þú pantar og þjónninn grillar það á grilli sem er innbyggt í mitt borðið. Fengum okkur júmbó rækjur og rib eye strips, var bara merkilega gott og drukkum kóreanskan plómulíkjör með ...

Annars róleg og góð helgi - ég fór með Ingu Huld í afmæli til bekkjarsystur sinnar í dag ... á meðan fór ég í göngutúr og kíkti í Bang & Olufsen og Apple búðina ... stórhættulegt að sleppa manni einum svona lausum, ég sá nú ýmislegt sem bráðvantaði á heimilið einsog til dæmis nýju fartölvuna frá Apple sem er alveg ótrúlega lítil, nett og flott ...

miðvikudagur, febrúar 06, 2008

Ekkert saltkjöt var hér á sprengidaginn en við gátum þó endað á bollaköku í desert en bollurnar voru því miður búnar ... af öllum þessum bollakökum og bollum er maður nú orðin hálfgerð bolla sjálfur og spurning hvort það þurfi ekki að fara að hrista þetta af sér áður en maður verður feitabolla.

Hér er öskudagurinn tekinn hátíðlegur og margir fara í kirkju og fá kross teiknaðan á ennið með svartri ösku ... markar þetta upphaft Lent og byrjar einmitt 40 dögum fyrir páska. Þessi siður er lítið tíðkaður í Evrópu og sumum hér finnst fyndið hversu heiðið fólk er í raun og veru í Evrópu en nota samt tækifærið og nota alla kristnu frídagana til að sleppa við vinnu. Þeir skildu heldur ekkert í því þegar ég sagði þeim að heima á Íslandi klæddust krakkar í grímubúninga og sníktu nammi einsog á Halloween ... sló það allt út!

mánudagur, febrúar 04, 2008

Bolludagurinn sló í gegn ... í gær ákvað Jóa að baka bara bollakökur þar sem það væri eitthvað svo hefðbundið hér í bandaríkjunum (athugið að þetta eru sem sagt cupcakes en ekki bollukökur). Eftir að þær voru komnar úr ofninum þá fannst henni samt ómögulegt að fá ekki alvöru íslenskar bollur heldur bara amerískar bollakökur þannig að hún tók sig til og setti saman bollur á svipstundu og var því nóg af góðu bakkelsi hér í tvo daga ... bæði bollur og bollakökur ...

sunnudagur, febrúar 03, 2008

Það var mikil dagskrá þessa helgina þar sem við byrjuðum föstudagskvöldið á því að hitta góða vini á Nobu 57 og héldum síðan á Hairspray söngleikinn sem var bara nokkuð skemmtilegur með "Norm" í hlutverki mömmunar. Á laugardaginn héldum við svo tvö á ballet í Lincoln Center ... mjög skemmtileg uppsetning sem kallaðist Double Feature og voru tvær sögur, The Blue Necklace og Makin´Whoopee, þar sem dansinn var saminn af sama höfundi og sá um The Producers og Young Frankenstein þannig að þetta var í mjög léttum dúr og með tilvísun í þöglu myndirnar. Á eftir héldum við svo á Gansevoort og var drukkið kampavín frameftir nóttu í góðra vina félagsskap ...

Horfði svo að sjálfsögðu á SuperBowl þar sem New York Giants kepptu við New England Patriots ... Patriots voru ósigraðrir á leiktíðinni og voru taldir mun sigurstranglegri ... leikurinn var bara spennandi og skemmtilegur og endaði með sigri The Giants. Það virtist allt verða vitlaust í borginni í kjölfarið og gátum við heyrt í bílflautum og fólki klappa, hrópa og æpa langt frameftir kvöldi !!

sunnudagur, janúar 27, 2008

Þorrablót var haldið í gær á vegum Íslendingafélagsins í New York. Kaldhæðnislega var það haldið í gamallri kirkju á Upper West Side þar sem um 150 Íslendingar voru saman komnir í sínu fínasta pússi. Innfluttur kokkur frá Íslandi sá um matinn og var flott hlaðborð með reyktum og gröfnum lax, hangikjöti og uppstúf, baunum og að sjálfsögðu sviðasultu, hrútspungum, böggum og harðfiski ... súrmaturinn var ekki alveg nógu súr að mínu mati en góður þrátt fyrir það. Drengur með gítar hélt síðan uppi fjörinu með því að stjórna fjöldasöng, kokkurinn spilaði á harmoniku og síðan var plötusnúður sem hélt uppi fjörinu til miðnættis með því að spila gömul íslensk júróvisjón lög sem kom öllum út á dansgólfið ...

Mér tókst síðan að næla mér í einhverja kvefpest og kom brennivín og hákarl ekki í veg fyrir það ... spurning hvort veikindi kokksins hafi smitast á mig eða hvort mér hafi orðið kalt í pöbbaröltinu í Lower East Village eftir blótið ...

mánudagur, janúar 21, 2008

Það var löng helgi þar sem í dag er frídagur vegna Martin Luther King. Ég var búinn snemma á föstudeginum og hitti Jóu á Grand Central Market þar sem við versluðum nautalundir á grillið í kvöldmatinn. Hitastigið var rétt undir fimm gráðunum, heiðskírt og nokkuð lygnt þannig að það viðraði ágætlega til að grilla úti. Það var ekki flókin eldamennskan þar sem eina meðlætið var parmaostur, rocket, tómatar, basil og grillað eggaldin ... einfalt en mjög gott.

Á laugardagsmorgninum rifum við okkur framúr eldsnemma þar sem við áttum pantaðan Zipcar og var planað að keyra út í sveitir New York fylkis. Fyrst lá leiðin upp til Saugertis þar sem við fengum okkur hádegismat og síðan keyrðum við í gegnum Woodstock sem leið lá til Bethel Woods þar sem hálf milljón hippa samsöfnuðust á fyrstu Woodstock hátíðinni árið 1969 hjá bóndabýli Max Yazgur. Eftir nokkra leit og með hjálp lögreglumanns sem sá sér auman á villtum túrhestunum fundum við loks þennan sögufræga túnblett.


Góður og fínn bíltúr og þegar heim var komið fengum við okkur að borða á City Crab sem var á leiðinni heim frá bílaleigunni. Fengum okkur humar og krabba sem bragðaðist mjög vel ... sjáum fyrir okkur að við munum koma hingað með gesti.

Það hefur helduð betur kólnað hjá okkur og var um 5 stiga bítandi frost í gær og í dag ... við reyndum að mestu að halda okkur innandyra og var allt tiltækt lið hitablásara kallað til og sett í gang! Við þurftum þó aðeins á frísku lofti að halda og héldum því í Soho í gær þar sem hægt var að fá ýmsan fallegan fatnað á góðu útsöluverði ... það urðu líka ágætis endurfundir við Karen Millen sem hefur nú opnað loksins í Soho.

sunnudagur, janúar 13, 2008

Við erum búin að hafa það rólegt þessa helgina ... þurftum góða hvíld eftir allt skíðeríið. Jóa er að safna orku fyrir síðustu önnina sem byrjar á morgun og er búin að nýta vikuna vel ... við höfðum mjög heimilislegan mat fljótlega þegar við komum heim sem var grjónagrautur með heimabökuðum skonsum. Einnig var tíminn notaður til að baka brauðbollur og muffins og rækjusalat gert fyrir helgina ... ekki amalegt að eiga smá frítíma!!

Í gærkvöldi var gert pasta í kvöldmatinn sem er sosum ekki í frásögur færandi nema að við gerðum pastað í pastaréttinn líka. Sem sagt vígðum við eina jólagjöfina sem var pastagerðartæki frá mér og Ingu Huld. Pastagerðin lukkaðist mjög vel og höfum við ekki smakkað ferskara pasta ... nokkuð ljóst að þetta verður notað aftur!


nammi nammm .....

þriðjudagur, janúar 08, 2008

Við fórum frá Vail eldsnemma í morgun og gekk flugið vel. Það voru miklir fagnaðarfundir þegar við sóttum Herra Níels af "hótelinu" sínu og allir voru komnir saman heim lúin en ánægð eftir gott skíðafrí!

mánudagur, janúar 07, 2008

Síðustu þrjá dagana okkar hér í Vail hefur snjóað 25 sentimetra ... á hverjum degi!! Það er því nóg af snjó og hafa snjótroðararnir ekki undan við að troða brautirnar. Það var gott að vera með skíða-leiðbeinanda (þ.e. "ski-instructor" en ekki "ski-teacher") sem gat vísað veginn í slæmu skyggni og gefið góð ráð ... sérstaklega um staði þar sem lítið var af fólki og gott kakó!


Jóa og Inga Huld þurftu því að læra listina að skíða í púðursnjó sem tók aðeins meira á heldur en að bruna niður vel troðna og fína braut ...


Við fengum þó gott veður í 3 daga með glampandi sól, hitastigi um frostmark og frábæru skíðafæri ... við vorum vöruð við sólinni þar sem hún er fljót að brenna húðina í 3.400 metra hæð ... hina dagana vorum við vöruð við frostbitum og áttum sérstaklega að fylgjast með hvort það sæust hvítir blettir í andliti, en þá átti að drífa sig innandyra og fá sér helst heitt kakó sem var nú sosum ekki leiðinlegt.

Það var ekki bara hægt að stunda skíði hér og leyfðum við Ingu Huld aðeins að taka í vélsleða ... hún vildi þó ekkert vera alltof lengi á svona tryllitæki en skellti sér þó nokkra hringi og valt bara einu sinni.


Það var merkilegt að vera staddur svona hátt á jörðinni og fannst greinilega hversu andstuttur maður var í þunna loftinu og einnig voru allar umbúðir einsog snakk og jógurt uppblásið einsog í flugvél ...

fimmtudagur, janúar 03, 2008

Hér í Vail er búið að skíða mikið ... veðrið er búið að vera margþætt og byrjaði með 20 gráðu frosti, vindi og snjókomu ... þegar leið á nýja árið þá brast á með brakandi sól og blíðu og frábærum skíðaskilyrðum. Stelpurnar eru búnar fá kennslu og renna sér með meistarbrag um brekkurnar en eru þó varkárar og fara sér engu óðslega.


Þjónustan og aðstaðan á svæðinu er frábær og erum við himinlifandi með þessa fyrstu alvöru skíðaferð fjölskyldunnar ...