miðvikudagur, desember 31, 2003

Gleðilegt nýtt ár !!!!!!!

Matseðill kvöldsins.

Forréttur - Grillaður humar.
Aðalréttur - Innbökuð nautalund ásamt Bordeaux, Chateau Larrivet-Haut-Brion 1998.
Eftirréttur - Tiramisu.

Allt saman meiriháttar gott. Horfðum síðan á skaupið á netinu en náðum reyndar bara að horfa á ca. helminginn þar sem sambandið var svo slæmt - frekar leiðinlegt en náðum svona aðalatriðunum. Skaupið var samt skemmtilegt eða virtist allavega vera nokkuð gott - hlökkum til að fá það sent frá klakanum til að horfa á. Þarf núna að fara að opna kampavínið þannig að ekki verður það lengra á árinu tvöþúsundogþrjú.

CHEEEEERS

Áramótakveðjur frá Lullingstone Lane fiftífæf ....

fimmtudagur, desember 11, 2003

Það er búið að vera óskaplega mikið að gera og lítill tími til að rita á bloggið. Heilmikil saga bíður eftir því að komast á blað sem spannar ferðasögu tengdó sem komu hér síðasta laugardag og dvöldu í miklu yfirlæti fram á þriðjudag. Þessi vika er búin að vera mjög viðburðarrík þar sem mikið er að gera hjá Jóu í skólanum sem lýkur í næstu viku og einnig eru bjartari tímar hjá mér !! Á morgun koma síðan mamma og pabbi og fara beint til Reading og munum við síðan keyra til þeirra um kvöldið - tilefnið er útskrift mín með MSc í Financial Engineering and Quantitative Analysis frá ISMA Centre sem er á laugardaginn. Dvelja á þar fram á sunnudag og verður spennandi að koma aftur til Reading.

Annað verður að bíða þar til seinna og spurning er hvað situr eftir af heimsókn tengdó þegar tími gefst til að koma henni úr hausnum ...

cheers

föstudagur, desember 05, 2003

CHEERS - where everybody knows your name.

Þvílíkir snilldarþættir Cheers - eru sýndir hér í hádeginu (nema á föstudögum og um helgar) þannig að hvað er betra heldur en að horfa á þetta yfir hádegismatnum. Var búinn að gleyma hvað húmorinn er mikil snilld.

miðvikudagur, desember 03, 2003

Ég og Inga Huld byrjuðum að skreyta jólatréð í stofunni eftir kvöldmatinn. Fannst henni það mikið sport þó að þetta tré sé einungis um hálfur meter (líklega minna en það) að hæð. Einnig er búið að kaupa jólakort sem hún gefur krökkunum á leikskólanum og það á að skrifa á þau á morgun - finnst henni það einkar skemmtilegt þar sem hún er nú þegar búin að fá 3 kort frá leikfélögum sínum.

Skemmtilegur þáttur í útvarpinu í dag þar sem tekið var viðtal við rannsóknarblaðamann sem var að rannsaka það hvernig hinir ríku og velmenntuðu misnotuðu fátæka fólkið til að selja sér líffæri sem það vantaði. Var það allt frá hinum ýmsu innyflum einsog nýrum í það að vera hinir ýmsu útlimir. En þetta er einmitt ólöglegt hér í Bretlandi og má einungis þiggja líffæri frá aðila sem er þér skyldur. Þess vegna er í gangi svartur markaður með líffæri þar sem fátækt fólk freistast til að selja nýrað sitt fyrir svona sirka tíu milljónir króna. Þáttastjórnandinn grillaði rannsóknarblaðamanninn dáldið vel og hann þurfti virkilega að vanda sig - var þetta dáldið öðruvísi heldur en þessir fréttaþættir heima þar sem þáttastjórnandi er yfirleitt sammála viðmælanda sínum. Allavega fannst þáttastjórnanda að fólk ætti bara að fá að gera það sem því sýnist við sinn líkama og sagði að ef að þessi markaður yrði leyfður með lögum þá væri hægt að fylgjast betur með honum og sérstaklega líffæragjafanum þar sem hann tekur að sjálfsögðu töluverða áhættu með því að losa sig við einsog eitt stykki líffæri. Ég hafði í rauninni aldrei hugsað útí það að ég gæti átt yfir höfði mér refsingu ef ég myndi selja nýrað úr mér fyrir 10 milljónir eða hvaða verð sem ég gæti nú fengið fyrir það. Myndi ekki telja að kaupandi væri að misnota mig en svona þurfa nú sumir að hafa vit fyrir öðrum.

þriðjudagur, desember 02, 2003

Íslenskt gómsæti!

Við sóttum Jóu á flugvöllinn í gærkvöldi og gekk það vel - um kvöldið var síðan veisla þar sem á borð var borið: malt og appelsín, síld og rúgbrauð, flatkökur og hangiket, íslenskur graflax, skyr, smákökur og íslenskur lakkrís !!! Heldur betur gotterí og undir var spilaður íslenskur jóladiskur sem Inga Huld fann ofan í poka hjá mömmu sinni sem átti reyndar að vera einhvern tímann í skóinn til hennar - það er svona dáldið grams á þeirri litlu. Mjög jólalegt hjá okkur sem sagt - síðan getum við farið að jólaskreyta í vikunni þar sem Jóa kom með jólaskrautið okkar frá Íslandi - verðum snemma í þessu í ár þar sem við fáum heimsókn næstu tvær helgar og erum síðan að koma heim um jólin.

Með kveðju frá öllum á Lullingstone Lane með mettaðan íslenskan maga ...

sunnudagur, nóvember 30, 2003

Skildist að brúðkaupið hefði gengið vel - allavega sögðu báðir aðilar já og presturinn amen. Dáldið stress hjá Jóu þar sem hún var komin í bæinn um hálftvö og brúðkaupið byrjaði klukkan fimm - en þetta náðist þó. Ég og Inga Huld fórum í bæinn í gær að kíkja á tölvumarkaði - ætluðum að athuga hvað örgjörvi, móðurborð og skjákort myndi kosta - virtist vera töluvert ódýrara en í búð. Síðan löbbuðum við í Hamleys til að skoða okkur um - þar var náttúrulega pakkað af fólki. Við vorum þar í 70 mínútur sem gerir um 10 mínútur pr. hæð !! Inga Huld skemmti sér konunglega og prófaði allt sem hægt var að prófa og faðmaði og knúsaði alla bangsa og apa sem hún fann - ég leyfði henni nokkurn veginn að ráða ferðinni. Pleimóið og beibí bornið heillaði mest en einnig var gaman að keyra Brio trélestina og skoða kubbana - einnig fannst henni gaman að skoða bílana og rafmagnslestarnar, þarf greinilega að fá einn fjarstýrðan þegar hún verður eldri. Í dag erum við svo bara búin að vera að dunda okkur við bakstur og önnur húsmæðrastörf. Bökuðum piparkökur og síðan sælgætiskökur - var þetta hin besta skemmtun, erum núna uppfull af kökum en þó ekki búin að fá nóg ...

cheers

föstudagur, nóvember 28, 2003

Ákváðum að vera snemma á ferðinni á flugvöllinn í dag þar sem við bjuggumst við umferðartöfum einsog á leiðinni á Heathrow um daginn. Lögðum því af stað kl. 16:00 þar sem vélin átti að fara í loftið kl. 19:50 og gerðum ráð fyrir því að vera um 2 tíma á leiðinni sem ætti annars að taka um klukkutíma - er töluvert styttra á Stansted flugvöllinn heldur en Heathrow. Við vorum klukkutíma að keyra fyrstu 15 mílurnar !! og síðan annan klukkutíma að keyra restina sem voru 30 mílur - vorum sem sagt á góðum tíma á flugvellinum. Þegar stutt var eftir fengum við þó símtal frá tengdó sem tjáði okkur að flugvélin væri ekki enn farin frá Íslandi og einhver töf væri á - tókum við því rólega og stoppuðum á leiðinni á flugvöllinn til að fá okkur Burger. Á flugvellinum stóð að áætlað væri að vélin færi í loftið kl. 21:35 og spurði ég í stelpuna í Iceland Express afgreiðslunni hvort að það stæðist og hvort vélin væri farin frá klakanum - sagði hún svo vera og að þetta ætti að vera að hámarki tveggja tíma töf og hún fengi nú 5 pund til að eyða á barnum !! Jæja, þetta leit nú allt saman ágætlega út þannig að ég og Inga Huld yfirgáfum svæðið og vorum tæpan klukkutíma að bruna heim. Síðan fór allt í bölvaða vitleysu ... og brottförinni seinkað til miðnættis. Þá var fólkið kallað að geitinu og það gat séð töskurnar sínar vera settar í vélina ... voðalega gaman nema að síðan sá Jóa starfsfólkið yfirgefa vélina og landgangurinn var tekinn frá. Skemmtileg tilkynning kom síðan í hátalarakerfið sem var á þá leið að starfsfólkið mætti ekki vinna lengur og því þyrfti að afhlaða vélina og lagt yrði af stað til klakans kl. 9:30 morguninn eftir !!! Allt ónýtt - Jóa því á hóteli á Stansted í nótt, missir af klippingunni. Skrítið að geta ekki lagt aðeins fyrr af stað ... sé einnig fyrir mér að alltíeinu hafi ein flugfreyjan spurt:
"Herra flugstjóri - hvernig er það eiginlega með tímana okkar - verðum við ekki búin að vinna of lengi ef við fljúgum aftur til Íslands?"
"Humm - leyfðu mér að kíkja hérna í handbókina og athuga þetta nánar - jú heyrðu, þetta er rétt hjá þér, segðu mönnunum að afhlaða vélina og að ég sé farinn að sofa !!"
Mjög gáfulegt að fatta það á miðnætti (eftir að búið var að hlaða vélina) að áhöfnin mætti ekki fljúga lengur og að ekki væri hægt að redda varaáhöfn. Hefði haldið að þetta ætti að uppgötvast miklu mun fyrr um kvöldið - einhverjir hugsanabrestir þarna í gangi. En það er víst lítið við þessu að gera - ekki er hægt að hoppa uppí flugvél hjá næsta flugfélagi og fljúga heim ... vonandi bara að þeir geti dröslað flugvélinni á klakann klukkan 9:30 í fyrramálið - allavega ætti flugstjórinn að vera búinn að sofa úr sér.

Inga Huld fattaði allt í einu þegar mamma hennar var að ganga í gegnum vegabréfahliðið að mamma hennar væri að fara - hafði ekki fundist þetta mikið mál hingað til og fannst bara sniðugt að við værum bara tvö feðginin. Skyndilega var hún ekki sátt við þetta en róaðist svo þegar ég sagði henni að við myndum koma við í Sainsbury á leiðinni heim og kaupa eitthvað nammi og gotterí þar. Versluðum við þar nammi, tilbúna rétti og bjór - síðast þegar Jóa kom heim frá Portúgal þá var nefnilega bara til hollur matur í ísskápnum. Ástæðan fyrir því var ekki sú að við höfðum keypt svo mikið af hollum mat heldur var þetta það sem borðuðum ekki úr ísskápnum og skildum eftir.

Enn kólnar - 2 stiga frost í morgun en samt sól og blíða þannig að það hlýnar í dag.

Á miðvikudaginn klikkaði ég á því að horfa á Bodyguard með stórstirninu Kevin Costner í aðalhlutverki - steingleymdi myndinni en horfði sem sagt í staðinn á Highlander 1. Minnti að þessi mynd hefði nú verið aðeins betri en hún var - var í rauninni alveg skelfilega léleg þó gaman hefði verið að horfa á.

Er búinn að setja hér á hægri vænginn á síðunni bókalista - þetta eru sem sagt bækur sem ég tel áhugavert að eignast. Er þetta nú ekki sett þarna af neinni sérstakri ástæðu en gæti þó komið að góðum notum fyrir einhvern sem vantar að þyngja eitthvað jólapakkann til mín ... Að auki ef klikkað er á nafn bókarinnar þá flystu á öldum veraldarvakans yfir á vefsvæði Amazon.co.uk þar sem hægt er að sjá meira um bókina, höfund, verð og þvíumslíkt - einnig er hægt að panta þar.

En hvernig er það annars - ætlar enginn að láta mig panta bækur af Amazon fyrir jólin sem ég kem síðan með heim - um að gera að nýta sér þessa bráðgóðu þjónustu.

cheers

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Farið að frysta aftur hér á nóttinni - ég þurfti að fara út í ískulda í morgun til að græja útvarpið í bílnum en það hefur sem sagt verið óvirkt frá því að bíllinn var rafmagnslaus þar sem að útvarpið krefst öryggiskóda ef það verður rafmagnslaust. Fann ég loks kódann í einhverri bók í bílnum og reddað þessu þannig að stelpurnar þurftu ekki lengur að syngja allan tímann á leiðinni í og úr skólanum.

Ég og Inga Huld þurfum svo að keyra Jóu á flugvöllinn á morgun þar sem hún er að yfirgefa okkur til að vera viðstödd brúðkaup á klakanum. Ég keypti einmitt brúðkaupsgjöfina í London í dag þar sem ég þurfti að fara í bæinn - var blíðuveður og skemmtilegra að labba um núna heldur en í rigningunni sem var um daginn.

Gat áðan fagnað glæsilegum sigri Liverpool og var koníak vegna tilefnisins - það er vonandi að þessi siður muni færa liðinu gæfu og lukku í framtíðinni !!

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Þúsundasti lesandinn fer nú inná síðuna ef hann er þá ekki þegar búinn að því !! Í tilefni af þessum miklu tímamótum fær þúsundasti lesandinn að fara í heimsókn til jólasveinsins á norðurpólinn. Heimsóknin mun eiga sér stað aðfaranótt jóladags og verður hann sóttur á miðnætti - ekki láta þér bregða þegar Rúdólf bankar uppá til að sækja þig.

Inga Huld hitti annars jólasveininn aftur í gær í Lakeside mallinu. Fórum þangað eftir skólann til að litast um og þar var heldur betur búið að jólaskreyta og koma upp jólalöndum. Frítt var inn til jólasveinsins og fannst Ingu Huld þetta voða sport - ég var reyndar að furða mig á því af hverju þeir hefðu frítt en komst síðan að því inni að tekin er mynd af jólasveininum með barninu og getur maður síðan keypt þá mynd ... hlaut að vera að þeir fengju pening einhvers staðar. Bretar eru nefnilega mjög duglegir að láta borga fyrir allt, t.d. varðandi útskriftina þá get ég keypt mér ermahnappa með merki skólans, myndatöku, vídeóupptöku og einnig boli - þannig að þeir markaðssetja þetta heldur betur.

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

Dagurinn í gær byrjaði ekki gæfulega - þegar Jóa ætlaði að starta bílnum þá bara gerðist ekki neitt nema að útvarpið fór í gang ... þar sem ekki er hægt að komast langt á útvarpinu var ákveðið í snarhasti að Jóa og Inga Huld skyldu skella sér í lestina í skólann og ég færi í að græja bílinn. Sem betur fer var ekki tími hjá Jóu þannig að hún var ekki svo tímabundin. Ég vissi af verkstæði sem var í um 15 mínútna fjarlægð en þegar ég var kominn um 5 mínútur sá ég einhverja holu sem gerði við rafmagn í bílum og svoleiðis. Gat sannfært manninn þar um að lána mér starttæki gegn því að ég léti gemsann minn sem tryggingu - bíllinn rauk í gang og ég keyrði hann síðan á verkstæðið. Þar var rafgeymirinn dæmdur ónýtur - líklega rétt þar sem bíllinn er um 4 ára gamall þannig að fínt var að fá bara nýjan til að losna við áhyggjur af þessu. Þetta tók stuttan tíma þannig að ég lagði af stað til að láta Jóu fá bílinn þar sem að ég var að fara að hitta ráðningaskrifstofu eftir hádegi. Ég var á undan Jóu í skólann !! þannig að það tók stelpurnar um 2 klukkutíma að fara með lestinni í leikskólann og svo fyrir Jóu að labba í sinn skóla. Bíllinn er allavega í góðum gír núna og rauk í gang í morgun.

Horfði í gærkvöldi á Metro með Eddie Murphy - langt síðan ég hafði séð mynd með honum - annað kvöld er síðan aftur á móti mynd sem enginn má láta framhjá sér fara sem heitir The Bodyguard og skartar stórstirninu Kevin Costner !!!

sunnudagur, nóvember 23, 2003

Heimsmeistarar

Aftur rigndi í dag - greinilegt að breska rigningin er komin á stjá. Við fórum þó í miðbæinn í dag - var það af ásettu ráði að fara á sunnudegi vegna þess að ekki þarf að borga Congestion Charge um helgar og ekki þarf að borga í stöðumæla á sunnudögum og bílastæðahúsin eru einnig mun ódýrari. Við byrjuðum á því að keyra á Tottenham Court Road til að fara í tvær búðir þar og síðan var haldið á Regent Street. Þar fundum við stæði í hliðargötu og ef ég hefði þurft að borga þá var gjaldið 1 pund fyrir 20 mínútur ... takk fyrir !!! Röltum síðan í búðir í rigningunni og skoðuðum jólaljósin á Oxford, Regent og Bond Street - alltaf jafnleiðinlegt að labba um á Oxford í rigningu þar sem fólk er stórhættulegt með allar þessar regnhlífar og eru sumar hverjar ansi stórar. Við fundum það sem við leituðum að, brúðkaupsgjöf og einnig snemmbúin jólagjöf sem Jóa ætlar að taka heim með sér ... ekki meira um það hér.

Annars þá ríkir mikil gleði nú í Bretlandi og er það ekki vegna þess að hann Georg er farinn heldur vegna þess að við erum heimsmeistarar. Búið er að bíða eftir þessum titli í 37 ár og þess vegna orðinn langþráður. Urðum við sem sagt heimsmeistarar í rugby með ævintýralegum sigri á landsliði Ástralíu í leik sem fram fór í gærnótt í Ástralíu. Vannst sigurinn í framlengingu og með rosalegu marki á síðustu sekúndunni og er markaskorarinn hetja Bretlands þetta árið.

laugardagur, nóvember 22, 2003

Nammidagur í dag - yfirleitt er það fysta sem að Inga Huld spyr okkur þegar hún vaknar á morgnana er hvaða dagur er. Finnst henni yfirleitt skemmtilegt þegar það er frídagur og þá sérstaklega þegar að nammidagur er !! ...gleymdi þó að spyrja okkur í dag og var því lítið a eplð tala um nammi.

Þar sem Jóa var að læra í dag þá var það undir mér komið að elda kvöldmatinn ... settur var upp matseðill og síðan var bara að fara eftir uppskriftinni, Roasted Rib steak með ofnbökuðu grænmeti og kartöflum og í desert var eplapæ. Ég byrjaði klukkan korter í sex að elda og klukkan sjö var desertinn klár til að fara í ofninn !! þá var komið að því að fara að undirbúa aðalréttinn, þetta tók aðeins lengri tíma en ég bjóst við ... að þurfa að skræla og skera í bita sex epli er nú alveg hrikalega þreytandi, hugsa að ég geri næst bara bananapæ. Allavega var maturinn kominn á borðið fyrir klukkan átta og bragðaðist bara mjög vel. Með matnum var síðan Beaujolais Nouveau 2003 sem bragðaðist bara nokkuð vel - beint af trjánum !! Þetta var eitthvað sérstakt fyrir Sainsbury´s þannig að það gæti verið hægt að fá eitthvað betra - en við vorum allavega bara nokkuð sátt. Þar sem þetta heppnaðist svo vel þá þurfti náttúrulega að hafa kaffi með eftirréttinum - verð að nota nýju pressukönnuna sem ég fékk í afmælisgjöf og Starbucs Gold Coast kaffið sem ég keypti til að nota. Einnig ég svo heppinn að þurfa að drekka eitt púrtvínsglas með því - ástæðan fyrir því var sú að Jóa var að prófa púrtvínið (míníatúr) sem henni var gefið í Portúgal þegar hún keypti flösku af púrtvíni - var þetta sem sagt önnur tegund en hún keypti og fannst henni þessi prufa ekki góð. Mér fannst hún smakkast ágætlega - allavega skolaðist þetta ágætlega niður með kaffinu. Þegar um hægðist þ.e. þegar Inga Huld var farin að sofa þá var hægt að fá sér einn koníak með restinni af kaffinu ... alveg súper ... bragðaðist allavega betur en púrtvínið ...

föstudagur, nóvember 21, 2003

Háþróað greinitæki og Davíð í bankann

Ég mundi skyndilega í dag að við værum ekki búin að endurnýja TV-licensið síðan við fluttum. Minnið kom nú ekki af sjálfu sér þar sem ég fékk bréf í dag um að: "If you´re still watching TV without a licence, watch out". Síðan komu upplýsingar um það að horfa á "television receiving equipment" án leyfis sé gegn lögunum. Ég nennti ekki að standa í neinu veseni þar sem að þeir segjast ná 1000 brotamönnum á dag og sektin getur verið 1000 pund. Meira úr bréfinu ...

"Our officers may call at any time during the day, in the evening or at the weekend. They may also use sophisticated detection equipment on unlicensed households, and can identify if a TV is being watched within just 20 seconds."

Ég vildi ekki að notað yrði á mig háþróað greini tæki á heimili mitt sem nemur sjónvarp sem horft er á innan 20 sekúndna (athugið að tækið greinir hvort það sé horft á sjónvarpið, ekki hvort það sé kveikt á því !!) og ákvað ég að rölta á pósthúsið og borga þessi 116 pund sem það kostar að hafa litasjónvarp. Þetta gjald er sosum ekki ósanngjarnt - innifalið í því eru 5 ágætis stöðvar og síðan er hægt að fá sér digital disk og þá bætast við nokkrar fríar sjónvarpsstöðvar. Þannig að þetta er aðeins meira heldur en RÚV, skjáreinn og popptíví sem hægt er að ná heima.

Þegar Jóa og Inga Huld komu heim úr skólanum þá spurði ég Ingu Huld hvort hún vildi koma kannski út með mér. Hún rauk til handa og fóta og vildi endilega fara út þó hún hefði ekki hugmynd um hvað ég hefði í huga. Við fórum síðan tvö (Jóa var heima að læra - nóg að gera í skólanum) til Greenwich þar sem það átti að vera einhver hátíð í kringum það að kveikja átti á jólaljósunum. Þetta var ágætt - við fengum jólaglögg og sveskjupæ og hlustuðum á skólahljómsveit spila klassísk jólalög. Síðan kom jólasveinninn og eftir að hafa beðið í hálftíma biðröð eftir það að hitta hann þá var stóra stundin runnin upp. Inga Huld krafðist þess að ég ætti ekki að koma með að hitta hann og fór sjálf, heilsaði honum og svoleiðis - síðan lét aðstoðarkona jólasveinsins hana fá bók og hún kvaddi. Ofboðslega ánægð með þetta og fannst mikið fjör að hitta jólasveininn.

Í öllum látunum sem virðast vera í kringum KBÍ heima þá mundum við alltíeinu eftir rúvfréttunum á netinu - horfðum því á þær í tölvunni. Gaman að sjá að hinn frjálsi markaður virðist virka heima - þegar fyrirtæki gerir eitthvað sem neytendum mislíkar þá er einfaldlega hægt að færa viðskipti sín þaðan ... í þessu tilfelli virðist það hafa virkað til þess að stjórnendurnir hættu við samningana sem virtust vera í stærri kantinum, ætli þeir fái þetta ekki bara bætt einhvern veginn öðruvísi. Mér fannst annars vanta í fréttina að það hefði verið fylgst með Davíð taka út sparipeningana sína úr bankanum - það hefði nú alveg verið til að toppa þetta !! (ætli þetta hafi verið í fyrsta skipti í langan tíma sem maðurinn fór í banka ??) En af hverju virðist það alltaf vera Davíð sem rýkur til handa og fóta þegar eitthvað skrítið á sér stað á markaðnum ?? eru ekki einhverjar stofnanir sem eiga að sjá um einhvers konar eftirlitshlutverk. Í mínum huga eru þessar eftirlitsstofnanir kallaðar t.d. fjölmiðlar - þeir hefðu nú alveg mátt upplýsa mig betur um það hvað bankastjórar á Norðurlöndunum eru að fá í kaupauka svo að ég hefði nú getað myndað mér betri skoðun um málið. Skelfilega lélegir þessir fjölmiðlar heima en best var viðtalið við Vilhjálm Bjarnason um það hvað honum fyndist um málið: "Mér finnst þetta í besta falli vera alveg galið" ...sagði maðurinn (eða eitthvað í þessa áttina) og svo ekki orð meira. Ég veit þó allavega að erlend fyrirtæki hafa verið að draga úr þessum kaupréttarsamningum þar sem að þeir eru ekki að virka alveg rétt - forstjórarnir áttu það nefnilega til að casha bara út og flytja svo bara í sólina. Í staðinn hefur mönnum einfaldlega verið boðið að kaupa bara hlutabréfin á markaðsgengi. Ef þeir vilja þá geta þeir náttúrulega alltaf keypt sölurétt á bréfin sín til að verja þá tapi EN það lítur náttúrulega skelfilega illa út - þeir treysta greinilega ekki sjálfum sér til að reka fyrirtækið það vel að það skili hagnaði og gengið hækki !!!!

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

Lítið um að vera á þessum þriðja fimmtudegi í nóvember þegar byrjað er að drekka Beaujolais Nouveau sem á að vera óvenjugott þetta árið þrátt fyrir minni framleiðslu en fyrri ár. Inga Huld enn með kvef og hóstar voða mikið þegar hún er sofandi.

Allt er á fullu vegna George heimsóknarinnar og eru einhverjir að mótmæla honum - ekki er ég nú alveg klár á því hverju þeir eru að mótmæla en finnst frekar að fólk hefði átt að mótmæla hryðjuverkaárásunum í Tyrklandi heldur en að mótmæla grey George ... hann hefur nú nóg annað á sinni könnu heldur en að standa í því að hlusta á svona vitleysu. Sá hann í hádeginu í sjónvarpinu og var hann þar með Tony á blaðamannafundi sem var live - dáldið skondið að þegar annar þeirra talaði þá horfði hinn yfir salinn og leit síðan á þann sem talaði og kinkaði kolli - svona gekk þetta þeirra á milli. Voru þeir hinir bestu vinir og sammæltust um að dreifa frelsi og friðsamlegum kærleika um heimsálfuna en útrýma harðstjórum og hryðjuverkamönnum. Mér fannst George bara koma nokkuð vel útúr þessu en það er einmitt einn tilgangur heimsóknarinnar að sýna Bretum að hann er ekki bara einhver aulafígúra sem búið er að saka Tony um að vera einsog slefandi hundur á eftir.

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Atkinsverður

Bætti hlaupatímann minn á 8.8 kílómetra hringnum um eina heila mínútu - var semsagt 52 mínútur !! Húrra fyrir því. Þegar ég næ honum undir 50 mínútur þá ætla ég að stækka hringinn ... það er bara komið heljarinnar prógram .... Eftir þennan athyglisverða árangur minn fékk ég mér hádegisverð að hætti Atkins - sausages and scrambled eggs, bætti við þetta baunum, veit nú ekki hvort þær séu á óhollustulistanum hans Atkins ... en hverjum er sosum ekki sama þar sem þetta þetta bragðaðist allt saman mjög vel.

Annars er mamma gengin tækninni á hönd og er nú farin að senda email og spjalla á MSN - heldur betur tölvuframfarir á þeim bænum.

Ég fór í bæinn í gær og ætlaði að finna mér gott bókasafn til að geta lesið í ýmsum fjármálatímaritum svona til að vera ferskur. Það var búið að benda mér á bókasafnið í LSE og ég gæti líklega komist þar inn með stúdentapassanum frá Reading - en nei, það var ekki svo einfalt. Ég þurfti að vera með skriflega staðfestingu á skólavist í Reading og einnig skriflegt frá skólabókasafninu í Reading að ég hafi ekki fundið það sem ég var að leita að þar ... flókið mál. Rölti ég því á British Librari sem var um 25 mínútna gangur og hélt að lítið mál væri að komast þar inn, það hlyti nú að vera almenningsbókasafn. Þetta er ekkert lítið flott bókasafn og jafnfram flókið að komast inn !! Þurfti að byrja á því að sækja um aðgang í tölvu og var síðan kallaður til þjónustufulltrúa - hún vildi fá að sjá staðfestingu á heimilisfangi mínu og einnig fá upplýsingar um það að ég hefði ekki getað fundið á öðrum bókasöfnum það sem ég ætlaði að finna þarna. Ég bullaði eitthvað um að mörg tímaritanna hefðu ekki verið til á öðrum almenningsbókasöfnum og sannfærðist hún loks um að láta mig fá passa eftir að hún hafði fengið að sjá ökuskírteinið, kreditkort og þrjú debitkort ásamt skólakortinu. Fékk þá vikupassa með mynd af mér á - mjög formlegt. Þurfti þá að fara í kjallarann og losa mig við jakka og tösku þar sem það er ekki leyfilegt að hafa það með sér inná bókasafnið sjálft. Þá var komið að því að finna lestrarsalinn sem ég gat fundið mitt efni í og þar var vörður sem þurfti að skoða passann minn. Gat svo pantað bækur ef ég þurfti og komu þær þá til manns eftir klukkutíma nema ein bók sem ég vildi kíkja í - þurfti að bíða eftir henni í tvo daga þar sem hún var í geymslu í Norður-Englandi, fannst það nú óþarfa vesen. Fann síðan aldrei tímaritin sem ég vildi helst skoða !! ...virtust ekki vera til á þessu annars magnaða bókasafni ...

En maður labbar sem sagt ekki bara inná British Library til að kíkja í einsog eina bók eða moggann.

Í sjónvarpinu á mánudagskvöldið var "áhugaverður" þáttur um Atkins kúrinn ... alltaf heimildarþættir í gangi. Merkilegast þótti mér að sjá að þessi "Revolution Diet" sem ég hélt að væri glænýtt fyrirbæri er alls ekkert nýtt - maðurinn gaf fyrst út bókina um 1972 og fann uppá þessu eftir að hafa lesið grein um þetta í læknatímariti. Síðan þá hefur hann endurskrifað bókina allavega þrisvar sinnum og alltaf er þetta jafnmikið "revolution". Þetta er annars orðið mikið Atkins veldi - í USA er hægt að panta Atkins mat heim til þín borgar 35 dollara pr. dag fyrir það og það er búið að opna veitingastaði þar sem þú pantar Atkins rétti. Fyndið annars í þættinum að þá fundu þau einhverja stelpu sem var dáldið yfirvigta og var hún búin að falla einu sinni á inntökuprófi í lögregluskólann. Hún átti tvo sénsa eftir og núna voru sko bara 4 vikur í prófið og hún þurfti sko að létta sig til að geta hlaupið hraðar sko ... hvað er þá betra heldur en Atkins kúrinn ??!! Hún var síðan vælandi öðru hvoru í þættinum af því að þetta var svo erfitt - í lokin náði hún að sjálfsögðu ekki prófinu ... spurning um að stelpan hefði kannski átt að fara að æfa hlaup strax eftir að hún féll í fyrsta skiptið ... En niðurstaðan sem ég fékk útúr þættinum var semsagt sú að: Atkins kúrinn eykur ekki hlaupahraðann þinn !!

mánudagur, nóvember 17, 2003

Tók góðan 53 mínútna hlaupahring í gær - var 5.5 mílur að lengd sem eru 8.8 kílómetrar. Þetta fannst mér ágæt vegalengd - þyrfti kannski að lengja hringinn uppí 10 kílómetra og verð þá orðinn ansi góður ... að mér finnst !!

Var annars stöðvaður í gær af The Mets á leiðinni í Blackheath - gleymdi að minnast á það í gær ... The Mets er sem sagt The Metropolitian Police !!! Þegar ég kom að ljósum (einu ljósunum á leiðinni) þá gaf ég í til að ná gula ljósinu og fór yfir í rauninni á appelsínugulu. Skyndilega uppúr þurru þá heyrðum við sírenuvæl og birtist allt í einu lögreglubíll fyrir aftan mig - við ætluðum ekki að trúa eigin augum og þegar ég hægði á mér og stoppaði þá stoppaði hann fyrir aftan og lögreglumaður kom út og bað mig vinsamlegast um að koma út fyrir að ræða málin !! Spurði hann mig hvort ég vissi af hverju hann hefði stöðvað mig - ég tjáði honum að líklega væri það af því að ég hefði keyrt yfir á gulu ljósi sem ég kallaði "yellow". Hann sagði mér að ég hefði gefið í til að ná gula ljósinu, sem hann kallaði "amber", í stað þess að hægja á mér og stöðva sem ég hefði haft nægan tíma til. Tilkynnti hann mér einnig að í rauninni hefði þetta verið rautt ljós sem hann gæti sektað mig fyrir, ég fengi punkta á ökuskírteinið og gæti verið dreginn fyrir dómstóla !! Hann hafði þó ekki áhuga á því og spurði hvort ég væri virkilega búinn að ná bresku ökuprófi - ég sagði honum að ég væri með evrópskt ökuskírteini frá Íslandi og hann vildi þá vita hvernig þetta væri á Íslandi með gula ljósið ... hvað maður ætti að gera þegar það kæmi gult ljós þar ... vildi vita það vegna þess að hann vissi ekki hvernig þetta væri á Íslandi. Mig langaði helst að segja honum að við værum ekki með götuvita þar sem sleðahundarnir okkar væru hvort sem er allir litblindir ... en nennti ekki að rífast í honum þar sem hann virtist í nokkuð góðu skapi. Ákvað hann að lokum að gera ekkert í málinu heldur gaf mér nokkrar lexíur í því hvað Bretar væru lélegir bílstjórar og að ég ætti að keyra varnarsinnað og gera þetta ekki aftur. Í rauninni góðir punktar hjá manninum og verður kannski til þess að við einbeitum okkur betur við aksturinn. Ég er nefnilega einu sinni búinn að reka hliðarspegilinn í hliðarspegil á öðrum bíl sem var í stæði, Jóa er búin að bakka á BT sendiferðabíl sem var fyrir aftan innkeyrsluna okkar og einnig strjúka allri vinstri hliðinni við stóran flutningabíl í ferjunni !! Einsgott að hér hafi ekki verið keyptur splunkunýr og rándýr eðalvagn ...

cheers

sunnudagur, nóvember 16, 2003

Löngu kominn tími til að taka niður þessa blessuðu kleinukönnun. Niðurstöðurnar töluðu sínu máli og bentu alfarið til þess að ekki er mikið um kleinubakstur á heimilum Íslendinga. Einungis 17% úrtaks höfðu bakað kleinur á móti 83% sem höfðu aldrei bakað kleinur. Líklegt að fólk kaupi bara kleinur úti í búð nú til dags en sé ekki að vesenast í því að búa þetta sjálft til - skilst að þetta sé meiriháttar vesen ...þó að þær séu líka meiriháttar góðar í staðinn.

Nú þarf bara að hugsa upp nýja könnun ...

Hafði ætlað mér að fara í fótbolta í dag - hópur Íslendinga sem hittist á sunnudögum í Regent Park, væri eflaust mikið gaman. Planið breyttist þó þar sem Inga Huld er búin að vera kvefuð (aftur!) og vaknaði með dáldinn hita í morgun - var því heima hjá henni svo hún myndi ekki trufla móður sína við lærdóminn - nóg að gera í skólanum !!

Fórum þó í hádeginu í Blackheath og kíktum á Farmers Market - keyptum okkur þar brauð til að hafa í hádegismatinn. Ég bakaði síðan köku til að hafa í kaffinu - alveg að verða ekta húsmóðir !!

Fengum um daginn boðskort í brúðkaup þann 29. nóvember - Jóa er því að fara á klakann í lok nóvember til að vera viðstödd giftingu Jóns og Möggu.

laugardagur, nóvember 15, 2003

Hef tekið eftir því að veðráttan hér er dáldið lík þeirri á Íslandi ... spurning hvort að þátturinn um The Big Chill eigi við rök að styðjast ??!! Allavega var hér í gær sól, dáldill vindur og 15 stiga hiti - semsagt ekta íslenskt júlísumarveður !!

Vorum að ljúka við að snæða Ómótstæðilegar kjúklingabringur sem voru sem sagt kjúklingabringur fylltar með eplum, döðlum, skarlotlauk og sólþurrkuðum tómötum, kjammsikjamms, og núna er í ofninum Baileys and banana, bread and butter pudding úr uppskriftabók Jamies. Þessu er síðan verið að skola niður með prýðisgóðu portúgölsku hvítvíni sem kostaði tæpar 2 evrur í Portúgal. Að auki við þetta allt saman er í sjónvarpinu í fyrsta skipti junior Eurovision sýnt beint frá Kaupmannahöfn !! ...rosafjör - allavega finnst Ingu Huld þetta voða flott og fínt.

Fórum á bókasafnið í dag og tókum nokkrar bækur - eina fyrir Jóu sem hún þarf að lesa í skólanum og 4 bækur fyrir Ingu Huld, fannst henni það spennandi og gaman að fá að velja úr öllum þessum bókum. Það var reyndar dáldið að vefjast fyrir henni hvort við værum að kaupa bækurnar eða fá þær lánaðar - hugsa samt að á endanum hafi hún verið sátt við það að maðurinn og konan á bókasafninu eiga bækurnar en eru svo voðalega góð að lána okkur þær og þess vegna verðum við að skila þeim aftur seinna.

föstudagur, nóvember 14, 2003

The Big Chill

Í gær byrjaði ný sería þátta á BBC sem kallast Horizon og á að fjalla um vísindi líðandi stundar. Fyrsti þátturinn nefndist The Big Chill og fjallaði um lækkandi hitastig á Bretlandi næstu árin vegna hækkandi hitastigs í heiminum. Var skemmtilegt að horfa á þennan dramatíska þátt sem var með undirspili eins og í sérstæð sakamál - ef að þátturinn verður gerður á íslensku þá er nauðsynlegt að Þorsteinn Másson (hét hann það ekki ??) tali undir. Fyrst var rætt við aðila sem hafði borað í gegnum Grænlandsjökul og komst að því að hitastigsbreytingar hefðu gerst hratt í fortíðinni og gæti þess vegna verið komið Íslandsveðurfar hér eftir 10-20 ár. Næsti aðili hafði varið ævi sinni í það að rannsaka lítil skeldýr á sjávarbotni og komst að því golfstraumurinn getur tekið upp á því að hætta að streyma og byrjar síðan aftur á því öllum að óvörum. Síðan var það þriðji aðili sem gerði þá stórmerku uppgötvun að tengja þessa tvo atburði saman og sagði eitthvað á þessa leið: "Þegar golfstraumurinn hættir skyndilega að streyma þá lækkar hitastigið mjög skyndilega". Þessi maður virtist vera stórmerkilegur og eflaust mjög virtur af sínum samstarfsfélögum. Þetta var allt saman voðalega flókið og einhverjar skýringar þurfti að finna fyrir þessum snöggu hitafarsbreytingum - að sjálfsögðu voru síðan hitafarsbreytingarnar núna raktar til mengunar mannanna og því til rökstuðnings voru sýndar nokkrar skítugar verksmiðjur spúandi reyk út í himinhvolfið. Þegar hér var komið við sögu í þættinum var ég orðinn svo áhugasamur að ég steinsofnaði og missti ég því af endalokunum og komst því ekki að því hvað olli hitafarsbreytingunum í fortíðinni þar sem líklega er ekki hægt að kenna mengun mannanna um það ...

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Bráðum kemur ekki betri tíð ...

Bretar þurfa alltaf að vera öðruvísi en aðrir og er þar engin undantekning þegar spáð er um Global Warming ... miðað við Global Warming myndi maður ætla að hitastigið í heiminum færi hækkandi og veðurfarið yrði betra en neinei, það á ekki við um Bretland !!! Hér er því spáð að veðrið í framtíðinni verði einsog það er nú á Íslandi !!! Veðrið í dag er nú ekki einsog á klakanum þar sem hér er um 14 stiga hiti og blíða en þetta á sem sagt allt eftir að fara versnandi á næstu 100 árum.

Bíllinn fór í viðgerð í gær og slógum við nýtt með þegar ég keyrði stelpurnar í skólann í gærmorgun. Vorum við einn klukkutíma og tuttugu mínútur á leiðinni - það voru bara hnútar og raðir alls staðar á leiðinni !! Ég fór síðan með bílinn í viðgerð og skokkaði heim á leið þar sem verkstæðið er um 4 mílur að heiman. Seinni partinn rölti ég síðan til að sækja bílinn þannig að ansi mikil hreyfing var stunduð hjá mér í gær og er það vel.

Annars þá er Bush að koma í heimsókn til okkar í næstu viku (að ég held) og verður því margt um öryggisráðstafanir hér þar sem búið er að lýsa því yfir að London sé hættulegasta borg í heimi með tilliti til hryðjuverka. Ekki veit ég hvernig þeir komast að þeirri niðurstöðu en til að rökstyðja það þá var sagt að tveir breskir múslimar hefðu sprengt sjálfa sig í Palestínu/Ísrael um daginn og því væri ljóst að hér væri margt um herskáa múslima. Annars þá byrjaði enn eitt verkfallið í dag og nú eru það starfsmenn á tveimur túbuleiðum sem lagt hafa niður vinnu þar sem þeir eru að mótmæla brottrekstri einhvers túbustjóra !! Fólk hér er síður en svo ánægt með lestarsamgöngurnar þar sem þær eru sjaldnast á tíma, bila oft og eru lengi á leiðinni - að hafa síðan verkföll í ofanálag er nú alveg til að fara með skap manna hér.

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Fagnaðarfundir voru í gær þegar við náðum í Jóu í gær á Gatwick flugvöllinn. Var þar með lokið námsferðinni til Porto í Portúgal þar sem keyrt var um og byggingar skoðaðar og teiknaðar - var þetta víst ansi mögnuð borg og er stefnt á að fara í frí þangað einhvern tímann við tækifæri ... Kom hún heim með púrtvín - fékk að smakka nokkrar tegundir og valdi eitt sem henni fannst gott, Dow´s Late Bottled Vintage Porto 1997.

Loksins fer bíllinn í viðgerð á morgun - lýkur þar með diskóljósastemningunni á runónum. Þegar Jóa beið eftir ferjunni í dag þá var einmitt bankað á rúðuna hjá henni og henni vinsamlega bent á að líklega væru afturljósin eitthvað í ólagi !!

Vorum með afmælisköku í desert þar sem amma Inga á afmæli eða einsog Inga Huld orðaði það þegar ég kom heim: "Pabbi, við keyptum birthday cake fyrir ömmu Ingu, sendum hana bara til hennar en borðum hana fyrst".

Sá að Frank Partnoy sem skrifaði hina frábæru sögu F.I.A.S.C.O. um starf sitt hjá Morgan Stanley er búinn að gefa út sér aðra bók sem kallast Infectious Greed: How Deceit and Risk Corrupted the Financial Markets - stefni á að kaupa við þessa tækifæri eða þegar ég er búinn að lesa Against the Gods: The Remarkable Story of Risk.

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Við fórum í bíó í dag að sjá hina margumtöluðu teiknimynd Finding Nemo sem fjallar um tvo fiska að leita að syni annars þeirra. Inga var nú dáldið smeyk í bíóinu og sat hjá mér allan tímann. Myndin byrjaði líka með bölvuðum látum og hamagangi þannig að margir krakkar voru hálfsnöktandi þarna inni. Hákarlinn í myndinni er heldur ekkert voðalega fallegur á að líta þó að hann er nú ekki eins vondur einsog maður myndi ætla. Við skemmtum okkur þó að lokum bara vel í bíóinu og held ég að hún hafi bara verið ánægð með bíóferðina.

Inga er núna farin að sofa - lásum við söguna um svikahrappinn hann Litla-Kláus og illmennið Stóra-Kláus. Ekki mjög skemmtileg saga fyrir þriggja ára krakka. Í stórum dráttum er sagan um Litla-Kláus sem sveik út peninga úr saklausum bónda með því að selja honum hrossskinn sem galdrakarl og sakaði blásaklausan kráareiganda um að hafa drepið ömmu sína en féllst á að tilkynna það ekki gegn greiðslu !! Síðan er það hann Stóri-Kláus sem drap hesta með stórum lurkum sem og hana ömmu sína með því að höggva hana í hausinn með exi og reyndi síðan að selja hana lyfsalanum !! Einnig ætlaði hann að drepa Litla-Kláus með því að henda honum í poka í ána en á leiðinni skipti Litli-Kláus við eldgamlan kúabónda þannig að hann drap rangan aðila ... hér var þó bót í máli að kúabóndinn vildi dæja þar sem hann var orðinn svo hrumur. Svo er verið að segja að ofbeldið í sjónvarpinu og tölvuleikjunum sé slæmt fyrir börnin - get ekki séð að það sé nokkuð nýtt við það að börnum sé skemmt með morðum, svikum og prettum !!!

laugardagur, nóvember 08, 2003

Loksins er farinn að berast okkur póstur aftur þar sem póstútburðarmenn hafa verið í verkföllum - veit í raun ekki alveg hvernig staðan er á þessu. Fékk í dag einmitt bréf sem var með flugmiða Jóhönnu og var settur í póst þann 3. nóvember !! Sem betur fer þurfti hún ekki að vera með miðann sjálfan með sér í flugið heldur bara númerið sem hún fékk þegar hún pantaði miðann á netinu.

Við Inga fengum okkur beikonsamloku í hádeginu að ósk hennar Ingu. Þegar við vorum að ræða það í vikunni hvað við ættum að versla til að eiga í matinn á meðan mamma væri erlendis þá var eina beiðnin að það ætti að kaupa beikon. Inga borðaði dáldið af samlokunni og fannst beikonið gott - annars þá borðar hún ekki annað álegg en smjör, smurost og ost !!

Ákvað í gærkvöldi að þar sem ég var að keyra í myrkri að athuga hvernig staðan væri á aftari stefnuljósunum - þegar ljósin eru kveikt á bílnum (ekki þarf að hafa kveikt á daginn) og ég nota annað hvort stefnuljósið þá er bara diskó aftan á mínum !! Öll ljósin blikka í einu og það er rosa stuð ... mun betra að nota ekki stefnuljósið þar sem að þetta ruglar nú eflaust bílstjórann fyrir aftan frekar heldur en að gera eitthvert gagn. Sem betur fer þá kvikna bremsuljósin þegar ég bremsa - það hefði verið öllu verra ef þau hefðu ekki virkað. Verð nú að fara með bílinn til bílasalans á mánudaginn þar sem það er stórhættulegt að geta ekki notað stefnuljósin í þessari miklu umferð sem er hér, sérstaklega á hraðbrautinni.

Fór annars í gær í áhugavert viðtal hjá stórum fjárfestingabanka - var hjá þeim frá kl. 12 til kl. 4:20, þurfti þá að hraða mér að sækja Ingu Huld þar sem leikskólanum lokaði kl. 4 !! Tók leigubíl og að sjálfsögðu voru umferðastíflur en þetta var þó allt í lagi þar sem ég var búinn að láta vita að ég yrði seinn á ferðinni. Held annars að viðtalið hafi gengið ágætlega - talaði við 5 manns og skildist mér að ég yrði boðaður aftur í næstu eða þar næstu viku til að hitta fleiri yfirmenn ... spennandi ... sem sagt en ferlega leiðigjarnt að vera alltaf að þylja aftur og aftur hvað maður hefur gert, vill gera og hefur áhuga á.

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Ég og Inga erum nýkomin frá því að keyra Jóhönnu á Heathrow þar sem hún var að fara með bekknum sínum til Porto á Portúgal. Við mættum á flugvöllinn 45 mínútum fyrir brottför þar sem að umferðin á M25 gekk svo hrikalega hægt - vorum klukkutíma lengur þar en við gerðum ráð fyrir. Ég og Inga komum svo við á MC á leiðinni heim og fengum okkur burger - strax dottin í sukkið !! Ég keypti mér nýjan borgara hjá þeim, Big Tasty, mjög góður með tómötum, lauk, salati, þykkri ostsneið og góðu kjöti ...mæli með þessum ef hann fæst heima.

Þá er vaxtahækkunarferli hafið hér í Bretlandi - Seðlabankinn hækkaði vexti um 0.25% og er þetta líklega fyrsta hækkun af mörgum. Fólk er ónánægt með að þetta gerist núna rétt fyrir jólin þar sem fjármálin eru erfið en líklega betra að þetta gerist áður en fólk safnar skuldum með jólagjafakaupunum þannig að hægt sé að setja lokið snemma á budduna. Þetta gæti þá kannski orðið til þess að það hægist á fasteignaverði hér og jafnvel að það fari að lækka - þar sem fasteignaverð er svo hátt þá er ekki óeðlilegt að fólk skuldi um 15 - 20 milljónir króna í íbúð sem er um 3-5 herbergi að stærð. Hækkun um fjórðung úr prósenti hefur þau áhrif að vaxtagreiðslur aukast um ca. 4.000 kr. pr. mánuð - það er nú kannski ekki mikið, en þar sem vextir eiga líklega eftir að hækka mun meira þá safnast þetta saman. Ekki svo að skilja að við viljum að fasteignaverð hrapi hér með tilheyrandi vandræðum fyrir húseigendur en okkur fyndist samt huggulegt að hafa einhvern tímann efni á íbúð hérna úti.

Bonfire night var í gærkvöldi sem einnig kallast Guy Fawkes day þar sem minnst er þess að maður að nafni Guy Fawkes reyndi að sprengja upp þinghúsið árið 1605 ásamt kónginum og fleiri merkum mönnum. Ekki er ég viss um hvort það sé verið að minnast þess sem maðurinn reyndi að gera eða hvort það sé vegna þess að plottið komst upp:

Guy Fawkes, who was in the cellar of the parliament with the 36 barrels of gunpowder when the authorities stormed it in the early hours of November 5th, was caught, tortured and executed.

These days, Guy Fawkes Day is also known as Bonfire Night. The event is commemorated every year with fireworks and burning effigies of Guy Fawkes on a bonfire.

Ekkert var þetta þó í líkingu við gamlárskvöld heima á klakanum en heyra mátti þó í flugeldum og sprengjum. Planið hafði verið að labba eitthvað út eftir matinn til að skoða flugeldana en hætt var við það þar sem ég var svo ansi slappur í gær, þjáðist í maganum - spurning hvort það hafi eitthvað verið í líkingu við iðrakveisuna sem hrjáði fólk á Auroru.

miðvikudagur, nóvember 05, 2003

Lítið um að vera á Lullingstone Lane núna. Fór með Jóu í skólann á mánudaginn til að hjálpa henni að prenta út verkefni. Vorum við þar í um 4 klukkutíma að prenta 5 bls þar sem prentarinn tók sinn tíma í verkið. Jóa er síðan að fara á morgun í 5 daga námsferð með skólanum til Portúgal - eiga þau að vafra um Porto og teikna merkileg hús og aðrar byggingar. Verðum við Inga Huld því bara tvö í kotinu.

Inga Huld sá í gær risastóran jólasvein í Tesco - fannst henni ekki amalegt allt jólaskrautið og jólaljósin sem búið var að hengja þar upp, bæði úti og inni. Maður fer bara að komast í jólaskapið ... hvað er eiginlega langt til jóla?

Rafmagninu er eitthvað farið að slá saman í runónum, þegar ljósin eru kveikt og ég bremsa þá kviknar á vinstra stefnuljósinu að aftan - einnig blandast þokuljósin að aftan eitthvað inní málin þegar ég gef stefnuljós !! Greinilega allt í flækju og ekki nóg með það þá kemur í ofanálag enginn blástur á framrúðuna - var það ansi bagalegt hér í kuldakastinu um daginn þegar þurfti að skafa framrúðuna að fá ekki heitan blástur á rúðuna. Þarf að skjótast með bílinn til bílasalans og sjá hvað hann segir - meðfylgjandi var þriggja mánaða ábyrgð þannig að hann ætti að redda þessu.

sunnudagur, nóvember 02, 2003

Þá er enn ein helgin liðin og enn ein vikan tekur við. Vorum með veislu í gær fyrir okkur þar sem við áttum sjö ára samveruafmæli !! ...þetta fer nú að verða alveg ágætt. Grillaði úti þetta líka fína Ribeye og höfðum meira að segja rauðvín með en lítið hefur verið drukkið af léttvíni um helgar þar sem við tímum ekki að drekka úr rekkanum okkar - telur hann nú um 7 flöskur af hinum ýmsustu tegundum.

Fyrsti almennilegi rigningardagurinn var í dag - meira og minna gengið á með skúrum í allan dag, hingað til hefur rignt á nóttunni sem er alveg ágætis fyrirkomulag. Hélt fólk sig því að mestu innandyra en skiluðum í dag The Majestic með Jim Carrey sem við tókum á föstudaginn - ágætis mynd með honum og til mikillar furðu þá voru engin fíflalæti í manninum - bara venjulegur leikur og tókst það svona líka afbragðsvel hjá honum, snilldar leikari greinilega.

föstudagur, október 31, 2003

HAPPY HALLOWEEN

Halloween er núna þó ekki sjái þess nú mikil merki - reyndar er búið að vera að selja grasker síðastliðinn mánuð í Sainsbury ásamt einhverjum áhöldum sem ætluð eru til útskurðar á einhvers konar andliti. Ég birgði okkur upp af nammi ef vera skyldi að einhverjir grímuklæðningar myndu banka uppá hjá okkur og segja "trick or treat" - var sem betur fer við öllu búinn þar sem búið er að koma til okkar einu sinni. Ef ég hefði ekki verið svona forsjáll hefði bíllinn minn líklega verið vafinn inní klósettpappír, ég hefði fengið hundaskít í pappírspoka á tröppurnar og egg á rúðurnar ... en kannski er ég bara búinn að horfa á einum of margar amerískar bíómyndir um halloween !!!

Ég og Inga Huld vorum heima í dag - keyrðum Jóu í skólann, eða þangað sem hún átti að mæta. Hópurinn hennar átti að hitta ákveðinn listamann og skoða síðan verðlaunabyggingu ársins. Við dunduðum okkur svo við það að þvo bílinn og slappa af og sóttum hana síðan seinnipartinn. Á leiðinni í morgun tókum við eftir því að einn aðili er búinn að kveikja á jólaskreytingunum á sínu húsi - húrra fyrir honum, hann hlýtur að vera fyrstur.

fimmtudagur, október 30, 2003

Borðuðum ljúffengan íslenskan þorsk í kvöldmatinn - Sainsbury selur íslenskan fisk þannig að við söknum hans allavega ekki. Þurfum síðan bráðum að prófa túnfiskinn og sverðfiskinn sem einnig er seldur þar. Bætti um betur í hlaupahringnum mínum var 20% fljótari með hringinn í dag !! - var "einungis" 32 mínútur með þessa 5,6 kílómetra og væri því um 4 klukkutíma að ljúka maraþoni að því gefnu að ég myndi halda það út !!

Er núna að fara í bæinn að hitta tvo Íslendinga sem heita Kári og Kári, annar er að vinna hér en hinn er í námi. Hittumst á barnum í LBS (London Business School) þar sem hann Kári er að nema.

Vildi bara að lokum benda á hina stórmerkilegu setningu:

Everything that can be invented has been invented.

Þetta sagði enginn annar en Charles H. Duell, forstjóri bandarísku einkaleyfisskrifstofunnar, árið 1899.

miðvikudagur, október 29, 2003

Vildi bara benda á að nýjar myndir eru komnar hér. Síðan munum við bæta við fleiri myndum þegar góð tækifæri gefast á heimasíðuna okkar sem hægt er að nálgast í link hér á hægri hönd. Ætli ég þurfi svo ekki að fara að taka niður þessa kleinukönnun.

cheers

þriðjudagur, október 28, 2003

Fór útað hlaupa í morgun, hljóp hring sem er 3,5 mílur eða 5,6 kílómetrar og var heilar 40 mínútur að því. Ef ég geri ráð fyrir því að ég geti haldið sama hraða út maraþonhlaup eða um 42 kílómetra þá væri ég 5 klukkutíma að ljúka hlaupinu ... sem betur fer er búið að loka fyrir skráningar í London maraþonið sem er næsta apríl þannig að ég á ekki möguleika á því að fara að hlaupa þar klukkutímunum saman.

Margir í skólanum eru í haustfríi þannig að það eru fáir krakkar á leikskólanum hennar Ingu Huldar - í dag voru þau bara tvö, Inga og Louie. Þau eru samt voða góðir vinir virtist henni alveg finnast jafngaman þótt ekki væru fleiri mættir. Enskan hjá henni er alltaf að verða meira og meira áberandi en reynum við að halda okkur samt við íslensku hérna heima. Greinilegt er samt að hún er að pikka upp fullt af orðum og stuttum setningum úr leikskólanum þannig að henni ætti bráðlega ekki að verða í vandræðum með að tjá sig á enskunni.

Jólaskrautið er farið að verða meira og meira áberandi í kring og er farið að setja upp jólaseríur sums staðar og bara á eftir að kveikja á þeim. Í búðir eru komin dagatöl, gervijólatré, jólaskraut og seríur - ætli það heyrist ekki bráðum einnig í jólalögum í útvarpinu ?!

mánudagur, október 27, 2003

Það er heldur betur orðið kalt hér - í morgun þurfti að skafa framrúðuna á bílnum !?!? ...þvílíkt og annað eins. Ég keyrði Ingu Huld í leikskólann í morgun þar sem Jóa var heima að gera módel, nóg að gera í skólanum. Fann ég einhverja krókaleið útúr hverfinu til að losna við umferðarteppuna sem er núna á aðalgötunni okkar. Þegar ég kom síðan loksins að Thames (Thames-firðinum einsog við kjósum að kalla hana) þá var bara önnur ferjan í gangi þannig að það var 45 mínútna bið í það að komast yfir!! Við lögðum þá bílnum og fórum fótgangandi í ferjuna þar sem að stutt er í leikskólann eftir að komið er yfir. Ingu fannst nú ekki leiðinlegt að fara þetta labbandi og þegar ég sótti hana aftur í dag þá óskaði hún margoft eftir því að við myndum nú skilja bílinn eftir og fara labbandi í bátinn ... var þetta því kannski ekki svo sniðugt svona eftir á.

sunnudagur, október 26, 2003

Á fjórða degi á tuttugastaogsjötta aldursári mínu fórum við í bíltúr í miðbæinn en mestlítið var annars gert. Um kvöldið fór ég síðan að hitta samnemendur úr ISMA á maróskum veitingastað rétt hjá Oxford Street. Var hann mjög fínn og mikið fjör, magadansmær og allt saman !!

Í dag skoðuðum við okkur betur um í Greenwich og litum á lengdarbaug nr. 0 og skoðuðum merkilega sögu klukkunnar þar. Fundum síðan fínan markað í bænum með margt áhugavert og einnig mikið af drasli ...

Síðan er byrjað að gera við gasleiðslur hjá aðalumferðaræðinni hérna rétt hjá okkur þannig að það eru miklar umferðartafir sem skapast í kringum það. Er það okkar skilningur að verkið eigi að taka 4 vikur þannig að við erum að reyna að stika út nýja og betri leið frá okkur.

föstudagur, október 24, 2003

Þriðji dagur á tuttugastaogsjötta aldursárinu.

Fór í bæinn í dag að hitta Íslending sem er að vinna þar - fórum á rosalegan grillstað í hádegismat, The Gaucho Grill City, mæli ég hiklaust með honum. Ég fékk mér bestu rib-eye steik sem ég hef smakkað, alveg geggjað!! Ég fór síðan á Tottenham Court Road þar sem eru mjög margar tölvu- og raftækjaverslanir og verslaði mér afmælisgjöf fyrir peninga sem ég fékk í afmælisgjöf, litla tölvumús sem er fín fyrir fartölvuna og lítinn 64 MB USB harðdisk sem er algjör snilld.

Helgin mun verða óvenjulöng þar sem aðfaranótt sunnudags verður heilum klukkutíma lengri en venjulega!! Alltaf gaman að geta upplifað sama klukkutímann aftur.

Cheers

fimmtudagur, október 23, 2003

Þá er ég kominn á annan dag á tuttugastaogsjötta aldursári mínu. Byrjaði fyrsta daginn á því að fara útað hlaupa - það þarf nú halda sér við þegar maður er kominn svona á gamalsaldur. Sá síðan auglýsingu í blaði að nú er einmitt tíminn til að byrja að hita upp fyrir London Marathon sem á að byrja í Greenwich eftir 6 mánuði!! ...alveg spurning? Jóa er á fullu í skólanum að teikna og klippa og á að skila sínu fyrsta verkefni á föstudaginn og halda kynningu - nóg að gera í fyrstu vikunni. Inga Huld er orðin hálflasin og hefur verið með kvef og er nú að byrja að hósta. Það hefur líka kólnað dáldið hjá okkur og einnig hefur verið dáldið rok - rokið hefur þau áhrif að mun kaldara verður hér í húsinu þar sem bresk hús eru ekki vel einangruð !! T.d. er sentimetra rifa undir útidyrahurðinni þar sem inn blæs kaldur vindurinn, þurfum endilega að kaupa okkur eitthvað til að setja þar fyrir. Annars allt gott að frétta og allt í ágætis gír.

þriðjudagur, október 21, 2003

Þá er tuttugastiogsjötti afmælisdagurinn liðinn - ekki var nú gestasamt á afmælisdeginum en var þetta samt ágætis afmælisdagur. Var mikil veisla í kvöldmatinn, velskt lambalæri sem smakkaðist bara mjög vel og síðan var súkkulaðikaka í desert. Fékk kort frá mömmu og pabba í afmælisgjöf, blóm og kort frá Ingu Huld og síðan Bodum þrýstikaffikönnu frá Jóu. Rosa fínt og er stefnan sett á það að fá sér kaffi úr nýju könnunni núna á eftir og koníak með!! ...fínn endir á afmælisdeginum.

Ekki lengra að sinni þar sem nú þarf ég að klára að njóta afmælisins.

Með kveðjum frá Lullingstone Lane.

mánudagur, október 20, 2003

Ákvað að þar sem við erum orðin sítengd við netið að skynsamlegt væri að koma upp almennilegri vírusvörn á vélinni og eldvegg. Vírusvarnarforritið fann auðvitað einhvern vírus hjá mér - Backdoor.Sdbot, sem er einhver Trojuhestur !! Hann hefur allavega ekki haft nein áhrif á tölvuna hjá mér hingað til en það var ansi erfitt að losa tölvuna við hann þar sem hann var í systeminu og þurfti ég því að gera einhverjar tilfæringar sjálfur - hélt að forritið myndi bara finna vírusinn og drepa hann ... en jæja svona er þetta.

Við fengum þær fréttir frá leikskólanum að Inga Huld væri farin að tala við fóstrurnar - hún hafði talað við krakkana en aldrei yrt á fóstrurnar nema til að segja thank you. Þær skilja reyndar ekkert hvað hún er að segja þar sem hún er líklega að tala mestmegnis á íslensku við þær !! En þetta kemur allt hjá henni - hún virðist nefnilega ekki alveg átta sig á því að það eru tvö tungumál í gangi og mun eflaust blanda þessu eitthvað saman til að byrja með. Hún skilur þó að við tölum íslensku en á leikskólanum er töluð enska ...síðan þarf hún bara að sigta út hvaða orð tilheyra enskunni og íslenskunni.

Þá er hann Blaine kominn úr búrinu eftir 44 daga án matar - ég var reyndar að velta fyrir mér hvort hann hafi ekki stolist til að reyna að grípa eitthvað af þessum mat sem fleygt var í búrið hans !! Ætli það hafi verið leyfilegt hjá honum að borða það ?? Síðan er þáttur um þetta í kvöld í sjónvarpinu en okkur skilst að hann hafi fengið a.m.k. milljón pund fyrir sjónvarpsréttinn !! Kannski að þetta sé eitthvað sem ég ætti að leggja fyrir mig ...

sunnudagur, október 19, 2003

Þá er búið að skila Evu á flugvöllinn og er ró komin í húsið. Keyrðum við hana á Heathrow og komum svo við í Ikea á heimleiðinni - brjálað var að gera í búðinni og er einsog þetta sé sunnudagsverk Bretanna, allavega fara þeir ekki í bakarí á sunnudögum þar sem þau eru lokuð !!

Jóa er byrjuð að baka fyrir afmælið mitt !! ...jeij.

laugardagur, október 18, 2003

What´s up

ADSL mótaldið kom í morgun öllum að óvörum. Starfsmaður hinnar Konunglegu póstþjónustu bankaði uppá í morgun klukkan níu og afhenti mér pakka frá BT. Það sem ég var ánægður að sjá manninn !! Þessu var snarlega vippað upp og virkar þetta líka svona þvílíkt vel - hægt að vafra um á netinu núna á skikkanlegum hraða og sítengdur í þokkabót ... algjört lúxuslíf. Ég og Inga Huld vorum í þessu í dag á meðan Jóhanna fór á safn með skólanum og Eva fór á Portobello. Við Inga fórum reyndar út að hjóla á róló svona til að stytta okkur stundirnar. Stelpurnar hittust síðan eftir að Jóhanna var búin og þurftu endilega að fara á Bar 38 til að fá sér Toblerone kokteil - smakkast hann víst alveg voðalega vel og er mikið mælt með honum, í honum er Baileys, súkkulaðilíkjör, hunang og rjómi !! Ég sótti þær síðan á lestarstöðina og ætluðum við útað borða í Blackheath en þar sem við vorum svo seint á ferðinni var erfitt að fá borð. Var því farið í Sainsbury til að kaupa í matinn og snaraði Jóa fram pastarétti á nóinu og svo var Haagendas í desert. Yfir kvöldmatnum var skálað fyrir brottför Evu á morgun :) eða þannig ;( og eru allir að drekkja sorgum sínum núna yfir þessari síðustu kvöldstund.

Í bíóinu í gær þóttust stelpurnar hafa séð Daniel Bedingfield og labbaði hann á undan þeim og kíkti á þær og skoðaði og voru þær agalega mikið upp með sér. Þeir sem ekki kannast við kauða geta flett honum upp á Google eða skellt honum upp í Kazaa og náð í lög með honum t.d. "Gotta get through this" sem er agalega vinsælt.

Cheers

föstudagur, október 17, 2003

Í gær fóru Jóa og Eva til London að skoða söfn - ég keyrði Ingu Huld í leikskólann og var síðan að dunda mér heima við þangað til ég þurfti að ná í hana aftur. Snemma var farið að sofa þar sem vakað var svo lengi á miðvikudagskvöldið !! ... erum orðin svo gömul.

Mest lítið var gert í dag - Jóa fór þó í skólann og fékk verkefni vetrarins afhent og á hún að byrja á því að mæta á morgun hjá Tower Bridge þar sem hópurinn hennar er með götu sem er þar rétt hjá sem á að hanna. Á að byrja á því að skoða hana og fara síðan á National Portrait safnið og skissa eitthvað þar. Þannig að ég, Inga og Eva verðum að drepa tímann í sameiningu á morgun - ætli við förum ekki bara að skoða miðbæinn í Greenwich eða eitthvað svoleiðis - ætlum allavega ekki til Tower Bridge þar sem búið er að vara við umferðartöfum þar vegna þess að Blaine karlinn á að koma úr búrinu á sunnudaginn. Eva eldaði kvöldmat, rosafína svínasteik sem hún kom með frá Danmörku. Var þetta 2.3 kíló af reyktri skinku sem hún kom með og kostaði þúsundkall í Danaveldinu - ekki dýrt kjöt það. Smakkaðist þetta sannarlega listavel hjá henni, brúnaðar kartöflur, waldorfsalat og alles en Jóa þurfti þó að bjarga henni með sósuna þar sem í óefni stefndi með hana. Núna eru skvísurnar farnar í bíó - fóru þær á Misty River með stórleikurunum, Sean Penn, Tim Robbins og síðast en þó síður en svo síst, stórstirninu fótalipra Kevin Bacon. Hefði ég viljað sjá þá mynd en þetta var bara eina myndin í bíó núna sem þær höfðu nokkurn áhuga á því að sjá. Ætluðu að fara á einhverja stelpuvælu en því miður var hún bara sýnd klukkan tvö á daginn.

Annars þá beið ég í allan dag eftir því að fá sent ADSL mótald frá BT í dag en varð fyrir miklum vonbrigðum þar sem það barst mér ekki. Hringdi loks í BT til að athuga með stöðu mála og var þar tjáð af starfsmanni sem þótti þetta mikið miður að starfsmenn Royal Mail hefðu verið í einhverjum verkföllum í vikunni og þegar það gerist þá hlaðast verkefnin upp og ætti ég að fá það vonandi á morgun en líklega ekki fyrr en á mánudag. Átti ég að hringja seinnipart mánudags ef það hefði ekki enn borist og myndu þeir þá tala við Konunglegu bréfþjónustuna.

Með kveðjum frá Lullingstone Lane.

miðvikudagur, október 15, 2003

Jóa fór í skólann í dag og þurfti að velja í hvaða hóp hún á að vera næsta skólaárið. Kennarar héldu kynningar í gær á sínu verkefni og síðan áttu nemendur að velja þrjú verkefni sem þau hefðu áhuga að vinna við. 18 nemendur eru saman í hóp, 9 af öðru ári og 9 af þriðja ári. Í dag voru síðan viðtöl þar sem kennarar völdu nemendur inn í sín verkefni - Jóa komst inn í fyrsta val sitt og þurfti því ekki að fara í nema eitt viðtal. Var hæstánægð með þetta og er því í fríi á morgun fimmtudag en byrjar á föstudaginn og þarf að mæta í skólann einnig á laugardag til að fara á söfn.

Ég og Eva fórum til London í morgun að skoða stórborgina og leita uppi KFC stað þar sem Jóa hefur ekki áhuga á því að borða þannig mat. Jóa kom samt til okkar fljótlega eftir hádegi þar sem hún var svo fljót að afgreiða viðtalið sitt. Við fórum svo á British Museum og skoðuðum breytingarnar sem búið er að gera þar. Búið er að byggja risastórt glerþak yfir garð sem er á milli húsanna sem tengist í miðjunni á hringhúsi sem er gamalt bókasafn sem búið er að gera upp. Mjög flott og alveg frábært að skoða þetta. Löbbuðum Tottenham Court Road og fundum þar flottar búðir en þarna höfum við ekki skoðað okkur um áður. Síðan þurfti að sækja Ingu Huld á leikskólann og var hún dáldið miður sín þar sem allir krakkarnir voru farnir heim og hafði hún verið ein í 45 mínútur - var henni greinilega ekki farið að lítast á blikuna og talið að foreldrar hefðu gleymt sér. Við keyrðum síðan á Canary Wharf sem er á Docklands þar sem háhýsin eru, rúntuðum þar aðeins um og lögðum síðan og fengum okkur að borða. Keyrðum síðan sem leið lá inn í bæinn og yfir Tower Bridge - alveg magnað að keyra þarna um, sérstaklega í myrkri þar sem allt er lýst svo vel upp. Sáum David Blaine enn og aftur í búrinu!! Þá var haldið heim á leið og sofnaði Inga Huld á leiðinni alveg búin á þessu öllu saman.

mánudagur, október 13, 2003

Fórum á laugardaginn í bæinn og fórum í London Eye og krús á Thames. David Blaine vinkaði til okkar í siglingunni úr glerbúrinu sem hann hangir í við Tower Bridge. Um næstu helgi er hann búinn að vera þar í 44 daga með einungis vatn að drekka - snarruglaður maðurinn, í gærkvöldi var þáttur um manninn. Hann stóð í ísklumpi í New York í 3 daga og 3 nætur með bara vatn að drekka og einnig stóð hann á súlu sem var á hæð sem samsvaraði 10 hæða húsi í 36 klukkutíma án nokkurs - síðan hoppaði hann framaf og lenti á hrúgu af pappakössum. Gaman að sjá yfir London úr auganu - er um 130 metrar á hæð og þar sem það var alveg heiðskírt var skyggnið ansi gott. Á sunnudaginn keyrðum við síðan í bæinn og fórum á markað sem er nálægt Liverpool Street station - mikið fjör það og fullt af fínu dóti. Inga fékk eina tösku með mynd af Maisy mouse á. Bíllinn fór í viðgerð í dag (skipta þurfti um hjólalegur að aftan) og fengum við Ford Escort Diesel lánaðan á meðan frá bílasölunni - þvílík drusla ... en hún dugði okkur þó til að keyra í Lakeside Mall sem er ansi stór kringla í ca. 20 mínútna fjarlægð - það þurfti nú að fara með Evu eitthvað að versla!!

Núna eru Jóa og Eva í leikhúsi, Young Vic að horfa á íslenska uppfærslu á Rómeu og Júlíu. Merkilegt að Íslendingar fari á íslenska atburði þegar þeir eru staddir erlendis ... en jæja, svona erum við.

Síðan nóg að gera framundan - Jóa fer í skólann á morgun, Inga í leikskólann, ég þarf að fara inn til London og Eva verður líklega bara heima að leysa heimadæmi sem hún þarf að skila þegar hún kemur aftur í skólann.

laugardagur, október 11, 2003

Þar sem netsambandið er ekki gott þá er lítið skrifað hér nú. Búið er að panta ADSL tengingu og verðum við orðin sítengd netinu um næstu helgi ... jeij !! Eva er komin í heimsókn, var hún sótt á Heathrow í gær og mun hún verða hjá okkur fram á sunnudag í næstu viku - er hún nú í haustfríi frá námi sínu í Danmörku. Planið er að gera ýmislegt skemmtilegt - dagskráin í dag er að fara til London og kíkja á David Blaine í glerbúri sínu og reyna að komast í London Eye. Veðrið hér er frábært, heiðskírt og það verður eflaust um 20 stiga hiti hér í dag.

cheers

miðvikudagur, október 08, 2003

Þá er loks síminn kominn í samband hér á Lullingstone Lane og búið að tengjast internetinu. Allur flutningur hefur gengið vel og er búið að taka upp úr öllum kössum og koma flestöllu á sinn stað. Þegar búið var að koma öllu fyrir var svo verslaður eitt stykki bíll, Renault Megane ´99 silfurgrár og ansi fínn. Þarf reyndar að fara á verkstæði á mánudaginn en bílasalan græjar það allt saman og greiðir fyrir það, þar sem þriggja mánaða ábyrgð var á bílnum. Síðan var næsta IKEA verslun staðsett og farið í hana til að versla húsgögn sem á vantaði - aðallega var þó verslað í herbergið í hennar Ingu Huld, hillur fyrir allar bækurnar, stóll og spegill. Inga er síðan byrjuð á leikskólanum og líkar vel við - Jóa byrjar í skólanum á morgun þannig að allt er að komast í gang.

fimmtudagur, september 18, 2003

Nú líður að brottför til Englands - brottfarardagur ákveðinn 27. september. Búið er að finna íbúð í suð-austur hluta London, nánar í Hither-Green sem er beint niður af Greenwich. Ritgerðin á að skilast á morgun föstudag og klárast það fínt, allt að verða klárt!! Fínt verður að komast aftur út í hlýjuna þar sem það er að kólna ansi mikið hér, það fer bara alveg niður í 5 gráður og sést hefur frost á rúðum.

Við erum búin að vera að fara í gegnum dótið okkar sem við geymum í bílskúrnum hérna á Sunnubrautinni. Eitthvað ætlum við að senda út, en mörgu er nú hent ....alveg ótrúlegt hvaða hluti maður er að halda uppá, erum búin að vera mjög miskunnarlaus. Annað seljum við - t.d. borðstofuborð úr tekki með 6 stólum, nýuppgerðum, og tekkkommóða. Ef ykkur vantar eitthvað í þessum dúr þá er bara að hafa samband.

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

Það er kominn ansi langur timi siðan skrifað var her inn. Lika buið að vera nog að gera i ritgerðarsmiðum og Joa að vinna. Við erum dauðfegin að vera ekki stödd i Reading nuna i þessari hitabylgju sem a ser stað. Veðrið her a Islandi er alveg passlegt fyrir svona lærdom - ekki væri hægt að gera mikið i 30 stiga hita, nema kannski að sola sig og vera i frii.

miðvikudagur, júlí 02, 2003

Nú er bara komið að heimkomu - allt komið ofan í tösku, fór tvær ferðir í geymsluna í gær þar sem leigubílstjórinn vildi ekki taka hjólið í bílinn þá þurfti ég að fara aðra ferð um kvöldið hjólandi, það var nú bara ágætis æfing. Planið er svo að leggja af stað frá Reading rétt rúmlega tvö þar sem flugið er klukkan hálfátta frá Stanstead - geri ráð fyrir rúmlega þriggja tíma ferðalagi til Stanstead. Þarf að byrja á því að taka lest til Paddington, svo í túbuna til Liverpool Street og þaðan í Stanstead Express á flugvöllinn, heljarinnar ferðalag framundan með tvær ferðatöskur og tvær handfarangurstöskur !!

cu leiter

mánudagur, júní 30, 2003

Þá er mamma Grikkjanna mætt á svæðið, þ.e. að Nickolas sem er hefur verið með tvíburabróður sinn hér í heimsókn er nú búinn að fá mömmu sína líka og gistir hún hér í einu herbergjanna í ganginum. Hún byrjaði sunnudaginn á því að elda og held hún hafi verið að því frá kl. 9-3 og var þá líka dýrindis veisla. Hún borðaði síðan minnst sjálf en drakk Gin og Tonik með matnum og reykti mikið. Eftir að hafa lent í þessu þá sér maður að myndin "My Fat Greek Wedding" er bara nokkuð raunsæ lýsing á lifnaðarháttum Grikkja sem stemmir við það sem Kostas hefur alltaf sagt mér, "Ef þú vilt fræðast um líf Grikkja, þá horfirðu bara á þessa mynd", segir hann. Ég held að það eina sem hún hafi gert eftir að hún kom hingað sé að elda og þrífa - fór ekkert út í gær að skoða sig um !!

Ég var annars með matarboð á laugardagskvöldið fyrir Sif og Geir, var með þessa líka dýrindis nautasteik, þó hún hafi verið aðeins of steikt þá smakkaðist hún samt vel. Gat síðan boðið uppá íslenskt nammi og harðfisk sem snakk um kvöldið - held ég að það hafi slegið í gegn. Útlendingunum finnst lakkrísinn góður og Grikkirnir voru ánægðir með hann og tilkynntu mér sérstaklega að lyktin af honum er einsog af úsóinu þeirra - held ég að þeir hafi verið ánægðir með það.

Fékk síðan leiðréttingu varðandi nesti Ingu Huldar um daginn, hún tók ekki með sér vínber og melónu heldur jarðarber og plómur. Hún er annars bara hress og fór í bíltúr með mömmu sinni um helgina í sumarbústaði. Heimsótti ömmu og afa í sumarbústaðnum fyrir austan og síðan langömmu og langafa í sumarbústað á Flúðum, borðaði síðan kvöldmat og gisti þar. Fékk að hlaupa úr sér vitleysuna og fara í heita pottinn og hefur eflaust haft gaman af því að komast aðeins út fyrir bæjarmörkin þó bílferðin hafi verið dáldið erfið.

Er núna að fara í síðasta tölvutímann í C++ og síðan styttist bara í að maður þurfi að fara að pakka ....

föstudagur, júní 27, 2003

Er að lesa mér til fyrir ritgerðina - lestrarefnið er: hoppdreifingar, feitir halar, hreyfanlegt flökt og hreyfanlegir vextir - mjög áhugavert.

Horfði annars í gærkvöldi á mynd með grikkjunum sem nefnist Idle Hands - mæli ekkert sérstaklega með henni nema þú hafir áhuga á svona tegund af myndum. Sá sem átti myndina sagði að þetta væri hrollvekja en í ljós kom að þetta var blanda af vitlausum húmor og hrollvekju. Þeir sem ætla að horfa á myndina og vilja ekki vita söguþráðinn er ráðlagt að stöðva lesturinn hér, núna. Fjallaði sem sagt um strák sem gerði ekkert annað en að reykja gras og höndin á honum varð ásett djöflinum og fór að gera hluti sem hann vildi ekki, t.d. að drepa fólk. Hann hjó sem sagt höndina af sér en höndin hélt áfram að drepa fólk - tveir vinir hans voru t.d. drepnir en þeir lifnuðu síðan við, annar vinurinn var t.d. drepinn þannig að hann hjó hausinn af honum þannig að þegar hann lifnaði við þá hélt hann á hausnum undir hendinni. Sem sagt tóm steypa og ég vona að ég hafi ekki valdið vonbrigðum með því að segja frá söguþræðinum. Þessi tegund bíómyndna heitir einhverju ákveðnu nafni og hefur t.a.m. Páll Óskar mikinn áhuga á þeim - man ekki hvað þær heita, kannski að sá sem það viti sendi mér póst um hæl á valdi_kaldi@hotmail.com.

fimmtudagur, júní 26, 2003

Þá er prófið búið og ritgerðin tekur við ...nóg að gera. Skondið lífið í eldhúsinu hérna, Indverjinn borðar kartöflustöppu (tilbúna úr mjöli) með öllu og þá helst með stórum breskum pulsum og síðan bítur hann í chillipiparinn öðru hvoru, Frakkinn er eitthvað slappur og borðar salat með majonesi úr skál en Rúmeninn er reyndar ansi góður kokkur, er að elda nautasteik þar sem þetta er síðasta kvöldið hans hérna. Grikkirnir eru í líkamsrækt en ætli þeir borði ekki eitthvað frá mömmu !! Ég eldaði mér þessa líka fínu ommelettu, er ekki alveg viss hvernig fólki þarna leist á hana en enginn hló þó að henni allavega.

miðvikudagur, júní 25, 2003

Ég held að Grikkjanum Nickolas sem er hér við hliðina á mér lítist ekkert á mataræðið mitt - þegar ég kem fram á daginn og fæ mér samloku með skinku og osti eða eitthvað svona einfalt þá horfir hann bara á mig, glottir og hristir hausinn og síðan borðar hann og Frakkinn einhvern rosalegan mat sem þeir elda sér í hádegismat !!! Nickolas er reyndar með bróðir sinn í heimsókn og kom hann með hálfa tösku af tilbúnum mat frá mömmu ásamt súkkulaðiköku - með fylgdu einnig nokkur stykki af Feta osti og eru þeir duglegir að borða hann með hverju sem er - útá salat, ofan á kjötrétti, ofan á brauð og guðmávitahvaðogekkihvað. Þannig að þeir bræðurnir borða núna mat frá mömmu og eru sífellt að bjóða mér eitthvað - finnst greinilega ekki nógu gott að ég fái bara brauð með skinku og osti eða tilbúnar pizzur úr ofninum.

Inga Huld er búin að ákveða hvað á að vera á boðstólnum í afmælinu sínu ... semsagt: vínber, engjaþykkni og súkkulaðikaka með litlum kertum, ekki stórum og kakan á helst að vera hjólakaka. Þetta er sem sagt allt planað hjá henni en spurning hvað úr verður. Einnig tjáði hún mömmu sinni um daginn að það væru bara þrjár mínútur þar til pabbi væri kominn heim !! Hún virðist ekki alveg átta sig á tímanum vegna þess að þegar mamma sagði í dag að núna væru bara sjö dagar þar til pabbi kæmi heim þá sagði hún, nei mamma það eru fimmtán dagar - hefði nú ekki verið ánægð ef hún hefði fattað muninn þar á. Hún fer í pössun til ömmu Helgu á daginn og finnst það voða gaman, allavega virðist hún hafa nóg að gera þar sem hún er yfirleitt steinrotuð fyrir klukkan átta og vaknar svo um sjö (held ég) - skilst að það þurfi að drösla á henni á fætur og sé þetta bölvað maus á morgnana að koma krakkanum í föt og útí bíl !! Heimtaði síðan í morgun að hafa með sér nesti til ömmu einsog mamma tekur með í vinnuna, fékk vínber og melónu í nesti en lét tilleiðast að taka ekki með sér brauð gegn því að vera sannfærð um það að amma Helga ætti eflaust brauð hjá sér.

Sem sagt allt í góðu útum allt.

þriðjudagur, júní 24, 2003

Nám í skammstöfunum

Helsta námsefni fyrir prófið virðist vera í skammstöfunum, má hér nefna nokkrar:

FSMA2000, FSA, SFA, RIE, LSE, IPE, LME, OM, RCH, LCH, CREST, DPB, DIE, NYSE, RAO, FX, BoE, ICVC, IFA, CJA´93, POCA, ML, MLRO, NCIS, RDC, COB, FOS, FSCS, FR, FRR, PRR, CRR, LER, FER, EEA, EU, XR, NP, AIM, UKLA, NOMAD, SETS, SEAQ, SEAQI, SEATS+, WPA, NMS, MQS, DvP, ADRS, CAD, SWIFT, PSNCR, UCITS

...og einhverjar fleiri ....

CUL

Lítið að gerast hér annað en lærdómur ...fór með Kostas að hlaupa hringinn minn í gær utan um háskólasvæðið og var bara nokkuð ánægður þar sem ég sprengdi hann á leiðinni og hann sem er alltaf í gimminu og úti að hlaupa, var í herskyldu og alles !! Ansi góður árangur. Lærði í dag að búa til frappe, kaffidrykkur sem Grikkirnir drekka ...er sem sagt ískaffi - mjög gott svona í hitanum, kalt, frískandi og kaffi - hvað er hægt að biðja um það betra eða meira ??

jæja, aftur í dóminn ...

mánudagur, júní 23, 2003

Algjör snilld - sit núna hér heima að læra fyrir prófið og hlusta á þessa líka fínu íslensku músík af netinu. Útvarpsstöð FM 91,9 er nýfarin að senda út á netinu - hér eru stebbi, eyvi, björk, geiri, bjartmar, laddi og guð má vita ekki hvað !!! Þetta er nú heldur betur til að koma manni í stuðið - þyrfti að bjóða grikkjunum hingað í partí og leyfa þeim að heyra stuðið hjá sigga hlö um helgar ......

cheers

sunnudagur, júní 22, 2003

Til hamingju með afmælið Jóa !!!!!

Þar kom að því að það fór að rigna og heldur betur sem aldrei hafi rignt fyrr !! Náttúrulega byrjaði rigning þar sem ég var staddur í bíó, ásamt öðrum Íslendingum í Reading, eftir þennan líka fína mat hjá Sif og Geir (klikkar aldrei !!) þannig að þegar á heim á leið var haldið á hjólinu frá miðbænum var ég fljótt orðinn ansi blautur. Kosturinn var reyndar að geta bara opnað munninn til að geta fengið sér ferskan vatnssopa ... á móti kemur að bremsurnar eru ansi slappar, og hvað þá í bleytu og að vera í rigningu í myrkri á ljóslausu hjóli það er nú kannski ekki alveg það besta sem hægt er að gera. En jæja ...bíómyndin sem farið var á var Almighty Bruce með Jim Carrey og Jennifer Aniston - var hún bara nokkuð góð og alveg hægt að hlæja að henni, sérstaklega einu atriðinu sem ég fer ekki nánar útí hér. Mæli með henni til afþreyingar ...

góða nótt

laugardagur, júní 21, 2003

Sumarsólstöður

Enn ein blíðan og á morgun er spáð hátt í 30 gráðum - býst nú fastlega við því að koma mér í bæinn eða eitthvað svoleiðis ...þarf að kaupa afmælisgjöfina handa Ingu Huld og ýmislegt, hún er nú að verða þriggja ára þann þriðja júlí !! ...stór stelpa.

Evrópubúar halda greinilega dáldið uppá sumarsólstöður - bretar söfnuðust saman í gærkvöldi við Stonehenge og eitthvað meira á að vera um í kvöld, frakkar eru einnig með rosa partí í París ...man ekki til þess að neitt sé gert á klakanum í tilefni dagsins. Mörgum finnst merkilegt að á sumrin heima sé bjart allan sólarhringinn ...sumir leggja þá saman tvo og tvo og fá út fjóra (merkilegt) og spyrja hvernig veturnir séu þá !!

Kláraði í dag að lesa fyrir prófið á fimmtudaginn, þarf núna að byrja á æfingaspurningunum sem við fengum ...2200 krossaspurningar ásamt því að slatti er til á netinu til viðbótar. Kennarinn sagði að til að ná prófinu væri galdurinn að fara yfir þessar spurningar (og svörin náttúrulega) ......tvisvar sinnum !!! þannig að ekki er seinna vænna en að byrja. Þar sem ég hef 4 daga núna fyrir prófið þarf ég að fara yfir um 1100 spurningar á dag sem gerir um 110 spurningar á klukkutíma (miðað við 10 tíma vinnu) ...kannski ég byrji bara í kvöld.

Um næstu helgi verður rosa partí hjá student union, reisa á svið úti og tjöld og koma hingað dj-ar og tónlistarfólk til að spila og skemmta fólki frá klukkan 8 á laugardagskvöldi til klukkan 6 á sunnudagsmorgni - von er á mörgu fólki þannig að búist er við miklu stuði. Meira að segja þá á Dannii Minogue að koma að spila !!! ...ekki var ég nú alveg viss hver það væri en grunaði að sá aðili væri skyldur Kylie Minogue. Jújú, samkvæmt heimildum Jóu þá eru þær systur og er hún víst rosa kroppur !! Þannig að líklega verður þess virði að borga sig þarna inn til að sjá herlegheitin.

cheers

föstudagur, júní 20, 2003

Dagurinn í dag var nú bara nokkuð kaldur - það var eflaust undir 20 gráða hiti úti !!! Skýringin var reyndar að miklu leyti köld gjóla sem lék um, ekki ólíkt því sem er heima þar sem aldrei er logn ...þannig að það var töluvert heitt í skjóli. Dagurinn í dag annars nokkuð venjulegur, bókasafnið að lesa og út að hlaupa, eldaði síðan pasta í matinn og gat skipt restinni á tvo diska !!! einn á morgun og einn á sunnudaginn ...ansi góður !!

Fékk lokaeinkunnirnar í dag úr einstaka fögum, var í heildina litið mjög sáttur við þetta, reyndar eitt fag sem ég var ekki alveg sáttur við en prófið þar var líka ansi strembið þannig að þetta er ekki svo slæmt.

kala

fimmtudagur, júní 19, 2003

Hér er allt í einu orðið fullt af fólki þannig að núna er ekki hægt að fara í eldhúsið að fá sér eitthvað að borða nema að þurfa að tala við einhvern !! Borðaði í kvöld þessar líka fínu kjúklingabringur frá marksogspencer, þurfti bara að setja bakkann í ofninn og þá var þetta klárt - fékk síðan grískt salat hjá Nickolas sem meðlæti, var nú heldur betur ekki amalegt.

Þjóðhátíðarkvöldið var fínt, drakk John Smith allt kvöldið og fannst það ágætis drykkur til heiðurs Jóni Sigurðs !! Tælenski staðurinn var bara nokkuð góður og enduðum síðan á dansgólfinu á Brannigans ...mikið fjör og mikið gaman. Var annars nokkuð stilltur þar sem ég þurfti að fara í c++ tíma frá klukkan níu til sex daginn eftir (þ.e. í gær, miðvikudag). Eftir c++ tímann datt einhverjum feqa nemendunum að slá sér upp með því að fara í bæinn á barinn og fá sér að borða og svoleiðis ...gat náttúrulega ekki sleppt því og var síðan endað á diskóteki hjá student union, rosa fjör !!

þriðjudagur, júní 17, 2003

Hæ hó jibbí jei, það er kominn sautjándi júní - maður saknar nú að geta ekki farið í rigningunni að kaupa sér SS pylsu og ís í tilefni dagsins. En ég held þó í sannleika sagt að þetta veður sé að einhverju leiti að venjast - venst sosum alveg því að fara bara út á stuttermabolnum og sandölum eða þaðan af minna klæddur. Jóa fattaði á sunnudaginn að benda mér á að kíkja á hvort það væri ekki eitthvað um að vera á vegum Íslendingafélagsins í London vegna sautjánda júní og það var náttúrulega dagskrá á sunnudaginn - var það þá of seint en þar átti víst að vera SS pylsur og fleira góðgæti. Ætla nú samt í tilefni dagsins að skella mér útað borða með Sif og Geir á tælenskum veitingastað í bænum - það er eitthvað alveg voðalega íslenskt við það !! ...eða hvað ?

Annars allt við það sama hér, læra, hlaupa, lesa, stikna úr hita og fleira skemmtilegt. Var að lesa í gærkvöldi og heyrði í músík hér í húsinu, fór að tékka á málinu og komst að því að hann Elías átti afmæli, hann hafði boðið mér um daginn en ég hafði að sjálfsögðu gleymt því þar sem ég hef ekki Jóu til að minna mig á hlutina. En þetta var hið ágætasta Grikkja partý og dönsuðu menn þar, sungu og klöppuðu mikið saman höndunum við gríska músík. Sá ég nú fyrir mér að þeir yrðu nú líklega jafnundrandi og ég þarna ef þeir myndu koma í íslenskt partý og sjá alla í svaka stuði yfir Sálinni !!!

Fékk að vita með hvað ég útskrifast, að því tilskyldu náttúrulega að ég skili sæmilegri ritgerð, og var það samkvæmt væntingum - fæ ég svo að vita á föstudaginn lokaeinkunnir í öllum mínum fögum ...verður það spennandi.

jibbí jei

sunnudagur, júní 15, 2003

Latin partýið var fínt og grikkirnir hressir - úsóið smakkaðist ágætlega útí klaka en fannst mér það nú ekki eitthvað til að drekka mikið af. Kostas tjáði mér það að ef maður verður drukkinn af úsói þá skuli alls ekki fá sér vatn að drekka um kvöldið þar sem það gerir allt mun verra .... veit ekki alveg hvernig það gerist en þetta er allavega eitthvað sem er alvitað í Grikklandi. Þið munið það ef þið fáið ykkur úsó !!

Veðrið er alltaf að slá öll met og hefur eflaust verið yfir 30 gráðum í dag - ég ákvað að taka mér pásu og labba í bæinn ... held ég að ég hafi brunnið aðeins aftan á hálsinum. Keypti annars tösku, flugfreyjutösku þar sem ég ætla að setja allar bækurnar ofan í sem ég keypti fyrir Gísla, þarf að létta aðeins á farangrinum sem fer í flugvélina svo ég lendi ekki í of mikilli yfirvigt ...verslaði ég einnig eitt og annað og endaði á því að kaupa mér 2 subway þar sem ég átti 2 fyrir 1 miða. Labbaði síðan aftur heim þannig að ég er ansi vel genginn í dag og býst ekki við því að nenna eða hafa orku í það að fara útað hlaupa. Held að það sé spáð álíka hita á morgun en sýnist að það eigi að fara að koma einhver rigning þó í vikunni, hægt er að sjá veðurspána hér á síðunni með því að klikka á linkinn "5 daga spá", þetta er alveg ótrúleg sumarblíða og svo hefur fólk verið að segja mér það að það rigni mikið hérna ??!!

föstudagur, júní 13, 2003

Hér er enn sama blíðan - eina sem ég sé útum gluggann hérna hjá mér er fáklætt fólk í sólbaði ... ekki mjög áhrifaríkt til að ýta undir lærdóminn !! Fór á bókasafnið í morgun og gekk það fínt - það er hægt að útiloka sig frá blíðunni þar. Eftir hádegi lærði ég svo heima og ákvað um fimmleytið að fara útað hlaupa til að ná mér í smásól - fór í stuttbuxur og stuttermabol ...gat ekki látið sjá mig úti í síðbuxum (síðum joggingbuxum sem ég er vanur að skokka í). Skokkaði stuttan hring núna og lagðist svo í sólina hér fyrir utan - verð að ná í smá sólbrúnku áður en haldið er heimáleið.

Gleymdi alltaf að segja frá því að ég skrifaði smá forrit eftir bókinni sem ég er að læra C++, sem sagt forritið breytir úr fahrenheit yfir í celsíus !! getur kannski komið einhverjum að notum. Ef einhver hefur svo ólíklega þörf fyrir svona umbreytingu þá er um að gera að senda póst á valdi_kaldi@hotmail.com og ég sendi forritið um hæl ...taka verður fram að það er ekki mjög fansí en virkar flott og fínt (allavega á minni tölvu). Ég er ekki viss um að Börkur í rauða hverfinu verði mjög upprifinn af þessu forritaskrifi mínu en einhversstaðar verður að byrja ...ekki satt ??

Fer annars í latin partý í kvöld á student unioninu ...grikkirnar ætla að hittast hér í stúdentagarðinum mínum og ætla ég að slást í hópinn. Kostas ætlaði að koma með eina úsó og verður eflaust mikið fjör hjá þeim - ég sagði honum sögu af því að ég hefði einu sinni drukkið úsó. Blandaði ég það útí kók og fannst það alveg ágætt - ég held að hann misst allt álit á mér (ef það var þá eithvað) og var nærri búinn að afskrifa vináttu mína. Allavega þá hafði hann aldrei heyrt þetta áður og fannst þetta ekki mjög góð blanda - þeir drekka þetta bara útí klaka ...ég fæ að smakka þetta á eftir og get þá kannski sagt ykkur á morgun hvort þetta sé betra í kók en klaka !! ....hugsa að ég haldi mig samt að mestu bara í bjórnum ....

cheers

fimmtudagur, júní 12, 2003

Fór tvisvar út í dag - heldur betur öflugur, byrjaði í morgun á því að fara að lesa á bókasafninu og verslaði síðan skinkubréf hjá kaupmanninum á horninu þar sem ég virðist hafa týnt skinkunni sem ég keypti í safeway um daginn ;( ...var síðan uppá herbergi að lesa í dag og viti menn þegar ég fór að fá mér hádegismat um tvöleytið þá var bara fjör í eldhúsinu, þrír strákar mættir og voru að fá sér að borða og rósavín með. Þeir hafa ekki mikið að gera þar sem þeir eru bara að bíða eftir útskriftinni þann þriðja júlí ...þeir voru áhugasamir um Ísland og fannst áhugavert að vita hvort það væri satt að það væru bara fallegar stelpur heima. Ég sagði svo að sjálfsögðu vera en þá fór einn sem var um 1,75 á hæð að hafa áhyggjur af því að við Íslendingar værum svo stórir að hann væri líklega minni en flestar stelpurnar. Ég sagði honum að þær væru líklega að meðaltali jafnháar eða lítillega minni en hann en hann gæti verið í vandamálum ef þær væru á háum hælum !! Þeir voru einnig hrifnir af skemmtimenningunni en fannst dýrt að drekka - einn Grikkinn sagði reyndar að tímasetning djamms í Grikklandi væri svipuð, fara seint út og koma seint heim (eða snemma morguns). Grikkinn, Nicolas, sýndi mér stoltur Feta ost sem hann átti sem var beint frá Grikklandi - spurði hvort ég vissi hvað þetta væri. Ég sagðist heldur betur vita það og sýndi honum Feta ostinn sem ég átti !!! ...sem var í krukku í bitum í olíu - hann missti andlitið þegar hann sá þetta og sagðist aldrei hafa séð þetta áður ...fannst þetta þó dáldið sniðugt og skoðaði þetta vel ásamt félaga sínum sem einnig var grískur. Ég fór síðan að hlaupa og jók nú lengdina, hljóp í kringum háskólasvæðið - tók það mig um 35 mínútur með smálabbi þar sem ég gafst upp á leiðinni.

kvót:
"Most of us enter the investment business for the same sanity-destroying reasons a woman becomes a prostitute: It avoids the menace of hard work, is a group activity that requires little in the way of intellect, and is a practical means of making money for those with no special talent for anything else."
Richard Ney, The Wall Street Jungle.

miðvikudagur, júní 11, 2003

Hér er alltaf sama blíðan - stuttermabolaveður og fínerí, klikka oftast á því að vera of mikið klæddur þegar maður þá kíkir útfyrir hússins dyr. Fór nú í C++ tíma í gær að læra alvöru forritun, lærði á Excel/VBA í vetur og núna er verið að kenna grunnatriðin í C++ og hvernig við getum snúið VBA kódanum yfir í C++ kóda. Er það hentugt vegna þess að C++ er margfalt hraðvirkara heldur en Excel/VBA en er að sama skapi margfalt flóknara !! Þannig að þetta er áhugavert sérstaklega ef búa þarf til módel sem þurfa að reikna mikið eða gera hlutina oft, þ.e.a.s. hermanir. Er einnig byrjaður að lesa fyrir próf sem ég fer í þann 26., fer í tvo tíma fyrir það í næstu viku - er þetta próf sem gefur ákveðin réttindi til starfa í London, gæti verið jákvætt að hafa það þegar sótt er um vinnu. Þannig að það er nóg að gera - svo ekki sé minnst á líkamsræktina, er reyndar ansi þreyttur í líkamanum þar sem ég tók vel á því í gær og í fyrradag fór ég að hlaupa með Grikkjunum og þurfti ég að hlaupa tvo hringi þar sem við ætluðum að hittast kl. 7 en bara Costas kom þá þar sem Grikkirnir voru að sjálfsögðu alltof seinir. Ég og Kostas tókum þá einn hring og þegar við komum tilbaka þá voru þeir klárir í slaginn - annar hringur var þá farinn þannig að það var vel tekið á því. Ég verð klár í Reykjavíkurmaraþonið árið 2005 með þessu áframhaldi !!

Er alveg að klára bók sem kallast "F.I.A.S.C.O. Guns, Booze and Bloodlust: - (humm, spurning um hvað þessi bók er um hugsa eflaust einhverjir en að sjálfsögðu er hún um fjármál) ... The truth about high finance". Fjallar hún um sölumann afleiða hjá Morgan Stanley á árunum 1993 - 1995 sem sérhæfði sig í "emerging markets". (Emerging markets er í raun bara fancy orð fyrir markaði í vanþróaðri löndunum en hver vill kaupa vöru frá less developed countries ??) Þar lýsir hann hvernig þeir seldu flókin skuldabréf tengdum hinum ýmsu gjaldmiðlum í Suður-Ameríku, t.d. Argentínu og sérstaklega kom mexíkanski pesóinn við sögu. Það fór síðan að hrikta í þegar stórfyrirtæki einsog Proctor&Gamble fór að birta stór töp vegna svona fjárfestinga. Árið 1994 fór síðan Orange County á hausinn einsog frægt var þegar þeir töpuðu vel yfir milljarði dollara eftir að hafa keypt mikið af svona skuldabréfum. Þarna er t.d. sagt frá því að stórir kaupendur voru oft lífeyrissjóðir, sveitarfélög og aðrir sjóðir sem hefðu átt að vera að kaupa ríkisskuldabréf en höfðu ekki hugmynd um hversu áhættusamar vörur þeir keyptu. Einn kafli er t.d. um afleiður sem þeir seldu til Japan til að hjálpa bönkunum þar við að fela tap sem þeir höfðu orðið fyrir - var afleiðan hönnuð þannig að hún sýndi mikinn hagnað í upphafi sem hægt var að bóka og síðan var tapið ekki realiserað af afleiðunni fyrr en eftir kannski 20 - 30 ár !!! - þannig var tapinu velt áfram frá ári til árs án þess að nokkur vissi af. Þessi bók er í rauninni einsog skáldsaga og magnað að margt af þessu skuli hafa átt sér stað. Í dag hefði maður kannski haldið að fjármálageirinn væri nú eitthvað farinn að læra af reynslunni en viti menn þegar ég las mbl.is í dag þá voru tvær fréttir varðandi fjármálahneyksli ... ein um að hið stóra fyrirtæki með íbúðalán í Bandaríkunum, Freddie Mac, hefði eitthvað verið að kokka bækurnar og síðan um bíræfna stjórnendur WorldCom sem einnig voru að kokka ýmislegt. Þessi lesning á því vel við og um að gera að þekkja söguna - þetta er líka þrælskemmtileg bók og hægt að hlægja mikið ...þó hún sé á stundum grátleg.

mánudagur, júní 09, 2003

Fjandinn hafi það - var að prófa prentarann einsog ég skrifaði að neðan ....og viti menn, hann prentar bara blöðin fínt og vel, engar krumpur eða neitt !!! Ég gæti tekið þetta að mér - geri við prentara með því að labba með þá aðeins um bæinn !!

cheers

Er nú aleinn í ganginum á stúdentagörðunum og hef þar af leiðandi mikið næði fyrir sjálfan mig til að skrifa. Stelpa frá usa var að fara í morgun og bauð hún slatta af fólki hingað í gærkvöldi í amerískar pönnukökur með sírópi í kveðjuskyni - mjög gott !! Reyndi í dag að fara með prentarann í viðgerð þannig að ég labbaði með hann í 40 mínútur í PCworld sem er rétt hjá safeway til að komast að því að þeir gera ekki við prentara - ég spurði manninn þá hvað nýr prentari myndi kosta og hvað hann héldi að það myndi kosta að gera við þennan. Hann benti mér þá eitthvað inní búðina og sagði að ég gæti skoðað prentarana þar - ekki mikill sölumaður sá ... Ég fór þá bara í safeway að versla og tók svo leigubíl heim með prentarann og allt draslið. Er svo að fara útað skokka á eftir með tveimur Grikkjum - Kostasi og vini hans, vonast til að það verði til að ég dröslist út að hreyfa mig ...notaði það sem afsökun í gær að það var sunnudagur og hvítasunnudagur að auki, það má nú ekki hreyfa sig of mikið á svo helgum degi. Fólk hér hvaðanæva úr heiminum var nú ekki að kannast við þennan hvítasunnudag (whitesunday) og þaðan af síður second in white sunday !!! - ekki einu sinni Grikkirnir sem eru nú töluvert trúaðir að mér skilst á þeim.

Fór að hitta leiðbeinandann minn fyrir ritgerðina í morgun - hann hafði sent mér póst á mánudaginn fyrir viku síðan og sagt að það hefði verið haft samband við sig, útskrifaður doktorsnemi frá þeim vantaði að láta gera eitthvað verkefni fyrir sig varðandi vinnuna sem hann er í. Ég gat ekki hitt hann á þeim tíma þar sem ég var að flytja og síðan var hann ekki við restina af vikunni. Þegar ég loks hitti hann í dag þá var þetta eitthvað allt annað en ég er búinn að vera að velta fyrir mér og byrjaður að skoða - en þetta er samt mjög áhugavert og einnig að þetta skuli vera frá fyrirtæki sem vill láta gera þetta. Þetta er varðandi það að þeir eru búnir að byggja módel til að verðleggja valrétti en vilja fá utanaðkomandi aðila til að prófa módelin og þeir leggja til gögn og náttúrulega módelin. Í rauninni er þetta líklega einfaldara heldur en það sem ég var að pæla í þar sem ég fæ þetta mest allt saman uppí hendurnar. Þannig að núna þarf ég að velta fyrir mér hvort ég vilji gefa uppá bátinn það sem ég er byrjaður á eða hvort ég vilji taka þennan kost sem hefur marga plúsa. En ég er mest súr að leiðbeinandinn skildi ekki geta gubbað útúr sér í mailinu hvað málið snérist um þannig að ég hefði ekki verið að byrja að skrifa um eitthvað allt annað !!! ....en svona er þetta bara. N

Nú ætla ég að fara að athuga hvort að prentarinn hafi nokkuð lagast við það að vera borinn alla leiðina í safeway og síðan keyrður tilbaka ...það er aldrei að vita.

laugardagur, júní 07, 2003

Dagarnir hér eru nú ekki fjölbreytilegir núna, vakna, borða, læra, sofa ... en í dag byrjaði ég á fyrstu orðum ritgerðarinnar !!! - mjög ánægður með að hafa byrjað að skrifa eitthvað. Lítið varð úr heilsuræktarátakinu í gær í formi hlaups en í staðinn þá hjólaði ég tvisvar 15 mínútur þ.e. til Sif og Geirs í mat og svo aftur heim - gat ég sannfært sjálfan mig um að það kæmi í stað hlaupa. Maturinn hjá Sif var mjög góður ...þessi líka fíni fiskur - ekki líklegt að ég nenni að elda fisk fyrir mig hér þannig að hann var vel þeginn. Svo má náttúrulega ekki gleyma desertinum - hef ekki fengið svona gott að borða síðan Jóa fór ;( Núna ætla ég útað hlaupa í blíðunni til að vera ferskur fyrir smálærdóm í kvöld. Annars bilaði prentarinn minn þegar ég ætlaði að prenta út pappíra sem ég var búinn að ná í á netinu ...alveg týpiskt !! - þarf nú að fara með hann langa leið til að koma honum í viðgerð og þarf að fara uppí skóla að prenta. Er það slæmt þar sem ég hafði ætlað mér að vera bara inni í herbergi að læra allan tímann !!

Jóa komin á bíl heima þannig að ef þið sjáið skvísu skutlast um á fjólubláum vento þá er það sem ykkur sýndist vera - hún Jóa mín !!

Have a good one !!

föstudagur, júní 06, 2003

Get nú loks byrjað að skrifa aftur á bloggið - kominn í samband við umheiminn, þetta tekur allt sinn tíma hér í bretalandinu - en er nú kominn með þessa líka fínu sítengingu, mjög hraðvirka þannig að ég get hangið á netinu tímunum saman. Flutti á stúdentagarðana á mánudaginn, var í miklum asa á mínum sendiferðabíl (vissi nú ekki alveg hvað ég var búinn að koma mér í með það að fara að keyra hér um á stórum sendiferðabíl, öfugu megin og allt ...byrjaði líka á því að keyra uppá einhvern kant en þetta reddaðist nú allt saman að lokum) að flytja dót frá Northumberland í geymsluna okkar og á stúdentagarðana. Geir hjálpaði mér með stærsta dótið og í staðinn fór ég með Sif og Geir í Safeway að versla !! en þau búa langt frá stórri og góðri verslun og voru þess vegna mjög ánægð með að geta verslað almennilega. Ég keypti mér líka nóg af nauðsynjavörum (bjór og vatni) til að eiga í herberginu. Herbergið er fínt með rúmi, skrifborði, baðherbergi með sturtu og litlum ísskáp - hvað er hægt að hafa það betra ?? Á ganginum er svo eldhús sem við erum 8 með sameiginlega þannig að hægt er að kokka sér eitthvað að borða.

Er síðan byrjaður að lesa fyrir ritgerðina og skrifa kannski fyrstu stafina í henni í dag, jeij !! Þarf annars að fara að nota vekjaraklukkuna á morgnana vegna þess að ég er farinn að sofa í um tíu klukkutíma - finnst það aðeins of mikið. Byrjaði einnig á heilsuræktinni í gær, fór útað hlaupa í 30 mínútur og áætla að ég hafi náð um 5 kílómetrum - er það áætlað útfrá því að maraþonhlaupari hleypur um 10 kílómetra á 30 mínútum (held ég svona cirka umþaðbil) og að ég hlaupi helmingi hægar en hann !! Reyni svo núna að fara á hverjum degi til að vera kominn í gott form áður en fólk sér mig heima í sumar.

cheers

sunnudagur, júní 01, 2003

Líður að flutningi - flytja þarf á morgun þannig að verið er að setja síðustu hlutina í kassa og strjúka síðustu rykkornin í burtu. Hlýindin halda áfram þó að lítið hafi verið af sól í dag ...samt um 25 stiga hiti, aðeins hlýrra en í gær þegar fór í um 30 gráður, enda var ólíft innandyra og heyrðist af fólki fara í búðir til að fá loftkælingu !! Kom einnig ein skúr í dag einmitt þegar ég var að byrja að þrífa gluggana að utan ...týpiskt ; ( Sif og Geir hringdu samt í dag til að trufla mig og fórum við saman á framhaldsmyndina Matrix, var hún náttúrulega uppfull af tæknibrellum og var alveg ágæt - þeir taka samt lordoftherings trikkið þar sem þeir eru þegar búnir að taka þriðju myndina þannig að þessi mynd endar í rauninni ekki. Sem sagt ágætis skemmtun, fórum síðan á indverskan veitingastað á eftir (sama og um daginn) og var hann jafngóður í þetta skiptið. Var þetta fínt hlé á tiltekt og pakkningu og er allt á áætlun !!

En allavega á morgun verður flutt og er þetta þriðja sumarið í röð sem við fjölskyldan flytjum (flutningurinn er nú reyndar nú þegar hafinn þar sem stelpurnar eru farnar heim til Íslands) ...þurfum nú að fara að festa rætur betur, fer að verða þreytandi.

Heyri stundum í Ingu Huld í símanum og segir hún alltaf "pabbi, þú frá mér", "pabbi, þú bara aleinn í redding" og er nú eitthvað að fatta þetta að ég kem ekki alveg á næstunni ; (

föstudagur, maí 30, 2003

GoKart

Þvílík og önnur eins veðurblíða – þið verðið bara að afsaka hvað ég tala mikið um veðrið, það bara er ekki hægt annað. Húsið er einsog gufubað samt hefur ekki verið kveikt á hitanum hér lengi. Byrjaði daginn á því að taka til ...græjaði tvö herbergi þannig að þau eru alveg klár ... þá eru bara fjögur herbergi eftir !!! (að meðtöldu baðinu). Eftir bað var síðan haldið á leið uppí skóla (þar sem ég stiknaði á leiðinni í sólinni – er farinn að fá brúna litinn aftur eftir páskana) þar sem mæting var rúmlega eitt fyrir gokart !!! Þrjátíuogsjö manns mættir fyrir gokart keppni ISMA – búið var að skipta í níu lið og lenti ég með stelpu sem mætti á háum hælum, tveggja metra háum strák og síðan tveggja metra víðum strák ...þokkalegt lið, alveg ljóst frá byrjun að við myndum ekki lenda ofarlega ; ( ...en skítt með það – ég skemmti mér konunglega þegar ég átti að gera, fékk að taka í tvisvar sinnum þrjátíu mínútur – var alveg búinn eftir þetta og mikið sveittur og þreyttur. Líka ansi heitt þarna og þungt loft þannig að þetta var ansi erfitt. Mikið skipulag þurfti fyrir þetta, við þurftum að taka þrjú pit stops þar sem við þurftum í einu stoppinu að færa einhver dekk á milli prika (átti að vera dekkjaskipting) og þurftum í tveimur stoppum að skrúfa stýrið af bíl sem var fyrir utan pittið. Síðan var einu sinni bensínáfylling og síðan var skipt um bílstjóra öðru hvoru. Brautarverðir flögguðu síðan bláum flöggum á þá sem keyrðu of glannalega (yfir getu), gulum flöggum þegar einhver snérist í brautinni, og svörtum flöggum á þá sem keyrðu ítrekað á aðra eða stunduðu aðra óheiðarlega keyrsluhætti !! Menn þurftu að koma inn og taka út refsingu ef ekki var farið eftir tilmælum brautarmanna. Semsagt meiriháttar skemmtun og mæli ég með þessu sem hópskemmtun !!

fimmtudagur, maí 29, 2003

Brottfarardagur stelpnanna.

Í dag var hitabylgja !!! hitinn var 26 gráður í skugga og þvílík og önnur eins blíða ...heldur betur kveðjuveður sem stelpurnar fengu. Í morgun byrjaði ég á því að ná í bílaleigubílinn, Rover 75 ...það þarf sko engar smádruslur til að keyra alla leiðina á Stanstead. Ástæða þess að flogið var með Iceland Express var sú að hægt er að kaupa miða aðra leiðina þar ...sem ekki er hægt hjá Icelandair nema að kaupa hana á ca. hundraðþúsundkall – skrítið að þurfa alltaf að fljúga báðar leiðir hjá Icelandair. Allavega byrjuðum við á því að kíkja á geymsluhúsnæðið okkar í sumar og var þetta risastór vöruskemma sem búið er að afmarka niður í minni geymslur og fengum við fimmtán fermetra geymslu sem við getum haft aðgang að allan sólarhringinn ...ferlega sniðugt dæmi. Síðan var farið í hádegismat í bænum með Sif og Geir, borðað úti og allir að svitna og stikna í hitanum, alltaf mest fegnir þegar ský dró aðeins fyrir sólu. Við keyrðum síðan í Toys´r us til að kaupa dót í flugvélina fyrir Ingu Huld, fékk hún dúkkulísur (einhverskonar) og var ánægð með það – valdi þær allavega framyfir Playmo dót sem hún er samt mjög hrifin af. Síðan var lagt í hann á Stanstead, átti flugið að fara í loftið kl. 19:50 og þurftum við að vera mætt á völlinn ca. 17:50, lögðum þess vegna af stað frá Reading rétt rúmlega 15:00 til að hafa góðan tíma. Einsgott að gefa sér góðan tíma fyrir hraðbrautina vegna þess að við lentum í dágóðri umferðarteppu vegna umferðarslyss að okkur skildist en loksins þegar leystist úr flækjunni þá keyrðum við ekki framhjá neinu slysi. Yfirleitt er þetta þannig þegar flækjur eru að bara alltíeinu leysist þetta án nokkurrar sýnilegrar ástæðu fyrir flækju. Inga lagði sig á leiðinni, sem betur fer, vegna þess að hún var ekki mjög hrifin af þessum hita, var orðið ansi heitt og var komin á nærbolinn !!! Svaka skutla í gallabuxum, nærbol og með bleik sólgleraugu. Við náðum tímanlega á flugvöllinn og eftir að hafa fundið bílastæðið (sem tók smátíma vegna þess að það var eiginlega of augljóst hvar það var) drifum við okkur í tékkinnið. Auðvelt var að rata þarna og er þetta mjög rúmgott og vel merkt þarna – í rauninni mjög einfaldur og þægilegur flugvöllur. Töskurnar vigtuðu 63 kíló en konan sá sér auman á okkur og rukkaði ekki fyrir yfirvigt sem betur fer, hefur séð að hér voru á ferð bláfátækir námsmenn. Fljótlega var svo komið að kveðjustund ...snökt, snökt ... Inga Huld var mjög sátt við þetta allt saman, kveðja pabba á flugvellinum í Englandi, amma Inga og afi Helgi myndu sækja hana á flugvöllinn á Íslandi og síðan kæmi pabbi heim í afmælið !! Var bara mjög ánægð og fannst þetta allt saman bara mjög sniðugt og kyssti og knúsaði pabba sinn bless. Ég brunaði síðan heim á Rovernum á hundraðinu ... mjög góður bíll, ekkert veghljóð, vélarhljóð eða neitt, sama á hvaða hraða keyrt er – steinliggur og frábær bíll í alla staði nema kannski dáldið þröngt fyrir fæturna frammí. Bílnum síðan skilað eftir að hafa rúntað aðeins um nágrenni háskólans vegna þess að ég tók aðeins of mikið bensín en ég átti að skila honum með. Fékk bílinn með hálfum tanki og á að skila honum eins ...dáldið erfitt að stilla þetta þegar maður veit ekki hvað tankurinn er stór. Var því að reyna að eyða dáldið af bensíninu mínu sem ég var búinn að borga fyrir : ) ...eins vitlaust einsog það nú hljómar !!!