þriðjudagur, desember 27, 2005

Narnia bíómyndin í gær var skemmtileg og dáldið "scary" á köflum þannig að það þurfti að fela sig ... en þrátt fyrir rúma tveggja tíma mynd þá hélst athyglin bara vel.

Í dag er síðasti jólafrídagurinn okkar - nefnilega dáldið sniðugt hjá bretanum að ef að lögbundinn frídagur lendir á helgi þá færist hann á næsta virka dag ... þannig að í rauninni var jóladagsfrídagurinn í dag!! Það var meira að segja dáldið jólalegt þar sem að það snjóaði eilítið og fannst Ingu Huld það gaman. Við skelltum okkur í góðan bíltúr - eftir að hafa fengið okkur heitt súkkulaði, smákökur og jólaköku í hádeginu þá var lagt í hann og byrjað á því að fara í Skandium þar sem við versluðum okkur hnífapör sem var í rauninni jólagjöf frá foreldrum okkar. Þar gátum við líka verslað Georg Jensen jólaskraut á góðum útsöluafslætti. Síðan var haldið í Selfridges ... þar var allt pakkað af fólki og greinilegt að þessir fáeinu frídagar þar sem fólk gat ekki farið útí búð höfðu leikið það grátt ... útsalan hafði samt byrjað í gær þannig að við vorumí rauninni alltof sein. För okkar var heitið í matardeildina þar sem við versluðum áramótasteikina - keyptur var dádýrahryggur. Fyrsti kjötsalinn sem talaði við okkur í borðinu virtist ekki vita mikið - þegar ég spurði hann hvort hann ætti ekki til hreindýrakjöt þá spurði hann tilbaka hvaða kjöt það væri ... mér fannst einsog þessi myndi ekki hafa mikið vit á kjöti svona yfirleitt ... hinn kjötsalinn útskýrði þá fyrir honum hvort hann vissi hvaða dýr það væru sem sögð eru draga sleða jólasveinsins og þá kveikti hann á perunni ... afskaplega skemmtilegar samræður. Allavega þegar við vorum búin að skoða allar nautasteikurnar þá ákváðum við að spjalla aftur við þá um dádýrakjötið ... við lentum þá sem betur ekki á þessum sem við hittum fyrst og var þessi mun betri, allavega seldi hann okkur hrygginn, snyrti hann, gaf okkur afslátt og hélt síðan heillanga ræðu um það hvernig væri best fyrir okkur að geyma hann, marinera hann og að lokum hvernig ætti að elda hann ... hann var alveg ágætur en aðrir sem biðu eftir þjónustu við kjötborðið voru orðnir vonlitlir að eiga nokkra von á að fá nokkra afgreiðslu ef maðurinn héldi þessu blaðri áfram!! Eftir að hafa vafrað síðan um í fólkskösinni þá héldum við heim á leið þar sem jóladagsmaturinn beið eftir okkur - heit sveppasúpa, hangiket, frómas og ís ... það fer nú samt að verða tími til kominn að ljúka því að eta þennan jólamat ...

cheers

mánudagur, desember 26, 2005

Fengum góða gesti í jóladagsmat í gær - Gísli, Halldóra og Loki komu og þáðu hjá okkur sveppasúpu, hangikjöt með uppstúf og grænum ora baunum og ananasfrómas í desert ... alveg að hætti fjölskyldunnar hennar Jóu. Eftir allar þessar íslensku jólakræsingar var nánast ekkert pláss fyrir smákökurnar með kaffinu!! Loki var ekki lengi að slátra jólagjöfinni sem við gáfum honum og greinilegt veiðieðli í honum - næst þarf að fá rammgerðara dót !

Ég og Inga Huld erum nú bráðlega að fara í miklar framkvæmdir að stækka við Playmo húsið - búið er að fá byggingarleyfi fyrir nýrri álmu og á bara eftir að koma framkvæmdunum í gang. Annars er planið að viðra sig aðeins í dag og fara svo í bíó að sjá The Chronicles of Narnia - Ingu Huld langar mikið að sjá þá mynd og er alveg tilbúin þó það séu einhverjir "scary" hlutar í myndinni, þá ætlar hún bara að loka augunum og fela sig á bakvið popppokann.

cheers

sunnudagur, desember 25, 2005

GLEÐILEG JÓL

Hér var aðfangadagskvöld með íslenskum brag ... rækjukokteill, hamborgarahryggur og tobleroneís ... síðan voru pakkarnir að sjálfsögðu teknir upp og voru sumir spenntari en aðrir. Mest allt undir jólatrénu var til Ingu Huldar en einn og einn pakki leyndist inná milli til mín eða Jóu - Inga Huld var rosa ánægð með alla pakkana og í morgun var hún alveg rugluð að hún átti í mestu vandræðum með að ákveða sig á hverju hún ætti að byrja á að leika sér. Ég er búinn að fá að setja saman dáldið af Playmo en við eigum eftir að setja upp viðbygginguna á Playmo húsið.

Hápunktur kvöldsins var líklega Kitchen Aid hrærivélin frá mér og Ingu Huld til mömmu ... okkur fannst ómögulegt að ekki væri hægt að baka hér neinar kökur eftir að hin hrærivélin skemmdist í hápunkti jólakökubakstursins ... Inga Huld var harðákveðin í því að bjarga þessu og féllst ekki á neitt annað en að versla Kitchen Aid hrærivél einsog mamma hennar hafði minnst á að vantaði nú. Þetta er gjöf sem kemur okkur öllum að góðum notum !!

cheers

föstudagur, desember 23, 2005

Nú styttist í jólin og sumir orðnir rosa spenntir !! Inga Huld fékk Playmo jólasvein á sleða með hreindýrum í skóinn í morgun og fannst henni það ekkert smá flott. Ég var í fríi í dag og gat því sofið aðeins út ... svona þangað til Inga Huld var farin að krefjast þess að ég myndi gefa henni að borða. Við fórum síðan á jólaball í vinnunni minni og var Inga Huld búin að bíða lengi eftir því af því að henni fannst svo gaman í fyrra. Núna var Peter Pan þema og fór hún með fairy vængina sína á bakinu. Ekki var ballið síðra í ár heldur en í fyrra og heilmikið lagt í þetta - leikararnir ættu líka að vera orðnir nokkuð vanir þar sem þetta var þriðji dagurinn í röð sem ballið var !! ... nóg af börnum í ABN. Það var í rauninni dáldið sniðugt að hafa Peter Pan þar sem auðvelt er að höfða til stráka með sjóræningjunum og síðan til stelpnanna með álfunum.

cheers

miðvikudagur, desember 21, 2005

Við nýttum okkur barnapíuna í gærkvöldi og skelltum okkur í (mið)bæinn eftir vinnu. Stefnan var tekin á það að spóka sig og sjá aðra ásamt því að versla jólagjöfina fyrir Ingu Huld. Vinnan hjá Jóu fór í jólalunch sem hófst á skrifstofunni kl. 12.30 með kampavíni og stóð svo yfir frá kl. 13.00 til kl. 18.30 ... ja, allavega hjá Jóu sem yfirgaf þá liðið sem var þá búið að vera í miklu stuði (e. binch drinking) frá kl. 14.00 ... sem sagt ekki mikil vinna eftir hádegi hjá sumum. Í bænum var allavega nóg af fólki og eftir að hafa fundið jólagjöfina þá héldum við á Cocoon sem er neðst á Regent stræti og létum á það reyna að fá borð þar - okkur var boðið að setjast þar á Sushi barinn og létum við til leiðast með því skilyrði að við þyrftum ekki endilega að borða Sushi þar og var það allt í þessu fína. Okkur fannst maturinn fínn en ég hafði smá reynslu þar sem ég hafði komið þarna áður í jólakvöldmat með mínu vinnuliði nokkrum vikum áður.

cheers

mánudagur, desember 19, 2005

Við skelltum okkur í innkaupaleiðangur í Bluewater í gær - í rauninni var ekki mikið á innkaupalistanum en það endaði bara með því að við gátum verslað bara allnokkuð. Stundum er betra að fara bara með því hugarfari að kaupa ekkert sérstakt, þá sér maður það sem maður hefur alltaf verið að leita að. Allavega komum við í veg fyrir að nokkur færi í jólaköttinn hér á bæ þar sem allir fengu eitthvað nýtt fatakyns til að vera í um jólin. Þegar heim var komið vorum við með heitt súkkulaði (Ingu Huld finnst alltaf jafn skrítið að drekka heitt súkkulaði ...) og smákökur og jólakökur með ... það er alveg greinilegt að kílóin tínast ekki um þessi jólin ... enda eru nú jólin ekki ætluð til þess að vera í neinni megrun !!

cheers

laugardagur, desember 17, 2005

Fengum jólatréið í dag í Blackheath - það var greinilega hægt að treysta á þá !! Einhver var að dröslast með þetta líka fína tré í gegnum búðina og Jóa sagði mér að þessi hefði fengið flott tré hér ... maðurinn tilkynnti okkur þá að hann væri að fara með restina af öllum trjánum framfyrir þar sem allt væri að verða búið og gat hann selt okkur tréið sem hann hélt á. Það passaði okkur vel og allir voru voðalega ánægðir ... og toppurinn á trénu rétt svo komst inn fyrir skottlokið á runóinum.

Heima bökuðu skvísurnar svo þrjár tegundir af marsipankökum ... í rauninni var bakað alveg þangað til að hrærivélin gaf upp öndina og harðneitaði þessu bölvaða puði!! Þar með var henni hent í ruslið og ekki fleiri smákökur fyrir þessi jólin .. ;( ... en við gátum þó komið saman piparkökum þar sem að ekki þarf að hræra þær - við látum því bara 4 sortir duga fyrir þessi jólin og síðan náttúrulega jólaköku, jólastollen, mince pie og yulelog úr Sainsbury til að bæta í götin.

Það finnst líka alveg að jólin eru að koma - við fengum nefnilega heimsendan beint frá Danmörku (með smá viðkomu í Leeds þó) um síðustu helgi 1 kassa af þessum líka eðalfína JuleTuborg - hvað þarf maður annað til að komast í jólaskap ??

cheers

föstudagur, desember 16, 2005

Hættum bæði snemma í vinnunni í dag og tókum lest til Blackheath þar sem að jólaskólaleikrit Ingu Huldar var í dag - Rock the Baby - dáldið poppaður jólasöngleikur. Var þetta bara mjög fínt hjá stelpunum og fannst Ingu Huld þetta skemmtilegt. Á eftir var síðan boðið uppá verst útlítandi mince pie sem ég hef augum litið og rámaði eitthvað í það að ég hefði líklega smakkað þetta í fyrra og ekki fundist gott ... héldum við okkur því frá veitingunum í þetta skiptið.

Á leiðinni heim keyptum við svo köku í bakaríinu í tilefni dagsins. Síðan hófst leiðangur í leit að jólatré - við byrjuðum að sjálfsögðu í Sainsbury en ég er ekki alveg viss um hvaðan þeir fengu jólatréin þetta árið ... þau voru öll rammskökk eða gisin eða illa vaxin og sum meira að segja sitt lítið af öllu þessu og önnur mjög mikið af þessu öllu saman ... sem sagt ekki glæsilegt samansafn jólatrjáa. Þá var haldið í B&Q en þar var allt uppselt !! Við virðumst því vera í seinni kantinum þetta árið ... ákvörðum var því tekin um að geyma þessi kaup í einn dag í viðbót. Það voru nefnilega 3 jólatrésölur í Blackheath höfðum við séð, ein í garðabúðinni, önnur í blómabúðinni og þriðja í grænmetisbúðinni ... reynum þessar á morgun og treystum á Blackheath-kaupmennina.

cheers

fimmtudagur, desember 15, 2005

Það eru bara komnar auglýsingar hér á vinstri hliðina á síðunni ... bara gaman af því ... alltaf gaman að kíkja á þær !!

Ingu Huld finnst jóladagatalið sem við keyptum núna mjög skemmtilegt - þetta var sem sagt Playmobil advent calendar. Með því fylgdi pappahús og síðan er búið að vera bætast inní það einsog aðventukrans, arinn, borðstofuborð, krakkar, jólatré, pakkar o.s.frv ... síðan var jólasveinninn líka svo sniðugur að gefa Playmopakka í skóinn í nótt og var það karl með sláttuvél. Það var kannski ekki viðeigandi við árstímann en henni fannst hann rosaflottur og þeyttist hann hér um stofugólfin með sláttuvélina í morgun alveg á fullu !!

cheers

miðvikudagur, desember 14, 2005

Jóa fékk sér loksins bankareikning hér í London! Ástæðan er sú að þann 1. Desember fékk hún sem sagt sínu fyrstu útborgun hér og var það greitt í tékka ... við fórum semsagt með það í bankann og báðum um að andvirði tékkanns yrði lagt inná minn bankareikning þar sem við erum með allt sameiginlegt á honum (við erum svo samrýmd!!). En okkur var tjáð það að það væri sko ekki hægt!! Það er sem sagt ekki hægt að biðja um það að andvirði tékka sé lagt inná annarra manna bankareikning ... það er bara alveg ómögulegt algjörlega gagnstætt öllum reglum. Ég var nú ekki alveg að skilja þetta en það þýddi lítið að þræta og varð Jóa sem sagt að opna sinn eigin bankareikning svo hún gæti nú notað peningana sína eitthvað ... mig grunar að hún eigi eftir að kaupa jólagjöfina mína þannig að það er nú gott að þetta er komið í gegn.

mánudagur, desember 12, 2005

Í gær var jólaball Íslendingafélagsins í sænsku kirkjunni - þar var allt pakkað af fólki og alltof lítið pláss ... þetta var ekta íslenskt ... allt í kaos. Við skildum við gestina okkar á meðan í Harrods og töldum við að þeim mundi ekki leiðast þar. Á jólaballinu skemmti Inga Huld sér konunglega og hitti þar vinkonur sínar Söndru og Unni. Jólasveinar komu með íslenskt jólasveinanammi og svo var gengið í kringum jólatréð eftir að hafa gætt sér á hlaðborði af kökum og öðru gúmmulaði. Inga Huld var rosaánægð þegar sungið var "jólasveinar, einn og átta" enda er það eitt af fáum íslenskum jólalögum sem hún kann og tók hún vel undir þá. Annars var hún ekki alveg með á nótunum þegar það þurfti að vera að skúra og strauja, prjóna og taka í nefið og allt þetta ... en samt fannst henni þetta mjög skemmtilegt.

Við hittum síðan liðið aftur á Pizza Express hjá Charing X, eftir smá bið þó þar sem sumir villtust í sínum verslunarleiðangri. Þar átti að gæða sér á "bestu" pizzunum en okkur til mikilla vonbrigða fengu gestirnir sér pasta og salat !! misstu þeir þar af miklu. Síðan tókst mér að koma út loksins dáldlu af jólaglöggi ... hef beðið lengi eftir því að smakka á jólaglögginu úr Sainsbury´s en hef ekki kunnað við það að vera að dreypa á þessu aleinn. Eftir síðustu jól endaði ég á því að henda flöskunni einhvern tímann um vorið eftir að ég sá fram á það að ég mundi ekki opna hana úr þessu. Ég var þó staðfastur að einhver mundi þiggja boð mitt þessi jólin og smakkaðist þetta líka alveg stórvel ... við bragðbættum þó aðeins með rúsínum og möndlum og gerði það náttúrulega gæfumuninn en ég átti ekki púrtvínsslettu útí einsog mælt var með þar sem gestirnir kláruðu þá flösku kvöldið áður!

cheers

laugardagur, desember 10, 2005

Þegar ég kom heim frá Amsterdam á föstudagskvöldið voru mættir hér gestir. Elín og Palli áttu hér leið hjá með Evu á leið frá Leeds til Óðinsvéa og var tekið stopp í London í nokkra daga. Fórum í bæinn í dag að skoða jólastemmninguna í London - byrjuðum á steikarsamloku á London Borough Market sem bara klikkar ekki! Núna var prófað að fá sér kalkúna með fyllingu, sultu og salati í wrap ... sem sagt bara jólamáltíðin og var alveg meiriháttar gott ... og síðan að sjálfsögðu á súkkulaðibarinn þar sem við erum í hollustunni og kaupum okkur þurrkaða ávexti ... hjúpaða í smávegis súkkulaði ... hmmm. Í kaffinu var farið á Fornum & Mason og skonsurnar þar prófaðar ... sumir drukku kaffi og aðrir hvítvín í kaffinu ... allavega mjög gott. Við ætluðum síðan að feta í fótspor Stebba sem var hér síðast og fara í margfræga búð The Northface ... en þrátt fyrir að þetta hafi verið takmark dagsins þá náðist ekki þangað fyrir lokun og komum við 7 mínútum of seint ... var það rakið til of langrar dvalar á bar einum í Covent Garden ... það þarf því að reyna aftur á morgun á leiðinni á jólaballið sem Inga Huld er á leiðinni á hjá Íslendingafélaginu.

mánudagur, desember 05, 2005

Inga Huld vaknaði í morgun kl korter í sjö þegar ég var á leiðinni í sturtu - hún kíkti út um gluggann og sagði mér síðan að það væri ennþá myrkur úti og ég ætti að fara aftur að sofa! Þetta eru sömu rökin nefnilega og við notum þegar hún vaknar fyrir allar aldir um helgar og er tilbúin að fara að horfa á teiknimyndir - við reynum þó að láta hana allavega sofa til kl 8 þannig að hún fái góðan svefn líka um helgar. Hún var voðalega ánægð núna að segja mér "knock knock" brandara - hann er sem sagt þannig:

Inga: knock, knock
Ég: Who is it?
Inga: It is Mary!
Ég: Mary who?
Inga: Merry Christmas !!!

Trixið er nefnilega það að Merry og Mary er sagt alveg eins ... þetta finnst henni mjög sniðugt.

cheers

sunnudagur, desember 04, 2005

Stebbi og Gulla fóru frá okkur á mánudeginum og sama dag fór ég í ferð á meginlandið. Jóa og Inga Huld voru því aleinar eftir í tvær nætur - mikil breyting það. Þessi helgi fór í að koma Ingu Huld í sósíal lífið sitt þar sem hún fór í afmæli í gær og svo var íslenskuskólinn í dag. Við notuðum tækifærið (aftur) og fórum í Harrods en sáum ekkert þar sem okkur langaði í ... fundum loks jólaföt á Ingu Huld í búð þar nærliggjandi, Ingu Huld fannst hann bara flottur þrátt fyrir að hann væri ekki bleikur.

Í gær var kveikt á jólaljósunum í Blackheath og fer það að verða árlegur viðburður að þar erum við á svæðinu. Elvis Presley tók lagið og hélt uppi fjörinu !! Við fórum síðan á indverskan á eftir og bragðaðist það líka bara ljómandi vel ... Inga Huld fékk kveðjugjöf frá einum þjóninum ... 1 líter af eplasafa ... fannst henni það dáldið merkilegt.

Við skelltum líka upp smávegis jólaskrauti og jólaljósum í garðinn og bökuðum smákökur ... það er merkilegt með bretann núna að maður er farinn að "spotta" jólatré með öllu tilheyrandi skrauti í stofunni hjá fólki - ætli fólk hugsi með sér að það þurfi nú að fara að skreyta og best sé þá bara að byrja á jólatrénu ...

Spelling testin hennar Ingu Huldar eru að verða erfiðari - núna var listinn, band, hand, sand, land, and, best, test, rest, vest, west og núna voru ellefu orð og það síðasta var because, dáldið snúið! Einnig er snúið fyrir okkur að bera fram vest og west þannig að það heyrist munur á.

cheers

laugardagur, nóvember 26, 2005

Það er búið að vera kalt og rakt hér hjá okkur undanfarna viku, ekki vanur frosti og raka á sama tíma ... enda erum við öll orðin hálfkvefuð og veikluleg eftir þetta. Blöðin segja að framundan sé einn kaldasti vetur í tugi ára ... það snjóaði meira að segja á suðurströndinni og var svoleiðis umferðarhnútar og vitleysa í kjölfarið að börn voru föst í skólum langt fram á kvöld. Þetta minnti dáldið á fréttir frá litlu kaffistofunni þegar Hellisheiðin er ófær og fréttamaðurinn stendur úti í 110 vindstigum og segir að veðrið sé svo slæmt að enginn ætti að vera úti!! ... nema það að það blakti bara ekki hár á þessum fréttamanni og snjórinn náði alveg upp fyrir skósólann.

Við fengum gesti á fimmtudaginn - fórum með þeim í bæinn í morgun á London Borough market þar sem keypt var RibEye stykki í kvöldmatinn og ferskt grænmeti ... fengum okkur einnig dádýrahamborgara sem var bara ekki slæmur ... en súkkulaðibarinn klikkar ekki, þar eru súkkulaðihjúpaðir bananar, kókos og döðlur í uppáhaldi.

cheers

mánudagur, nóvember 21, 2005

Heljarinnar leiðangur var farinn í bæinn í gær - við tókum lestina í bæinn og svo túbuna í Knightsbridge þar sem haldið var í íslenska sendiráðið. Þar fór Inga Huld í íslensku skóla þar sem hún lærði að skrifa íslenska stafi, syngja íslenska söngva og fara í íslenska leiki. Fannst henni það mjög skemmtilegt og leit þetta bara vel út. Á meðan röltum við um Sloane Street, kíktum í gluggana og fórum síðan í Harvey Nichols sem er shopping mall þarna. Sosum ekki mikið verslað en þeim mun meira skoðað ... eftir að hafa sótt Ingu Huld og satt hungur okkar á nærstöddu hóteli á klúbbsamloku og frönskum þá var haldið í Harrods. Nóg um að vera þar og í rauninni alltof mikið af fólki ... keyptum þar kaffi sem ku vera voða fínt jólakaffi ... kólumbískt með brandy keim ... ekki amalegt. Ingu Huld fannst náttúrulega voða gaman í dótadeildinni enda er líka svo mikið um að vera þar, alls konar tæki og tól á fleygiferð um allt svæðið. Við kíktum ekki á jólasveininn núna enda var rúmlega klukkutíma bið í röð eftir því að komast til hans ... enginn var í stemningu fyrir því!!

Í kvöld vorum ég og Inga Huld bara ein í kvöldmat þar sem Jóa fór á skólakynningu ... við fengum okkur afganginn af lambalærinu frá því á laugardaginn, skelltum smá íslensku remúlaði á ristað brauð og spældum okkur egg ... hálfgerður bistro matur ... Ingu Huld fannst þetta bara nokkuð gott eftir að hún fékk að gera samloku úr þessu öllu saman.

cheers

laugardagur, nóvember 19, 2005

Ein framtönnin í Ingu Huld er búin að vera "wibbly wobbly" og á meðan við fengum okkur SS pylsur með öllu í brunch í morgun þá datt hún loks. Þetta þótti mikið spennandi og er nú stórt bil í tannaröðinni. Inga Huld tilkynnti okkur strax að nú kæmi tannálfurinn í nótt og setti pening í staðinn fyrir tönnina ... þannig væri þetta hjá hinum stelpunum. Ég er nú jafnspenntur og Inga Huld og sjá hvernig þetta er hérna í landi Breta og hvort að það verði peningur undir koddanum hennar í fyrramálið!!

Annars búið að vera kalt hér, rétt um frostmark hitastigið á morgnana og mikil frosthúð á bílunum þar sem það er svo rakt á kvöldin. Við létum nú ekki kuldann á okkur fá heldur fórum í mikinn leiðangur í dag sem byrjaði hjá butchernum þar sem eitt stykki lambalæri var verslað í kvöldmatinn. Síðan var haldið á jólabasar í skólanum hennar Ingu Huldar ... hann var nú sosum ekki uppá marga fiska ... Inga hitti þar jólasvein og fékk hjá honum pakka en hún var nú með það á hreinu að hann væri bara plat þar sem hún sá í teygjuna sem hélt skegginu hans ... fannst þetta nú bara spaugilegt. Úti var selt jólaglögg, mince pie og ristaðar chestnuts ... og bragðaðist bara vel í kuldanum. Ásamt því að kaupa síðan vikuskammtinn af mat þá fjárfestum við í jólaseríum sem ætlaðar eru fyrir nýja garðinn ... það þarf að hafa dáldið jólalegt þar sem von er á fullt af gestum í desember!! Það hlýtur nú að vera kominn tími til að jólaskreyta þar sem við erum búin að versla, pakka inn og koma frá okkur öllum jólagjöfunum ... einnig var nágranninn hér svo ansi duglegur að jólaskreyta í fyrra þannig að við getum nú ekki verið mikið minni þó þetta verði nú mun stílhreinna hjá okkur ...

cheers

mánudagur, nóvember 14, 2005

Fórum í IKEA í gær ... svona meðal annars ... alltaf eitthvað svo heimilislegt að koma þangað. Keyptum okkur þar ... svona meðal annars ... sænskan jólabjór og sænskt box af sænskum piparkökum ... voru þær bara mjög góðar, sérstaklega ef tekið er tillit til þess að þetta stóra málmbox kostaði um 1 pund og 30 pence.

Einnig ákváðum við að nýta okkur Nectar punktana okkar sem við söfnum okkur í Sainsbury og slógum við okkur á eitt stykki Freeview ... sem er sem sagt móttkari og gerir okkur kleift að ná þessum líka óskaplega fjölda af sjónvarpsstöðvum án þess að greiða nokkuð frekara fyrir það. Það eru nokkrar ágætar stöðvar þarna og meðal annars í gærkvöldi gátum við horft á nýjan Lost þátt sem við myndum annars ekki hafa séð fyrr en næstkomandi miðvikudag ... haldiði að það sé munur !! Í leiðinni festum við líka kaup á DVD spilara sem var komin mikil þörf fyrir enda við þreytt á að horfa alltaf á bíómyndir á 15 tommu fartölvuskjánum. Þar sem við vorum á annað borð byrjuð á þessum ósköpum þá þurfti nú að peppa eitthvað uppá hljómburðinn líka og því var það mjög hentugt að með DVD spilaranum þá fylgdu með nokkrir hátalarar og eitt stykki bassabox ... það er því hægt að horfa á bíómyndir ekki bara í víðómi heldur umómi!! Það borgar sig greinilega að versla í Sainsbury!!

cheers

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Í gær vorum við bara í afslöppun heima og sváfum lengi ... svo erfitt þegar báðir aðilar eru farnir að vinna!! Skelltum okkur í Sainsbury til að versla fyrir vikuna og keyptum okkur meðal annars góða rauðvín fyrir kvöldið og lambafillet á grillið. Við erum komin með dáldla leið á nautakjöti og vildum smá tilbreytingu ... maðurinn í kjötborðinu fannst við eflaust mikið skrítin þar sem hryggirnir hér eru iðulega seldir niðurskornir sem "chops" ... við spurðum hann hvort ekki væri til heill hryggur. Hann fór þá einhvers staðar og gróf upp hálfan hrygg og spurði hvort við vildum þetta. Alveg var það upplagt fyrir okkur og gat Jóa síðan úrbeinað hann heima til að fá þetta fína fillet. Hann sættist nú á að selja okkur þetta en var með einhvern furðusvip. Lambafilletið var nú ekki eins stórt og fínt og það íslenska en var þó bara nokkuð gott eftir að það var marinerað í jógurtmintudressingu og síðan grillað á gasgrillinu. Einnig var prófuð ný uppskrift frá Jamie Oliver (... en ekki hverjum!) að ofnbökuðum gulrætum í smjöri, timjan, kúmeni og þessu fína Chardonnay hvítvíni ... algjört nammi. Skáluðum síðan fyrir útgáfu bókarinnar (sjá póst í gær) ...

cheers

föstudagur, nóvember 11, 2005

... hérna eru sem sagt staðreyndirnar hennar Jóu skv tröllakenningunni ... dáldið fleiri en 5 en samt hér ...



Fræðatröll

Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki.
Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og sussa á aðra gesti safnsins. Fræðatröllið klæðist gjarnan flaueli - nema þegar það er í tísku. Hringitónninn í síma þess er stefið úr þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem það grætur stöðugt að sé ekki lengur á dagskrá.

Hvaða tröll ert þú?

og svo hans Valda ...


Viðskiptajöfur

Þú ert nýjungagjörn, yfirveguð félagsvera.
Það fyrsta sem viðskiptajöfurinn hugsaði þegar Ólafur og Dorrit trúlofuðust var hvaða áhrif það myndi hafa á gengi íslensku krónunnar. Honum finnst Donald Trump vera svalur... líka peningaklemmur. Hann ætlar, er, var eða vildi að hann hefði verið í Versló - en ekki söngleiknum.

Viðskiptajöfurinn tekur ákvarðanir með heilanum en ekki hjartanu og þarf að hugsa sig um þegar einhver spyr hann: "Peningana eða lífið!?" Hann hefur stáltaugar og getur lagt allt undir og í framtíðinni verður viðskiptajöfurinn annað hvort moldríkur - eða staurblankur.

Það er toppurinn að vera í teinóttu.

Hvaða tröll ert þú?


... þetta er nú bara dáldið smellið ... en þetta má sem sagt finna hjá Stílbroti sem er hjá þeim framtakssömu Sif og Geir í Ipswich - flott síða!! Líklega skemmtileg bók ... ætli mörgum finnist hún ekki skemmtilegri en sú sem er hér aðeins neðar á síðunni. (ps. Sif ef þig vantar bók til að þýða á íslensku þá er hún upplögð!).

cheers
Í dag er Armistice Day - sumsstaðar er frí en í Bretlandi var 2 mínútna þögn í virðingarskyni. Þetta er sem sagt á ellefta klukkutíma á ellefta degi í ellefta mánuðinum þegar Fyrri Heimstyrjöldin endaði árið 1918. Ég reyndar missti af þögninni þar sem ég var á fundi og við blöðruðum líklega óviljandi allan tímann ...


Það eru sveiflur í veðrinu hér - einn daginn ekki nema rúmlega 5 stiga hiti þannig að nýji vetrarjakkinn kom að góðum notum ... síðan í morgun var 15 stiga hita þannig að ég stiknaði á leiðinni í vinnuna í nýja jakkanum ... hversu lengi ætli nýr jakki teljist nýr - er nú búinn að eiga hann í dáldinn tíma núna ...

Hef gaman af því að gera grín að frökkunum núna - spyr þá hvort þeim finnist ekki öruggt að búa í London miðað við ribbaldahverfin í Frakklandi ... þeir brosa nú bara að þessu og segja að þetta sé ein leiðin til að koma efnahagskerfinu af stað ... neytendur þurfa að draga upp budduna til að bæta allan skaðann - síðan skilst mér á þeim að það sé bara kveikt í frönskum bílum og þá nánar tiltekið frönskum bílum sem framleiddir eru í Frakklandi þannig þetta er til að tryggja atvinnuástandið í komandi framtíð ... þeir eru skrítnir þessir Frakkar ... hef alltaf sagt það.


Vildi síðan benda ykkur á þessa bók sem ég kom lítillega við sögu í ... kom nú reyndar ekki við sögu í henni persónulega heldur átti frekar framlag til gerðar hennar ...

http://db.riskwaters.com/public/showPage.html?page=book_page&tempPageName=295903

Einnig er hægt að finna upplýsingar með því að skrifa inn fullt nafn mitt í Google leitarstikuna hér efst á síðunni.

cheers

sunnudagur, nóvember 06, 2005

Mikil dagskrá var um helgina þar sem amma og afi komu á föstudeginum. Í tilefni dagsins var boðið uppá nautacarpaccio að hætti þeirra Jamie og Jóu þar sem nautalund er grilluð í 7 mínútur og síðan sneidd í þunnar sneiðar og borin fram með beetroots og horseradish sósu ... á eftir var síðan létt pasta með rækjum og súkkulaðitart í desert ... sosum ekki mikið haft fyrir liðinu. Laugardagurinn var þéttskipaður - byrjað í Sainsbury þar sem við þurftum að versla fyrir vikuna og amma keypti Taste the Difference jólakökur til að taka með heim. Eftir stærðarinnar brunch var lagt af stað í bæinn þar sem stefnan var tekin á Victoria Palace Theatre þar sem átti að sjá stórsöngleikinn Billy Elliot. Sýningin var alveg meiriháttar skemmtun og fannst Ingu Huld skemmtilegt en var þó orðin dáldið þreytt á að sitja svona lengi. Henni fannst þó ekkert sniðugt eitt atriðið þar sem tveir strákar voru að máta og klæða sig í kjóla og sagði bara að strákar ættu ekki að vera í kjólum. Við fórum svo á Oxo Tower Brassserie í kvöldmatinn sem stóð undir sínu - staðurinn er á áttundu hæð við Thames með fínu útsýni yfir borgina og sést t.d. St. Pauls mjög vel. Einnig var skemmtilegt að nokkrar flugeldasýningar voru í kring í tilefni dagsins og sást það vel þar sem við vorum. Heima biðu síðan eftir okkur rakettur og tertur sem þurfti að sprengja og gátum við dundað okkur við það í rólegheitunum úti í garði frameftir kvöldi. Inga Huld hélt á fullt af stjörnuljósum og fannst þetta ekki amalegt.

Kannski þarft aðeins að útskýra hvers vegna allt þetta flugeldadæmi var í gangi í gær ... sem sagt var Bonfire night eða Guy Fawkes day. Í stuttu máli reyndi þessi Guy Fawkes að sprengja upp kónginn og þingið árið 1605 en upp komst um plottið og öllum bjargað - af því tilefni var kveikt á brennum og þetta þróaðist yfir í flugelda einnig með tímanum. Það er því búið að vera dáldil gamlárskvöldsstemmning hér mað rakettulykt og sprengjuhvellum í loftinu. Það bætti síðan á stemninguna að hér eru borðaðar jólakökur, stollen og panforte svona þegar tækifæri gefst til!!

Við skutluðum síðan ömmu og afa útá Heathrow í dag sem Ingu Huld fannst ekki skemmtilegt ... við komum við á leiðinni heim í Bluewater og fékk hún að kaupa límmiða og límmiðabók þar sem hún fékk 10 af 10 rétt á spelling testinu á föstudaginn.

cheers

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Þá var síðustu jólagjöfinni pakkað inn ... enda mátti það ekki vera mikið seinna ... mamma og pabbi eru nefnilega að koma í heimsókn og er ætlunin að fá að nota töskupláss hjá þeim á heimleiðinni. Stefnan er síðan á laugardaginn tekin á söngdansleikinn Billy Elliot og útaðborða á Oxo Tower Brasserie ... alltaf sömu flottheitin í menningarborginni Lundúnum. Ingu Huld líst vel á dagskrána og hlakkar til að fara aftur í leikhús ... líklega gerir hún miklar væntingar þar sem að þau tvö stykki sem hún hefur séð hafa bæði verið vægast sagt alveg brilliant - það voru Dýrin í Hálsaskógi og síðan Lion King ...

mánudagur, október 31, 2005

Margt og mikið er búið að gerast síðan síðast ... Palli bróðir kom í heimsókn um þarsíðustu helgi og gisti hjá okkur ásamt Hönnu Siggu sinni. Þau gátu nú verslað og var farið með þau í þeim eina tilgangi í Bluewater mallið á föstudeginum ... enda er pundið svo ódýrt núna ... Við fórum síðan útaðborða á meiriháttar veitingastað Nobu og vorum við ekki svikin (okkur Jóu fannst þó Hakkasan eilítið betri), síðan var farið á barrölt í kringum Trafalgar Square þar sem við fórum á bar með stærsta Bourbon framboð í London og enduðum síðan í dansandi stuði á Mint Leaf þar sem spilandi saxófónleikari fór villtur um á dansgólfinu!! Á meðan var Inga Huld í góðu yfirlæti hjá Gísla og Halldóru og fór með þeim útaðborða á Gaucho Grill og svo í Ben & Jerry´s ... ekki amalegar barnfóstrur það.

Um þessa helgi kom svo Eva á laugardeginum og var barnfóstra fyrir okkur ... ég og Jóa skelltum okkur á miða á The Producers og fórum síðan að borða á Babylon roof gardens og dönsuðum síðan inní vetrartímaskiptin á næturklúbbi þeirra. Það er skemmst að segja frá því að stykkið (sem er í raun farsi, leikrit, söngleikur og kabarett) er alveg frábært og hægt að skemmta sér konunglega yfir því. Núna notfærðum við okkur lærdóminn frá því við fórum á ballettinn og beið eftir okkur hvítvínsflaska í hléinu ... alveg bráðsmellið ... hléið var reyndar dáldið stutt fyrir drykkinn en þá var bara boðið uppá plastglös og gat maður síðan sötrað kalt hvítvín á meðan sýningarinnar var notið!

Jóa byrjar svo í fyrstu arkitektavinnunni sinni á morgun og er mikill spenningur í gangi! Við erum búin að finna barnfóstru fyrir Ingu Huld sem mun sækja hana í skólann, tvisvar í viku til að byrja með, og koma með heim. Vinnan hennar Jóu er nefnilega ekki svo langt frá minni vinnu og er því dáldið ferðalag á hverjum degi að koma Ingu Huld í Blackheath, taka svo lestina í vinnuna og sækja Ingu Huld síðan aftur í Blackheath á leiðinni heim ... alveg ljóst að þetta mun taka á til að byrja með ... ég hef t.d. miklar áhyggjur af því að Jóa hafi núna ekki tíma til að galdra fram sína góðu kvöldrétti á hverju kvöldi ... en kannski er það bara gott fyrir mínar línur.

Það er nánast búið að pakka inn öllum jólapökkunum þetta árið!! Var pínu jólalegt núna þar sem bretarnir eru að sprengja flugelda í tilefni Guy Fawke dagsins sem er um næstu helgi, en þegar bankað var á hurðina áðan og tvær stúlkur sögðu "trick or treat" þá hvarf öll jólastemmning ...

mánudagur, október 17, 2005

Laugardagsbíltúrinn til Isspiss var góður - fengum þennan líka fína þríréttaða hádegismat hjá Sif og Geir sem maður var ekki svikinn af. Það var líka súper guided tour um miðbæ og hafnarsvæði bæjarins með sögulegum staðreyndum um hús og menn ... bærinn kom nú bara nokkuð á óvart með flottum gömlum húsum í miðbænum þó að búðirnar sjálfar hafi nú ekki boðið uppá margt merkilegt. Það tók okkur svo ekki nema einnoghálfan tíma að renna heim þar sem trixið var að sneiða framhjá London og sleppa við stórborgarumferðina.

Á sunnudaginn var síðan standard sosíal líf hjá Ingu Huld þar sem hún þurfti að vera mætt í afmæli klukkan 10 um morguninn ... það var bíómyndaafmæli í Greenwich sem endaði í pizzuveislu á Pizza Hut klukkan 13 ... var hún lukkuleg með það.

Annars bara slappað af og lífsins notið ásamt því að reyna að skipuleggja aðeins eigur okkar hér á heimilinu ...

cheers

föstudagur, október 14, 2005

Inga Huld er búin að vera hálflasin í vikunni og var heima tvo daga og missti þ.a.l. af spelling prófinu og ballet í dag ... er það líklega flensan sem er að ganga. Býst ég sosum alveg við því að ég og Jóa eigum eftir að liggja í næstu viku. Það er líka farið að kólna hjá okkur - held að það hafi farið alveg niður í 11 gráður í gær !! Annars er Inga Huld með lausa framtönn - finnst henni það voðalega spennandi og hreyfir reglulega við henni til að athuga hvort hún sé ekki örugglega enn laus!

Við vorum með gest síðustu nótt - ekki er hægt að segja að hann hafi verið óvæntur þar sem búist var við honum. Ég sótti sem sagt Ástu Huldu á Stansted í gær, gisti hún hjá okkur eina nótt og síðan skutluðu stelpurnar henni uppá Stansted aftur í dag þar sem hún átti flug á suðurströnd Frakklands. Þetta er svona þjónusta sem vel völdum er boðið uppá gegn vægu gjaldi ... t.d. graflax, graflaxsósa og rískúbbar ... ekki amalegt! Allt í lagi að fá Ástu Huldu í heimsókn.

Stefnan í fyrramálið er síðan tekin til Isspiss þar sem loks á að fara og heimsækja Sif og Geir í sveitina ... verður spennandi að sjá pleisið. Við þurfum líklega að taka söngvabókina með þar sem bílútvarpið er svo tæknilegt að það þarf að slá inní það einhvern öryggiskóda þegar rafmagnið fer af bílnum og að sjálfsögðu hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að slá inn ... líklega á þetta að vera einhver þjófavörn ... en er í rauninni hálfmisheppnuð ef maður pælir í því ... þjófurinn hnuplar líklega útvarpinu úr bílnum og ætlar síðan að nota það sjálfur eða selur það en þá kemst hann að því að hann getur ekki kveikt á því nema að slá inn öryggiskódann ... ætli meiningin sé þá sú að þar sem hann getur ekki notað það að þá skili hann því ??!! ... botna ekki alveg í þessu.

cheers

fimmtudagur, október 06, 2005

Var nú nokkuð stoltur af mér varðandi "diy" eða "gþs" á fartölvunni hér. Pantaði um daginn nýtt innra minni þar sem sumum fannst tölvan dáldið hæg ... sérstaklega þegar verið er að vinna í myndvinnslu í nokkrum forritum í einu. Var því keyptur 512 kubbur og bætt við núverandi 256 kubbinn ... þetta virðist hafa gengið upp ... allavega segist tölvan núna hafa 768 í innra minni og hún virðist einnig ganga aðeins hraðar en líklega á eftir að reyna betur á það.

diy = doityourself
gþs = gerðuþaðsjálfur

Annars allt í góðu gengi hér og nóg um að vera - keyptum meira að segja háaloftsgólfplötur í B&Q um daginn og settum þær upp. Þar ætlum við að koma fyrir nokkrum kössum sem eru fullir af bókum, skóladóti og barnadóti frá Ingu Huld. Það er ómögulegt að stútfylla alltaf bílskúrinn af þessu og virðist háaloftið einnig aðeins hreinlegra þó að það sé nú ekki einangrað frá umheiminum. Við vonum allavega að það sé ekki of rakt þarna fyrir bækurnar okkar.

Inga Huld er voða spennt að fara í næsta "spelling test" á morgun og er hún staðráðin í því að gera allt rétt! Hún tilkynnti mér síðan áðan hvort hún fengi þá ekki örugglega dúkku ... ég sagði nú að það væri ekki alltaf en ef hún fengi 10 þá mætti hún allavega kaupa límmiðaspjald. Fannst það sanngjarnt og sættist hún á þessa lausn. Orðin núna enda á "ip" og eru t.d. nip, sip, zip, chip, ship, dip, tip, lip, rip og hip ... hefði aldrei getað giskað á það að það væru svona mörg þriggja/fjögra stafa orð sem enda á "ip". Það hefur reyndar valdið dáldið erfiðleikum að heyra muninn á "sip" og "zip" ... má það kannski rekja til þess að við erum ekki alveg viss um það hvernig bera á fram "zip" ... höfum við reynt að leggja mikla áherslu á zeduna í byrjun og hún virðist allavega heyra einhvern mun ... hvort þetta sé einsog bretarnir segja það hef ég ekki hugmynd um. Þetta kemur allt saman í ljós á morgun en sumt er sem sagt dáldið tricky. Hún er búin að læra triksið með "ch" og er flugfær að skrifa "chip" og finnst mjög gaman að segja núna "dip the chip".

cheers

laugardagur, október 01, 2005

Inga Huld hringdi í mig úr gemsanum hennar mömmu á leiðinni heim úr skólanum á föstudaginn ... hún var mjög roggin og sagði "pabbi, ég gat tíu!! ... ég gat allt!!". Hún er sem sagt byrjuð í stafsetningarprófum og eru þau á hverjum föstudegi. Fer það þannig fram að hún er prófuð í 10 orðum sem hún er búin að vera að æfa sig í vikunni heima að skrifa eftir minni. Var síðasti listi einhvern veginn svona: jam, van, pan, can, pad, sad, had, wag, bag og svo chap. Síðasta orðið var dáldið "tricky" af því að það byrjar á "c" en þegar "c" er með "h" þá hljómar það allt öðruvísi ... en hún náði þessu öllu saman fékk hún þennan líka fína blómvönd frá mér þegar ég kom heim í tilefni dagsins. Er hún nú staðföst í því að fá alltaf 10 í stafsetningarprófunum og vera duglega að æfa sig svo að hún geti fengið svona fínan blómvönd oftar ...

cheers

miðvikudagur, september 28, 2005

Stundum á ég erfitt með að átta mig á samhengi hitastigs sem hitamælir gefur til kynna og því hitastigi sem mér finnst sjálfur vera úti ... á leiðinni heim í dag var mér ansi kalt í jakkafötunum og sá meira að segja að þar sem nokkrir voru komnir með trefla og aðrir í úlpur að það væri kannski ekkert skrítið að mér væri kalt svona án yfirhafnar. Síðan náttúrulega skildi ég ekkert í þeim sem vöfruðum um í stuttermabol eða berleggja stúlkum í stuttum pilsum ... en burtséð frá því þá sagði hitamælirinn að það væri 13 stiga hiti !!! Í mínum huga þá er það nú bara fínn íslenskur júlíhiti og tengdi það ekki við haustkuldann sem sveipaði sig um mig ... allavega held ég að það sé alveg kominn tími á það að fara að nota nýja vetrarjakkann sem ég keypti mér um helgina ... tímasetningin virðist því bara hafa verið nokkuð góð!

cheers

mánudagur, september 26, 2005

Heilmiklu afrekað um helgina ... á laugardeginum tókum við aðeins til í bílskúrnum og skiluðum hinum og þessum afgöngum síðan garðurinn var gerður í sumar. Í staðinn gátum við fengið ýmislegt til að ljúka fullkomlega gerð hans - aðallega var markmiðið að minnka arfatínsluna og var því skipt í jarðvegsdúk og steina, afskaplega sniðugt system! Á sunnudeginum þurfti svo að dressa karlinn upp í jakkafötum, skóm og vetrarjakka ... var því haldið í Bluewater og var verslunarleiðangurinn bara vel heppnaður. Eftir Bluewater fór Inga Huld í afmæli og á meðan fóru ég og Jóa og fengum okkur snemmbúinn kvöldmat á Yi Ban sem klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Inga Huld var reyndar líka í afmæli á laugardeginum og var því mikið að gera hjá henni um helgina.

Annars virðist ljóst að haustið er að nálgast þar sem tréin eru farin að falla af trjánum og blómin að fölna ... einnig eru búðir farnir að selja jólaskraut, jóladagatöl og jólanammi !! Aldeilis að vera snemma í þessu í ár ... var að spuglera í því að kaupa eitt dagatal fyrir október, eitt fyrir nóvember og eitt fyrir desember ...

cheers

sunnudagur, september 18, 2005

Það var "open house" helgi í London ... sem sagt ýmsar byggingar opnar fyrir almenning. Í gær fórum við í tvær heimsóknir í miðbæinn, byrjuðum á Lloyds byggingunni í City sem er merkileg fyrir þær sakir að hafa allt "service" (þ.e. leiðslur, lyftur, stiga og stokka) utaná. Við biðum í röð fyrir utan í 40 mínútur og var það vel þess virði því merkilegt var að sjá inni. Þessi bygging hýsir sem sagt Lloyds tryggingamarkaðinn og var byggð á árunum 1978-1986. Skemmtilegt herbergi á efstu hæðinni var í átjándu aldar stíl og hafði Lloyds keypt það 1958 á uppboði til að hafa í eldri byggingunni sinni og fluttu það með sér í nýja húsið. Eftir þetta var ferðinni heitið á 120 Fleet Street sem hýsti Daily Express - sú bygging er besta dæmi um byggingu í Art Deco stíl hér á Bretlandi og var byggð 1932. Þurftum að bíða þar í rétt tæpa 2 tíma til að komast inn og var skemmtilegt þar um að litast þó rýmið væri ólíkt minna og einnig mjög ólíkt því í Lloyds byggingunni. Má síðan að lokum geta þess að húsið er nú í eigu Goldman Sachs sem notar efri hæðirnar fyrir ráðstefnur og fundaherbergi en hinn magnaði inngangur Daily Express sem var lýsandi um hraðann og ringulreiðina í bresku pressunni hefur nú lokið sínu hlutverki og safnar ryki ... sorglegt það ...

Í dag var stefnan sett á 3 íbúðarhús í nágrenni okkar og var því farið á bílnum. Það var áhugaverður bíltúr þar sem við fengum að skyggnast inn á heimili hjá venjulegu fólki. Eitt var uppgerð gömul kirkja og var mjög vel heppnað og dáldið töff, annað var eina dæmi í Bretlandi um raðhús í anda módernismans hannað af Lubetkin og var mjög flott en sorglegt að það var í niðurníslu og lítið hugsað um það af eigendunum og þriðja var vel misheppnað einbýlishús í umhverfi blokka ...

cheers

miðvikudagur, september 14, 2005

Englendingar eiga nú heldur betur góðar fyrirmyndir fyrir ungu kynslóðina í hinum miklu krikketíþróttamönnum sem núverið unnu mikinn sigur á Áströlum (eða svo er mér sagt) ... þeir hafa nú verið á þrjátíuogtveggjaklukkutíma fylleríi og eru blöðin full af myndum af þeim að drekka af kampavínsflöskum hér og úr bjórglösum þar ...

Einnig voru frekari fréttir af bensínskortinum og þar kom í ljós hvað fólk er nú sniðugt ... það sem skapar allar þessar raðir er hræðsla við að bensín sé að klárast þannig að allir eru að fylla á bílana sína þótt að það sé einungis verið að taka örfáa dropa á tankinn!! Að auki eru þeir svo sniðugir að til að mótmæla bensínhækkunum hér á landi þá ætla sumir að reyna að stöðva það að bensíntankbílar komist með bensín á bensínstöðvarnar ... skil þetta ekki alveg vegna þess að í mínum huga að ef að framboðið er takmarkað á einhvern hátt þá hlýtur verðið að hækka!! ... þar vaknar hagfræðingurinn í manni ... þetta virðist því vera algjörlega heimatilbúin krísa í augnablikinu ...

Inga Huld fékk heimaverkefni í gær - hún átti sem sagt að skrifa alla tölustafina frá 1 og uppí 100 á þartilgert blað sem hét "the onehundred square". Síðan þarf hún alltaf að lesa heima og er hún komin á nýtt level sem inniheldur meðal annars setningar einsog ... "Kipper couldn´t tie his laces" ... "Miss Green helped him" ... þannig að hún er bara farin að standa sig nokkuð vel þrátt fyrir að horfa stundum bara á myndirnar og giska á textann ...

cheers

þriðjudagur, september 13, 2005

Fréttir og blöð segja nú mikið af því að bensínskortur og miklar hækkanir á bensíni séu yfirvofandi ... hafa verið sýndar myndir af löngum röðum á bensínstöðvum hér í London og víðsvegar um landið. Tekið var viðtal við einn í röðinni og sagði hann að þar sem það hefði verið svo löng röð á bensínstöðina þá ákvað hann að taka bensín líka svona til vonar og vara ...

cheers

mánudagur, september 12, 2005

Skilst að Englendingar séu heimsmeistarar í krikket ... það eru allir voðalega ánægðir hérna þar sem þessi titill hefur ekki unnist í 18 ár ... krikket náði meira að segja á baksíður dagblaðanna!! Þetta er furðulegur leikur og líklega sá eini þar sem hægt er að tala um hvernig leikurinn var "fyrir hádegismat" og "eftir hádegismat" ... í vinnunni heyrðist klapp og stunur á ca. klukkutímafresti. Skil ekki hvernig fólk getur horft á þessa vitleysu.

En þar sem heimsmeistaratitillinn er nú unninn í rugby og krikketi þá hlýtur fótboltinn að vera næstur !!!

Inga Huld voða ánægt í skólanum og glöð að hitta allar stelpurnar aftur - dáldið ruglingslegt að kennarinn er kominn með nýtt nafn ... ástæða þess er sú að hún gifti sig og er ekki lengur Ms Pinker heldur Mrs McLean ... flókið þetta system.

cheers

laugardagur, september 10, 2005

Komin aftur heim frá Íslandi - vorum nú bara nokkuð heppin með veðrið þótt að það hafi verið dáldið kalt ... gott því að koma aftur hingað í 20+ gráðurnar. Ég og Jóa gistum tvær nætur á hóteli - 1919 Radisson SAS - og var dáldið spaugilegt að vera heima á hóteli en það er þó alveg hægt að mæla með þessu þó að þá vanti aðeins að fínpússa svona eitt og annað. Reyndum við að heimsækja sem flesta og var þéttskipuð dagskrá ... ég fór aukalega í þrælskemmtilega fjórhjólaferð í Haukadal hjá Geysi og var ekki amalegt að þeysa á því um óbyggðirnar. Síðan á fimmtudaginn var ég í Þýskalandi og þá var boðið uppá LandRover offroad event sem var einnig rosa gaman en það var bara ekki eins náttúrulegt umhverfi og á klakanum. En ég fékk að prófa alla LandRover línuna - byrjaði á Range Rover Vogue, síðan á Discovery 3, svo á Freelander og endaði á Defender ... sem sagt í orðsins fyllstu merkingu "back to basics". Skemmtilegast þarna var að keyra Defenderinn þar sem hann er mesti jeppinn og var því skemmtilegasta stemningin í honum. Að keyra yfir þessar holur og hóla í Range Rover var bara einsog að sitja í hægindastólnum heima í stofu og fannst lítið fyrir ófærunum og tölvan í bílnum sá um að bremsa í niðurhalla og setja rétt hlutföll af afli í hjólin svo ekki væri nú spólað ... en kom mér þó á óvart hversu mikið bíllinn í raun og veru fór og var t.d. skemmtilegt að keyra hann upp og niður vel stórar tröppur. Þrælsniðugt dæmi annars og komu beltin að góðum notum þar sem maður annaðhvort hékk í þeim þegar keyrt var niður bratta brekku eða þegar keyrt var í 40 gráðu halla ... sagt var að bílarnir ættu að þola um 45 gráðu halla ...

cheers

miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Það var ekkert smávegis fjör á mánudaginn !! Fórum á Notting Hill Carnival og var rosaleg stemning. Við mættum mjög snemma og vorum líklega með þeim fyrst - löbbuðum því um svæðið og sáum fólkið mæta. Skrúðgangan byrjaði síðan dáldið seint og vorum við orðin langþreytt á biðinni. Svo loksins þegar allt fór í gang þá var þetta allt saman alveg rosalega flott - í miðri skemmtuninni löbbuðum við inn í hverfið þar sem ýmsir götubásar voru að selja alls konar varning - það var algjör þjóðhátíðarstemmning í gangi og meira að segja þá seldi fólk aðgang að klósettunum á heimilunum sínum. Sumir settu upp grillið og aðrir bala með drykkjum ... t.d. bjór sem löggan var þó eitthvað að reyna að stöðva því það ku vera bannað nema að vera með leyfi! Ingu Huld fannst upplifunin skemmtileg og dansaði, klappaði og flautaði í flautuna sem keypt var á meðan hún var á háhesti á mér ... erfitt annars að lýsa öðru eins húllumhæi og mannhafi ...

Ég er hér annars einn núna þar sem skvísurnar eru farnar á klakann ... ég fer heim á föstudaginn og verðum við saman yfir helgina. Hér er annars alltof heitt!! ... það var enn 25 stiga hiti þegar ég kom heim klukkan 22 í kvöld og var vel yfir 30 gráðurnar í dag ... það verður því gott að koma heim og kæla sig aðeins ... eða hvað ??

cheers

sunnudagur, ágúst 28, 2005

Sóttum Evu á Kings Cross lestarstöðina á föstudagskvöldið og partýhelgin byrjaði ... fórum þó tiltölulega snemma af stað á laugardagsmorgninum og var haldið á London Borough food market til að versla fyrir kvöldið. Það er alltaf jafnskemmtilegt að koma á þennan matarmarkað og að sjálfsögðu keyptum við okkur steikarsamloku - núna vorum við meira að segja svo snemma á ferðinni að við keyptum hjá þessum sem er alltaf uppseldur þegar við erum á svæðinu. Við áætluðum að hann hlyti að vera mjög góður fyrst það selst alltaf upp. Þetta voru grillaðar chorizo pylsur í brauði með salati og papriku ... algjört nammigott og síðan voru súkkulaðibananar og kókos í desert og öllu saman skolað að lokum niður með hvítvíni ... ekki amalegt. Kvöldmaturinn var síðan algjört æði - snöggsteiktur túnfiskur í forrétt og grilluð lúða í aðalrétt með heimagerðum kókosís í desert. Nýr gestur í heimsókn með Gísla og Halldóru sem nefnist Loki og skemmti hann sér konunglega með Ingu Huld og hljóp hann fram og tilbaka í blómabeðunum og hafði greinilega þörf fyrir mikla hreyfiútrás!

Tókum því síðan rólega í dag í blíðunni en drösluðumst þó í Greenwich garðinn þar sem Eva hafði ekki áður séð núllbauginn og Cutty Sark ...

cheers

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Skrapp til Hollands í dag á tvo fundi ... einn í Haag og einn í borg sem ekki er hægt að hafa nafnið eftir sem er á milli Haag og Amsterdam. Þurfti því að fara snemma á fætur þar sem ég þurfti að taka flug frá Heathrow klukkan 6.30 í morgun ... eini kosturinn við það er að ferðin á flugvöllinn er þægileg vegna þess að traffíkin er lítil. Flugið tilbaka seinnipartinn var síðan ekkert voðalega þægilegt ... fokkerinn hristist nánast alla leiðina og minnti mig á flug til Akureyrar um hávetur!

Annars er ég í fríi á morgun föstudag þar sem við ákváðum að eiga langa helgi ... mánudagurinn er lögbundinn frídagur hér þannig að þetta er svona nokkurs konar verslunarmannhelgi þeirra breta. Eva er síðan á leiðinni til okkar í heimsókn og er von á henni annaðkvöld með tilheyrandi látum ...

cheers

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Haldið ekki bara að tröppurnar séu komnar saman og er nú hægt að ganga á milli hæða í garðinum !! Við drifum okkur í B&Q í morgun til að kaupa það sem á vantaði og gátum nú meira að segja skilað sumu sem við höfðum ofkeypt fyrr í sumar. Síðan var að sjálfsögðu haldið í Sainsbury þar sem við versluðum gómsæti í kvöldmatinn ... túnfisk, sverðfisk og merlin fisk ... þurfum reyndar að finna eitthvað meira um þennan merlin fisk en allavega þá bragðaðist hann ekki síður en hinir fiskarnir. Marineraðir að hætti Jóu og grillaðir að hætti Valda ... namminamm ...

mánudagur, ágúst 22, 2005

Veðrið í dag ekki jafngott og í gær en líklega á að birta aftur til með glampandi sól og 25 stiga hita á morgun !!! Vona það þar sem ég er í fríi ...

Annars fór bíllinn í bifreiðaskoðun um daginn og kom nú ekki vel útúr því ... mengar of mikið og var bremsulaus ... en jæja, þetta er víst bara venjulegt viðhald og lítið hægt að gera en að brosa og borga. Runóinn er nú orðinn 6 ára gamall og hefur staðið sig bara sæmilega ... líklega fer þó að koma tími til að skipta.

sunnudagur, ágúst 21, 2005

Það er á hreinu að moldin sem við keyptum í beðin var næringarrík einsog okkur var lofað ... allavega sprettur í henni alls konar gróður og arfi og dafnar og lifir þar góðu lífi!!

Hófumst handa í dag við næstsíðasta stig garðsins sem var sem sagt að gera tröppurnar ... það tekur nú sinn tíma að smíða verkið en hönnuninni er löngu lokið. Það þarf að mæla, saga, máta og alls konar vesen ... ættu nú líklega að klárast á næstu dögum. Eftir það er bara að laga nokkrar hellur sem eru ekki alveg fastar, steypa undir eina hellu sem var eftir og steypa einnig í kringum þær svo þetta fari nú ekki allt úr skorðum og skrúfa nokkrar skrúfur í viðbót í pallinn ... hmmm eftir að hafa talið þetta allt saman upp þá virðist nú vera eitt og annað eftir ...

Inga Huld er orðin svo dugleg að hjóla núna án hjálparhjólanna að hún hjólar eftir gangstéttinni núna án þess að maður sé mjög óttasleginn ... annars er þetta enn dáldið "wibbly wobbly" en er allt að koma.

cheers

miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Komin heil á höldnu heim aftur frá norðurlandinu. Á sunudeginum kíktum við til York og fórum m.a. í ferð um Jórvík sem var þetta líka fína víkingasafn. Þar var búið að byggja yfir fornleifauppgröft af víkingaþorpi og setja upp eftirlíkingu af gömlu þorpi með brúðum og öllu saman. Um þetta var maður síðan leiddur í vagni til að geta séð herlegheitin - til að tryggja að stemmningin væri góð þá var þessi líka megna fýla yfir öllu saman sem var talin hafa legið yfir þorpinu. Einnig tókum við eftir því að einhverjar brúðurnar ræddu saman og við nánari athugun þá skildum við það allt saman vegna þess að þær ræddu saman á hvaða tungumáli öðru heldur en íslenskunni !! ... skemmtum okkur konunglega yfir því og hefur öðrum túristum við heldur skrítin að hlæja svona mikið í ferðinni.´

Í York er einnig stærsta gotneska kirkja í norður-evrópu þannig að við strolluðum að sjálfsögðu þangað. Ótrúlegt að einhverjum hafi dottið í hug að byggja þessa óþarfa byggingu árið tólfhundruðogeitthvað ... við löbbuðum meira að segja uppí turninn sem voru 275 þrep og var Inga Huld í miklu stuði og þrammaði þetta allt saman með okkur og var líklega alls ekkert þreyttari en Eva eftir puðið þó að þrepin hafi náð henni Ingu í hnéhæð.

Á mánudeginum hélt familían síðan heim á leið og keyrðum við ekki hraðbrautina til baka heldur einhverja sveitavegi sem er mjög skemmtilegt - liggur leiðin þá í gegnum lítil þorp og rómantískar sveitir ... við stöldruðum við í þorpi sem heitir Lincoln og ætluðum að skoða þar kastala og kirkju meðal annars. Meðan við vorum að leita að bílastæði í Lincoln þá heyrðum við á það minnst í útvarpinu að mikið væri um að vera í Lincoln og kirkjan lokuð þar sem Tom Hanks væri að leika þar í upptökum á kvikmyndinni Da Vinci Code ... það tók okkur smátíma og heilabrot að átta okkur á því að við værum stödd sem sagt í þeim sama Lincoln bæ og á var minnst í útvarpinu!! Þegar við komum að kirkjunni þá var þar töluverður fjöldi fólks og bíla og var kirkjan sem sagt lokuð ... fólk var þar að bíða eftir að leikararnir gengu inní kirkjuna. Við nenntum ekki að vera í einhverju celebrity spotting þannig að við ákváðum að skoða kirkjuna allavega utanfrá. Þegar við vorum komin hringinn þá var fólk hlaupandi í allar áttir og kom þá í ljós að Tom Hanks var nýfarinn þar hjá ... hann fetaði sem sagt í orðsins fyllstu merkingu í okkar spor !! Gaman er að því að við eigum mynd af nunnunni sem var að mótmæla fyrir utan kirkjuna ...

En einsog venjulega þá var gott að koma heim þó að dvölin hjá Evu hafi verið frábær ...

cheers

sunnudagur, ágúst 14, 2005

Þá erum við í heimsókn hjá Evu í Leeds sem samkvæmt bókum á að vera "most fashionable city up north". Það tók nú sinn tíma að koma sér uppeftir og vorum við að lokum 5 tíma á leiðinni frá vinnunni minni - þar af var 1 klukkutími bara í það komast útúr London - umferðin var líka mjög mikil og var hún alltaf að stoppa á hraðbrautinni ... þótt við hefðum lagt af stað klukkan 2 til að reyna að losna við umferðina.

Í gær sáum við Arla sem er vinnustaður Evu og tókum síðan strætó í bæinn. Hann kom nú bara nokkuð á óvart hversu fínn hann er og í raun er alveg hægt að versla þarna ... fundum okkur veitingastað fyrir kvöldið "Chino Latino" sem var meiriháttar góður. Þetta var asískt fusion í stíl Nobu og Hakkasan og voru kokkarnir þarna eitthvað tengdir Nobu ... við mælum með svarta þorskinum ... Inga Huld eignaðist þjóninn sem þennan líka þvílíka vin og var hann alltaf að koma með djúskokteil handa henni, blóm, konfekt og svoleiðis ... hún var líka mjög ánægð með allt þarna og þó við vorum þarna í 3 tíma þá skemmti hún sér konunglega og var aldrei leið.

Við erum svo á leið til víkingaþorpsins York í dag ...

cheers

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Það var eithvað blað sem laug því að mér í morgun að það væri yfirvofandi hitabylgja hér og að hitinn um helgina myndi slá hitamet sumarsins fyrir tveimur árum!! Þegar ég kíkti síðan á 5 daga spána hér til hliðar þá er þar bara spáð 20 stiga hita og ekkert voðalega spennandi ... aldrei neitt að marka þessar veðurspár ...

Lífið er annars tekið hér á sig nokkuð venjulega mynd nema Inga Huld og Jóa eru að sjálfsögðu heima á daginn og dunda sér við leik og störf. Í dag fóru þær t.d. útað hjóla meðal annars og hjólaði Inga Huld bara á einn mann í þetta skiptið ... Við erum síðan á leiðinni í langferðalag á bílnum okkur norður til Leeds á föstudaginn í heimsókn til hennar Evu, ætli ég bæti ekki nokkrum frídögum við helgina ... maður er orðinn svo ansi vanur þessu fríeríi. Það er líka alveg skelfilegt að þetta eru fyrstu dagarnir án þess að bjór er teigaður og útskýrir það líklega slappleikann ... hálfgerður "cold turkey" í gangi og einhver fráhvarfseinkenni finnanleg.

sunnudagur, ágúst 07, 2005

Héldum áfram sumarfrísfílingnum og fórum á Portobello markaðinn í gær - reyndar á bílnum þar sem við ætluðum að kíkja í fleiri búðir á heimleiðinni ... leitin að sófaborðinu er nefnilega hafin ... Í dag flatmögum við síðan í sólinni núna þó að það sé dáldið kalt, rétt um 20 gráður en fer hlýnandi þó. Við ætlum síðan í Greenwich garðinn þar sem Inga Huld er að læra að hjóla án hjálpardekkjanna - finnst henni það mikið sport og er jafnvægið alveg að koma þó að það sé dáldið erfitt að stýra í hvaða átt verið er að hjóla ... þetta er því allt dáldið "wibbly wobbly" einsog Inga Huld orðar það. Hún er búin að detta nokkrum sinnum en harkar þetta af sér og er harðákveðin í því að læra að hjóla einsog stóru krakkarnir ... mjög dugleg.

cheers

föstudagur, ágúst 05, 2005

Komin heim frá Ljubljana ... amma og afi farin til Íslands ... og síðasti frídagurinn í dag þannig að á mánudaginn byrjar venjuleg vinnuvika. Við erum búin að eyða síðustu tveim dögum bara hér heima í afslappelsi og gátum aðeins sólbaðað okkur í gær - líður lítillega einsog við séum uppi í sumarbústað og er tilfinningin góð!

Ljubljana var annars alveg frábær og er upplögð fyrir stutt frí þar sem markmiðið er að slappa af og rölta á milli kaffihúsa, bara og veitingastaða ... verðlagið líka ekki í verri kantinum þar sem stórt bjórglas lagðist á 150 kr og léttvínsflaskan á 1000 kr ... þ.e.a.s. á veitingastöðum! Skemmtum okkur semsagt konunglega og erum endurnærð eftir sumarfríið - mælum með þessum stað ... Inga Huld skemmti sér einnig konunglega með ömmu og afa og var einnig hæstánægð með sitt sumarfrí.

cheers

fimmtudagur, júlí 28, 2005

Eyddum deginum í dag í vellystingum uppá Canary Wharf - höfum í raun aldrei sjálf skoðað þetta svæði vel þannig að þetta var nýtt fyrir okkur líka ... sem sagt alveg ný hlið á London fyrir alla. Nóg af kaffihúsum börum og veitingastöðum og því ekki vandamálið að taka pásu, hlé og hvíla sig á labbinu ... eiginalega frekar að það var labbað til að hvíla sig á pásunum. Borðuðum síðan á Gaucho Grill við árbakka Thames sem klikkar aldrei ...

Síðan er bara haldið til Ljubljana og Ingu Huld hlakkar til að eyða tíma með ömmu og afa og er mikil dagskrá framundan ...

cheers
Við sóttum ömmu og afa á flugvöllinn í gær ... veðrið var nú hálfgert svindl þar sem það var suddi og súld allan daginn sem gerist nú alls ekki oft hér. Algjör lúxus að fá íslenskt nammi, íslenskan ost, SS pylsur, flatkökur, hangikjöt og í kvöldmatinn elduðum við síðan íslenskan skötusel en lambahryggurinn bíður!! Vel birg sem sagt af íslensku góðgæti ...

Veðrið í dag er nú eitthvað betra með 23 stiga hita og suddinn hættur - fínt veður til að fara aðeins út og viðra sig ... Við förum síðan eldsnemma í fyrramálið til Ljubljana og er mikið hlakkað til ...

cheers

sunnudagur, júlí 24, 2005

Það var rigning hér þegar við vöknuðum í morgun og hefur það ekki gerst svo vikum skiptir ... í raun alveg kominn tími á smá bleytu. Þetta var líka ágætisafsökun að sofa aðeins lengur á meðan Inga Huld horfði á barnaefnið þar sem ekki var vinnufært úti í garði. Einnig tókum við okkur til og skipulögðum Ljubljanaferðina okkar sem hefst næstkomandi föstudag - á dagskrá eru gönguferðir, bátsferðir, kastalaferðir, hjólaferðir, barferðir, kaffihúsaferðir og útaðborðaferðir - sem sagt nóg um að vera. Túristahandbókin segir okkur að veitingahús í Ljubljana séu þau dýrustu í Slóveníu og kostar máltíð með víni frá 2500 sit og dýrasta sem finnst er á 4000 sit og eitthvað upp úr því ... til að koma þessu í eitthvað samhangi þá er 1 pund um það bil 340 sit sem gerir dýra máltíð á rúmlega 11 pund sem eru ca 1300 íslenskar krónur ... furðulegt verðlag sem sagt ...

Til að gera eitthvað í dag þá fengum við okkur bíltúr til Crystal Palace sem er kjarni ekki svo langt frá okkur. Nafnið á þessum bæ er ekki útí loftið heldur var þarna áður fyrr stærðarinnar glerhýsi sem var fyst reist í Hyde Park vegna heimssýningarinnar árið 1851 en síðan flutt til Crystal Palace og tók bærinn nafnið eftir byggingunni. Glerhýsið brann síðan 1936 (skildum ekki alveg hvernig glerhýsið brann ...) og skoðuðum við því eftirstandandi rústir og safn um þetta ... mjög áhugavert. Enduðum daginn síðan á því að gróðursetja 15 plöntur þar sem veðrið var orðið skárra seinnipartinn ... létti til og var þægilegur 20 stiga hiti ... eru þá allar plönturnar komnar niður en eftir á að gera tröppur á milli hæða. Efnið í tröppurnar er tilbúið og á bara eftir að hanna þær og smíða ... vonandi náum við því fljótlega þar sem von er á gestum á miðvikudaginn sem Inga Huld er búin að telja dagana niður í og er mjög spennt.

laugardagur, júlí 23, 2005

Ég nenni ekki að skrifa meira um almennar fréttir frá London en segi nú bara að það er vissara að hlýða skipunum lögreglunnar nú um dagana og hlaupa ekkert frá henni ... sérstaklega ekki í áttina að neðanjarðarlest ...

Annars allar hellurnar komnar niður nema ein lítil ... undirlagið kláraðist og er því eitt lítið gat eftir ...

cheers

sunnudagur, júlí 17, 2005

Settum niður 1/3 af hellunum - ekkert smávegis magn af steypu (e. mortar) sem fer undir þetta!! Keyptum 15 poka í morgun sem vigta um 25 kíló stykkið ... bíllin seig vel niður undan þessum 375 kílóum í skottinu - erum búin að nota 10 þannig að það þarf að fara aðra ferð um næstu helgi. Allaveganna komin góð mynd á þetta og síðan er vökvunargræjan farin að virka svona líka vel ... það er nauðsynlegt að vökva vel þar sem það er allt að skrælna ... keyptum græju í dag til að festa á eldhúskranann (ásamt fleiri festingum sem vantaði) og getum nú tengt slönguna þar og viti menn það kemur bara vatn út um hinn endann ...

Ég er ekki frá því að ég hafi bara tekið dáldinn lit í dag ... aðallega rauðan ... en yfirleitt breytist það nú í fallega brúnku eftir nokkra daga.

laugardagur, júlí 16, 2005

Þá er Evan farin og skiluðum við henni af okkur í lestarvagn á Kings Cross þar sem hún átti framundan tveggja og hálfstíma lestarferð til Leeds. Á Kings Cross lestarstöðinni mátti sjá mikið af blómum og tilkynningar um týnt fólk - þegar maður sá mann með bakpoka þá spugleraði maður ómeðvitað um það hvað í ósköpunum þessi aðili væri með í farangri sínum ... en aftur að okkar lífi og þegar við komum aftur heim í blíðuna þá var ekkert annað að gera en að demba sér í stuttbuxur og hlýrabol og byrja að taka til lokahendinni á neðra leveli garðsins. Ég fór snemma í morgun og leigði titrandi þjappara (e. vibrating compactor) og í dag keyrðum við inn sandinn þannig að það er að verða tilbúið til hellulagningar sem er áætluð á morgun. Það þarf að fara að ljúka þessu - ég er síðan á leið til usa á mánudaginn og kem aftur á fimmtudaginn - stoppa þar í tvær nætur og kem við í ny og chicago ... skilst að við komu til landsins þá þurfi ég bæði að láta taka mynd af mér og gefa fingrafar ... það gæti tekið sinn tíma ...

cheers

föstudagur, júlí 15, 2005

Stúlkurnar hafa nú aldeilis getað grillað sig á nýja sólpallinum í sólinni og yfir 3o stiga hita!! Nýi pallurinn kemur bara strax að góðum notum ... Í gær hitti ég þær eftir vinnu í Blackheath þar sem við pöntuðum Pizza Express takeaway og fórum með á Blackheath túnið þar sem við fórum í "picnic" með ísköldu hvítvíni og nýbökuðum pizzum!! Þvílík veisla í þessu líka fína veðri ... alveg á hreinu að þetta er leikur sem vert er að endurtaka.

Eva er síðan á leið frá okkur á morgun þar sem haldið verður á hið nýja heimili ... við þurfum að drífa okkur í því að klára garðinn þar sem neðri hæð hans er alveg eftir, þ.e. að setja hellur og gróðursetja en plönturnar bíða bara eftir að vera settar niður - reynum að passa að vökva vel svo þær skrælni ekki í blíðunni. Síðan fer nú bara að styttast í að amma og afi komi og þá kemur að langþráðu sumarfríi hjá okkur skötuhjúum.

cheers

miðvikudagur, júlí 13, 2005

Eva er komin í heimsókn til okkar og fylgdi henni þessi líka fína hitabylgja þannig að það er bara bikíníveður í garðinum !! Eva dvelst hjá okkur í nokkra daga áður en hún heldur til dvalar í nokkra mánuði í borg lengst útá landi sem var ekki mikið í fréttunum fyrr en nú um dagana. Þetta er sem sagt Leeds sem virðist vera uppspretta vígamanna ... en kannski það sé einmitt öruggast að halda sig þar ...

Bretar eru annars tiltölulega rólegir yfir nýjustu fréttunum um atburðarrás síðustu viku en ég er enn nokkuð viss um það að hjólreiðaumferð hefur aukist! Einnig hef ég á tilfinningunni að ef að aftur yrði lagt til atlögu innan nokkurra vikna að þá fyrst myndi virkilega fara að hrikta í stoðunum ... núna er lögreglugæsla á öllum lestarstöðum, meira að segja á lestarstöðinni hér þar sem yfirleitt sést aldrei lögregla. Ókosturinn við aðferðir vígamannanna er að það er nánast ómögulegt að verjast þeim þar sem þeir virðast sprengja sjálfan sig með bakpokanum þannig að varnaðarorðin sem alltaf er útvarpað að maður eigi að tilkynna alla grunsamlega einmanalega hluti er ekki að virka ... kosturinn að sjálfsögðu er sá að sami aðili mun ekki fremja fleiri illvirki í framtíðinni ... þetta er náttúrulega bilun !!

sunnudagur, júlí 10, 2005

Við vorum heppin með veðrið í garðteitinu hennar Ingu Huldar - 25 stiga hiti og sól og blíða. Minn var mættur í garðinn fyrir klukkan átta í morgun til að planta nokkrum plöntum og skrúfa skrúfur í pallinn þannig að fólk/stelpum væri bjóðandi á hann ... er núna búinn að skrúfa ca. 600 skrúfur og sé fram á að ég sé svona um það bil hálfnaður !! Það var tekin ákvörðun á föstudagskvöldið að við myndum ekki ná að klára alveg allt fyrir afmælisboðið og stefndum við þess vegna að því að klára efri hluta garðsins ... sem gekk eftir. Teitið var annars gott og komu 10 stelpur úr bekknum hennar + Unnur og Sandra. Mikill hamagangur var og þurfti að hafa föst tök á dagskránni svo ekki rynni allt í vitleysu - planið var að "fairy" kæmi og væri í klukkutíma en mætti hann alltof seint og vorum við því búin með okkar part af dagskránni og þurftum að hafa mikið fyrir því að skemmta stelpunum þar til fairyinn kom. Sem betur fer vorum við með góða hjálp - Halldóra var ómissandi í blöðrublásun, samlokugerð og fleiru og Estelle aðstoðaði mikið við föndrið og drekkutímann. Að lokum þá voru allir ánægðir og Inga Huld hæstánægð með að fá allar stelpurnar í heimsókn og geta haft það gaman saman! ... en af okkar hálfu var þetta erfiðispuð ...


Á myndinni hér að ofan má sjá nýja pallinn ásamt plöntunum í efri helmingnum af garðinum. Það verður ekki amalegt að flatmaga þarna í sólinni í framtíðinni !!

föstudagur, júlí 08, 2005

Skrítið andrúmsloft í London en lífið fljótt að falla í sinn vanagang
Dagurinn í dag var ekki alveg venjulegur frekar en dagurinn í gær ... starfsmönnum í minni vinnu (og eflaust fleirum í miðborginni) var gefinn kostur á að vinna heima hjá sér nema algjör nauðsyn væri fyrir þá að vinna á skrifstofunni sjálfri. Ég nýtti mér það og vann aðeins í garðinum hjá mér ... en fór í vinnuna uppúr hádegi og var fram yfir kvöldmat. Á leiðinni heim gerðist það sjaldgæfa að ég fékk sæti í lestinni og gefur það til kynna hversu margir nýttu sér það að vera heima hjá sér í dag. Samkvæmt fréttum voru líka fáir á ferðinni í bænum enda skiljanlegt í ljósi atburða gærdagsins. Á mánudaginn er þó ætlast til að allt sé komið aftur í "full swing" og á þetta ekki að hafa frekari áhrif á daglegt líf og störf fólks ... meira að segja borgarstjórinn furðulegi sjálfur er búinn að tilkynna að hann noti túbuna núna og hvetur fólk til að gera hið sama. Minn yfirmaður kom á hjóli í vinnuna í dag í stað þess að koma með túbunni og finnst mér líklegt að það aukist eitthvað sala á þeim núna ... sá meira að segja í fyrsta skipti mann brunandi á línuskautum niður Bishopsgate Street!! Ég fór þó ekkert að rökræða við minn mann að líklega væri það líkindafræðilega séð tölfræðilega líklegra að slasast á hjóli í umferðinni heldur en að vera sprengdur af hryðjuverkamanni í túbunni.

Inga Huld fær enn pakka!
Í gær var Jóhanna stödd í Bluewater verslunarmiðstöðinni í útjaðri London ásamt Halldóru á meðan skelfingunni stóð ... voru þær best geymdar sem lengst frá miðborginni. Halldóra var síðan hjá okkur í mat sem er alltaf mjög ánægjulegt þar sem að þá er iðulega boðið uppá bjór og hvítvín með matnum!! Inga Huld fékk síðan pakka frá ömmu Ingu og afa Helga (og Ingó og Kristjáni) sem var þetta líka flottur - kerruvagn fyrir Babyborn ásamt Babyborn prinsessubúningi ... hér langar mig aðeins til að minnast á verðið þar sem Jóa keypti þetta semsagt að ósk gefenda hér í London og var þetta meira en helmingi ódýrara!! - fannst mér það ansi magnað þar sem ég hélt að verð á Íslandi væru nú ekki svo miklu hærri en erlendis ... þetta virðist þó vera staðreyndin með allavega leikföng þar sem ég hef séð það sama með Playmoið. Núna sefur semsagt Babyborn í prinsessubúningnum í kerruvagninum við rúmstokkinn hennar Ingu Huldar og ruggar hún henni í svefn og eflaust sjálfa sig í leiðinni.

Annað sem Inga Huld hefur fengið í afmælisgjöf er tölvuleikurinn Stafakarlarnir frá ömmu Helgu og afa Magga sem henni fannst feikilega sniðugt að væri fyrsti tölvuleikurinn sem hún á. Miðað við það hvað hún er dugleg í tölvu í skólanum sínum og þau stöku skipti sem hún fær að kíkja í hana hér heima þá hugsa ég að þessi leikur eigi eftir að vera mikið spilaður! Langamma og langafi gáfu rosa fína landafræðiatlasbók sem er merkilega fróðleg á einfaldan hátt og frá Sigrúnu frænku og Arnóri frænda fékk hún allar sögurnar um Línu Langsokk sem henni finnst ansi spaugilegar. Að lokum fékk hún frá Söndru og Unni prinsessubarbiedúkku sem alls ekki mátti vanta þar sem ég er nokkuð viss um að hún hefði kvartað ef hún hefði ekki verið í einhverjum pakkanum. Við gáfum henni húlahring með ljósashowi og junior scrabble sem er ansi sniðugt spil til að læra stafi og orð - að auki er á leiðinni í póstinum rosa stórt og flott Playmo hús undir öll húsgögnin og kallana sem hún á ... pöntuðum það á heimasíðu Playmobil sem var dáldið skemmtilegt að skoða þar sem það er hægt að kaupa á húsið aðra hæð og bæta við álmu. Í þetta allt saman er einnig hægt að setja í ljós þannig að allir sjái nú til í myrkrinu!

Frábær frammistaða Ingu Huldar í skólanum!
Við fengum skýrslu um framfarir Ingu Huldar í vetur í skólanum og var niðurstaðan þessi: "This is an excellent report. Well done, Inga Huld!" ... ekki slæmt það ... til að stikla á stóru:
Inga Huld has made good progress in language and literacy this year. She has learnt nearly all the letter names and the sounds they make and can read a few simple, common words. Inga Huld tries very hard to keep her handwriting as tidy as she can but she still needs to practice pencil grip and control. Inga Huld is making steady progress in mathematics. She enjoys practial investigations, dice games and number puzzles. Inga Huld is learning to count, respond to simple greetings and join in with action rhymes and simple songs in French. She is a confident performer and contributes enthusiasticaly in drama. Inga Huld learns new songs quickly and can sing as part of a class or small group. Inga Huld loves all aspects of the PE curiculum and has enjoyed dance, gym, games and ballet this year. She has a good sense of balance and awareness of space and responds sensibly to instructions.

fimmtudagur, júlí 07, 2005

Kominn snemma heim í dag en einsog flestir vita sem fylgjast með fréttum þá átti sér stað í dag ein sú stórfelldasta hryðjuverkaáras á England sem nokkurn tímann um getur!! Laust eftir klukkan níu fóru að berast fréttir af sprengingum í neðanjarðarlestakerfinu og var ástæðan rakin til rafmagnsbilana ... eftir að í ljós kom að sprengingarnar voru í allt 3 og að auki 1 eða 2 í strætisvögnum þá var tilviljanakenndin of mikil og augljóst var að þetta var af mannavöldum. Hluti af þessu átti sér stað ekki langt frá vinnustað mínum og voru miklar öryggisráðstafanir í gangi. Um klukkan tíu var húsinu "lokað" og enginn mátti fara út (mundi kalla þetta "reverse evacuation") - því var síðan létt fyrir hádegi en fólki ráðlegt að vera innandyra og ferðast sem minnst (að beiðni lögreglunnar). Um tvöleytið var fólki tilkynnt að þeir sem vildu mættu fara og að það yrði lágmarksstarfsemi í gangi á morgun. Það er þó erfitt fyrir fólk að fara heim þar sem engar neðanjarðalestasamgöngur eru og strætisvagnaferðir einnig aflagðar. Sem betur fer fyrir mig þá var lestin heim (national rail) í gangi þannig að ég komst heim tiltölulega auðveldlega þrátt fyrir dáldlar tafir. Það var þó skrítið að ganga niður Bishopsgate sem er yfirleitt full af bílum þar sem gatan var tóm fyrir utan lögreglubíla og mikill mannstraumur var á leið í burtu. Einkennilegt andrúmsloft var á skrifstofunni og fólk í raun aðallega að lesa netið, horfa á sjónvarpið og tékka á vinum og ættingjum - því lítið unnið þó mikið hafi verið um að vera á sumum mörkuðum, sérstaklega gjaldeyrismarkaðnum.

Þessi dagur minnti dáldið á 11. september 2001 en þá sat ég á skrifstofu verðbréfasviðs búbbans á Íslandi og fylgdist með atburðarásinni þaðan í góðri fjarlægð ... í þetta skiptið vorum við óþægilega nálægt atburðunum ...

mánudagur, júlí 04, 2005

Ingu Huld er annars farið að hlakka til næsta sunnudags - slatti af stelpum kemur í veisluna og verða kökur og önnur tilheyrandi læti ...

Action mynd úr garðinum:

sunnudagur, júlí 03, 2005

INGA HULD 5 ÁRA !!!

Hún er nú heldur betur orðin stór stelpan ... dagurinn var tekinn snemma klukkan hálfsjö og átti að ráðast á pakkana sem biðu eftir henni - nokkrir höfðu komið í póstinum frá Íslandi og síðan var náttúrulega eitthvað frá mömmu og pabba (þ.e. okkur). Í kaffitímanum var síðan þessi líka fína súkkulaðiafmæliskaka og var fullt hús gesta (Sigurgeir, Elín, Unnur, Sandra og Pétur ...) og afmælissöngurinn sunginn og allt saman! Hópsöngurinn var á íslensku og síðan söng Inga Huld afmælissönginn á ensku fyrir okkur í staðinn. Inga Huld fékk síðan að ráða með kvöldmatinn og eftir dálitla umhugsun og ýmsar uppástungur frá okkur þá varð fyrir valinu að fá "box" á McDonalds - varð það ofan á pizzu, pasta, kjöti og í raun og veru var þetta í góðu lagi af okkur hálfu þar sem gott var að fá eitthvað fljótlegt og einfalt.


Posted by Picasa

föstudagur, júlí 01, 2005

Það er löng (og ströng) helgi framundan hjá okkur - ég tek líklega mánudag og þriðjudag í frí til að koma einhverju saman í garðinum. Við erum enn að bera drasl úr honum og erum búin að stútfylla svokallaðan "skip" sem við erum með í innkeyrslunni. Hann var dáldið rosalegur karlinn með skippinn ... einsog sést hér á myndinni fyrir neðan ... og líklega best að ybba sig ekki mikið við hann ... Þannig að loksins eftir tveggja vikna útburð er hægt að hefja innburð ... stefnan er tekin á að klára dæmið fyrir næstu helgi þar sem þá er Inga Huld með garden party fyrir bekkinn sinn í tilefni af afmæli sínu sem er núna um þessa helgi. Nánar tiltekið þá er Inga Huld okkar að verða FIMM ára gömul og er mikill spenningur framundan og miklar væntingar fyrir afmælið ... en meira um það síðar! Best að fara að leggja sig fyrir puð morgundagsins ...

mánudagur, júní 27, 2005

Menningarleg óvissuferð
Það var heldur betur surprice um helgina. Fyrir 3 mánuðum síðan var ég að plana eitthvað fyrir afmælið hennar Jóu og skipulagði mjög svo menningarlega uppákomu - keypti sem sagt miða á sýningu í Royal Albert Hall með English National Ballet!! Inga fór aftur í pössun til Söndru og Unnar þar sem hún brallaði ýmislegt en var þó töluvert þreytt eftir að hafa hamast í 2 klukkutíma í barnaafmæli þar sem var trúður, blöðruskreytingar, andlitsmálning ásamt ýmsum öðrum skemmtiatriðum. En allavega þá héldum við á leið í óvissuferðina og var ég með Svanavatnið í huga af einhverri ástæðu ... þegar við komum í Royal Albert Hall þá voru þar auglýsingar um að verið væri að sýna Rómeu og Júlíu!! Að lokum var þetta því óvænt uppákoma fyrir okkur bæði þar sem ég var ekki alveg með óvissuferðina á hreinu sjálfur ... skemmtum okkur allavega konunglega og skipti líklega ekki alveg öllu máli hvaða sýningu um var að ræða. Sýningin var allvega alveg frábær og voru að minnsta kosti 100 dansarar í henni og mikið um að vera, m.a. skylmingar, slagsmál, rifrildi, ástarsenur og ástaratlot ... þið kunnið eflaust söguna ... Það var skemmtilegt að við sátum í boxi og vorum við bara 2 í sætaröð og eftir hlé sáum við að fólk tók glösin með sér í boxin þannig að þetta var mjög svo þægilegt að sitja bara í rólegheitunum yfir sýningunni með sitt hvítvínsglas ... bara einsog maður væri heima í stofu!

Garðapuðið
Um helgina var ýmislegt annað gert en að hanga í hámenningunni í London (menningarskammturinn fyrir þetta árið er nú líka uppurinn núna ...). Garðavinnan hélt áfram og er nú búið að kaupa allt efni í pallinn og stéttina og meira að segja voru nokkrar plöntur pantaðar líka. Í dag var ég svo í fríi svo hægt væri að keyra þetta dáldið áfram og pöntuðum við "skip" sem er draslgámur sem komið er með uppað dyrum (álíka stórt og bíll) og þetta fylltum við síðan af drasli úr garðinum og einnig smávægilegu drasli úr bílskúrnum sem safnast hafði þar fyrir. Fórum á flotta "landscaping" sölu í dag sem seldi hellur, steina, möl og plöntur af öllum stærðum og gerðum. Þarna hefði verið hægt að kaupa tré í garðinn svo stór að það hefði verið einsog þau hefðu verið í garðinum í tugi ára!! Við keyptum annars mjög hefðbundin tré ... bambus (svartan og grænan), magnólíu, ólífutré og plöntu sem líkist jukku ... kannski ekki mjög svo hefðbundið ... Við vorum svekkt yfir því að ólífurnar á ólífutrénu ná ekki nógu góðum þroska hér í Englandi nema að það sé mjög óvenju gott sumar ... allavega erum við hér komin með mælikvarða á hversu gott sumarið sé!! Þetta kemur síðan allt saman á fimmtudaginn - á morgun kemur maður sem ætlar að taka það út fyrir okkur hvað það kostar að hlaða lítinn vegg, eða eiginlega veggi, í garðinum og ég er byrjaður að setja saman undirstöðurnar fyrir pallinn. Allt að gerast sem sagt enda er stefnt á að verkinu ljúki fyrir sunnudaginn 9 júlí af því að þá er Inga Huld með afmæli fyrir bekkinn sinn hér heima (á þó afmæli 3 júlí bara svo það sé á hreinu!).

cheers

föstudagur, júní 24, 2005

Forsjálnin í fyrirrúmi
Ég var mjög forsjáll í morgun og tók með mér regnhlíf í vinnuna þrátt fyrir að það væri glampandi sól og 25 stiga hiti klukkan hálfátta í morgun! Ástæða þessa furðulega fylgihlutar var sú að veðurspáin í gær hafði spáð "thunderstorm" og rigningu seinni partinn í dag ... reyndar hafði veðurspáin síðan breyst í morgun og spáði bara áframhaldandi sólskini og blíðu allan föstudaginn. Forsjálni mín reyndist þó góð þar sem það var ausandi rigning með tilheyrandi þrumum og eldingum þegar heim var haldið klukkan hálfsjö í kvöld !! Veðurspánni hafði því verið breytt til hins verra og sannast það því að það borgar sig ekkert að vera að breyta því sem áður hefur verið haldið fram ... var ég því mjög ánægður og glaður þar sem ég stormaði undir regnhlífarviðrininu mínu á lestarstöðina og blotnaði bara að hluta til en var ekki lekandi niður einsog sumir sem voru ekki jafnforsjálnir og ég ... hehe ...

Of heitt!!
Líklega er kominn tími á að kaupa aircondition í húsið til að hafa í gangi á nóttunni ... ég er búinn að leggja minni sæng og sef bara með sængurverið og er það nú svona í það þykkasta meira að segja ... með kvöldinu virðist rakastigið aukast töluvert þannig að það verður hálfóbærilegt hérna.

Garðavinna - puð & streð
Loksins, loksins byrjuðum við á garðavinnunni ... við stóðum við það að byrja á þessu þegar Jóa hefði tíma til að hanna og teikna upp garðinn. Hún sem sagt kláraði allt sitt á miðvikudaginn þegar lokasýningin opnaði (og hún átti reyndar afmæli sama dag) og er því búin að vera að slappa af síðan (utan þess að taka aðeins til hér heima og þrífa og svoleiðis ...). Teiknað var þetta líka þetta rosalega plan þannig að ég varð strax rosalega þreyttur ... eftir að ég hafði þó komið nokkrum vinsamlegum ábendingum á framfæri um það að sumt yrði einfaldað þá komumst við að sameiginlegri niðurstöðu um málið og hafist var handa. Ég er sem sagt búinn að vera að dunda mér við það núna á kvöldin að moka upp grasið úr garðinum og síðan þarf ég að "levelera" hann þar sem hann er í dáldlum halla sem við viljum ekki hafa. Garðinum mun verða skipt í tvennt, upp við húsið verður pallur og fjær á neðra leveli verður stétt og verða tröppur á milli ... allt er þetta áætlað að muni líta alveg mjög vel út ... hvort sem það verður litið á það úr fjarska eða þegar nær dregur.

cheers

laugardagur, júní 18, 2005

Við fórum í fyrsta skipti í mjög langan tíma út að skemmta okkur í gærkvöldi. Inga Huld gisti hjá stórfjölskyldu Sigurgeirs og skemmti sér konunglega og er ólm í að fara aftur. Planið hjá okkur var að hitta frænda hennar Jóu og sýna honum aðeins menninguna í London en það plan fór út um þúfur þar sem frændinn og kona hans náðu sér í vírus og lágu því fyrir allan föstudaginn á hótelherberginu ... skemmtileg byrjun það á helgarferðinni. Við létum það ekki skemma fyrir okkur og héldum okkar striki - fórum með Halldóru og byrjuðum á veitingastaðnum Hakkasan sem er erfitt að fara svikinn frá, alveg hreint meiriháttar flottur staður með mjög góðum mat. Síðan var haldið á einhvern VIP klúbb sem Gísli hennar Halldóru var búinn að græja og fengum við að fara þar inn og setjast við borðið (var reyndar ekki borð heldur frekar flatsæng ...) sem búið var að panta eftir nokkurt þras við dyraverðina. Tantra hét staðurinn og var alveg hægt að skemmta sér þar og dansa - vorum með okkar einkabar við borðið og þurfti því ekki að standa í röð á barnum og glata þar dýrmætum tíma.

Ónákvæmni veðurspáa
Einsog venjulega þá rætast ekki veðurspár ... það var sem sagt búið að spá hér 27 stiga hita einsog fram kemur neðar á síðunni. Í dag er búið að vera 32 stiga hiti og nefnist þessi helgi hjá bretunum "sticky weekend" þar sem mikill raki fylgir þessari hitabylgju!

miðvikudagur, júní 15, 2005

Las á blogginu hans Sigurgeirs að leigubílstjóri hefði tjáð honum að góðu veðri væri spáð um helgina ... það fékk ég síðan staðfest á "5 daga spá" linknum hér á vinstri hlið síðunnar. Væntanlegur er 27 stiga hiti og glampandi sól !!! Það er sem ég hef áður sagt að það er kominn tími til að fjárfesta í sólgleraugum!!

Er annars byrjaður á nýrri bók - kláraði nefnilega um daginn 3 mánaða lesningu minni á "Atlas Shrugged" eftir Ayn Rand. Ég las ca. 10 blaðsíður á dag í þeirri bók - náði t.d. 5 blaðsíðum á hvorri leið í lestinni á leiðinni í og úr vinnu en bókin var sem sagt 1067 blaðsíður á lengd með letri sem er töluvert minna en letrið í mogganum ... í henni var til að mynda lengsta eintal sem ég hef nokkurn tímann séð, heyrt eða heyrt um getið eða u.þ.b. 67 blaðsíður ef ég man nákvæmlega rétt. En ég mæli hiklaust með bókinni og var þetta alveg frábær lesning fyrir alla sem hafa gaman af vel rituðum bókum. Til að gera langa sögu stutta þá fjallar hún um mann sem vill stöðva hjól efnahagskerfisins í mótmælaskyni ... who is John Galt?!

cheers

sunnudagur, júní 12, 2005



Smávegis viðbót við bloggið áðan þar sem minnst var á skyrtuþurrkstraujarann - skoðið hann hér ... þetta fer á toppinn á JÓLAGJAFAÓSKALISTANN minn !!!
Posted by Hello
Í morgun var haldið á sýningu í ExCel sem er stærðarinnar sýningarhöll í austurhluta London. Þar var Grand Designs Live haldið og var allt um eldhús, bað, innanhúshönnun, byggingar og garða ... sem sagt allt allt sem á þarf að halda fyrir Grand Design!! Sumt var nú bara einsog að labba um í B&Q og var heldur ómerkilegt en annað vakti skemmtilegar hugmyndir og var nú hægt að sjá ýmislegt fyrir sér.

Einna best sem við sáum voru alveg þrælflottir rafmagnshitarar í garðinn sem bæði var hægt að hengja uppá vegg og hafa á standi ... leist okkur (mér) svo vel á þá að fjárfest var í tveimur á staðnum og þurfti síðan að rogast með þá höllina endilanga útí bíl ... vorum þá sem betur fer líka búin að skoða alla sýninguna þannig að haldið var heim á leið eftir heila 5 klukkutíma! Það er nú samt ekki hægt að segja að við höfum verið eitthvað að slæpast þarna heldur var farið tiltölulega hratt yfir og kom því á óvart hversu mikill tími fór í þetta. Skoðuðum helst garðasýninguna (þar sem við ætlum að reyna að fríska uppá garðinn okkar), einstaka eldhúsinnréttingar (t.d. voru tækin frá Siemens flott, sérstaklega skyrtuþurrkstraujarinn sem þurrkaði og straujaði skyrtuna þína á 6 mínútum!!!) og síðan eitt og annað sem áhuga vakti.

laugardagur, júní 11, 2005

Fórum í fyrsta skipti í langan tíma öll saman fjölskyldan í bæinn. Tókum við lestina á Charing X og löbbuðum upp Leicester Square og Piccadilly Circus og síðan af Regent Street inn á Carnaby Street. Þar eru dáldið skemmtilegar búðir og huggulegra umhverfi heldur en á Oxford Stræti. Á heimleiðinni var staldrað við á Borough market sem er hjá London Bridge - sá markaður er alveg magnaður og er sem sagt matarmarkaður. Til dæmis ef einhver mundi vilja heilgrilla dádýr þá er þetta staðurinn þar sem þau hanga þarna uppá veggjum án hausa og annarra útlima við hlið kanína og annarra dýra. Okkur heillaði þó frekar alls konar grænmeti og ávextir, fiskur og kjöt, ostar og brauð o.s.frv. ... við keyptum okkur allavega íslenska lúðu, grænmeti og síðan pie í desert - ekki amalegt. Einnig steikja þeir þarna hamborgara og aðrar steikarsamlokur sem ég mæli hiklaust með enda má sjá af fjölda þeirra sem mæta á markaðinn og standa þar í löngum röðum að gæðin eru góð!!

þriðjudagur, júní 07, 2005


Inga Huld með nammipokann sinn á laugardaginn. Posted by Hello

mánudagur, júní 06, 2005


Inga Huld lék þennan líka fína skunk í skólaleikriti sem hét "The bad tempered ladybird". Posted by Hello
Gill var hent út sem link hér á vinstri hlið síðunnar þar sem hann er löngu hættur að blogga ... í staðinn er hægt að lesa stórskemmtilegar "Sögur úr holtinu ...". Það má einnig geta þess að "Óskabókalistinn" á hægri hlið síðunnar er ekki útrunninn og vantar allar þessar bækur í safnið - svona ef ske skyldi að einhverjum vantaði að kaupa eitthvað handa mér?!

Jóa skilaði inn öllum sínum blöðum á laugardaginn og er nú á fullu í módelgerð fyrir morgundaginn - stóra stundin sem er yfirferð með kennurunum er eldsnemma í fyrramálið og er hún fyrst af öllum !! Í næstu viku er síðan kynning fyrir utanaðkomandi dómara og fyrst eftir það kemur afrakstur erfiðins í ljós (þ.e.a.s. annar afrakstur en allt dótið sem fylgir náminu og hleðst upp heima ...).

sunnudagur, júní 05, 2005

Ég var að keyra um helgina og sá auglýsingu á tannlæknastofu sem innihélt þau skilaboð að það væri frítt fyrir ófrískar/óléttar konur hjá tannlækninum. Mundi þá að ég hafði einmitt hugsað það áður hversu furðulegt það er að konur þurfi ekki að borga fyrir tannlæknaþjónustu á meðan meðgöngu stendur ... get bara ekki komið fyrir mig nokkurri röksemd þar á bakvið ... en kannski er það bara ég ...

fimmtudagur, júní 02, 2005

Í dag var skyndilega óskað eftir því að ég myndi verða viðstaddur kvöldverðarfund með stórgóðum viðskiptavini - 5 voru á leiðinni frá ABN og 6 frá kúnnanum -> átti ég því að verða tólfti aðilinn!! Inga Huld var spurð að því hvort hún vildi gista hjá Halldóru (Gísli ekki heima þessa dagana ... bissnessvesen á honum ...) eða hvort ég myndi sækja hana seint ... ekki var hún lengi að tjá mér það að hún vildi gjarna gista hjá Halldóru. Allir virtust sáttir við það þannig að ég fór á fundinn og var sosum ekki svikinn þar sem haldið var á Hakkasan - það er alveg á hreinu að þangað þarf ég að fara aftur til að geta notið staðarins og matarins aðeins betur ... var djúpt sokkinn í samræður allt kvöldið og áttaði mig á því að ég var í rauninni svangur þegar ég kom heim eftir allt saman þó að maturinn sem ég þó borðaði var alveg afbragðsgóður!

miðvikudagur, júní 01, 2005

Dagur í lífi Valda:

6.00: Á fætur, gamli ...
6.29: Sturtan og fleira búið.
6.30: Inga Huld ræst á lappir. Þar sem líður að skilum hjá Jóu og í ofanálag þá er frí í skólanum hennar Ingu þessa vikuna ... leit út fyrir erfiða viku ... sem betur fer þá bjargar Halldóra okkur í þessari krísu.
7.00: Jóa skutlar okkur á lestarstöðina til að spara okkur 10 mínútur.
7.45: Mætt til Gísla og Halldóru með Ingu Huld.
7.50: Ég lagður af stað á City Airport þar sem ég á flug kl 8.55 til Dusseldorf.
8.35: Mættur á City Airport og hleyp í tékkinn þar sem ég yfirmaðurinn bíður.
8.55: Flugtak.
10.30 (11.30 Dusseldorf tími): Lentur í Dusseldorf.
11.00 (12.00): Hádegismatur og upphitun fyrir fundinn.
12.45 (13.45): Fleiri frá ABN mæta á svæðið og lagt er af stað á fundarstað.
13.00 (14.00): Fundur hefst ...
14.30 (15.30): Fundi lýkur og taxi tekinn á völlinn.
15.00 (16.00): Mættur á völlinn og flugmiða breytt til að taka fyrra flug heim til London.
15.35 (16.35): Flugtak.
16.10: Lentur á Heathrow.
18.00: Eftir langa ferð í Piccadilly línunni til Holborn þar sem Inga Huld var í pössun hjá Halldóru.
19.00: Komin heim!
19.30: Upphitaður kvöldmatur úr frystinum þar sem enginn hafði tíma til að elda - Inga í bólið - sjónvarpsgláp í nokkrar mínútur - bólið ...

sunnudagur, maí 29, 2005

Ég þeyttist um hálfan bæinn í gær - byrjaði á því að redda bílnum ... þetta var nú sem betur fer eitthvað mjög einfalt og lá púströrið einfaldlega of nálægt boddíinu og víbraði þetta allt saman þarna undir. Síðan fórum ég og Inga Huld að sjoppa ýmislegt fyrir hana Jóu svo hún gæti lokið við lokaverkið sitt þar sem það fer nú óðum að styttast í skil. Ég held að það verði allir dauðfegnir þegar þessari törn verði lokið - Jóa fegin að skila og klára þetta og ég og Inga Huld fegin að fá smá athygli aftur og þá sérstaklega að fá eitthvað gott að borða aftur!! Ég geri mitt besta þó í eldamennskunni um helgar - í gær voru marineraðar sirloin steikur, í kvöld er túnfiskur og á morgun er nýsjálenskt lambalæri ... að sjálfsögðu allt eldað á fína grillinu ... Við Inga Huld fórum einnig í Toys´r Us á heimleiðinni til að kaupa afmælisgjöf handa henni Phoebe sem hélt uppá afmælið sitt í gær. Það lukkaðist mjög vel og var mikið fjör og mikið gaman hjá henni Ingu ...

föstudagur, maí 27, 2005

Heitasti Maí-dagur í Englandi síðan 1953!!

Ég var reyndar staddur í París en það var jafnheitt þar, eða um 30 stiga hiti. Það var óbærilegt á leiðinni á Charles de Gaul flugvöllinn þar sem aksturinn tók einnoghálfan tíma í mjög þungri umferð og engin loftkæling var í bílnum - var því stressaður og sveittur þegar ég loks kom á flugvöllinn þar sem að það var þá hálftími í flugtak ... en komst þá að því að það var hálftíma seinkun þannig að þetta var allt saman mjög tímanlegt.

mánudagur, maí 23, 2005

Bifreiðin okkar var farin að gefa frá sér óeðlilega mikið hljóð undanfarnar vikur. Jóu fannst þetta bagalegt og hálfskammaðist sín um að keyra um á þessum hávaðasegg en mér fannst dáldið skemmtilegt að gefa vel inn og heyra dáldið gott "sánd" í bílnum !! Þegar fólk var þó farið að líta óeðlilega mikið á bílinn þegar keyrt var um bæinn þá var nú ákveðið að gera eitthvað í málinu. Okkar bifreiðatækniþekking benti til þess að líklega væri eitthvað að pústinu ... því var haldið á KwikFit sem gerir við dekk, bremsur, dempara og púst. Ég og Inga Huld tókum þetta mikilvæga verkefni að okkur á sunnudagsmorguninn kl. rétt rúmlega tíu. Þegar við mættum á svæðið þá voru að sjálfsögðu þrír á undan okkur (tímanlegur bretinn ...) ... maðurinn var nú ekki lengi að finna út úr vandamálum okkar, vippaði bílnum uppá bílalyftu, fletti uppá runópúströrum í einhverjum bæklingi, fór bakatil og kom til baka með "front cylender" og sýndi mér hvað þyrfti að skipta um undir bílnum og hvernig þetta myndi allt saman passa og að lokum gaf hann mér kvót sem hljóðaði uppá 79.90 pund. Leist mér vel á það á sömdum við um verð, verk og efni á stundinni og var þessu öllu lokið eftir stuttar (langar segir Inga) 20 mínútur! Heim var svo haldið á hljóðlausum bíl.

Allt hljómaði þetta nú mjög vel þangað til Jóa sendi mig í bíltúr í kvöld til að upplýsa mig um ýmis skringileg hljóð í bílnum ... nú heyrist smellur í pústinu þegar startað er og það glamrar vinstra megin í bílnum þegar teknar eru hægri beygjur, sérstaklega þegar hægri beygjan er tekin á dáldilli ferð og enn meira ef farið er yfir hraðahindrun í leiðinni ... einnig skröltir ýmislegt þegar bakkað er. Ég ráðlagði Jóu að keyra hægt og rólega og helst ekki bakka þar til við gætum skellt bílnum aftur til KwikFit til að láta athuga dæmið ... allavega fylgir 2 ára ábyrgð á púströraverkinu þeirra þannig að það hlýtur enn að vera í gildi!!

Annars er skemmtileg ásökun á hendur breskum stjórnvöldum nýkomin fram - það er semsagt móðir systra sem eru 12, 14 og 16 ára sem hefur komið þessari ásökun á framfæri vegna ónógrar "sex" fræðslu í skólastofnunum hér á landi ... og ástæðan ?? jújú, allar dætur hennar hafa orðið óléttar og eignast börn !! Það er nú hægt að kenna ríkinu um ýmislegt og ætlast til að það geri hittogþetta ...

með kveðju frá London

fimmtudagur, maí 19, 2005

Búin að plana sumarfríið!! Mun það standa yfir í heila 4 daga!! Mamma og pabbi koma í heimsókn um mánaðamótin júlí/ágúst og ákváðum við því að skella okkur til Ljubljana. Málum er þannig háttað og eru þannig vaxin að Inga Huld mun verða eftir á Heather Close hjá ömmu og afa á meðan við förum að slappa af. Við þurfum að setja inn frekari upplýsingar um áfangastaðinn sem er einsog áður sagði Ljubljana ... nánar tiltekið höfuðborg Slóvaníu ... einkar heppilegur staður til að vafra um og gera ekki neitt.

Íslendingar út úr eurovision ... snökt ... snökt...

sunnudagur, maí 15, 2005

Við fengum stórar fréttir í vikunni - okkur var tilkynnt að stóllinn sem við keyptum í Mars væri tilbúinn til afhendingar !! Það var skipulögð ferð í gær, laugardag, til að sækja stólinn og tók hún tvo og hálfan klukkutíma. Búðin er sem sagt stödd í mið London, nánar tiltekið þá er hún rétt norðan við Selfridges. Það var síðan tekið utan af stólnum og hann settur í stofuna við mikla viðhöfn í gærkvöldi. Hann er nú hálfafkáralegur þó svona einn útá gólfi þar sem okkur vantar enn sófaborð ...

Ákváðum að gera tilraun með lambakjöt í gær - keypti Velskt lambalæri í Sainsburi í gær, skar það af beininu í bita sem við mareneruðum í ólífuolíu, sítrónusafa og timjani - grilluðum það síðan og smakkaðist það bara nokkuð vel ... held þó að það sem vanti uppá er að leyfa lærinu að hanga dáldið en það er kannski eitthvað sem þeir gera ekki með lambakjötið hér ... þarf að tala betur við buthcerinn.

sunnudagur, maí 08, 2005

Það er ekki búið að vera jafngott sumarveður þessa helgi og þá síðustu ... hitinn hefur rétt verið milli 15 og 20 gráður með golu og skýjafari ...getur verið að maður sé að verða of kröfuharður á góða veðrið ?! En allavega ljóst að það þarf að fjárfesta í sólgleraugum.

Við grilluðum rosalega T-bone steik í gærkvöldi, fór sérstaka ferð til slátrarans í Blackheath og skar hann fyrir mig tvær sneiðar - í desert voru síðan grillaðir bananar með piparmyntusúkkulaði og vanilluís. Í sjónvarpinu var verið að sýna tónleika með Kylie Minogue og fannst Ingu Huld þeir ekki leiðinlegir. Mikið var dansað og nóg af flottum búningum - fékk hún að vaka til 10 til að horfa á. Við vonuðumst til þess að hún myndi í staðinn sofa aðeins lengur í morgun en það gekk nú ekki eftir heldur var hún vöknuð fyrir klukkan sjö tilbúin að horfa á barnaefnið. Hugsa að það sé kominn tími til að gefa henni klukku svo hún geti fylgst með tímanum - það er betra fyrir mig þar sem að þegar hún vakti mig þá tjáði ég henni að hún þyrfti að fara að sofa aftur þar sem barnaefnið byrjar ekki fyrr en klukkan átta ... eftir það þá vakti hún mig á 10 mínútna fresti til að spyrja mig hvort að klukkan væri orðin átta ! Ekki alveg klár á því hvernig á að taka á þessu máli ... erum nú þegar búin að setja upp rúllugardínu hjá henni sem heldur sólargeislunum úti þannig að það er ekki of bjart inni hjá henni. Ætli næsta skref sé ekki að hafa mjólkina í hentugri umbúðum fyrir hana þar sem hún kallar alltaf á okkur klukkan hálfníu og segir "ÉG BORÐA" - þá er hún búin að taka til skeið og morgunkorn en hún nær ekki í skál og mjólk ... með þessu þá gætum við keypt okkur nokkrar extra mínútur.

þriðjudagur, maí 03, 2005

Stórleikur var í gangi áðan og endaði með frábærum sigri Liverpool!! Ekki oft sem ég óska þess að Eiður misstigi sig og skjóti framhjá ... en það var nú tæpt að hann myndi enda þetta fyrir okkur á lokamínútunni ...

sunnudagur, maí 01, 2005

Um síðustu helgi fengum við stórfjölskyldu Sigurgeirs í heimsókn og var grillað íslenskt lambafillet í tilefni dagsins. Inga Huld var að vonum lukkuleg þar sem 5 ára og 8 ára dætur Sigurgeirs var sýnt allt dótið og mikið var leikið í Playmo og öðru sem fram var tekið.

Ég var síðan á miklu flakki í vikunni og endaði vikuna í mikilli sumarblíðu í Sviss - nánar tiltekið í Zurich, Basel og Genf ... ferðaðist um í lest og naut frábærs landslags þar sem brunað var um lendur Sviss ...

Í gær var síðan nýr veitingastaður prófaður - haldið var á kínverska veitingastaðinn Kai sem staðsettur er í Mayfair ... áttum þar mælt mót við Elvu og Óla sem eru hér í heimsókn. Það er alveg óhætt að mæla sér mót á þessum stað og mælum við sterklega með staðnum. Matseðillinn er með þeim lengstu sem ég hef séð og olli það nokkrum heilabrotum varðandi val á rétti til að panta - það var bót í máli á meðan þeim heilabrotum stóð að þeir blanda mjög góða kokteila ... ég endaði þó á því að fá mér "Flaming, drunken pork" sem var sem sagt svínakjöt eldað í kampavínssósu og borið fram flambererað í kínversku hrísgrjónavíni ... bragðaðist mjög, mjög vel. Annað sem var pantað var ekki síðra, kannski þó rétt að passa sig á rækjuréttinum sem er eldaður í þremur tegundum af chilli ... hann var dáldið sterkur ...

Hitinn hér fer stígandi og erum við nánast alveg búin að slökkva á allri kyndingu í húsinu - það er alveg á hreinu að eitthvað gott verður grillað í kvöld ... einnig er frí á morgun 2. Maí sem er Mayday ... ekki amalegt það að fá smá aukaafslappelsi. Talandi um frí þá er nú alveg ljóst að það þarf að fara að plana sumarfríið ...

Með bestu kveðju frá Heather Close!!