mánudagur, mars 29, 2004

Það var bara bjart þegar haldið var heim á leið úr vinnunni í dag - var dáldið upplífgandi að ná í restina af sólinni. Annars er greinilegt að maður verður að komast í bíó ... það er búið að auglýsa alveg helling nýja stórmynd, 4 stjörnu mynd ... er t.d. á öllum strætisvögnum bæjarins. Þessi stórmynd er einnig merkileg fyrir þær sakir að hún skartar einum af mínum uppáhaldsstórleikara sem á margar stórmyndir að baki en því miður hefur lítið komið frá honum síðustu ár. Ég er því mjög glaður að sjá hann á veggspjöldum víðsvegar um bæinn. Þessi mynd heitir annars Open Range og er með Kevin Costner !! ... meira þarf ekki að segja um þessa mynd að sinni.

sunnudagur, mars 28, 2004

Sumarið komið !!

Þá er sumarið komið !! Klukkunni var breytt klukkan 2 í nótt og tapaðist þar einn klukkutími úr þessum sólarhring - það er dýrt að fá sumarið ... Við þurftum síðan að eyða deginum í það að breyta öllum klukkum á heimilinu, það var armbandsúrið, eldhúsklukkan, örbylgjuofnsklukkan, vídeóklukkan, hilluklukkan, klukkan í bílnum, farsímaklukkurnar ... af hverju á maður svona margar klukkur ... best var klukkan í tölvunni sem breyttist sjálfkrafa.

Sumarið byrjar þó með kvefi - ég virðist hafa náð mér í amsterdamskt kvef og var það eitt af fáu sem fylgdi með frá Amsterdam - slóst ég þar með í hóp stelpnanna sem einnig hafa þjáðst af kvefi, en líklega Lundúnarkvefi. Inga Huld fékk þó shampoo og sturtusápu af hótelinu ... hæstánægð með þessar litlu umbúðir ... og Jóa fékk freyðivín og toblerone úr minibarnum :)

Tengdó kemur

Allt er nú að verða klárt fyrir heimsókn tengdó og er tepppið skínandi hreint eftir teppahreinsivélina og sófinn fékk sinn skammt líka - vissara að það leynist ekki kusk einhvers staðar ! Stelpurnar eru farnar að telja hratt niður og Inga Huld bíður eftir bleiku páskaeggi. Bleikt er alveg uppáhaldsliturinn hennar - þegar Jóa sagði að hún yrði í skólabúningskjól í nýja skólanum sem yrði blár þá var hún ekki mjög ánægð og heimtaði að vera í bleikum skólabúningskjól, annað væri ómögulegt.

laugardagur, mars 27, 2004

Tiltektardagur í dag - íbúðin var ekki orðin mönnum bjóðandi og þurfti því að taka til og þrífa !! Leigð var teppahreinsivél og allar græjur til að hægt væri að vinna verkið almennilega ... Aðalástæða þrifanna var þó að von er á heimsókn tengdó um næstu helgi og þarf allt að vera skínandi þegar þau koma. Einnig er sumarið að koma ... opinberlega þá kemur það á morgun ef einhver skyldi vera í vafa um það hvenær sumarið kemur. Klukkunni verður breytt í nótt og töpum við þar einum klukkutíma úr þeim sólarhringnum, og þegar klukkunni er breytt þá kemur sumarið !!

Ég var í Amsterdam í síðustu viku, mjög skemmtileg borg og væri gaman að fara þangað í sumarblíðu að spóka sig. Allir eru mjög afslappaðir þarna og ekkert stress hjá neinum, spurning hvort það sé eitthvað í loftinu sem rói fólk svona ?! ... allavega er borgin mjög ólík London. Hitti Börk aftur og fór hann með mig á stúdentakjallara þar sem fjörið átti að vera, ég var nú hálf-afkáralegur í jakkafötunum innan um stúdentana en einnarevrubjórinn smakkaðist þó vel.

föstudagur, mars 19, 2004

Kominn aftur frá Amsterdam - var þar frá mánudegi til fimmtudags, gisti á alveg ágætis hóteli sem nefnist Okura - japönsk hótelkeðja ... eitthvað voðalega fínt. Hitti Börk eitt kvöldið og tók hann mig túristarúnt um miðbæinn eitt kvöldið - sýndi mér nokkra pöbba sem voru ekki týpiskir amsterdamskir pöbbar þar se hægt var að drekka týpískan amsterdamskan bjór og fræddi mig um leitarvélar á netinu. Áður en heim var haldið þurfti að sjálfsögðu að kaupa pakka fyrir Ingu Huld og var hún hæstánægð með barbie dúkkuna sem ég keypti á flugvellinum. Þarf síðan að fara aftur til Amsterdam í næstu viku ... stelpunum ekki til mikillar ánægju ;(

Núna er að byrja allrasíðasti þáttur Sex and the City seríunnar og bíður Jóa spennt eftir magnþrungnum endi !! Þá þarf að hrista Baileys í klaka og kannski maður kíki í koníaksskápinn ...

sunnudagur, mars 14, 2004

Ég og Inga Huld fórum í klippingu í gær - var Inga mjög spennt fyrir því og fannst þetta mjög gaman, sat kyrr og stillt allan tímann. Áðan þegar ég tók teygjurnar úr henni þá horfði hún í spegilinn og var voða súr yfir því að hún væri ekki lengur með sítt hár !! Það voru reyndar teknir um 5 cm af hárinu og var það kannski full mikið svona eftirá séð en hún er voða sæt og fín eftir styttinguna. Hún var síðan sátt við þá skýringu að hárið myndi vaxa aftur og það væri orðið sítt áður en hún vissi af.

Í dag fórum við til Greenwich - byrjuðum í stóra garðinum þar og hjólaði Inga Huld á fullu og ég og Jóa hlupum á eftir eða á undan og var mikið fjör hjá henni. Þetta var ágætis hreyfing fyrir okkur öll sömul. Veðrið var reyndar ekki nógu gott, rok og rigning. Það var dáldið skondið að fylgjast með bretunum úti sem þurftu að sjálfsögðu að vera með regnhlífarnar sínar ... ekki mátti nú vökna ... en þær fuku að sjálfsjögðu allar upp og sáum við þær síðan sumar komnar í ruslafötur eftir hamaganginn.

Veisla
Heldur betur veisla í gær í tilefni dagsins. Í forrétt var humar og hvítvín, síðan var boðið uppá grillað nautasirloin með Chateau Larmande og í desert var súkkulaðiostakaka, með íslenskum rjómaosti, og í deserdesert var kaffi og koníak - og allt alveg súpergott !! Inga Huld var þó eitthvað slöpp í gærkvöldi og var illt í maganum - lá hún bara í sófanum og sofnaði þar að lokum meðan við borðuðum. Taldi hún að hún hefði borðað of mikið súkkulaði um daginn og að það hefði ekki farið vel í magann sinn. Hún verður nú þó að vera tilbúin fyrir páskaeggjasúkkulaðiátið og má ekki láta það fara illa í magann sinn.

Vorboðinn kominn
Í gær sáum við vorboðann !! Það er greinilega að koma vor með betri tíð í haga ... risastór randafluga sást sveimandi fyrir utan húsið okkar og finnst mér það ákveðið merki um vorkomuna. 10 stiga hiti var í gær en samt í dembu sem kom þá fylgdi með smá haglél.

Við skoðuðum nokkur hús í gær í misjöfnu ásigkomulagi. Eitt var of stórt og dýrt, annað var með hraðbraut í bakgarðinum og það þriðja var í rusli. Það sem var í rusli bauð þó uppá skemmtilega möguleika þar sem það var stórt og Jóa gæti æft sig í innanhúshönnun með því að gera það upp.

föstudagur, mars 12, 2004

Vinna og skóli, skóli og vinna

Langt síðan skrifað hefur verið inn hér - tvær ástæður (afsakanir) eru fyrir hendi. Í fyrsta lagi er voðalega lítið skrifmerkt að gerast, það er bara vinna, skóli, skóli og vinna ... og í öðru lagi er eitthvað svo lítill tími til að skrifa hér inn þar sem allur tíminn fer í vinnu, skóla, skóla og vinnu ...

Ég á að vera í Amsterdam í næstu viku þannig að stelpurnar verða bara einar á Lullingstone Lane - Ingu Huld líst ekkert á það að pabbi sofi í Amsterdam og spurði mömmu sína hvort Amsterdam væri hús ... ekki alveg með landafræðina á hreinu !!

Húsaleit
Við ætlum að halda áfram að kíkja á hús um helgina - setjast inná fasteignasölur í Blackheath og trufla sölumennina ... verst hvað steypan er dýr hérna !

Plön
Það styttist í að tengdó komi í heimsókn og er Inga Huld farin að bíða með óþreyjusemi eftir páskaeggjunum sínum ... byrjað er að plana mikið í kringum heimsóknina og er ég kominn með tvo miða á Chelsea-Middlesboro og síðan á að reyna að keyra til Frakklands. Mikið fjör áætlað í kringum páskana.

föstudagur, mars 05, 2004

Bleikt er uppáhaldið

Við sögðum Ingu Huld að amma og afi sem koma í heimsókn um páskana myndu koma með indælis íslenskt páskaegg með sér. Leist henni vel á það og vildi fá bleikt páskaegg ... vorum við nú ekki alveg viss um að hægt væri að fá bleikt páskaegg heldur væri lítill gulur ungi ofan á súkkulaðiegginu. Hún hugsaði sig aðeins um og sagði þá að hún vildi hafa ungan bleikan. Einnig vildi hún fá bleika ballerínubarbídúkku og fannst það mjög spennandi - ekki veit ég hvaðan hún fær þessar hugmyndir !! ... en hún sver sig allavega í ættina til hennar Evu bleiku.

Amsterdam

Ég eyddi deginum í dag í Amsterdam - bleika ballerínubarbídúkkan átti einmitt að vera keypt þar fyrir Ingu - fór í morgun með Fokker 50 frá City Airport og kom heim um kvöldmatarleytið, minnti dáldið á það að fara til Akureyrar með Flugleiðum !! (btw, sorry Börkur að ég skildi ekki hafa tíma til að heimsækja þig ...) Fékk þó smá rúnt um Amsterdam þar sem að yfirmaður minn valdi vitlausa lest fyrir okkur og fórum við í miðbæ Amsterdam frá Schiphol í staðinn fyrir að fara í Suðurhlutann þar sem höfuðstöðvar ABN eru staðsettar. Þegar við vorum búnir að vera um 10 mín í lestinni þá fór hann að blóta og ragna og sagði að við ættum að vera komnir á leiðarenda og sagði að við værum í vitlausri lest. Ég hafði einmitt upplýst hann um það á flugvellinum að ég rataði ekkert þarna um það væru ca. 15 ár síðan ég hefði verið þarna og að ég elti hann bara - "Trust me" sagði hann þá !!! En sem sagt þá tókum við leigubíl úr miðbænum til ABN þannig að ég fékk smá rúnt um bæinn.

Afslöppun

Róleg afslöppunarhelgi framundan ... ætlum voða lítið að gera ... nema kannski að skoða okkur um í hverfinu þar sem við þurfum líklega að flytja í september ...

mánudagur, mars 01, 2004

Helgarferð til London
Notuðum laugardaginn til að túristast í London - tókum lestina í bæinn og röltum um Oxford stræti og versluðum föt á Ingu Huld og annað skemmtilegt. Fengum okkur samloku á Garfunkels í hádeginu og höfðum það gott. Um kvöldið fór ég síðan að hitta stráka úr ISMA á hinum frábæra argentíska steikhúsi Gaucho Grill - alveg súper gott ... klikkar ekki.

Á sunnudeginum fórum við aftur í bæinn en í þetta skiptið á bílnum - gleymdum kortinu heima en tókst þó að rata um svæðið - keyrðum á Tottenham Court Road og skoðuðum okkur um í búðunum þar og kaffihúsunum. Inga Huld fékk rosalega súkkulaðiköku með vanilluís sem hún hafði lítið fyrir að sporðrenna ofan í sig.

Cannibal
Einstaklega áhugaverður þáttur í sjónvarpinu um Þjóðverja sem að auglýsti á netinu eftir manni sem vildi láta éta sig. Svo ótrúlega vildi til að hann fékk svar við auglýsingu sinni og var þar kominn maður sem átti sér þann draum að vera drepinn og étinn !! Tveimur árum eftir þetta sem var núna í haust komst upp um málið og maðurinn handtekinn. Olli þetta erfiðleikum í dómsal þar sem deilt var um hvort morð hefði verið að ræða eða ... hvort það sé ólöglegt að láta viljandi drepa sig og éta !! Mjög skemmtileg og áhugaverð siðferðisleg spurning.