Narnia bíómyndin í gær var skemmtileg og dáldið "scary" á köflum þannig að það þurfti að fela sig ... en þrátt fyrir rúma tveggja tíma mynd þá hélst athyglin bara vel.
Í dag er síðasti jólafrídagurinn okkar - nefnilega dáldið sniðugt hjá bretanum að ef að lögbundinn frídagur lendir á helgi þá færist hann á næsta virka dag ... þannig að í rauninni var jóladagsfrídagurinn í dag!! Það var meira að segja dáldið jólalegt þar sem að það snjóaði eilítið og fannst Ingu Huld það gaman. Við skelltum okkur í góðan bíltúr - eftir að hafa fengið okkur heitt súkkulaði, smákökur og jólaköku í hádeginu þá var lagt í hann og byrjað á því að fara í Skandium þar sem við versluðum okkur hnífapör sem var í rauninni jólagjöf frá foreldrum okkar. Þar gátum við líka verslað Georg Jensen jólaskraut á góðum útsöluafslætti. Síðan var haldið í Selfridges ... þar var allt pakkað af fólki og greinilegt að þessir fáeinu frídagar þar sem fólk gat ekki farið útí búð höfðu leikið það grátt ... útsalan hafði samt byrjað í gær þannig að við vorumí rauninni alltof sein. För okkar var heitið í matardeildina þar sem við versluðum áramótasteikina - keyptur var dádýrahryggur. Fyrsti kjötsalinn sem talaði við okkur í borðinu virtist ekki vita mikið - þegar ég spurði hann hvort hann ætti ekki til hreindýrakjöt þá spurði hann tilbaka hvaða kjöt það væri ... mér fannst einsog þessi myndi ekki hafa mikið vit á kjöti svona yfirleitt ... hinn kjötsalinn útskýrði þá fyrir honum hvort hann vissi hvaða dýr það væru sem sögð eru draga sleða jólasveinsins og þá kveikti hann á perunni ... afskaplega skemmtilegar samræður. Allavega þegar við vorum búin að skoða allar nautasteikurnar þá ákváðum við að spjalla aftur við þá um dádýrakjötið ... við lentum þá sem betur ekki á þessum sem við hittum fyrst og var þessi mun betri, allavega seldi hann okkur hrygginn, snyrti hann, gaf okkur afslátt og hélt síðan heillanga ræðu um það hvernig væri best fyrir okkur að geyma hann, marinera hann og að lokum hvernig ætti að elda hann ... hann var alveg ágætur en aðrir sem biðu eftir þjónustu við kjötborðið voru orðnir vonlitlir að eiga nokkra von á að fá nokkra afgreiðslu ef maðurinn héldi þessu blaðri áfram!! Eftir að hafa vafrað síðan um í fólkskösinni þá héldum við heim á leið þar sem jóladagsmaturinn beið eftir okkur - heit sveppasúpa, hangiket, frómas og ís ... það fer nú samt að verða tími til kominn að ljúka því að eta þennan jólamat ...
cheers
þriðjudagur, desember 27, 2005
mánudagur, desember 26, 2005
Fengum góða gesti í jóladagsmat í gær - Gísli, Halldóra og Loki komu og þáðu hjá okkur sveppasúpu, hangikjöt með uppstúf og grænum ora baunum og ananasfrómas í desert ... alveg að hætti fjölskyldunnar hennar Jóu. Eftir allar þessar íslensku jólakræsingar var nánast ekkert pláss fyrir smákökurnar með kaffinu!! Loki var ekki lengi að slátra jólagjöfinni sem við gáfum honum og greinilegt veiðieðli í honum - næst þarf að fá rammgerðara dót !
Ég og Inga Huld erum nú bráðlega að fara í miklar framkvæmdir að stækka við Playmo húsið - búið er að fá byggingarleyfi fyrir nýrri álmu og á bara eftir að koma framkvæmdunum í gang. Annars er planið að viðra sig aðeins í dag og fara svo í bíó að sjá The Chronicles of Narnia - Ingu Huld langar mikið að sjá þá mynd og er alveg tilbúin þó það séu einhverjir "scary" hlutar í myndinni, þá ætlar hún bara að loka augunum og fela sig á bakvið popppokann.
cheers
sunnudagur, desember 25, 2005
GLEÐILEG JÓL
Hér var aðfangadagskvöld með íslenskum brag ... rækjukokteill, hamborgarahryggur og tobleroneís ... síðan voru pakkarnir að sjálfsögðu teknir upp og voru sumir spenntari en aðrir. Mest allt undir jólatrénu var til Ingu Huldar en einn og einn pakki leyndist inná milli til mín eða Jóu - Inga Huld var rosa ánægð með alla pakkana og í morgun var hún alveg rugluð að hún átti í mestu vandræðum með að ákveða sig á hverju hún ætti að byrja á að leika sér. Ég er búinn að fá að setja saman dáldið af Playmo en við eigum eftir að setja upp viðbygginguna á Playmo húsið.
Hápunktur kvöldsins var líklega Kitchen Aid hrærivélin frá mér og Ingu Huld til mömmu ... okkur fannst ómögulegt að ekki væri hægt að baka hér neinar kökur eftir að hin hrærivélin skemmdist í hápunkti jólakökubakstursins ... Inga Huld var harðákveðin í því að bjarga þessu og féllst ekki á neitt annað en að versla Kitchen Aid hrærivél einsog mamma hennar hafði minnst á að vantaði nú. Þetta er gjöf sem kemur okkur öllum að góðum notum !!
cheers
föstudagur, desember 23, 2005
Nú styttist í jólin og sumir orðnir rosa spenntir !! Inga Huld fékk Playmo jólasvein á sleða með hreindýrum í skóinn í morgun og fannst henni það ekkert smá flott. Ég var í fríi í dag og gat því sofið aðeins út ... svona þangað til Inga Huld var farin að krefjast þess að ég myndi gefa henni að borða. Við fórum síðan á jólaball í vinnunni minni og var Inga Huld búin að bíða lengi eftir því af því að henni fannst svo gaman í fyrra. Núna var Peter Pan þema og fór hún með fairy vængina sína á bakinu. Ekki var ballið síðra í ár heldur en í fyrra og heilmikið lagt í þetta - leikararnir ættu líka að vera orðnir nokkuð vanir þar sem þetta var þriðji dagurinn í röð sem ballið var !! ... nóg af börnum í ABN. Það var í rauninni dáldið sniðugt að hafa Peter Pan þar sem auðvelt er að höfða til stráka með sjóræningjunum og síðan til stelpnanna með álfunum.
cheers
miðvikudagur, desember 21, 2005
Við nýttum okkur barnapíuna í gærkvöldi og skelltum okkur í (mið)bæinn eftir vinnu. Stefnan var tekin á það að spóka sig og sjá aðra ásamt því að versla jólagjöfina fyrir Ingu Huld. Vinnan hjá Jóu fór í jólalunch sem hófst á skrifstofunni kl. 12.30 með kampavíni og stóð svo yfir frá kl. 13.00 til kl. 18.30 ... ja, allavega hjá Jóu sem yfirgaf þá liðið sem var þá búið að vera í miklu stuði (e. binch drinking) frá kl. 14.00 ... sem sagt ekki mikil vinna eftir hádegi hjá sumum. Í bænum var allavega nóg af fólki og eftir að hafa fundið jólagjöfina þá héldum við á Cocoon sem er neðst á Regent stræti og létum á það reyna að fá borð þar - okkur var boðið að setjast þar á Sushi barinn og létum við til leiðast með því skilyrði að við þyrftum ekki endilega að borða Sushi þar og var það allt í þessu fína. Okkur fannst maturinn fínn en ég hafði smá reynslu þar sem ég hafði komið þarna áður í jólakvöldmat með mínu vinnuliði nokkrum vikum áður.
cheers
mánudagur, desember 19, 2005
Við skelltum okkur í innkaupaleiðangur í Bluewater í gær - í rauninni var ekki mikið á innkaupalistanum en það endaði bara með því að við gátum verslað bara allnokkuð. Stundum er betra að fara bara með því hugarfari að kaupa ekkert sérstakt, þá sér maður það sem maður hefur alltaf verið að leita að. Allavega komum við í veg fyrir að nokkur færi í jólaköttinn hér á bæ þar sem allir fengu eitthvað nýtt fatakyns til að vera í um jólin. Þegar heim var komið vorum við með heitt súkkulaði (Ingu Huld finnst alltaf jafn skrítið að drekka heitt súkkulaði ...) og smákökur og jólakökur með ... það er alveg greinilegt að kílóin tínast ekki um þessi jólin ... enda eru nú jólin ekki ætluð til þess að vera í neinni megrun !!
cheers
laugardagur, desember 17, 2005
Fengum jólatréið í dag í Blackheath - það var greinilega hægt að treysta á þá !! Einhver var að dröslast með þetta líka fína tré í gegnum búðina og Jóa sagði mér að þessi hefði fengið flott tré hér ... maðurinn tilkynnti okkur þá að hann væri að fara með restina af öllum trjánum framfyrir þar sem allt væri að verða búið og gat hann selt okkur tréið sem hann hélt á. Það passaði okkur vel og allir voru voðalega ánægðir ... og toppurinn á trénu rétt svo komst inn fyrir skottlokið á runóinum.
Heima bökuðu skvísurnar svo þrjár tegundir af marsipankökum ... í rauninni var bakað alveg þangað til að hrærivélin gaf upp öndina og harðneitaði þessu bölvaða puði!! Þar með var henni hent í ruslið og ekki fleiri smákökur fyrir þessi jólin .. ;( ... en við gátum þó komið saman piparkökum þar sem að ekki þarf að hræra þær - við látum því bara 4 sortir duga fyrir þessi jólin og síðan náttúrulega jólaköku, jólastollen, mince pie og yulelog úr Sainsbury til að bæta í götin.
Það finnst líka alveg að jólin eru að koma - við fengum nefnilega heimsendan beint frá Danmörku (með smá viðkomu í Leeds þó) um síðustu helgi 1 kassa af þessum líka eðalfína JuleTuborg - hvað þarf maður annað til að komast í jólaskap ??
cheers
föstudagur, desember 16, 2005
Hættum bæði snemma í vinnunni í dag og tókum lest til Blackheath þar sem að jólaskólaleikrit Ingu Huldar var í dag - Rock the Baby - dáldið poppaður jólasöngleikur. Var þetta bara mjög fínt hjá stelpunum og fannst Ingu Huld þetta skemmtilegt. Á eftir var síðan boðið uppá verst útlítandi mince pie sem ég hef augum litið og rámaði eitthvað í það að ég hefði líklega smakkað þetta í fyrra og ekki fundist gott ... héldum við okkur því frá veitingunum í þetta skiptið.
Á leiðinni heim keyptum við svo köku í bakaríinu í tilefni dagsins. Síðan hófst leiðangur í leit að jólatré - við byrjuðum að sjálfsögðu í Sainsbury en ég er ekki alveg viss um hvaðan þeir fengu jólatréin þetta árið ... þau voru öll rammskökk eða gisin eða illa vaxin og sum meira að segja sitt lítið af öllu þessu og önnur mjög mikið af þessu öllu saman ... sem sagt ekki glæsilegt samansafn jólatrjáa. Þá var haldið í B&Q en þar var allt uppselt !! Við virðumst því vera í seinni kantinum þetta árið ... ákvörðum var því tekin um að geyma þessi kaup í einn dag í viðbót. Það voru nefnilega 3 jólatrésölur í Blackheath höfðum við séð, ein í garðabúðinni, önnur í blómabúðinni og þriðja í grænmetisbúðinni ... reynum þessar á morgun og treystum á Blackheath-kaupmennina.
cheers
fimmtudagur, desember 15, 2005
Það eru bara komnar auglýsingar hér á vinstri hliðina á síðunni ... bara gaman af því ... alltaf gaman að kíkja á þær !!
Ingu Huld finnst jóladagatalið sem við keyptum núna mjög skemmtilegt - þetta var sem sagt Playmobil advent calendar. Með því fylgdi pappahús og síðan er búið að vera bætast inní það einsog aðventukrans, arinn, borðstofuborð, krakkar, jólatré, pakkar o.s.frv ... síðan var jólasveinninn líka svo sniðugur að gefa Playmopakka í skóinn í nótt og var það karl með sláttuvél. Það var kannski ekki viðeigandi við árstímann en henni fannst hann rosaflottur og þeyttist hann hér um stofugólfin með sláttuvélina í morgun alveg á fullu !!
cheers
miðvikudagur, desember 14, 2005
Jóa fékk sér loksins bankareikning hér í London! Ástæðan er sú að þann 1. Desember fékk hún sem sagt sínu fyrstu útborgun hér og var það greitt í tékka ... við fórum semsagt með það í bankann og báðum um að andvirði tékkanns yrði lagt inná minn bankareikning þar sem við erum með allt sameiginlegt á honum (við erum svo samrýmd!!). En okkur var tjáð það að það væri sko ekki hægt!! Það er sem sagt ekki hægt að biðja um það að andvirði tékka sé lagt inná annarra manna bankareikning ... það er bara alveg ómögulegt algjörlega gagnstætt öllum reglum. Ég var nú ekki alveg að skilja þetta en það þýddi lítið að þræta og varð Jóa sem sagt að opna sinn eigin bankareikning svo hún gæti nú notað peningana sína eitthvað ... mig grunar að hún eigi eftir að kaupa jólagjöfina mína þannig að það er nú gott að þetta er komið í gegn.
mánudagur, desember 12, 2005
Í gær var jólaball Íslendingafélagsins í sænsku kirkjunni - þar var allt pakkað af fólki og alltof lítið pláss ... þetta var ekta íslenskt ... allt í kaos. Við skildum við gestina okkar á meðan í Harrods og töldum við að þeim mundi ekki leiðast þar. Á jólaballinu skemmti Inga Huld sér konunglega og hitti þar vinkonur sínar Söndru og Unni. Jólasveinar komu með íslenskt jólasveinanammi og svo var gengið í kringum jólatréð eftir að hafa gætt sér á hlaðborði af kökum og öðru gúmmulaði. Inga Huld var rosaánægð þegar sungið var "jólasveinar, einn og átta" enda er það eitt af fáum íslenskum jólalögum sem hún kann og tók hún vel undir þá. Annars var hún ekki alveg með á nótunum þegar það þurfti að vera að skúra og strauja, prjóna og taka í nefið og allt þetta ... en samt fannst henni þetta mjög skemmtilegt.
Við hittum síðan liðið aftur á Pizza Express hjá Charing X, eftir smá bið þó þar sem sumir villtust í sínum verslunarleiðangri. Þar átti að gæða sér á "bestu" pizzunum en okkur til mikilla vonbrigða fengu gestirnir sér pasta og salat !! misstu þeir þar af miklu. Síðan tókst mér að koma út loksins dáldlu af jólaglöggi ... hef beðið lengi eftir því að smakka á jólaglögginu úr Sainsbury´s en hef ekki kunnað við það að vera að dreypa á þessu aleinn. Eftir síðustu jól endaði ég á því að henda flöskunni einhvern tímann um vorið eftir að ég sá fram á það að ég mundi ekki opna hana úr þessu. Ég var þó staðfastur að einhver mundi þiggja boð mitt þessi jólin og smakkaðist þetta líka alveg stórvel ... við bragðbættum þó aðeins með rúsínum og möndlum og gerði það náttúrulega gæfumuninn en ég átti ekki púrtvínsslettu útí einsog mælt var með þar sem gestirnir kláruðu þá flösku kvöldið áður!
cheers
laugardagur, desember 10, 2005
Þegar ég kom heim frá Amsterdam á föstudagskvöldið voru mættir hér gestir. Elín og Palli áttu hér leið hjá með Evu á leið frá Leeds til Óðinsvéa og var tekið stopp í London í nokkra daga. Fórum í bæinn í dag að skoða jólastemmninguna í London - byrjuðum á steikarsamloku á London Borough Market sem bara klikkar ekki! Núna var prófað að fá sér kalkúna með fyllingu, sultu og salati í wrap ... sem sagt bara jólamáltíðin og var alveg meiriháttar gott ... og síðan að sjálfsögðu á súkkulaðibarinn þar sem við erum í hollustunni og kaupum okkur þurrkaða ávexti ... hjúpaða í smávegis súkkulaði ... hmmm. Í kaffinu var farið á Fornum & Mason og skonsurnar þar prófaðar ... sumir drukku kaffi og aðrir hvítvín í kaffinu ... allavega mjög gott. Við ætluðum síðan að feta í fótspor Stebba sem var hér síðast og fara í margfræga búð The Northface ... en þrátt fyrir að þetta hafi verið takmark dagsins þá náðist ekki þangað fyrir lokun og komum við 7 mínútum of seint ... var það rakið til of langrar dvalar á bar einum í Covent Garden ... það þarf því að reyna aftur á morgun á leiðinni á jólaballið sem Inga Huld er á leiðinni á hjá Íslendingafélaginu.
mánudagur, desember 05, 2005
Inga Huld vaknaði í morgun kl korter í sjö þegar ég var á leiðinni í sturtu - hún kíkti út um gluggann og sagði mér síðan að það væri ennþá myrkur úti og ég ætti að fara aftur að sofa! Þetta eru sömu rökin nefnilega og við notum þegar hún vaknar fyrir allar aldir um helgar og er tilbúin að fara að horfa á teiknimyndir - við reynum þó að láta hana allavega sofa til kl 8 þannig að hún fái góðan svefn líka um helgar. Hún var voðalega ánægð núna að segja mér "knock knock" brandara - hann er sem sagt þannig:
Inga: knock, knock
Ég: Who is it?
Inga: It is Mary!
Ég: Mary who?
Inga: Merry Christmas !!!
Trixið er nefnilega það að Merry og Mary er sagt alveg eins ... þetta finnst henni mjög sniðugt.
cheers
sunnudagur, desember 04, 2005
Stebbi og Gulla fóru frá okkur á mánudeginum og sama dag fór ég í ferð á meginlandið. Jóa og Inga Huld voru því aleinar eftir í tvær nætur - mikil breyting það. Þessi helgi fór í að koma Ingu Huld í sósíal lífið sitt þar sem hún fór í afmæli í gær og svo var íslenskuskólinn í dag. Við notuðum tækifærið (aftur) og fórum í Harrods en sáum ekkert þar sem okkur langaði í ... fundum loks jólaföt á Ingu Huld í búð þar nærliggjandi, Ingu Huld fannst hann bara flottur þrátt fyrir að hann væri ekki bleikur.
Í gær var kveikt á jólaljósunum í Blackheath og fer það að verða árlegur viðburður að þar erum við á svæðinu. Elvis Presley tók lagið og hélt uppi fjörinu !! Við fórum síðan á indverskan á eftir og bragðaðist það líka bara ljómandi vel ... Inga Huld fékk kveðjugjöf frá einum þjóninum ... 1 líter af eplasafa ... fannst henni það dáldið merkilegt.
Við skelltum líka upp smávegis jólaskrauti og jólaljósum í garðinn og bökuðum smákökur ... það er merkilegt með bretann núna að maður er farinn að "spotta" jólatré með öllu tilheyrandi skrauti í stofunni hjá fólki - ætli fólk hugsi með sér að það þurfi nú að fara að skreyta og best sé þá bara að byrja á jólatrénu ...
Spelling testin hennar Ingu Huldar eru að verða erfiðari - núna var listinn, band, hand, sand, land, and, best, test, rest, vest, west og núna voru ellefu orð og það síðasta var because, dáldið snúið! Einnig er snúið fyrir okkur að bera fram vest og west þannig að það heyrist munur á.
cheers