föstudagur, október 31, 2008

Á hverju hausti er mikil pæling hvað á að vera fyrir Halloween. Inga Huld hafði ákveðið fyrir löngu síðan að vera Hannah Montana sem er í uppáhaldi núna. Farið var með búningana í skólann og í lok dags var skipt og haldið í Halloween skrúðgöngu skólans sem allir nemendur tóku þátt í.


Ég hitti svo stelpurnar hjá Bryant Park eftir vinnu og við röltum upp 5th Avenue þar sem við gátum trick or treat´að smá súkkulaði áður en við fórum á Jekyll and Hyde Restaurant sem var vel við hæfi á Halloween.

Jekyll & Hyde Club (6th Avenue á milli 57th & 58th St)

Þemastaður sem byggir á sögu Jekyll and Hyde og gerir það vel. Staðurinn er draugalegur með mikið af alls konar drasli uppi á veggjum og ganga leikarar um og hrekkja fólk og eru með ýmsar uppákomur og fíflalæti. Allt er stórfínt þangað til kemur að matnum ... hann er alveg skelfilega vondur og furðulegt að þeir geti ekki einu sinni eldað almennilega hamborgara og franskar. Óþarfi að koma hingað tvisvar. Ein stjarna.

laugardagur, október 25, 2008

Þetta árið var ákveðið að vera eins og hver annar Ameríkani og skyldi kaupa grasker fyrir Halloween. Við fórum því á Farmers market í morgun á Union Square til að kaupa stórt og fallegt grasker. Nú er tíminn fyrir squash og annað furðulegt grænmeti sem kemur frá bændum í nágrenni New York borgar.



Við fundum okkur sæmilega stórt grasker sem okkur leist vel á. Fundum okkur leiðbeiningar í graskersútskurði til að gera ekki bara einhverja vitleysu. Fyrst þurfti að opna það á toppnum með því að skera lok af og hreinsa út steina og annað gums. Síðan átti að taka kjöt innan úr því þangað til það var orðið um 1,5-2 cm þykkt.

Þá var hægt að skera út mynd.


Okkur fannst hann bara dáldið flottur og prýðir hann nú heiðurssess í stofunni okkar !!


Kjötið innan úr var síðan notað í ljúffenga graskerssúpu ...

fimmtudagur, október 23, 2008

Craft (19th á milli Broadway & Park)

Flottur staður hér í nágrenninu sem býður uppá góðan amerískan mat ásamt góðum amerískum vínum. Tasting listinn leit mjög vel út en lagði ekki í hann núna. Réttirnir eru bornir fram með það í huga að deila þeim og virkar það vel og gerir stemninguna skemmtilega. Fjórar stjörnur.

þriðjudagur, október 21, 2008

Það var mikil veisla í kvöld í tilefni dagsins þegar ég kom heim! Grillaðar íslenskar lambakótilettur (alltaf að styrkja Ísland!) ásamt tómötum fylltum með kúrbít, argúrkum og papriku ... í eftirrétt var síðan marengsterta með döðlum, bönunum, súkkulaði og rjóma ... nammi namm ...

sunnudagur, október 19, 2008

Við tókum á menningunni þessa helgi og fórum í gær á San Fransisco ballettinn undir stjórn Helga Tómassonar í New York City Center. Inga Huld kom með og fannst fínt að ballettinn voru þrír dansar sem voru ca 35 mínútur og 10-15 mínútna hlé á milli þannig að það var hægt að standa upp og slaka á. Sýningin var rosalega flott og skemmtileg og var mikið klappað og hrópað í lokin. Við fórum síðan í afternoon tea á The London þar sem Gordon Ramsey býður uppá eftirmiðdagskaffi að breskum stíl sem borið er fram á þremur hæðum með samlokum, skonsum og kökum. Mjög gott og saðsamt og þurfti því engan kvöldmat eftir þessa veislu.

Í dag slöppuðum við af og fórum í Soho að hanga ... fengum okkur hádegismat á Le Pain og dunduðum okkur aðeins í búðunum áður en við gengum upp í Whole Foods á Union Square og svo heim. Grilluðum hamborgara í matinn ... það var næstum því of kalt til að grilla úti núna þar sem hitastigið er að detta niður fyrir tíu gráður en maður lætur sig hafa það.

mánudagur, október 13, 2008

Vöknuðum í morgun með suð í eyrunum eftir að hafa skemmt okkur konunglega á tónleikum með Madonnu. Hin fimmtuga Madonna dansaði og söng af miklum krafti og innlifun og hreif flestalla af fimmtíuþúsund áhorfendum með sér sem stóðu og dönsuðu og sungu með ...

sunnudagur, október 12, 2008

Sushisamba (Park Avenue á milli 19th and 20th)

Hér er boðið uppá brasilískt-perú-japanskt fusion sem kom bara mjög vel út. Mjög áhugaverð blanda af mat sem hægt er að deila saman í ágætis umhverfi og skemmtilegri tónlist. Við höfum reyndar fengið betri sushirúllur en við sáum aðrar bornar fram sem litu girnilegar út en þær sem við fengum. Fínn staður til að fara á þegar stemmingin á að vera góð. Gef honum þrjár og hálfa stjörnu.

Það er löng helgi núna þar sem Columbus Day er á mánudaginn. Inga Huld er búin að vera í fríi fimmtudag og föstudag og ég var kominn heim um klukkan fjögur á föstudaginn og svo er mánudagurinn frí. Stelpurnar voru búnar að plana góðan mat fyrir helgina.


Á föstudaginn höfðum við íslenska lambalærið og var gerð ný uppskrift sem búið var að benda Jóu á þegar við vorum á Íslandi í sumar. Það er uppskrift frá Jamie sjálfum Oliver sem sker skurð meðfram beininu og fyllir þar með rósmarín og öðrum góðum kryddum, síðan er krydd og olía sett í skurði sem skorin eru í lærið og að lokum eru stórir rósmarínstönglar bundnir utan um lærið. Þetta heppnaðist mjög vel og bragðaðist lærið mjög vel og var alveg passlega eldað líka. Meðlæti voru kartöfluskífur í ofni og gulrótarmús sem var algjört nammi. Í desert var jógúrtís sem Inga Huld hjálpaði mömmu sinni að gera og var með marshmallows og súkkulaðismákökum í.

Í gær settum við saman hillur sem við keyptum fyrir Ingu Huld og er þá alveg búið að skipta út og endurhanna herbergið hennar. Kemur rosa vel út og er miklu léttara og rúmbetra heldur en það sem hún hefur haft. Við fórum síðan í Chinatown til að kaupa rækjur, hörpudisk og fisk hjá kínversku fisksölunum ... það er gott veður þessa helgina og hefur hlýnað aftur hjá okkur og var því gott og gaman að fara í göngutúr í Chinatown og Little Italy. Kvöldmaturinn var mikil tilraunastarfsemi og átti í raun að elda hann um síðustu helgi en þá kom í ljós að ómögulegt væri að elda hann nema á sértilgerðri pönnu sem var þá pöntuð. Nú var pannan komin og var því hægt að matreiða Paellu að uppskrift Mario Batelli sem leggur mikla áherslu að hræra alls ekki í henni og elda hana aðeins lengur en þú heldur að þurfi. Útkoman hjá okkur var algjört nammi og sem betur fer var pannan stór þannig að það er til afgangur!! Í desert var svo lystilega gott Tiramisu ...


Eftir að hafa gert vel við okkur í mat um helgina var kominn tími á hreyfingu og fengum við okkur góðan göngutúr í dag með Ingu Huld á scooternum meðfram Eystri ánni. Svo skal haldið á Sweet and Sticky tónleika Madonnu og er búið að hita upp með Madonnu músík nú í nokkra daga til að hita upp ...

sunnudagur, október 05, 2008

Tókum því að mestu rólega um helgina ... gott að ná aðeins andanum eftir síðastliðnar vikur og geta sofið vel út og svoleiðis. Það var gerð tiltekt í herberginu hjá Ingu Huld þar sem hún er búin að fá nýtt og gott rúm og það er stefnt á nýjar hillur ...

Við lögðum okkar til í íslenskan gjaldeyri þegar við versluðum í Whole Foods í gær og versluðum skyr.is og íslenskt lambalæri!! Var ánægjulegt að sjá það komið í borðið og kostaði pundið (1 pund = 0.453 kíló) $7.99 ... ekki svo slæmt fyrir íslenska lambakjötsútflytjendur. Ætlum samt að geyma það til næstu helgi og keyptum Rib Eye í matinn sem var marinerað í paprikukryddi, muldum bleikum piparkornum og rauðvíni og síðan grillað í 4 mínútur á hvorri hlið ... ansi gott.

Annars er tekið að kólna hjá okkur og það er merkilegt að á nokkrum dögum hefur farið úr því að þurfa hafa kveikt á loftkælingunni í íbúðinni í það að nánast þurfa að setja hitarana í gang. Veðrið er þó enn gott og hangir á milli 14 og 18 gráðanna ...