Erum nú stödd í veldi Dana! Komum hingað á mánudeginum eftir 1230 km akstur - lögðum af stað á sunnudeginum eldsnemma um morguninn þar sem við áttum ferju kl. 9 yfir sundið. Brunuðum síðan beint til Dusseldorf þar sem við vorum mætt á svæðið um 5 leytið á þetta líka fína Renaissance hótel - mjög rólegt var á hótelinu og varla nokkur önnur sála að flækjast þar. Borðuðum kvöldmat í 180 metra hæð í turni sem gnæfði yfir borginni - útsýnið var þó ekki sem best þar sem mikil þoka var yfir borginni og sást ekki einu sinni í toppinn á turninum þegar staðið var fyrir neðan. Merkilegt var að þegar við komum á svæðið og ég tjáði manninum í afgreiðslunni niðri að við værum að fara á veitingastaðinn uppi, þá rukkaði hann okkur um 6 evrur pr mann fyrir það að taka lyftuna upp ... fannst mér það skrítið og spurði hvort miðinn gilti upp og niður ... komst þá að því að miðinn gilti upp en frítt væri að fara niður ... ekki fannst mér það mjög traustvekjandi og spáði í því hvort að það þyrfti þá að fara einhverja aðra leið en lyftuna niður ...
Við þeystum síðan á mánudeginum um hraðbrautir Þýskalands til hennar Evu í Odense - stoppuðum lítillega til að fá okkur kaffi og teygja úr okkur en helsta stoppið var á grensunni margfrægu. Fórum þar í Citti til að fylla á vínskápinn hennar Evu og skoða okkur um þennan margumtalaða stað. Þegar komið var til Danmerkur var meiri þoka og hitastigið komið niður fyrir frostmark - gekk því umferðin aðeins hægar fyrir vikið en við mættum á svæðið til Evu um kl. 19.45 ... og var þá tekið á móti okkur með jólabjórsmökkun og var byrjað á einum 7% sem rann vel niður eftir þreytandi aksturinn. Í matinn var síðan þessi líka fína svínapörusteik fyllt að hætti Jamie Olivers ... alveg svaðalega gott. Drukkum einnig dáldið meira af jólabjór, Tuborg og Fisherman ...
Inga Huld var nú bara nokkuð góð í bílnum þó ferðin hafi verið þreytandi - hún hlustaði á vasadiskóið sitt, las bækur og lék sér með dúkkur - við reyndum síðan að spila fyrir hana prúðuleikara DVD í fartölvunni en batteríið er orðið slappt og dugði bara í 40 mínútur en ætti að duga í 2 klukkutíma.
Þriðjudagurinn var notaður til að skoða miðbæ Odense - kom á óvart hversu fínn og flottur bærinn er ... minnti dáldið á Ísland þar sem allt er voðalega afslappað og rólegt hérna. Eva þrammaði með okkur í helstu búðir og sýndi okkur merkustu staðina og hlutina.
Í gær, miðvikudag, var síðan stefnan tekin til Kóngsins Köben í lestinni - danska veðrið var nú ekki uppá marga fiska þar sem kalt var og þoka ... okkur tókst þó að skoða okkur um í borginni og byrjuðum á smörrebröd í Nyhavn - ekki amalegt það. Gott var að hafa Evu þar sem hún dró okkur um svæðið og rataði allt einsog herforingi. Strikið var síðan arkað og danskt jólaskraut og Georg Jensen verslað - Inga Huld var líka heppin þar sem að það var 50% afsláttur í Lego-fatabúðinni og var hún dressuð upp.
Í dag er svo farið að rigna þannig að snjórinn sem kom á þriðjudagskvöldið er farinn ... Ingu ekki til mikillar skemmtunar ... við byrjuðum daginn á dönsku bakkelsi, sem er töluvert betra en það breska, og ætlum svo í bíltúr um Fjón um eftirmiðdaginn. Síðan þarf að versla rakettur og bombur fyrir gamlárskvöld - búið er að skanna markaðinn lítillega og er verðið hagstætt. T.d. er hægt að kaupa 9 stórar rakettubombur í pakka fyrir 100 dkr ... þannig að það þarf að versla dáldið ... Við verðum í gamlárskvöldmat hjá foreldrum Evu, Elínu og Palla, sem búa hér í Odense þannig áramótin verða íslensk.
Annars mikið um að vera og tíminn fljótur að líða - þurfum bráðlega að gera okkur klár fyrir heimferðarakstur þann 1. janúar 2005 !!
fimmtudagur, desember 30, 2004
laugardagur, desember 25, 2004
Ingu Huld fannst nú jólaballið í bankanum skrítið jólaball - enda var voða lítið jólalegt við það ef frá eru taldir tveir jólasveinar sem voru inní tveimur skógarkofum. Þrátt fyrir það þá var þrusufjör - það var sem sagt Jungle Book þema og voru apar, bangsar, fíll, býflugur, snákur og síðan Mowgli vafrandi um svæðið og léku síðan söguna uppá sviði. Inga Huld fékk þetta líka fína "pink tiger" andlit málað á sig og var það í stíl við fötin sem voru að sjálfsögðu bleik ... Þegar hún var búin að leika sér í tækjunum, labba í gegnum skóginn, föndra, leira, fá sér nammi á nammibarnum og hlaupa um þá var hægt að fá sér að borða og var þá margt í boði - voru þeir með pizzur, hamborgara, núðlur, pulsur, chicken nuggets, fiski fingur, franskar kartöflur, samlokur og eitthvað fleira ásamt ís, ávöxtum, kökum og nammi sem hægt var að skola niður með hinum og þessum drykkjum einsog gosi, djús, smoothies, bjór, hvítvín eða rauðvín ... það var sem sagt alveg spurning um það eftir allt þetta hvort það þyrfti nokkuð að hafa kvöldmat! Okkur fannst nú samt mjög flottir tveir súkkulaðigosbrunnar - annar brunnurinn var venjulegt súkkulaði og hinn var hvítt súkkulaði með jarðaberjabragði - virkaði þetta sem sagt þannig að settur var sykurpúði eða ávextir á pinna og síðan gat maður stungið honum inní súkkulaðið þar sem það lak niður gosbrunninn og súkkulaðihjúpað hann ... ekki slæmt ...
Inga Huld var afskaplega ánægð með pakkana í gærkvöldi og fannst hún mikið heppin. Situr hún núna í stofunni og hlustar á vasadiskó með söguspólu í og leikur sér einnig að playmoinu sem hún fékk - núna sita playmokallarnir í stofunni sinni og horfa á sjónvarpið og voru þeir sem sagt að stíga upp úr rúminu sínu og búnir að snyrta sig og gera morgunverkin á klósettinu. Hún er einnig búin að pakka niður fyrir ferðalagið okkur öllu sem hún þarf í Baby Born ferðatöskuna sína. Áður en hún fór að sofa í gær þá var lesið fyrir hana í Fíu Sól bókinni sem er um 7 ára stelpu sem hefur bleikan sem sinn uppáhaldslit og er í stjörnumerkinu krabbanum - er reyndar búin að breyta um stjörnumerki og er í rósrauða fiðrildamerkinu (eða einhverju álíka). Hún fékk nú ýmislegt meira og var mikið pakkaflóð undir jólatrénu - bækur, föt, sokka og dúkku - ég held að það hafi nú bara ekkert vantað uppá, hún fékk nokkurn veginn allt sem hægt er að hugsa sér. Fékk reyndar ekki legókubba en fékk svo flottan legókubbakassa í skóinn frá jólasveininum um morguninn.
Dagurinn í dag verður tekinn rólega og þarf að fara að pakka fyrir Danmerkurferðina þar sem vakna þar eldsnemma í fyrramálið - ferjan fer kl. 9 og það þarf að mæta hálftíma fyrir brottför og það tekur a 1,5 til 2 klukkutíma að keyra á höfnina ... vonandi getum við uppfært bloggið á meðan Danmerkurdvöl stendur.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla
miðvikudagur, desember 22, 2004
Styttist óðum í jólin - ég er í jólafríi á aðfangadag og mæti ekki aftur í vinnu fyrr en fimmtudaginn 6. janúar. Við förum þó öll í vinnuna á aðfangadag þar sem að það er krakkajólaball og voða fjör. Það er búið að taka alla vikuna að setja upp svæðið á þriðju hæð bankans og er "Jungle Book" thema ... skilst mér ... ekki kannski alveg það allra jólalegasta, en samt eflaust mjög skemmtilegt fyrir Ingu Huld.
Inga Huld er farin að verða of skýr ... "jólasveinninn" gaf henni í skóinn um daginn kúlur sem hægt er að þræða uppá band svo úr verður hálsmen - þetta var sem sagt keypt í Tókýó og var með tilheyrandi japönskum stöfum utaná sem sagt. Þegar Inga kíkti í skóinn sinn (sem er nú oft um miðjar nætur) þá var eitt af því fyrst sem hún sagði "Jólasveinninn hefur keypt þetta í Tókýó" og tók sem sagt eftir merkjunum á umbúðunum, bætti síðan við "... silly jólasveinn". Annars var hún mest ánægð um daginn þegar hún fékk kassettu með jólalögum á sem vorum sungin af krökkum. Þetta dröslaðist hún síðan með í Fischer Price kassettutækinu sínu um allt hús í nokkra daga sér til mikillar skemmtunar en öðrum til minni skemmtunar. Ég var nú farinn að undrast hversu vel batteríin duga í þessu tæki hennar þar sem ekki hefur nú verið skipt um þau síðan hún fékk það fyrir mjög svo löngu síðan.
Bíllinn er kominn úr tímareimaskiptingu og búið er að gera við sprungna dekkið - ekkert reyndist vera að geislaspilaranum, veit ekki alveg hvað hefur verið málið með hann síðasta sumarið ... kannski of heitt ...
Annars virðist ekki vera mjög góð færðin síðustu dagan í norðanveðri Evrópu, hálka og snjór í Þýskalandi og sýnist okkur vera spáð rigningu og leiðindum. Um daginn var samt tilkynnt að það voru mjög háar líkur á því að við fengjum hér hvít jól - sem er gleðilegt en þó bagalegt þar sem ekki er gott að keyra mjög mikið á sumardekkjunum í snjónum, spurning hvort taka þurfi með naglana?!
BARA 2 DAGAR TIL JÓLA
föstudagur, desember 17, 2004
Stelpurnar komnar í jólafrí og búið að skreyta jólatréið!! Það vantar bara að elda hamborgarahrygginn (engar rjúpur ...) og setja pakkana undir tréið og við erum klár fyrir jólin. Ég var í fríi í gær (fimmtudag) og notuðum við Jóa tímann til að fara í bæinn að kíkja á jólastemmninguna og kaupa jólagjöf fyrir Ingu Huld, sem var í skólanum. Jólastemmningin var nú lítil - 10 stiga hiti, rigning og ekki sást í jólaskreytingar fyrir birtunni þar sem þetta voru að mestu jólaljósaskreytingar. Eina sem að minnti á jólin var lítil lúðrasveit Hjálpræðishersins sem spilaði jólalög og hristi peningabauka í undirtakti.
Jóa kynntist um daginn hjálpsemi bretanna þar sem það sprakk hjá henni á leiðinni í skólann. Þar sem stelpurnar tvær voru stopp hjálparvana úti í vegarkanti og Jóa að tala við mig kveinandi yfir því að það væri sprungið, þá var bankað á gluggann hjá henni og stóð þar maður sem bauð fram aðstoð sína. Eftir mikið streð við umskiptinguna (rærnar stóðu eitthvað á sér ...) var maðurinn drulluskítugur upp fyrir haus en hlaut mikið þakklæti í staðinn. Þeir klikka ekki bretarnir!! ... vinsamlegast minnist hans því í þakkarbænum jólanna.
Á sunnudaginn er svo planað að fara með bílinn á dekkjaverkstæði til að laga dekkið og hafa vetrardekkið í lagi - ætli það þurfi þá ekki að láta tékka á hinum 3 dekkjunum í leiðinni. Mánudaginn er svo búið að taka frá í tímareimaskiptingu þar sem það er víst komið á tíma samkvæmt leiðavísi bílsins - í leiðinni vonast ég til að þeir geti lagað geislaspilarann í bílnum sem gafst upp á því í sumar að spila geisladiska! ... það er nú kannski bara spurning um að fara að skipta um bíl ...?!
cheers
laugardagur, desember 11, 2004
Það var nú góður matur í gærkvöldi - ákváðum að hafa jólahlaðborð með öllu tilheyrandi. Reyndar ekki alveg öllu tilheyrandi þar sem að það mátti ekki opna maltið og appelsínið heldur á að geyma það nær jólum ... Við vorum annars með íslenska jólasíld, graflax (grafinn hér heima - við erum bara orðin nokkuð góð í því!), pate og jólaosta. Algjört nammi og mjög jólalegt. Fyrir kvöldmat ætlum við síðan að gera okkur ferð og kaupa jólatré og fá okkur hamborgara í kvöldmatinn. Jólatréið verður síðan sett upp um næstu helgi og skreytt - dáldið í fyrri kantinum á íslenskum mælikvarða en bretarnir eru mjög fljótir í þessu og sjáum við víða inn um stofugluggann skreytt jólatré. Þess vegna förum við dáldin milliveg að þessu.
Fengum skemmtilega sendingu um daginn. Þegar ég var á þriðjudeginum í leigubíl á leiðinni á Heathrow þar sem ég var að fara í flug til Amsterdam þá hringdi Jóa mjög spennt og spurði mig hvað ég hefði verið að panta þar sem það væri komin sending til mín. Ég tjáði henni að það væri nú bara leyndó (hafði ekki hugmynd um hvað þetta var) og þyrfti að geyma kassann þar til ég kæmi heim aftur á fimmtudagskvöldið frá Frankfurt. Ekki leist Jóu minni vel á það og fannst það frekar súrt - fékk hún á endanum að opna kassann og viti menn ... upp úr honum kom heilmikið af bóluplasti og að lokum fann hún pakkann og kort sem á stóð að þar sem við hefðum verið meðal 20 fyrstu til að bóka ferju og hótelgistingu í gegnum ferry.to þá hefðum við unnið þessa líka forláta kampavínsflösku !! Vorum ánægð með það þar sem þetta kom mjög á óvart og höfðum ekki hugmynd um að við værum að tilraunakeyra einhverjar bókanir í kerfinu þeirra og vonum því í framhaldi af þessu að hótelgistingin og ferjan sé allt skráð rétt.
Annars tókst Ingu Huld loks að smita mig og Jóu af kvefi og hósta og erum við því öll orðin lasin! Inga Huld er þó einna skást þar sem henni er tekið að batna ...
cheers
laugardagur, desember 04, 2004
Það er tekið að hlýna hér aftur eftir "kuldkastið" - hitinn fór alveg niður í 2 til 3 gráður og var barasta skítakuldi. Núna er komið yfir 10 gráðurnar þannig að þetta er að verða einsog íslenskt júníveður ...
Annars þá er svaðalegur hálsbólguvírus sem gengur hér laus og eru nánast allar stelpurnar í bekknum hennar Ingu hóstandi. Fór með Ingu til læknis í morgun til að láta kíkja á hana og gat hann mælt með einhverju róandi svo hún gæti sofnað - ekki bara svo að hún gæti sofnað heldur einnig svo við gætum sofnað! Það er bara um leið og hún leggst á koddann þá byrjar hóstakast sem stendur yfir langt fram yfir miðnætti. Við bíðum svo bara eftir því að smitast ... ætli við fáum þetta ekki rétt fyrir jólin ...
Jóa hlustar núna í tölvunni á Jólastjörnuna þar sem spiluð eru íslensk jólalög á hverri mínútu - alveg magnað hvað það eru til mörg léleg jólalög, enda eflaust fljótlegt að spila öll "góðu" íslensku jólalögin.
Með jólakveðju!
laugardagur, nóvember 27, 2004
Okkur tókst að kaupa síðustu jólagjöfina í dag ... við áttum gamla karlinn eftir, hann er dáldið erfiður ... en fundum loksins eftir miklar pælingar alveg rosa græju!
Við erum annars búin að borða svo góðan mat um helgina. Í gærkvöldi kom Atli vinur hans Kristjáns í heimsókn og var þá eldað rib-eye með góðri rauðvín, gulrótum og parsnips - klikkar aldrei. Áðan vorum við síðan með túnfisk - algjört nammigott ... verður notaður í staðinn fyrir skötuna á þorláksmessu!
Það er heldur betur búið að lappa uppá Sainsbury, hverfisverslunina okkar - þeir eru búnir að vera að stækka hana í ca 4 mánuði og síðan var hún lokuð í heila viku um daginn á meðan verið var að fylla á. Því var mikill spenningur þegar opnað var aftur og viti menn að þetta er bara allt önnur búð! Mun stærri og mikil tæknigræja í rúllubandinu sem liggur frá bílastæðinu í kjallaranum upp í búðina (og tilbaka aftur) - þegar kerran er keyrð inná bandið þá festist hún og getur maður því bara andað rólega (á báðum leiðum) og þarf ekki að drösla kerrunni áfram. Verst væri líklega ef maður væri á hraðferð og vildi hlaupa upp (eða niður) og er það þá ekki hægt þar sem að ekki er hægt að hagga kerrunni ...
... svona er nú lífið spennandi í London !!
Í dag þurfti einnig að versla englaföt á litla engilinn okkar þar sem hún á að leika í söngleik í næstu viku í skólanum sínum. Á hún þar að syngja ásamt öðrum í söngleiknum Hósanna Rokk ... er hún búin að vera að æfa sig öðru hverju hér heima og tekur miklar ballöður með tilheyrandi handa- og fótahreyfingum.
Annars allt gott að frétta og nóg að gera. Jólagjafirnar fara til Íslands á mánudaginn með honum Stjána þannig að allt er í góðum málum - sáum jólatré til sölu í dag í Sainsbury og vorum að spá í að versla eitt til að setja upp í stofunni ... það þarf nú að gera eitthvað við alla þessa jólapakka sem hafa hlaðist upp hérna hjá okkur eftir að hann Stjáni kom.
cheers
fimmtudagur, nóvember 25, 2004
Kristján mættur á svæðið galvaskur með 30 kíló af farangri. Hans eigið hafurtask vigtar eitthvað um 5 kíló ... og var því ekki glaður á svip þegar hann var búinn að drösla þessu öllu saman frá Heathrow. Restin af farangrinum eru sem sagt jólagjafir og íslenskur jólamatur! Ekki amalegt og greinilegt að fleiri eru snemma í jólagjöfunum þetta árið en við. En þetta var nú einmitt málið að núna getur Kristján dröslað aftur heim á klakann jólagjöfunum frá okkur ...
sunnudagur, nóvember 21, 2004
magnað ... kláruðum jólainnkaupin í dag - þ.e.a.s. að við hófum jólainnkaup í morgun kl. 11 og lukum þeim kl. 17 !! Síðan er innpökkun hálfnuð ... ástæðan fyrir þessum tíma á jólagjöfunum er sú að Kristján kemur og fer um næstu helgi og var ákveðið að hlaða á hann pökkunum. Líka mjög gott að vera búin að þessu og þá getum við snúið okkur að jólabakstrinum sem fyrst ...
mánudagur, nóvember 15, 2004
Vorum að ljúka við að bóka jólaferðina okkar; er hún með óvenjulegu sniði þetta árið þar sem á annan í jólum er ferðinni heitið á Runónum yfir Ermasundið til Frakklands þar leið liggur í gegnum Belgíu og Hollands til Dusseldorf og gist verður eina nótt á hóteli þar. Eldsnemma á þann þriðja er síðan leiðinni haldið áfram til Danmerkur og endað eftir ca 1217 kílómetra í Óðinsvéum hjá Ingibjörgu Evu.
miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Það er nú orðið töluvert síðan að stafur var settur inná þessu síðu! Loksins er internetið komið í gagnið og hefur það tekið sinn tíma - enda voru hér í dag tveir menn á sama tíma frá sitthvoru fyrirtækinu að tengja fyrir okkur breiðband, annar frá NTL og hinn frá BT - auðvitað gat það gerst að þegar loksins eitthvað gerðist að þá þyrftu fyrirtækin að senda menn á sama hálftímanum! En það er saga að segja frá þessu - löng og frekar leiðinleg ...
Annars allt í góðu hér, við náttúrulega flutt og er núna ca 30 sekúndum lengra að ganga í lestina. Inga Huld á fullu í skólanum að læra að lesa og skrifa, Jóhanna að læra að teikna og byggja og ég ... humm ... bara vinn ...
Látum þetta nægja í bili þar sem ekki má sjokkera systemið með skyndilegri ofskrifun.
cheers
fimmtudagur, ágúst 12, 2004
Þvílík sæla - hitastigið er komið niður fyrir 30 gráður ! Loksins þægilegt hitastig komið - þó það sé enn töluvert heitt í lestinni ... kom hellirigning um daginn sem frískaði töluvert upp á andrúmsloftið. Annars gengur ágætlega að mála og verður nú bara að nýta næstu helgi sem best þar sem ég er á heimleið til klakans eftir nákvæmlega 1 viku.
sunnudagur, ágúst 08, 2004
Allt á fullu hér við að mála nýja húsið ... ótrúlegt hvað hægt er að brenna miklu lýsi við það að mála - kannski það skipti máli þegar málað er í ca 32 stiga hita (þ.e. úti í skugga !!) !! Í svona hitastigi á helsta hreyfing manns að vera í og úr sundlauginni, á og af sólbekknum og á og af barnum til að kæla sig ... og svala þorstanum. En þegar verið er inni að mála inni í svona hitastigi, úff, það er alveg skelfilegt og ég myndi alveg vilja fá air condition græjuna sem er í bílnum inní húsið, já og kannski líka topplúguna til að það sé hægt að lofta almennilega um. Annars er þetta farið að taka smá lit á sig, byrjaði uppi á herbergjunum og vonast ég til að verða alveg búinn með efri hæðina í vikulok, lítið hægt að gera í vikunni þar sem vinnan gengur fyrir - kannski hægt að grípa aðeins í pensilinn eða rúlluna áður en farið er að sofa. Síðan um næstu helgi þá verður stofan tekin og stigagangurinn, þá er nú bara eftir eldhúsið og öll baðherbergin (fjandi er þetta mikið sem þarf að mála ...). Síðan kemur sófinn nýji í fyrramálið, má ekki gleyma því þegar ég vakna á morgun að fara ekki í vinnuna strax heldur í nýja húsið að taka á móti nýja sófanum ...
Stelpurnar eyddu vikunni á Vestfjörðum og nú er tími fyrir mig að skoða myndir úr ferðalaginu ... sumir skemmta sér meðan aðrir púla ...
mánudagur, ágúst 02, 2004
Þá er maður einn í búinu þar sem skvísurnar eru farnar í frí til Íslands. Frekar einmanalegt hér því en mér var þó boðið í grískt bbq á laugardaginn. Fór þangað með Costasi sem var með mér í ISMA og þegar við komum þá hrópuðu allir "ela re" og voru upprifnir yfir Ouzo flöskunni sem Costas kom með !! Þetta var bara ansi fínt og síðan var kíkt aðeins í bæinn ...
Á sunnudaginn fjárfesti ég síðan í rúmi sem var sem sagt rúmið sem valið var um síðustu helgi (eða þar síðustu). Ég lagðist aðeins í það til að rifja upp og þvílíkt og annað eins unaðfleti verður seint fundið annars staðar ... fáum það sent heim eftir 5 vikur sem er passlegt þar sem við snúum aftur frá íslandsfríinu í byrjun september. Annars var bara flatmagað í sólinni í garðinum í 30+ stiga hita, grasið slegið o.s.frv. - fann sólvörn sem betur fer ofan í skúffu til að verjast sólbruna og hugsa að ég hafi nú bara sloppið.
laugardagur, júlí 24, 2004
Ótrúlegt hvað við erum þreytt eftir daginn, við erum eiginlega bara alveg búin að vera. Það er miklu erfiðara heldur en það hljómar að máta rúm. Við fórum í slatta af rúmbúðum og prófuðum þar hinar ýmsu tegundir rúma og hlustuðum á misvitra rúmsölumenn lýsa fyrir okkur mismunandi gormategundum og mýkingarefnum og svo framvegis, o.s.frv... Núna er síðan verið að athuga með málningarliti þar sem versla á málningu á morgun þar sem skvísurnar eru á heimleið til klakans á þriðjudaginn.
laugardagur, júlí 17, 2004
Borðuðum þennan líka fína kvöldmat - ákváðum sem sagt loks að prófa sverðfiskinn sem við höfum svo oft séð í fiskborðinu í Sainsbury. Vorum reyndar mikið að spá í túnfisknum en tókum loks af skarið og keyptum marineraðan sverðfisk. Grillaði hann á útigrillinu (aftur kom demba á meðan grillið var að hitna ...) ásamt ferskum ananassneiðum, mjög gott, mjög gott !
Líður annars að heimferð Jóu sem er sem sagt 27 júlí - til að stytta okkur stundirnar þangað til þá fáum við tvær heimsóknir í þessari viku, nóg að gera sem sagt ...
Skoðuðum í dag málningu fyrir nýju íbúðina sem styttist óðum í að við fáum. Planið er þannig að ég á að mála áður en ég kem heim til klakans, ansi gott plan hjá Jóu ! og þarf því að kaupa málninguna áður en Jóa fer þannig að það verði nú ekki einhver vitlaus litur á stofunni ...
mánudagur, júlí 12, 2004
Iceland Express er alvarlega farið að trufla nætursvefn fjölskyldunnar. Núna voru það langamma og langafi sem lentu í hálfrardags seinkun og þurfti því að sækja þau á Stansted klukkan 4 aðfaranótt laugardagsins !!! Í gær, sunnudag, keyrðum við síðan til Reading til að sýna þeim skólann og bæinn þar sem við bjuggum í fyrra. Þar gistum við svo í eina nótt og á leiðinni tilbaka í dag þá var komið við í Legolandi. Völdu þau sem sagt heimsókn í Legoland framyfir að skoða Windsor kastala. Inga Huld var að sjálfsögðu hæstánægð með valið. Alveg mögnuð heimsókn - fullt af tækjum til að fara í og dót til að skoða og síðan náttúrulega kubbaland með hinum ýmsustu byggingum. Vorum í Legolandi í 7 klukkutíma, allt var tekið mjög rólega þar sem Inga Huld, langamma og langafi eru á mjög svipuðum gönguhraða þegar ganga þarf. Hún fékk síðan að hlaupa mikið úr sér og skemmti sér konunglega þarna og vildi fara í hvert tækið á fætur öðru. En nú er komið að svefni þar sem vinnudagur er á morgun og kominn háttatími hjá gestunum ...
cheers
miðvikudagur, júlí 07, 2004
Fékk símtal um það hvað það væri vont veður hjá mér hér í Englandi !! Las einnig um það á netinu að það væri bara vitlaust veður í nágrenni London. Fór nú eitthvað framhjá okkur - reyndar var hálftíma seinkun á lestinni minni og hálf girðingin fokin niður í garðinum þegar ég kom heim en einhvern veginn fann ég ekki mikið fyrir rokinu. Sáum einnig glampa í eina eldingu og heyrðum síðan í einni þrumu. Óveðrið fór því fyrir lítið hjá okkur ... nema þá bara í fréttunum.
Fengum óvænt næturgesti í kvöld - ekki óvæntir gestir heldur einungis óvænt að þeir dveldu hér næturlangt... í raun verða þeir ekki næturlangt heldur eiginlega bara næturstutt. Þeir voru búnir að boða komu sína í 2 klukkutíma í dag á meðan beðið var eftir tengiflugi en óvænt þá lengdist sú vænta dvöl. Ástæðan var 7 klukkutíma seinkun á flugi Iceland Express, sem er ekki svo óvænt, og þar af leiðandi riðlaðist tengiflug í framhaldinu. En gaman var að fá vænta gesti í óvæntan kvöldmat og næturgistingu. Jóa skutlar síðan gestunum óvænt eldsnemma í nótt um kl. fjögur á Stansted þar sem við væntum þess að tengiflug verði á áætlun !!
cheers
sunnudagur, júlí 04, 2004
Þá er stelpan bara orðin fjögurra ára ... alveg magnað ... Inga Huld átti sem sagt fjögra ára afmæli í gær og var ýmislegt gert í tilefni dagsins. Hún byrjaði nú reyndar á því á föstudaginn að fara með sveppaköku í leikskólann, (vil taka það fram að sveppir komu ekkert við sögu í innihaldi kökunnar, heldur var það einungis lag kökunnar sem var einsog sveppur í laginu), vakti hún mikla lukku og var sungið og allt. Á laugardagsmorgninum var náttúrulega vaknað snemma eða kl. 7:30 og var ekki hægt að sofna eftir það. Tilbúinn var þriggja hæða pakki í svefnherberginu með blöðrum og ýmsum skreytingum sem var fljótlega tekinn í sundur og skoðaður. Þar leyndist ýmislegt sem búið var að óska sér þ.e. Playmo, bleik regnhlíf og síðan bættust sundföt við sem hún var einnig ánægð með. Síðan réðst hún á pakkana frá ömmum sínum og voru þar stuttermabolur og stuttbuxur á Babyborn sem var búið að vanta lengi og einnig Barbie kall sem var prins, passaði hann því vel í giftingaleikinn hennar og var hann umsvifalaust nefndur King Louie. Var hún voða ánægð með þetta allt saman. Við fórum síðan í bæinn eftir hádegi í leikhús og sáum við Lion King - alveg frábær sýning og má mæla með henni fyrir alla aldurshópa. Við sáum töluvert af fólki sem var ekki með börn með sér og má dást að ýmislegu í sýningunni og hefur mikið verið lagt í sviðsmynd, búninga og tónlistina. Leikritið er sett upp nákvæmlega einsog teiknimyndin þannig Inga Huld þekkti söguþráðinn og persónurnar og sat stjörf yfir sýningunni. Vildi reyndar fara heim þegar ljónakóngurinn dó ... fannst það frekar dapurlegt. Var einnig orðin þreytt þegar seinni hálfleikur var hálfnaður enda var þetta tæpra þriggja tíma sýning. Ég og Jóhanna skemmtum okkur einnig stórvel yfir sýningunni og var þetta bara alveg meiriháttar fjör. Í kvöldmatinn heima voru síðan grillaðar SS pylsur með afmælistertu í desert. Var Inga Huld ánægð og þreytt eftir daginn, en bíður nú spennt eftir að halda afmælisveislu á Íslandi fyrir alla saman.
föstudagur, júlí 02, 2004
Er vikan virkilega búin ...
Það er nú aldeilis búið að vera nóg að gera og nóg að gerast í vikunni. Við fórum t.a.m. í Toys´r Us síðasta laugardag til að leyfa Ingu Huld að skoða dót og þvíumslíkt svo að hún gæti sýnt okkur hvað hana langaði í afmælisgjöf. Þar var hún voða hrifin af Playmo, kubbum, Babyborn og Barbie - af nógu var að taka. Hún þurfti t.d. endilega að fá Ken ... það var nefnilega búið að vera dáldið giftingarvandamál með Barbie undanfarið af því að enginn Barbie kall er til á heimilinu. Í eitt skiptið þá setti hún eina Barbie í buxur og hún gekk svo með brúðakjólabarbie upp að altarinu ... en það var samt eitthvað hálfómögulegt - að loknum miklum pælingum endaði hún á því að gifta Barbie einum Playmó kallinum !! ... en hún var samt ekki fullkomlega sátt við þetta og vildi endilega fá Barbie kall. Held síðan að amma hafi reddað því og að hann bíði nú í pakka eftir því að verða tekinn upp í fyrramálið. Það komu nefnilega tveir pakkar í vikunni og er mikill spenningur. Við laumuðumst til að kaupa Playmo í búðinni á meðan Inga Huld eldaði í eldhússamstæðunum - keyptum handa henni ávaxta- og grænmetisborð til að hafa í búð, búðarkassa og síðan eldhús með borði, vaski, eldavél, ísskáp og öllu saman - þetta var eitthvað sem henni hafði litist vel á.
Hvaða túba ?
Túbuverkfallið hafði sem betur fer ekki áhrif á okkur þar sem við þurfum ekki að nota hana. Ég tek bara venjulega lest í bæinn og labba síðan í vinnuna þannig að það var ánægjulegt að lenda ekki í einhverjum bölvuðum töfum. Einu áhrifin voru þau að það virtist vera fleira fólk á ferðinni svona snemma morguns - eflaust fólk sem gerði ráð fyrir að vera lengi á leið í vinnu.
Herra grís
Einræðisherrann var kosinn á Íslandi með meirihluta atkvæði ... alveg magnað ... en mér finnst nú samt gaman að geta talað nú einsog vinstri maður og segi að "þjóðin hafi talað sínu máli með öllum auðu atkvæðunum" ... ótrúlegt að Óli grís sé ekki að hlusta þegar að "þjóðin talar svona hátt" þar sem að hann er nú að fylgjast með því sem "þjóðin segir". Óli grís, tákn þjóðarinnar ... kannski er það viðeigandi þar sem bónusgrísinn fer hamförum erlendis og kaupir og kaupir ...
Hvað gerist eftir EM?
Hver hefði getað giskað á það að Portúgal og Grikkland myndu spila saman úrslitaleikinn á EM ?? Ég er ekki einu sinni viss um að það hafi verið boðið upp á að veðja á svoleiðis vitleysu. Bretar voru að vonum svekktir og skilst mér að Svissarar séu ekki hlutir lengur í landi Breta ... hélt alltaf að Sviss væri svo hlutlaus þjóð ...
fimmtudagur, júní 24, 2004
miðvikudagur, júní 23, 2004
Veitingastaðurinn í gær alveg frábær, stóðst allar væntingar ... enda mátti það nú ekki minna vera þar sem skera þarf niður matarútgjöldin næstu vikurnar eftir að reikningurinn mætti á svæðið !! Fórum sem sagt á River Cafe þar sem herra Jamie Oliver starfaði áður en hann hlaut frægð og frama. Staðurinn staðsettur lengst í vesturhluta London þannig að þetta var heilmikið ferðalag með túbunni á staðinn en á leiðinni heim tókum við nú bara leigubíl - skárra að taka leigubíl þegar traffíkin er minni. Ég fékk mér reyktan ál í forrétt, ferskvatnsfisk turbot tranche í aðalrétt og í desert var espresso og heslihnetukaka ... algjört nammi. Jóa fékk mozarella í forrétt, lambakjöt í aðalrétt og súkkulaðiköku í desert ... einnig algjört nammi. Mælum með matnum og þjónustunni en ekki verðlaginu. Inga Huld gaf mömmu sinni pakka þegar hún vaknaði í morgun - var búin að geyma inni í skáp pakka sem við keyptum og pökkuðum inn fyrir löngu síðan, fannst þetta allt mjög spennandi. Inga var alveg búin að ákveða hvað hún myndi gefa mömmu sinni - var búin að sjá í H&M skart sem henni fannst svo fínt. Keypti armband, hárspennur, hálsmen og varasalva - mjög ánægð með þetta allt saman. En semsagt góður afmælisdagur hjá Jóu.
Einsog staðan er núna í fótboltanum þá kemst Þýskaland ekki uppúr sínum riðli þar sem jafnt er hjá þeim og Tékklandi. Hollendingar eru afturá móti áfram og er það gaman þar sem nú ber maður taugar til Hollands ... Þjóðverjarnir finnst mér ekki vera að spila mjög vel og hafa nú oft verið betri - þeir brjóta töluvert og er t.a.m. allavega helmingur liðsins komið með gul spjöld eftir leikina í riðlinum. Annars magnast spennan fyrir morgundaginn þegar Englendingar spila við heimamenn Portúgala - mjög spennandi.
mánudagur, júní 21, 2004
Bara dugnaður við skriftirnar síðast ... tvöföld framleiðni í orðsins fyllstu merkingu !! Horfði á Englendinga vinna Króatana glæsilega - væntanlega miklu fargi lyft af mörgum þar sem þeir urðu að vinna eða gera jafntefli til að komast áfram. Næsti leikur er síðan við heimamenn Portúgala á fimmtudaginn ... mjög spennandi ... annars er hann Wayne Rooney þeirra hetjan og verður eflaust á forsíðu hvers einasta dagblaðs á morgun.
Jóa á afmæli á morgun, reyndar eftir ca. 45 mínútur. Hún er búin að fá afmælisgjöfina sem var þessi líka forláta saumavél sem hún valdi sér sjálf ... Husqvarna Viking, ekki dugar það nú minna ... nú er sem sagt hægt að fara að staga í götin á fötunum okkar. Við ætlum síðan öll útað borða annaðkvöld í tilefni dagsins ... ekki má segja enn sem komið hvað planið er !!
föstudagur, júní 18, 2004
Klakaheimsókn
Það var nú aldeilis gaman að kíkja í heimsókn á klakann - hittum fullt af fólki og skemmtum okkur konunglega. Eiginlega bara fyrst núna að maður er að ná sér eftir allt fjörið ... Ferðalagið byrjaði á laugardagsmorgni á því að Jóa skilaði lokaverkinu sínu í skólann og svo var brunað á Stansted og Ísland Með Hraði tekið heim. Lending var kl. 14:15, komin á Sunnubraut til að skipta yfir í sparidressið kl. 15:30 og mætt í Fríkirkjuna á slaginu kl. 16:00 - hefði ekki mátt vera tæpara (spurning var þó hvort fólk var farið að bíða eftir okkur eða brúðhjónunum ... Þegar búið var að gefa fólkið saman og allir sögðu "já" og presturinn sagði "Amen" þá söng Eyvi nokkrar ballöður áður en haldið var í veislu nokkru ofar í götunni. Ekki má gleyma því að týpískt íslenskt veður var með 5 gráðu hita og láréttri rigningu. Eftir rauðvín, hvítvín og nokkrar snittur var haldið í grillveislu til Gísla og Halldóru þar sem margt var góðra vina og má til dæmis nefna Vigni og Snorra. Bæjarferðin um kvöldið heppnaðist ævintýralega vel þar sem dottið var inná nýja holu með engri röð fyrir utan og reyndist bara jammið mjög vel - alltaf gaman að koma út um miðja nótt og fá ofbirtu í augin, útlendingum finnst líka alltaf gaman að heyra sagt frá því ásamt því að heyra frá láréttu rigningunni. Á sunnudeginum þurfti síðan borða meira - kökur, brauð og ýmislegt ásamt því að hitta hina ýmsu fjölskyldumeðlimi ... Verst var að Inga Huld virtist hafa náð sér í vírus á laugardagsmorgninum og var því slöpp og með hita á sunnudeginum og mánudeginum. Henni er þó að batna alveg núna - vona bara að henni slái ekki niður núna þar sem það er farið að kólna dáldið hjá okkur !! Þegar ég kom í vinnuna í morgun kl. 7:30 þá sýndi hitamælirinn ekki nema heilar 16 gráður !! ... það var sem sagt hrollur í mann eftir að hafa verið soðinn í a.m.k. 25 gráðu hita á morgnana og kvöldin. Ég slepp alltaf við mesta hitann á daginn þar sem ég sit í loftkælingunni í vinnunni og sötra heitt kaffi til að hlýja mér.
Gobbagobb gleymist
Síðan á leiðinni á flugvöllinn rétt hjá Njarðvíkurafleggjara þegar amma var að keyra okkur þá gerðist sá hrikalegi atburður að Inga Huld uppgötvaði að blessaður gobbagobb gleymdist á Sunnubrautinni ... upphófst mikil sorg og ógleði þar sem alltaf er sofið með blessaðan gobbagobbinn og nú væri bara ekki hægt að sofa þar sem blessaður gobbagobbinn væri bara á Íslandi. Hún var þó sannfærð með miklum erfiðismunum um það að amma myndi nú koma blessuðum gobbagobbinum í póstinn um leið og hún kæmi aftur heim þannig að hún fengi hann aftur áður en hún vissi af. Hún sættist nú á það en átti nú eftir að sakna hans á ákveðnum stundum með tilheyrandi sorg. Hann kom nú loks til okkar í dag þannig að það vandamál er úr sögunni.
Jæja, Gleðilegan Þjóðhátíðardag og stefnum við á það að kíkja á Þjóðhátíðardagsskemmtun Íslendingafélagsins í London á sunnudaginn. Á laugardagskvöldið verðum við með Þjóðhátíðarmat þar sem nældum með okkur íslenskum lambahrygg frá klakanum sem verður skolað niður með Beringer rauðvíni frá USA - mjög viðeigandi þar sem við vorum náttúrulega fyrst til að finna USA ...
Klakaheimsókn
Það var nú aldeilis gaman að kíkja í heimsókn á klakann - hittum fullt af fólki og skemmtum okkur konunglega. Eiginlega bara fyrst núna að maður er að ná sér eftir allt fjörið ... Ferðalagið byrjaði á laugardagsmorgni á því að Jóa skilaði lokaverkinu sínu í skólann og svo var brunað á Stansted og Ísland Með Hraði tekið heim. Lending var kl. 14:15, komin á Sunnubraut til að skipta yfir í sparidressið kl. 15:30 og mætt í Fríkirkjuna á slaginu kl. 16:00 - hefði ekki mátt vera tæpara (spurning var þó hvort fólk var farið að bíða eftir okkur eða brúðhjónunum ... Þegar búið var að gefa fólkið saman og allir sögðu "já" og presturinn sagði "Amen" þá söng Eyvi nokkrar ballöður áður en haldið var í veislu nokkru ofar í götunni. Ekki má gleyma því að týpískt íslenskt veður var með 5 gráðu hita og láréttri rigningu. Eftir rauðvín, hvítvín og nokkrar snittur var haldið í grillveislu til Gísla og Halldóru þar sem margt var góðra vina og má til dæmis nefna Vigni og Snorra. Bæjarferðin um kvöldið heppnaðist ævintýralega vel þar sem dottið var inná nýja holu með engri röð fyrir utan og reyndist bara jammið mjög vel - alltaf gaman að koma út um miðja nótt og fá ofbirtu í augin, útlendingum finnst líka alltaf gaman að heyra sagt frá því ásamt því að heyra frá láréttu rigningunni. Á sunnudeginum þurfti síðan borða meira - kökur, brauð og ýmislegt ásamt því að hitta hina ýmsu fjölskyldumeðlimi ... Verst var að Inga Huld virtist hafa náð sér í vírus á laugardagsmorgninum og var því slöpp og með hita á sunnudeginum og mánudeginum. Henni er þó að batna alveg núna - vona bara að henni slái ekki niður núna þar sem það er farið að kólna dáldið hjá okkur !! Þegar ég kom í vinnuna í morgun kl. 7:30 þá sýndi hitamælirinn ekki nema heilar 16 gráður !! ... það var sem sagt hrollur í mann eftir að hafa verið soðinn í a.m.k. 25 gráðu hita á morgnana og kvöldin. Ég slepp alltaf við mesta hitann á daginn þar sem ég sit í loftkælingunni í vinnunni og sötra heitt kaffi til að hlýja mér.
Gobbagobb gleymist
Síðan á leiðinni á flugvöllinn rétt hjá Njarðvíkurafleggjara þegar amma var að keyra okkur þá gerðist sá hrikalegi atburður að Inga Huld uppgötvaði að blessaður gobbagobb gleymdist á Sunnubrautinni ... upphófst mikil sorg og ógleði þar sem alltaf er sofið með blessaðan gobbagobbinn og nú væri bara ekki hægt að sofa þar sem blessaður gobbagobbinn væri bara á Íslandi. Hún var þó sannfærð með miklum erfiðismunum um það að amma myndi nú koma blessuðum gobbagobbinum í póstinn um leið og hún kæmi aftur heim þannig að hún fengi hann aftur áður en hún vissi af. Hún sættist nú á það en átti nú eftir að sakna hans á ákveðnum stundum með tilheyrandi sorg. Hann kom nú loks til okkar í dag þannig að það vandamál er úr sögunni.
Jæja, Gleðilegan Þjóðhátíðardag og stefnum við á það að kíkja á Þjóðhátíðardagsskemmtun Íslendingafélagsins í London á sunnudaginn. Á laugardagskvöldið verðum við með Þjóðhátíðarmat þar sem nældum með okkur íslenskum lambahrygg frá klakanum sem verður skolað niður með Beringer rauðvíni frá USA - mjög viðeigandi þar sem við vorum náttúrulega fyrst til að finna USA ...
fimmtudagur, júní 10, 2004
Enn er Jóa á fullu - ég hætti eldsnemma í vinnunni í dag eða rétt rúmlega 5 og tók lestina í skólann til Jóu. Var kominn þangað eftir 45 mínútna ferðalag og þar beið Inga Huld með mömmu sinni - leikskólinn lokar nefnilega rúmlega 5. Ég og Inga fórum síðan heim með lest og vorum komum heim um kl. 7 !! ... ekki auðvelt eða fljótlegt í framkvæmd. Fengum okkur svo franskar og pizzu í kvöldmatinn og vorum bæði hæstánægð með það.
Hér er allt að ná suðumarki fyrir Evrópukeppnina - allir bíða spenntir eftir leik Englendinga og Frakka á sunnudaginn. Níu leikmenn franska landsliðsins leika með efstu liðunum í ensku úrvalsdeildinni þannig að margir fráir félagar munu heygja mikilvæga baráttu á vellinum. Síðan má náttúrulega ekki gleyma þeim madridmönnum Zinedane og David ... spennandi að sjá ... töluverðar væntingar eru gerðar til landsliðsins og tel ég að markmið þeirra sé að komast a.m.k. í undanúrslitin. Loks held ég að enska landsliðið sé komið með góð efni í flestar stöður, Gerrard á miðjunni og Owen frammi - getur bara ekki klikkað !!
miðvikudagur, júní 09, 2004
Er kominn heim úr dagsferð frá Amsterdam - þurfti að fara á fætur klukkan rúmlega 4 í nótt til að dröslast í leigubíl á Heathrow. Förin á flugvöllinn var skjótari en ég átti von á og var einungis um 50 mínútur - enda var ekki mikil umferðin til að tefja förina svona snemma morguns. Amsterdamferðin gekk vel og ég var síðan kominn aftur á City airport rúmlega 15 þar sem leigubíll beið eftir mér ásamt stelpunum ... þ.e.a.s. að Jóhanna kom með Ingu Huld og við fórum tvö heim en Jóa fór aftur í skólann til að læra og læra.
Þarf að drífa í að kíkja á boilerinn - hvort það sé ekki eitthvað hægt að lækka á honum, en kannski virkar hann ekki þannig þar sem það er hátt í 30 stiga úti þá kannski myndi ekki skipta miklu máli þó slökkt væri alveg á honum ... alltaf gaman að geta kvartað yfir veðrinu ... sérstaklega því að það sé of heitt ...
þriðjudagur, júní 08, 2004
Nú er nóg að gera í skólanum hjá Jóu - unnið myrkranna á milli þar sem skil eru á öllu saman næstkomandi laugardag. Við erum síðan einnig að rjúka til klakans á laugardagsmorguninn til að vera viðstödd brúðkaup - stöldrum stutt við og förum aftur heim á mánudaginn.
Hér er aftur komin hitabylgja - við myndum ekki lifa af í heitara landi en Englandi - boilerinn okkar er líka klikkaður og kyndir alla efri hæðina vel og vandlega án þess þó að hita ofnana ... þess vegna er maður vel baðaður í bælinu. Ég fæ iðulega tilfinningu einsog ég sé að ganga út úr flugvél á flugvellinum á Mallorca þegar ég labba út úr vinnunni á kvöldin - hitamollan sem liggur yfir er dáldið heitari en loftkælingin sem er á fullu allan daginn í bankanum og heldur manni vel svölum.
Ég og Inga Huld dunduðum okkur í bæjarferðum til London um helgina á meðan Jóa var að læra. Á laugardaginn keyptum við brúðkaupsgjöfina - má ekki segja hvað og hvar - og á sunnudaginn keyptum við ferðatösku undir brúðkaupsgjöfina. Ferðataskan var þessi líka fína flugfreyjutaska keypt á útimarkaði hjá Spitalfeld - kostaði bara 12 pund ... kostakaup alveg - bara spurning núna hvort að brúðkaupsgjöfin passi ofan í töskuna !! Við grillum síðan á gasgrillinu alveg villt og galið og vorum einmitt með Rib-Eye á sunnudaginn ásamt horsradish sósu - algjört nammi !! Erum reyndar að verða dáldið þreytt á nautakjöti og hlakkar þess vegna mikið til að fá grillað íslenskt lambakjöt næstkomandi laugardag ... nammi namm.
cheers
laugardagur, maí 29, 2004
Kristján kíkti í heimsókn til okkar í gær og fékk þessa líka ljúffengu Sirloin steik sem var spes verkuð af Jamie Oliver áður en hún var seld í Sainsbury. Var Kristján í stöðugu sambandi við starfsmann Iceland Express þar sem honum tókst að senda veskið sitt aftur heim til Íslands með flugvélinni.
Núna erum við annars á leiðinni í bæinn að fata okkur upp fyrir komandi brúðkaup á Íslandi. Verðum að vera fín og settleg ...
þriðjudagur, maí 25, 2004
Jæja malbikið er bara farið að bráðna á Egilsstöðum vegna hins feikimikla 19 gráðu hita sem þar er nú um dagana - dáldið skondin frétt !!
Það er svo mikið að gera núna að fylgjast með fréttunum að maður hefur bara ekki undan, búið að "reka" Húlla hjá Liverpool ... fréttirnar sögðu að stjórnin og Húlli hefðu komist að gagnkvæmu samkomulagi um það að hann myndi hætta ... sem líklega þýðir bara það að hann fékk nógu mikinn pening !! Nú verður gaman að sjá hver kemur í staðinn og samkvæmt fréttunum þá vill stjórnin fá einhvern með reynslu af því að stjórna stórliði til sigurs !! ... humm, ætli það séu margir á lausu. En á þessum 6 árum hans Húlla þá unnum við 6 titla - s.s. 1 titil á ári að meðaltali, náðum hæst öðru sæti í deildinni og lægst því fimmta ... nú vantar bara bölvaðan herslumuninn til að slá þessu við. Er nú reyndar viss um það að flestum liðum þætti þessi árangur bara vel ásættanlegur !! En nú þarf bara að fá stjóra með herslumun til að slá þessum Arsenalmönnum ref fyrir rass. Býst nú samt við að kaupa mér loks meðlimakort hjá Chelsea - með því fæ ég möguleika á því að kaupa mun fyrr miða heldur en sauðsvartur almúginn og get því kannski komist á nokkra stórleiki hjá Chelsea.
Þá er búið að samþykkja fjölmiðlafrumvarpið og btw "Til hamingju með stórafmælið, Sjálfstæðisflokkur", nú er spennandi að sjá hvað herra Óli Grís gerir - hann er nú svo hlynntur því að aðilar geti keypt það sem þeir vilja og gert það sem þeir vilja á markaðnum og hefur aldrei viljað hefta einn eða neinn í athöfnum sínum.
sunnudagur, maí 23, 2004
Alltaf gaman að lesa Vefþjóðviljann - ótrúlegustu hlutir sem þessir menn muna. Ákvað að setja þessi brot hér þar sem ég veit að það lesa ekki nógu margir þann fjölmiðil.
T.d. þetta ræðubrot hjá formanni Samfylkingarinnar um að skipta upp Baugi:
Ég held reyndar, herra forseti, að það ættu að vera hæg heimatökin. Er ekki rétt munað hjá mér að helsti trúnaðarmaður ríkisstjórnarinnar, Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingarnefndar, sé enn þá stjórnarformaður Baugs? Ef fortölur duga ekki til, herra forseti, þá er það skoðun okkar í Samfylkingunni að Samkeppnisstofnun eigi að fá í hendur þau tæki sem hún þarf til þess að skipa fyrir um breytingar, þar á meðal að skipta upp slíkum einokunarrisum ef hún telur þess þörf til þess að vernda hagsmuni neytenda.
- Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, á Alþingi 22. janúar 2002.
Einnig þetta athyglisverða komment um hverjir studdu eða studdu ekki það að afnema einokun ríkisins:
Fjórir þingmenn, sem sátu á þingi þegar einokun ríkisins var afnumin, sitja þar enn. Halldór Blöndal er sá eini þeirra sem studdi frjálst útvarp. Hinir, Steingrímur J. Sigfússon, Halldór Ásgrímsson og Jóhanna Sigurðardóttir gerðu það ekki. Ekki fremur en til dæmis Jón Baldvin Hannibalsson sem ungir kratar nútímans halda að hafi innleitt frelsi á Íslandi.
laugardagur, maí 22, 2004
fimmtudagur, maí 20, 2004
Það kom nú bara kuldahrollur í mann þegar labbað var út úr vinnunni í dag ... ekki var nema 20 stiga hiti og skýjað !! Það er búið að vera hér hátt í 30 stiga hiti, glampandi sólskin, sem sagt hiti og sviti. Íbúðin okkar er alltof heit og engin leið til að kæla hana - er hitastigið hér iðulega aðeins hærra heldur en úti.
Svo er boltinn að byrja um helgina - hér er fólk búið að setja fána út um gluggann heima hjá sér og á bílana. Mikil stemning í gangi og allir voðalega spenntir - veit nú samt ekki hvað er raunsætt takmark hjá Englendingum, en gaman verður að sjá hvað úr verður núna. Allt lagt á herðarnar á Beckham og hann á að stýra liðinu til sigurs ... vonandi að hann láti ekki skapið hlaupa með sig í gönurnar í þetta skiptið.
Í sjónvarpinu er "The Postman" - alveg hreint frábær stórmynd með stórstirninu honum Kevin Costner ... alveg í lagi.
sunnudagur, maí 16, 2004
Hefðbundið Júróvísíon
Júróvísion var eins og vonir stóðu til - hvert leiðinlega lagið á fætur öðru ... Samt alltaf hægt að skemmta sér yfir þessu, blóta yfir frændsemi austur-evrópuríkjanna og á sama tíma blóta yfir því að frændur okkar skuli ekki gefa okkur fleiri stig !! Það þarf nú að fara að bæta eitthvað þessa stigagjöf.
Íslenska lambalærið annars mjög gott þó ég hafi því miður grillað það aðeins of mikið. Þurfti nefnilega að kaupa nýjan gaskút fyrir grillið þar sem gamli var orðinn tómur - miklu meiri kraftur var á gasinu núna og þar af leiðandi mun meiri hiti.
Della
Skrifaði bölvaða dellu í gær - sá í Mogganum að til er handhafi forsetavalds sem skrifar undir lög fyrir forseta ef hann er fjarstaddur Íslandi ... ýmislegt hægt að læra af þessum fjölmiðlum. Annars að gaman að lesa um málið og finnst þetta orðin tóm della ... alveg einsog dellan sem ég skrifaði hér inn í gær.
föstudagur, maí 14, 2004
Sól, sól skín á mig ...
...bara spáð 25 stiga hita og glampandi sól um helgina !! Heldur betur hægt að sóla sig ...
En framundan er júróvísíonpartí með grilluðu íslensku gómsæti ... minnir mig á það að gasið í gasgrillinu er búið, þarf að græja það. Ekki enn búið að gera við sláttuvélarsnúruna þannig að garðurinn er orðinn ansi úfinn. Veit ekki hvað það er með okkur og sláttuvélar - í Reading var henni stolið en hér þegar ég ætlaði að fara að slá þá var búið að binda snyrtilegan hnút á rafmagnssnúruna í sláttuvélina. Þegar hnúturinn var leistur þá kom í ljós að snúran var í sundur á mjög snyrtilegan hátt - greinilegt að fyrrum eigandi hefur slegið hana í sundur. Ég prófaði nú ekki hvort viðgerð hans á snúrinni hafi virkað, þ.e. hnúturinn hans. Kannski Kristján rafvirki geti upplýst mig um það hvort það sé nóg að binda rafmagnssnúrur saman til að þær virki eða hvort það þurfi flóknari aðferðir ...
Get ekki stafi bundið
Óli Grís er farin að taka völdin í hendurnar, það er hann sem stjórnar og skrifar undir lög og ræður þ.a.l. hvað er lagt fyrir landann. Skilst að hann komist ekki einu sinni í brúðkaup frændfólks okkar í Danmörku þar sem hann þarf að vera heima á klakanum að passa það að fjölmiðlafrumvarpið verði ekki samþykkt ... þ.e.a.s. að hann þarf að vera heima til að vera viss um það að hann skrifi ekki undir lögin. Skil samt ekki hvað hann þarf að gera heima, það er ekki eins og það sé skrifað sjálfkrafa undir lögin ef hann er ekki staddur þar til að skrifa ekki undir þau. Ég er nú reyndar algjörlega á móti þessu kostnaðarembætti en ef það er til einhverra nota hæft þá er það nú til að vera viðstaddur opinberar heimsóknir. Var ekki Dóra stödd þar í landans nafni ?! Skildi hún líka vera komin á launaskrá hjá íslenskum skattborgurum ??
fimmtudagur, maí 13, 2004
Eurovision
Jæja, þá líður að Eurovision !! Undirbúningur er kominn á fullt og matseðillinn að verða klár ... Jóa spilaði fyrir mig íslenska Eurovisionlagið og var það alveg einsog það átti að vera - ekta júróvísionstíll á því, þ.e.a.s. alveg þrællélegt með fáránlegum texta !! Hugsa að við ættum að komast langt á því, það er spurning hvað veðbankarnir hérna setji á íslenska lagið í 1. sætið. Kannski það sé hægt að veðja um að það verði í 10. - 15. sæti en líklegt þó að maður fái ekki eins mikið út úr því að veðja á nokkur sæti.
cheers
mánudagur, maí 10, 2004
Piparsveinn og harðstjóri
Mjög svo áhugaverðir heimildarþættir í sjónvarpinu, og þeir ekki einu sinni á BBC heldur á Channel 4. Fyrst þáttur um harðstjórann grimma Mandela og síðan heimildarþáttur um piparsveinár prins Karls. Hefði nú haldið að piparsveinaáraþáttur um hann Karl ætti ekki að vera langur en hann virðist hafa verið hress á sínum yngri árum !! Pick-up línan var að bjóða stelpum að koma og horfa á sig í Polo - það var alveg til að bræða þær ...
Suðumark olíuhluta
Ég er annars að læra fyrir próf sem ég þarf til að taka til að mega löglega tala um afleiður og aðrar fjárfestingarvörur. Ein spurning er t.d. "What fraction is first to boil when Crude Oil is refined" - ég er ekki að læra að verða bensínafgreiðslumaður, vil taka það fram ... svarið er sem sagt "Light Hydrocarbons".
miðvikudagur, maí 05, 2004
Jæja, þá erum við enn einu sinni bara þrjú í kotinu. Það var heldur betur fjör um helgina og skemmtu Þórunn Eva og Inga Huld sér konunglega með tilheyrandi fíflalátum og hamagangi !! Gestirnir í þetta skiptið voru verslanaglaðir og var nánast sama hvert farið var, alltaf var eitthvað keypt - þannig á það líka að vera. Ekki var heldur verslað í amalegum búðum heldur var það bara Harrods og Selfridges sem blívaði. Í Harrods drápum við tímann í húsgagnadeildinni þar sem okkur vantar húsgögn í verðandi nýja húsið okkar. Þar fundum við að sjálfsögðu sófann sem við höfðum verið að bíða eftir ... hvar annars staðar ?? Við ákváðum þó ekki að versla hann í versluninni hans Dodda heldur fundum við hann á netinu í annarri búð sem var staðsett í Reading ... hvar annars staðar ??
Veðrið lék við hvern sinn fingur á sunnudeginum með sól og hlýju en hina dagana var svona týpiskt Lundúnaveður - skipti sosum litlu máli þar sem verslanirnar eru allar innanhúss og transportið er neðanjarðar ... mjög hentugt.
Okkur tókst að sýna liðinu nokkra nýja staði, m.a. jakkafatadeildina í Selfridges, Spitalfeld Market og útimarkað þar hjá, vindilinn, Lloyds bygginguna og síðast en ekki síst sjálfa ABN AMRO bygginguna !!!
Cheers
fimmtudagur, apríl 29, 2004
Það er heldur betur langt síðan síðast var skrifað. Það er einnig heldur betur mikið búið að vera um að vera síðan skrifað var síðast. Síðan síðast er ég búinn að fara tvisvar til Frakklands, borða undir Eiffelturninum, baða fjölskylduna í sólinni og 25 stiga hita um síðustu helgi, koma tengdó heim til klakans, taka til eftir tengdó, taka síðan aftur til núna fyrir næstu heimsókn ... svo fátt eitt sé nefnt !!
Ferðin okkar til Frakklands með tengdó heppnaðist mjög vel. Vorum heppin með veður og gaman var að keyra um sveitir Frakklands. Eyddum einum degi í Le Mont Saint Michel sem er stórt klaustur á kletti úti á firði sem að umkringist vatni (fyrir utan malbikaða veginn sem búið er að leggja) þegar sjórinn flæðir að. Þetta er mjög merkilegur staður og merkilegt að einhverjum hafi dottið í hug (eftir smá skilaboð frá Guði, ... sms ??) að byggja risastórt klaustur uppi á þessum risastóra kletti. Síðan voru verslaðir ostar (ísskápurinn lyktar ennþá !!), ciderar, rauðvín og ýmislegt franskt góðgæti. Greinilegt er þó að Englendingum finnst mun ódýrar í Frakklandi þar sem margir hverjir voru með drekkhlaðna bíla á leið aftur í ferjunni til Englands. Síðasta daginn fengum ég og Helgi okkur Fruit de la Mar sem er ýmislegt góðgæti úr sjónum, ostrur, krabbi, humar, kuðungar svo fátt eitt sé nefnt ... stelpunum leist ekki vel á þetta þegar við vorum að slafra þessu í okkur (ostrunum er nú einmitt hreint og beint slafrað í sig).
London var einnig að sjálfsögðu skoðað í bak og fyrir, góður matur borðaður og á stundum slappað af en mest megnis var liðið nú drifið áfram í búðir og á skoðunarstaði.
Tengdó var síðan dauðfegið að komast heim á laugardeginum eftir páska og er búið að læra af reynslunni að fara heim á laugardegi svo hægt sé að hvílast og slappa af fyrir vinnu á mánudegi !!
Í byrjun þessarar viku var ég sendur til Parísar mér til mikillar ánægju en öðrum ekki til svo mikillar ánægju - þar var ráðstefna á hóteli við hliðina á Eiffelturninum. Ég fékk að sjá helstu gersemar Frakka á ferð minni í leigubílum frá flugvelli á hótel, hótel á ráðstefnu og síðan ráðstefna á lestarstöð. Arc de Triomph og hið fræga stóra hringtorg þar við hliðina á - botna nú ekki í því hringtorgi, allar reglur hringtorga fannst mér einhvern veginn að giltu alls ekki þar, engar línur á götunni og ekki hefði ég verið hissa þó að einhverjir á innsta hring hafi verið þar í nokkra daga. Þetta var hin ágætasta skemmtun og ráðstefnan gekk vel. Þar var meðal annars einn bankinn að gefa hlaupahjól og tók ég eitt fyrir Ingu Huld. Það er nú reyndar í stærri kantinum fyrir hana en hún var hæstánægð með það og er búin að dröslast á því hérna framogtilbaka um íbúðina þangað til að foreldrar hennar fengu nóg af því að hafa áhyggjur af því að hún myndi brjóta eitthvað, húsmuni eða sjálfa sig.
En nú þarf að gera klárt fyrir næstu gesti og hlakkar Ingu Huld mikið til að fá Þórunni Evu í heimsókn og er búin að plana ýmislegt brall með henni. Annars er Inga Huld alltaf að giftast honum King Louie í leikskólanum og sönglar brúðarmarsinn hér hægri og vinstri.
cheers
mánudagur, apríl 12, 2004
Allir voru svo saddir eftir páskamatinn (blinis með kavíar í forrétt, dádýrakjöt í aðallrétt og í eftirrétt var heimagerður ís með Baileys og Lindor konfektkúlum) í gær að ekki var lyst á páskaeggi með málshætti á eftir. Þau voru því opnuð í morgun og fengum við:
Valdimar: Betra er að fela fiskinn en elta köttinn.
Jóhanna: Kona skal fylgja manni sínum hvert sem hún vill.
Inga Huld: Tæmdu ekki tréð fyrr en þú hefur séð ávöxtinn.
En nú skal haldið til Poole þar sem Frakklandsferðin skal hefjast ...
laugardagur, apríl 10, 2004
Fótbolti og feitabollur
Leikurinn var í dag - strákarnir héldu á Stamford Bridge en stelpurnar á Oxford Street. Við vorum með íslenska fánann og svo keypti kallinn stuttermabol með nafni Gudjohnsen á bakinu - studdum síðan vel við bakið á okkar manni í leiknum. Þegar við lyftum upp íslenska fánanum var klappað með priki í hausinn á kallinum og var þar kominn annar íslenskur fáni úr næstu sætaröð fyrir ofan !! Þetta var bara einsog að vera á laugardalsvellinum ... þar var kominn fyrrverandi til 20 ára formaður Arsenal klúbbsins og heyrðum við öðruhvoru í honum "Opnaðu bara bjórinn núna" og síðan kom "Sameinaðar feitabollur úr KR - áfram Eiður Smári - SKORA" ... hálf stúkan var eflaust búin að læra að segja "Feitabolla úr KR". Leikurinn endaði í jafntefli en það voru þó nokkur færu í leiknum og var gaman á að horfa. Eiður Smári stóð sig vel og var okkur ekki til skammar.
Óvissuferð
Í vikunni er búið að vera nóg að gera við að hafa ofan af fyrir tengdó ... ég komst loks í páskafrí á föstudaginn og gat þá aðstoðað Jóu betur við uppihaldið. Óvissuferðin var í gær, föstudaginn langa, allir voru dressaðir í sparifötin um hádegisleytið, karlarnir í jakkaföt og bindi en verst var að karlinn gamli var ekki með jakka með sér. Því þurfti að versla jakka á Regent Street áður en óvissuferðin gat haldið áfram þar sem jakki og bindi var skilyrði ! Nú gat óvissuferðin loks byrjað fyrir alvöru og var spennan orðin yfirgengileg ... þá var haldið krókaleiðir í gegnum Bond Street og endað á ... Hótel Ritz þar sem farið var í te, kaffi og kökur ... alveg meiriháttar gott og stóð undir væntingum - þarna er upppantað með tveggja mánaða fyrirvara þannig að það þarf að vera snemma í því að fara í te þangað !! Eftir kaffið var haldið í göngutúr niður Green Park niður að Buckingham Palace og St James Palace, framhjá Downing Street niður í Westminster og yfir á suðurbakkann og síðan framhjá Londonauganu og aftur yfir Thames yfir Golden Jubilee Bridge yfir á Charing Cross - var þetta fínn göngutúr til að jafna sig eftir allt kaffiátið og var líka sól og blíða til að toppa þetta.
cheers
miðvikudagur, apríl 07, 2004
Nú er tengdó mætt á svæðið en sumarið virðist ekki vera komið ... það er nefnilega bara rétt búið að vera um 10 stiga hiti en í fyrra um páskana þá var á milli 15 og 20 stiga hiti. Ýmislegt er búið að gera - Jóa er búin að fara með þau í Londonaugað, skoða Canary Wharf, Spitalfield, Blackheath og um helgina keyrðum við til Brighton sem er á suðurströndinni. Í Brighton skoðuðum við sumardvalarhöll sem byggð var á 17. öld í indverskum stíl að utan en er með kínversku innbúi ... mjög flott. Síðan var um kílómetralöng bryggja útí sjóinn sem var með tívolí á endanum og fannst Ingu Huld það ekki leiðinlegt.
Á föstudaginn eru síðan loksins allir komnir í páskafrí og þá tekur ýmisleg dagskrá við. Á laugardaginn er það Chelsea leikur og var íslenski fáninn keyptur í tilefni af því ... um að gera að fylgjast með í sjónvarpinu hvort við sjáumst. Á mánudaginn á að keyra á suðurströndina (enn einu sinni) til Poole sem er hjá Bournemouth og á að gista þar eina nótt og taka síðan ferju á þriðjudagsmorgninum yfir til Frakklands þar sem við verðum í 2 nætur ... allir mjög spenntir ...
mánudagur, mars 29, 2004
Það var bara bjart þegar haldið var heim á leið úr vinnunni í dag - var dáldið upplífgandi að ná í restina af sólinni. Annars er greinilegt að maður verður að komast í bíó ... það er búið að auglýsa alveg helling nýja stórmynd, 4 stjörnu mynd ... er t.d. á öllum strætisvögnum bæjarins. Þessi stórmynd er einnig merkileg fyrir þær sakir að hún skartar einum af mínum uppáhaldsstórleikara sem á margar stórmyndir að baki en því miður hefur lítið komið frá honum síðustu ár. Ég er því mjög glaður að sjá hann á veggspjöldum víðsvegar um bæinn. Þessi mynd heitir annars Open Range og er með Kevin Costner !! ... meira þarf ekki að segja um þessa mynd að sinni.
sunnudagur, mars 28, 2004
Sumarið komið !!
Þá er sumarið komið !! Klukkunni var breytt klukkan 2 í nótt og tapaðist þar einn klukkutími úr þessum sólarhring - það er dýrt að fá sumarið ... Við þurftum síðan að eyða deginum í það að breyta öllum klukkum á heimilinu, það var armbandsúrið, eldhúsklukkan, örbylgjuofnsklukkan, vídeóklukkan, hilluklukkan, klukkan í bílnum, farsímaklukkurnar ... af hverju á maður svona margar klukkur ... best var klukkan í tölvunni sem breyttist sjálfkrafa.
Sumarið byrjar þó með kvefi - ég virðist hafa náð mér í amsterdamskt kvef og var það eitt af fáu sem fylgdi með frá Amsterdam - slóst ég þar með í hóp stelpnanna sem einnig hafa þjáðst af kvefi, en líklega Lundúnarkvefi. Inga Huld fékk þó shampoo og sturtusápu af hótelinu ... hæstánægð með þessar litlu umbúðir ... og Jóa fékk freyðivín og toblerone úr minibarnum :)
Tengdó kemur
Allt er nú að verða klárt fyrir heimsókn tengdó og er tepppið skínandi hreint eftir teppahreinsivélina og sófinn fékk sinn skammt líka - vissara að það leynist ekki kusk einhvers staðar ! Stelpurnar eru farnar að telja hratt niður og Inga Huld bíður eftir bleiku páskaeggi. Bleikt er alveg uppáhaldsliturinn hennar - þegar Jóa sagði að hún yrði í skólabúningskjól í nýja skólanum sem yrði blár þá var hún ekki mjög ánægð og heimtaði að vera í bleikum skólabúningskjól, annað væri ómögulegt.
laugardagur, mars 27, 2004
Tiltektardagur í dag - íbúðin var ekki orðin mönnum bjóðandi og þurfti því að taka til og þrífa !! Leigð var teppahreinsivél og allar græjur til að hægt væri að vinna verkið almennilega ... Aðalástæða þrifanna var þó að von er á heimsókn tengdó um næstu helgi og þarf allt að vera skínandi þegar þau koma. Einnig er sumarið að koma ... opinberlega þá kemur það á morgun ef einhver skyldi vera í vafa um það hvenær sumarið kemur. Klukkunni verður breytt í nótt og töpum við þar einum klukkutíma úr þeim sólarhringnum, og þegar klukkunni er breytt þá kemur sumarið !!
Ég var í Amsterdam í síðustu viku, mjög skemmtileg borg og væri gaman að fara þangað í sumarblíðu að spóka sig. Allir eru mjög afslappaðir þarna og ekkert stress hjá neinum, spurning hvort það sé eitthvað í loftinu sem rói fólk svona ?! ... allavega er borgin mjög ólík London. Hitti Börk aftur og fór hann með mig á stúdentakjallara þar sem fjörið átti að vera, ég var nú hálf-afkáralegur í jakkafötunum innan um stúdentana en einnarevrubjórinn smakkaðist þó vel.
föstudagur, mars 19, 2004
Kominn aftur frá Amsterdam - var þar frá mánudegi til fimmtudags, gisti á alveg ágætis hóteli sem nefnist Okura - japönsk hótelkeðja ... eitthvað voðalega fínt. Hitti Börk eitt kvöldið og tók hann mig túristarúnt um miðbæinn eitt kvöldið - sýndi mér nokkra pöbba sem voru ekki týpiskir amsterdamskir pöbbar þar se hægt var að drekka týpískan amsterdamskan bjór og fræddi mig um leitarvélar á netinu. Áður en heim var haldið þurfti að sjálfsögðu að kaupa pakka fyrir Ingu Huld og var hún hæstánægð með barbie dúkkuna sem ég keypti á flugvellinum. Þarf síðan að fara aftur til Amsterdam í næstu viku ... stelpunum ekki til mikillar ánægju ;(
Núna er að byrja allrasíðasti þáttur Sex and the City seríunnar og bíður Jóa spennt eftir magnþrungnum endi !! Þá þarf að hrista Baileys í klaka og kannski maður kíki í koníaksskápinn ...
sunnudagur, mars 14, 2004
Ég og Inga Huld fórum í klippingu í gær - var Inga mjög spennt fyrir því og fannst þetta mjög gaman, sat kyrr og stillt allan tímann. Áðan þegar ég tók teygjurnar úr henni þá horfði hún í spegilinn og var voða súr yfir því að hún væri ekki lengur með sítt hár !! Það voru reyndar teknir um 5 cm af hárinu og var það kannski full mikið svona eftirá séð en hún er voða sæt og fín eftir styttinguna. Hún var síðan sátt við þá skýringu að hárið myndi vaxa aftur og það væri orðið sítt áður en hún vissi af.
Í dag fórum við til Greenwich - byrjuðum í stóra garðinum þar og hjólaði Inga Huld á fullu og ég og Jóa hlupum á eftir eða á undan og var mikið fjör hjá henni. Þetta var ágætis hreyfing fyrir okkur öll sömul. Veðrið var reyndar ekki nógu gott, rok og rigning. Það var dáldið skondið að fylgjast með bretunum úti sem þurftu að sjálfsögðu að vera með regnhlífarnar sínar ... ekki mátti nú vökna ... en þær fuku að sjálfsjögðu allar upp og sáum við þær síðan sumar komnar í ruslafötur eftir hamaganginn.
Veisla
Heldur betur veisla í gær í tilefni dagsins. Í forrétt var humar og hvítvín, síðan var boðið uppá grillað nautasirloin með Chateau Larmande og í desert var súkkulaðiostakaka, með íslenskum rjómaosti, og í deserdesert var kaffi og koníak - og allt alveg súpergott !! Inga Huld var þó eitthvað slöpp í gærkvöldi og var illt í maganum - lá hún bara í sófanum og sofnaði þar að lokum meðan við borðuðum. Taldi hún að hún hefði borðað of mikið súkkulaði um daginn og að það hefði ekki farið vel í magann sinn. Hún verður nú þó að vera tilbúin fyrir páskaeggjasúkkulaðiátið og má ekki láta það fara illa í magann sinn.
Vorboðinn kominn
Í gær sáum við vorboðann !! Það er greinilega að koma vor með betri tíð í haga ... risastór randafluga sást sveimandi fyrir utan húsið okkar og finnst mér það ákveðið merki um vorkomuna. 10 stiga hiti var í gær en samt í dembu sem kom þá fylgdi með smá haglél.
Við skoðuðum nokkur hús í gær í misjöfnu ásigkomulagi. Eitt var of stórt og dýrt, annað var með hraðbraut í bakgarðinum og það þriðja var í rusli. Það sem var í rusli bauð þó uppá skemmtilega möguleika þar sem það var stórt og Jóa gæti æft sig í innanhúshönnun með því að gera það upp.
föstudagur, mars 12, 2004
Vinna og skóli, skóli og vinna
Langt síðan skrifað hefur verið inn hér - tvær ástæður (afsakanir) eru fyrir hendi. Í fyrsta lagi er voðalega lítið skrifmerkt að gerast, það er bara vinna, skóli, skóli og vinna ... og í öðru lagi er eitthvað svo lítill tími til að skrifa hér inn þar sem allur tíminn fer í vinnu, skóla, skóla og vinnu ...
Ég á að vera í Amsterdam í næstu viku þannig að stelpurnar verða bara einar á Lullingstone Lane - Ingu Huld líst ekkert á það að pabbi sofi í Amsterdam og spurði mömmu sína hvort Amsterdam væri hús ... ekki alveg með landafræðina á hreinu !!
Húsaleit
Við ætlum að halda áfram að kíkja á hús um helgina - setjast inná fasteignasölur í Blackheath og trufla sölumennina ... verst hvað steypan er dýr hérna !
Plön
Það styttist í að tengdó komi í heimsókn og er Inga Huld farin að bíða með óþreyjusemi eftir páskaeggjunum sínum ... byrjað er að plana mikið í kringum heimsóknina og er ég kominn með tvo miða á Chelsea-Middlesboro og síðan á að reyna að keyra til Frakklands. Mikið fjör áætlað í kringum páskana.
föstudagur, mars 05, 2004
Bleikt er uppáhaldið
Við sögðum Ingu Huld að amma og afi sem koma í heimsókn um páskana myndu koma með indælis íslenskt páskaegg með sér. Leist henni vel á það og vildi fá bleikt páskaegg ... vorum við nú ekki alveg viss um að hægt væri að fá bleikt páskaegg heldur væri lítill gulur ungi ofan á súkkulaðiegginu. Hún hugsaði sig aðeins um og sagði þá að hún vildi hafa ungan bleikan. Einnig vildi hún fá bleika ballerínubarbídúkku og fannst það mjög spennandi - ekki veit ég hvaðan hún fær þessar hugmyndir !! ... en hún sver sig allavega í ættina til hennar Evu bleiku.
Amsterdam
Ég eyddi deginum í dag í Amsterdam - bleika ballerínubarbídúkkan átti einmitt að vera keypt þar fyrir Ingu - fór í morgun með Fokker 50 frá City Airport og kom heim um kvöldmatarleytið, minnti dáldið á það að fara til Akureyrar með Flugleiðum !! (btw, sorry Börkur að ég skildi ekki hafa tíma til að heimsækja þig ...) Fékk þó smá rúnt um Amsterdam þar sem að yfirmaður minn valdi vitlausa lest fyrir okkur og fórum við í miðbæ Amsterdam frá Schiphol í staðinn fyrir að fara í Suðurhlutann þar sem höfuðstöðvar ABN eru staðsettar. Þegar við vorum búnir að vera um 10 mín í lestinni þá fór hann að blóta og ragna og sagði að við ættum að vera komnir á leiðarenda og sagði að við værum í vitlausri lest. Ég hafði einmitt upplýst hann um það á flugvellinum að ég rataði ekkert þarna um það væru ca. 15 ár síðan ég hefði verið þarna og að ég elti hann bara - "Trust me" sagði hann þá !!! En sem sagt þá tókum við leigubíl úr miðbænum til ABN þannig að ég fékk smá rúnt um bæinn.
Afslöppun
Róleg afslöppunarhelgi framundan ... ætlum voða lítið að gera ... nema kannski að skoða okkur um í hverfinu þar sem við þurfum líklega að flytja í september ...
mánudagur, mars 01, 2004
Helgarferð til London
Notuðum laugardaginn til að túristast í London - tókum lestina í bæinn og röltum um Oxford stræti og versluðum föt á Ingu Huld og annað skemmtilegt. Fengum okkur samloku á Garfunkels í hádeginu og höfðum það gott. Um kvöldið fór ég síðan að hitta stráka úr ISMA á hinum frábæra argentíska steikhúsi Gaucho Grill - alveg súper gott ... klikkar ekki.
Á sunnudeginum fórum við aftur í bæinn en í þetta skiptið á bílnum - gleymdum kortinu heima en tókst þó að rata um svæðið - keyrðum á Tottenham Court Road og skoðuðum okkur um í búðunum þar og kaffihúsunum. Inga Huld fékk rosalega súkkulaðiköku með vanilluís sem hún hafði lítið fyrir að sporðrenna ofan í sig.
Cannibal
Einstaklega áhugaverður þáttur í sjónvarpinu um Þjóðverja sem að auglýsti á netinu eftir manni sem vildi láta éta sig. Svo ótrúlega vildi til að hann fékk svar við auglýsingu sinni og var þar kominn maður sem átti sér þann draum að vera drepinn og étinn !! Tveimur árum eftir þetta sem var núna í haust komst upp um málið og maðurinn handtekinn. Olli þetta erfiðleikum í dómsal þar sem deilt var um hvort morð hefði verið að ræða eða ... hvort það sé ólöglegt að láta viljandi drepa sig og éta !! Mjög skemmtileg og áhugaverð siðferðisleg spurning.
fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Skandall vikunnar hjá Tony
Alltaf nóg um að vera hjá honum Tony. Einsog fréttirnar sögðu frá þá byrjaði dagurinn vel hjá Tony eða þangað til að hann var spurður að því hvort hann hefði látið njósna um Kofi Annan !!! Símar hleraðir hjá Sameinuðu Þjóðunum og Kofi veitt efitrför og annað slíkt. Alveg magnað að fjölmiðlunum tekst alltaf að finna eitthvern skandal um manninn og ef það er ekkert nýtt þá draga þeir bara upp eitthvað gamalt og fríska uppá það.
mánudagur, febrúar 23, 2004
Bolla Bolla
Bolla bolla lýsir útlitinu vel eftir bolludaginn - telst mér til að ég hafi borðað samtals 16 rjómabollur í dag og í gær ... að meðtöldum kjötbollunum í kvöldmatinn reyndar. Hér var mikill bollubakstur í gær þar sem Inga Huld átti að taka með sér bollur fyrir allan krakkaskarann á leikskólanum. Jóhanna hafði minnst á þetta við fóstrurnar í síðustu viku og þeim leist svo vel á þetta að þær voru búnar að setja þetta í plan dagsins í dag þannig að Jóhanna hafði engra kosta völ annað en að baka bollur og gat ómögulega bakkað útúr þessu. Inga Huld fór svo einnig með bolluvöndinn sinn í leikskólann og bollaði þar mann og annan.
Wintry Week
Þrátt fyrir allt vorið sem komið var hjá okkur er aftur orðið kalt - hitastigið komið í frostmark og hitastigsspáin í veðurfréttunum er einföld: "Cold".
laugardagur, febrúar 21, 2004
Vorið sprettur úr spori
Ég og Inga Huld fórum í hjólatúr í dag - hjólaði Inga á leikvöllinn og síðan fórum við í hreinsunina að ná í fötin sem við fórum með um síðustu helgi. Aftur var mesta sportið að reyna að stinga mig af og þurfti ég einu sinni að grípa hana frá falli þegar hún fór á fullu niður smávegis halla, sem henni fannst hið mesta fjör. Í garðinum eru farin að spretta blóm og páskaliljur og laufblöð eru farin að koma á tréin. Ég gaf Jóhönnu einmitt páskaliljur og túlípana í gær í tilefni konudagsins sem er á morgun ... það er semsagt tiltölulega páskalegt hjá okkur.
Útigrillað lambalæri
Í kvöldmatinn var útigrillað lambalæri og í desert var ís og grilluð jarðarber, brómber og bláber með makkarónum og súkkulaði. Þetta var mjög íslenskt í okkar huga þó að ekkert af þessu væri upprunnið frá Íslandi. Síðan horfðum við á Spaugstofuna á netinu og sofnuðum síðan yfir upptöku af fréttunum - mjög íslenskt. Spaugstofan er nú eitthvað farin að slappast og fannst okkur hún ekki mjög fyndin. Planið er síðan að horfa á Sjakalann með Bruce Willis á BBC3.
þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Hamborgarar í hádegismat
Það eru fáir krakkar í leikskólanum hjá Ingu Huld þar sem vetrarfrí er í skólum (ekki hjá Jóu þó) - á morgun er hún ein og er planið hjá fóstrunum að fara á hamborgarastað í hádeginu og gera eitthvað úr deginum. Er Inga mjög lukkuleg með það og líst vel á planið ...
Græna kortið dýrt
Þarf að endurnýja mánaðarkortið mitt á morgun sem gildir í lestar og strætó - kostar það 93 pund, takk fyrir.
Skrifaði annars mína fyrstu ávísun í gær !!! Hef aldrei notað ávísanir en þarf nú í þessu frumstæða landi að nota þetta aldagamla apparat. Hef reyndar ekki ennþá afhent viðtakanda hana og hefur því ekki komið í ljós hvort rétt hafi verið farið að þessu ...
cheers
sunnudagur, febrúar 15, 2004
Ódýrari um tylftina
Ég og Inga Huld fórum í bíó í dag á "Cheaper by the dozen" með Steve Martin. Fjallar hún um hjónakorn sem eiga tólf börn og flytja til stórborgarinnar. Þetta er síðan náttúrulega bara bölvuð vitleysa og Ingu Huld fannst þetta í lengri kantinum - vildi fara áður en myndin var búin. Við horfðum þó á alla myndina en ég held að poppkornið hafi vakið mesta lukku hjá Ingu.
laugardagur, febrúar 14, 2004
Valentínus kemur
Búið að afgreiða vikuverslunina í Sainsbury í dag -ég og Inga Huld þurftum síðan að fara í aðra og stærri Sainsbury lengra í burtu þar sem ekki var til túnfiskur í búðinni okkar. Jóhanna varð eftir heima að læra á meðan við skruppum - túnfiskurinn var til í þetta skiptið og héldum við uppá það með því að fara á Starbucks og fékk ég mér svartan Americano en Inga fékk appelsínusafa. Á heimleiðinni tókum við síðan vídeó - Inga Huld valdi sér jólaspólu með prúðuleikurunum og ég tók Down with love með Ewan McGregor, Reneé Zellweger og bróður hans Frasier ... var þessi spóla valin í tilefni Valentínusardagsins ... Túnfiskurinn var síðan alveg meiriháttar góður enda Jóa meistarakokkur að elda og ekki skemmir fyrir að elda eftir Jamie Oliver uppskrift. Hann var mareneraður með sítrónu og pipar og síðan grillaður í ofni í 1 mínútu á hvorri hlið - alveg frábært með Ondarre, Rioja víni frá 1998 ... mjög svo rómantískt í tilefni Valentínusar.
Á fullu á hjólinu
Annars er daginn tekið að lengja og er farið að verða vel bjart á morgnana þegar ég fer í vinnuna, það styttist í sumarið !! Ég fór með Ingu Huld út að hjóla í dag og hún er orðin heldur betur dugleg að hjóla, greinilega orðin mun sterkari í fótunum heldur en hún var í haust - við höfum því miður ekki gefið okkur tíma til að fara út að hjóla lengi og hún var alveg á fullu. Ég þurfti að hlaupa með henni og greinilegt að hún mun stinga mig af fljótlega - ég reyndi því að leggja áherslu á að kenna henni á bremsurnar og að hún mætti ekki fara yfir götu án mín. Við fórum í ágætis hjólreiðatúr í hreinsunina með jakkaföt og bindi sem er hér nálægt okkur og síðan litum við í búð sem selur ýmis konar dót fyrir bíla. Þar fann ég "Back to black" efni sem ég þarf að setja á bílinn - nefnilega um síðustu helgi þegar ég var að bóna bílinn þá fór dáldið af bóninu á svörtu listana á bílnum og skildi eftir sig ljóta hvíta bletti ... ég er greinilega kominn úr bílabón æfingu. Inga Huld var nú ekki ánægð með öll þessi stopp og vildi bara hjóla. Þegar við komum aftur heim þá var hún á svo mikilli ferð og ætlað að snarbeygja inn innkeyrsluna að ég þurfti að grípa í hana svo hún myndi ekki velta á hliðina!!! Henni fannst þetta bara gaman ... er svo mikill gaur ... og talað mikið um það hvað hún hjólaði hratt og mikið.
Fer fram í ensku
Þegar Jóa kom í leikskólann um daginn varð hún mjög hissa að heyra Ingu Huld vera í hrókasamræðum við einn strákinn á leikskólanum og fóstrurnar - sagði hún heilu setningarnar á ensku og hafði lítið fyrir því. Fyrstu setningarnar við mömmu sína voru síðan á ensku en þegar hún heyrði hana tala íslensku þá skipti hún yfir. Enskusletturnar hafa minnkað töluvert hjá henni í íslenskunni og virðist hún vera farin að skilja nokkuð vel á milli.
sunnudagur, febrúar 08, 2004
Veðrið stóðst væntingar í gær og grilluð var úti nautasteik. Eini vandinn var að grilla í myrkrinu þar sem ekki er útiljós í garðinum - notast þurfti við ljóstýruna sem kom út um stofugluggann. Þetta gekk þó alveg upp og var steikin ljúffeng og góð. Meðlæti voru sveppir með gráðosti, tómatar með pestó og mozzarella, kúrbítur og svo náttúrulega köld sósa ... algjört nammi.
Í dag þrifum ég og Inga Huld síðan bílinn hátt og lágt, að utan sem og innan og er hann skínandi fínn núna. Þegar verkinu var lokið var Inga Huld rennandi blaut en hafði skemmt sér konunglega við þrifin.
föstudagur, febrúar 06, 2004
Nýja serían af Friends byrjuð í sjónvarpinu - enn hægt að hlæja að þeim og er það vel eftir alla þessi þætti þeirra. Stelpunum tókst að týna um daginn einum hjólkoppi af bílnum - gerðist það þegar Jóa þurfti að afhýða banana fyrir Ingu Huld og rakst þá gangstéttarkantur á bílinn með þeim afleiðingum að hjólkoppurinn rúllaði undan. Á leiðinni í skólann í morgun fundu þær hjólkoppinn aftur og var hann heill á húfi og er kominn aftur á sinn stað !!
miðvikudagur, febrúar 04, 2004
Tel að hitamælirinn okkar sé bilaður - hann sýnir nú 14.8 gráðu hita !! Ef áframhald verður á þessari blíðu þá er stefnt að því að grilla bara úti um helgina ... það væri nú ekki amalegt að fá sér góða útigrillaða nautasteik og rauðvínsglas með ...
Síminn okkar annars kominn í lag - kalla þetta nú bara ágætis þjónustu hjá BT - fékk SMS frá þeim í dag þar sem þeir tjáðu mér að búið væri að laga vandamálið. Öllum símtölum hefur líka verið beint sjálfkrafa í GSM símann minn, mér að kostnaðarlausu og fæ ég einhvern afslátt á næsta símreikning vegna þessarar bilunar. Nokkuð ánægður bara með þetta bákn.
þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Fengum í dag bréf frá Blackheath High School sem hljóðaði þannig:
"It was a pleasure to be able to welcome Inga to the Junior Department last month. Inga coped very well with the assessment tests considering that she was unable to communicate very much in English, and we felt she showed potential. Consequently I would like to offer her a place in Reception in September 2004, on condition that she has English lessons before she enters Recepteion."
Mikil fagnaðarlæti brutust út og Inga er voða spennt yfir því að vera að fara í "Big School". Hún náði sem sagt "inntökuprófinu" en þarf að fara í enskukennslu áður en hún byrjar - við teljum nú að enskan fari hraðbatnandi hjá henni og hún verði orðin rennifær næsta haust.
Annars er kominn sumarhiti hér - mælirinn sýnir 13 stiga hita. Spáð er að hitamet falli hér á Englandi í febrúar !! þannig að það er um að gera að fara að kaupa sólvörn og bikiní !
cheers
sunnudagur, febrúar 01, 2004
Fórum í dag að skoða ansi óvenjulegt hús hér í London, nálægt Liverpool Street Station. Dennis Sever´s House er hús sem búið er að færa aftur í tímann og getur maður vafrað þarna um. Við töldum að það væri nú ekki mikið um fólk að skoða þarna en það var biðröð þegar við mættum og var hleypt inn um leið og einhver fór út. Gaman að skoða eitthvað "nýtt" hérna ... Fengum okkur svo bakkelsi og ferskan ávaxtasafa á Spitalfield markaðnum - bregst ekki.
laugardagur, janúar 31, 2004
Það var verslunarleiðangur fyrir Jóu í dag - ýmislegt sem kaupa þurfti fyrir námið, blöð hér, penna þar og teikniborð hinu megin. Sett var upp mikið plan og byrja átti á Atlantis sem er rétt hjá Liverpool Street Station, síðan lá leiðin í eina búð nálægt Tower Gateway og London Graphic Centre hjá Covent Garden og endað var í Paperchase á Tottenham Court Road. Þetta var mikið ferðalag en gekk nú allt vel - alltaf jafn gaman að fara og keyra í miðbænum. Bílastæðið hjá Covent Garden var svona í dýrari kantinum fannst okkur - setti 2 pund í mælinn og mátti þá vera í heilar 25 mínútur !! 40 pence fyrir 5 mínútur - ekki gefins bílastæði það ... okkur minnti að við fengjum nú allavega hálftíma fyrir 1 pund.
Inga Huld er búin að týna farsímahleðslutækinu mínu - var að leika með það í einhverjum innkaupaleik um daginn og var komin með það í poka ásamt öðru dóti - finnst ekki núna og ég sem er að verða batteríslaus ... Einnig er heimilissíminn eitthvað bilaður þannig að ekki vera hissa ef að það er alltaf á tali - finnst líklegt að einhver símastaur hafi fokið niður þar sem það er búið að vera töluvert rok í dag og þetta töluverða rok telst sem stormur hér að ég held.
Núna er í sjónvarpinu þátturinn, I´m a Celebrity - Get me out of here, sem er svona hálfgerður Survivor nema þetta á að vera frægt fólk. Eina þekkta fólkið þarna sem að ég þekki er Johnny Rotten og Jordan - (þyrfti nú að setja upp könnun til að athuga hversu margir þekki þetta fólk). Rotten virðist fíla sig mjög vel þarna í frumskógum Ástralíu og Jordan er að afhjúpa eitthvað af leyndarmálum sínum (afhjúpar nú svona ýmislegt annað einnig í leiðinni) sem að eiga koma fram í bók hennar sem kemur út núna bráðlega. Þar ætlar að hún að birta eitthvað af nöfnum á þekktum mönnum í sviðsljósinu sem að hafa gert eitthvað dónó með henni. Hún virðist vera að gera það mjög gott og virðist hafa gert samning við The Sun þar sem hún hefur verið á forsíðunni undanfarnar 2 vikur.
Annars er alltof mikið að gera í því að fylgjast með fréttum, Blair rétt vann atkvæðagreiðslu um skólagjöld og síðan var hann fríaður af því að hafa átt einhvern þátt í dauða helsta vopnaleitarsérfræðings þeirra (sem framdi sjálfsmorð - Kelly) heldur var öllu klínt á BBC og hafa helstu stjórnendur þar sagt af sér í kjölfarið. Síðan eru kosningar í sumar og vorum við að fá staðfestingu á því að við værum á kjörskrá hér í Lewisham - kosið verður um borgarstjóra í London, The London Assembly og Evrópuþingið ... það þarf að fara að fylgjast með pólitíkinni ...
föstudagur, janúar 30, 2004
Ætlaði að setja bréf í póst í dag og tók það með mér í vinnuna. Þegar ég fór í hádegismat ætlaði ég að setja það í póstkassa sem mig minnti að væri nóg af í kringum Liverpool Götu Stöðina. En engan póstkassa fann ég ... þegar ég var inná McDonalds komst ég síðan að því þegar ég ætlaði að henda ruslinu að það var búið að fjarlægja allar ruslafötur af staðnum ásamt öllum ílátum og kössum í kringum lestarstöðina vegna öryggisráðstafana ... hættulegur heimur sem búið er í !! ... komst þó að því að minnið hafði ekki brugðist mér heldur var bara búið að fjarlægja póstkassana.
miðvikudagur, janúar 28, 2004
Við erum aftur orðin ein í kotinu - Gísli og Halldóra létu sig hverfa til klakans á mánudaginn. Alveg meiriháttar fjör um helgina !!
Í dag snjóaði ... það er sem sagt helst í fréttum í dag !! Kom blindbylur og auðvitað þurfti ég akkúrat að vera úti og kom þakinn í snjó í vinnuna aftur - þetta var bara einsog að vera heima. Allir jesúuðu sig og blótuðu yfir veðrinu í vinnunni - flugi var frestað og allt í volli. Snjór er ennþá í götunni þannig að það gæti verið erfitt að keyra í skólann fyrir Jóu á morgun - ekki endilega vegna þess að hún sé óvön því heldur vegna þess að umferðin gengur alveg hrikalega hægt þegar það er hálka og svo ekki sé talað um smá snjór að auki.
Inga Huld er búin að fara í tvö inntökupróf fyrir skóla sem við vonumst til að hún komist inní næsta haust. Fyrra prófið í síðustu viku var hún ein með kennara og í dag var hún síðan í hóp með krökkum. Jóhanna var beðin vinsamlegast um að fara um leið og hún kom með Ingu og að hún mætti sækja hana klukkutíma seinna. Vitum ekki alveg hvernig henni gekk þar sem hún talar ekki voðalega mikið - er líka oft feimin við fólk til að byrja með. Hún skilur þó allt sem sagt er við hana á ensku þannig að vonandi gengur þetta allt saman upp.
laugardagur, janúar 24, 2004
Búið er að afreka alveg ótrúlega miklu í dag ... skipta þurfti liði til að gera allt sem gera átti. Byrjuðum á að sjá hann Óla okkar í Tate Modern. Sem sagt hann Ólafur Elíasson er með listaverkauppsetningu í innganginum á Tate - weather project - verk af sólinni, mjög flott og vel heppnað og vakti greinilega mikla athygli. Síðan fórum við strákarnir á Higbury að horfa á Arsenal vs Middlesboro. Arsenal vann glæsilegan sigur 4-1 í alveg hreint mjög skemmtilegum leik. Magnaður völlurinn sem er innanum íbúðarhúsin og þarf að ganga á milli raðhúsanna til að komast að innganginum. Ekki gaman að búa við þessar götur þar sem að 38.000 manns koma saman á tveggja vikna fresti. Við hittum síðan stelpurnar í Covent Garden og fengum okkur tælenskan mat áður en að við skiptum liði aftur og strákarnir og Inga Huld héldum heim á leið á Lullingstone til að fara að sofa (Inga Huld sem sagt að sofa) en stelpurnar fóru að sjá Fame og síðan á Bar38 að fá sér Toblerone drykkinn fræga !! Allir mjög ánægðir með sitt, strákarnir fengu góðan bolta, stelpurnar sáu skemmtilegan söngleik og Inga Huld fékk nammi og svoleðis og var einnig hrifin af sólinni hjá honum Óla.
Cheers and have a good one ...
miðvikudagur, janúar 21, 2004
Það þurfti nú bara að taka fram sumarjakkann áðan þegar við skelltum okkur í Sainsbury að versla. Hlýtt og gott er nú orðið aftur hjá okkur, en blautt er á meðan - veðurfarsveiflurnar hérna minna nú dáldið á klakann. Gerðum stórinnkaup í Sainsbury þar sem von er á góðum gestum yfir næstu helgi - þurfti því að fylla ísskápinn af hinu og þessu góðgæti svo allir geti dvalið hér við hið besta yfirlæti. Fyrir helgina er einnig búið að kaupa miða á fótboltaleik og í leikhús. Strákarnir skella sér á Arsenal og Middlesboro í 4ðu umferð FA bikarsins og stelpurnar fara um kvöldið að sjá Fame. Einnig á að kíkja meðal annars á Ólaf Elíasson í Tate Modern. Síðan þarf að sjálfsögðu að skoða hér nánasta umhverfi einsog Blackheath og Greenwich og fara þennan venjulega túristarúnt sem við erum orðin svo ansi góð í !! Eflaust þarf að kíkja eitthvað á Oxford Street og Regent þar sem stelpurnar vilja vafalaust versla eitthvað - ætti það nú að vera hagstætt vegna útsalna sem eru í fullum gangi og sterkrar stöðu íslensku krónunnar ... verst samt hvað pundið er sterkt núna gagnvart dollaranum og hefur styrking krónunnar því ekki skilað sér nægilega vel gagnvart pundinu ... Varðandi útsölurnar þá er meira að segja hægt að fá 2 fyrir 1 af sófum - mjög hagstætt ... þegar maður kaupir þriggja sæta sófann sem mann vantaði þá fylgir annar með !! spurning bara hvort það sé pláss fyrir hann?
Cheers
sunnudagur, janúar 18, 2004
Í gær var þessi líka fína veisla. Sif og Geir komu í heimsókn í siðmenninguna frá Isspiss og var boðið í íslenskt lambalæri fyllt með gráðosti og döðlum - algjört nammi !! Í forrétt var íslenskur reyktur lax á ítölsku salatbeði og portúgalskt hvítvín með ... þetta var því töluvert alþjóðlegur matseðill. Eftir matinn var síðan afgangurinn af stjörnuljósunum brenndur - ekki er ég alveg klár á því hvernig nágrönnunum leist á þetta en skemmtum við okkur allavega konunglega við þetta og vara svona smá áramótafílingur í þessu - hefði bara vantað að horfa síðan á skaupið. Í dag sýndum við þeim síðan Greenwich og núll lengdarbauginn - alveg klassískur túristatúr og erum við að verða ansi þjálfuð í þessum rúnti. Skiluðum þeim síðan af okkur við Liverpool Street Station þar sem að erfið lestarferð beið þeirra heim til Isspiss. Á heimleiðinni gripum við síðan McDonalds með okkur við mikinn fögnuð sumra fjölskyldumeðlima - Big Tasty borgarinn klikkar ekki og mæli ég enn með kaupum í honum, sé þar mikil og stór tækifæri.
Cheers
miðvikudagur, janúar 14, 2004
Inga Huld er búin að plana framtíðina - semsagt þegar hún er orðin stór þá ætlar hún að giftast honum Louie sínum og búa í Englandi en mamma og pabbi flytja til Íslands. Ætlar hún að vera í fínum kjól og á þetta allt að vera voðalega fínt og smart. Ekki annað hægt en að brosa að þessum pælingum hennar. Þessar pælingar eftir 15 ár myndu síðan reyndar líklega valda frekar áhyggjum heldur en brosi !!
Ég er orðinn ansi æfður í að komast í og úr vinnu - er núna um 35-40 mínútur hvora leið og er bara nokkuð sáttur við það. Sé alltaf sama fólkið á morgnana að taka sömu lestina í sömu vinnuna - þetta fer bara að verða ansi heimilislegt þarna á brautarpallinum og ætli maður fari svo ekki að pæla í því í framtíðinni hvar í ósköpunum einhver sé sem maður sér að vantar ... hvort hann sé nú nokkuð lasinn eða búið að reka hann ...
Við fengum tilkynningu um daginn að leigusamningurinn okkar rynni út í mars og spurt hvort við vildum framlengja - við óskuðum eftir framlengingu í 1 ár sem við vonum að verði samþykkt. Leigusalarnir eru nefnilega að ferðast um heiminn og styttist í að þau komi aftur þar sem þau klára peningana sína. Allavega nennum við ekki að fara að flytja á næstunni - erum alveg komin með nóg af því - en við þurfum þó líklega að flytja eftir rúmt ár en þurfum nú ekki að hafa áhyggjur af því núna.
þriðjudagur, janúar 13, 2004
Það er búið að vera rok hjá okkur og það fer ekki framhjá okkur - eða þ.e.a.s. allavega ekki framhjá húsinu okkar þar sem það virðist bara smjúga beint í gegnum það. Það kólnar töluvert hér inni hjá okkur þegar hvessir utandyra - skiptir ekki öllu máli hitastigið úti bara hversu mikið rok það er. Yfirleitt er nú tiltölulega lygnt hérna þannig að þetta er nú iðulega ekki vandamál.
sunnudagur, janúar 11, 2004
Þá er enn ein helgin liðin og vinnuvikan blasir við - Jóa byrjar í skólanum og allt fer að falla í sinn vanagang. Fórum í bakaríið í Blackheath í dag til að kaupa kökur með kaffinu - eina bakaríið sem við vitum um hér um slóðir sem opið er á sunnudögum. Greinilega ekki mikið um að Bretar fari í bakaríið á sunnudögum til að fá sér nýbökuð rúnstykki og vínarbrauð.
laugardagur, janúar 10, 2004
Erum að horfa á furðulegan þátt sem er verðlaunaafhending lookalike fólks - semsagt fólk sem er líkt fræga fólkinu er með stóra og fína athöfn og gefur hvoru öðru verðlaun fyrir að vera líkt frægu fólki !!!
Helgarbíltúrinn í dag var til Cambridge - rúmlega klukkutíma akstur í þennan skemmtilega háskólabæ. Gaman að rölta um miðbæinn innan um gamlar byggingar og skoðuðum magnaða kirkju sem er með stærsta hvolfþaki Englands - ótrúlegt hvernig var hægt að byggja svona byggingar á 15. öld þegar við vorum enn að byggja torfkofa ... Fullt af fólki var þarna á ferðinni og greinilega mikið af fólki að túristast. Cambridge er einn mesti reiðhjólabær Englands og er það líklega vegna þess hversu margir stúdentar eru þarna á ferðinni. Líklega ekki verið amalegt að stúdera þarna þar sem lærdómsandinn virðist svífa þarna yfir vötnum og eflaust mikill innblástur að vera þarna á staðnum sjálfum.
Ætlum annars að fara að horfa á myndina Cabaret sem fylgdi frítt með Daily Mirror í dag.
föstudagur, janúar 09, 2004
Nú er búið að setja hillu ofan á kommóðuna hennar Ingu Huldar. Hillan var keypt í IKEA um daginn og sett saman í gærkvöldi - verkið var síðan klárað í kvöld við mikinn fögnuð viðstaddra. Nú er pláss fyrir allt playmoið hennar sem hún fékk í jólagjöf - hlöðu og hesthús ásamt fullt af dýrum.
Sló met í morgun - var einungis 38 mínútur á leiðinni í vinnuna !!! Fannst það ansi gott þar sem að ég hef yfirleitt verið um 45 mínútur á leiðinni en það lengsta sem það hefur tekið mig var 1 klukkutími og 20 mínútur - hef greinilega verið mjög óheppinn þann dag. Gerði síðan þau mistök á leiðinni heim í dag að ég tók Central Line í vitlausa átt !! - algjör sauður, sá lestina nefnilega þegar ég kom hlaupandi niður stigann og rauk inn í hana. Áttaði mig síðan á því að þetta var öfug átt sem ég var að fara í þannig að ég þurfti að skipta á næstu stöð og snúa við.
miðvikudagur, janúar 07, 2004
Stelpurnar komu á bílnum og sóttu mig í vinnuna í dag. Fórum við síðan í Lakeside - byrjuðum í IKEA og fórum síðan í mollið að versla, skoða og borða. Keyptum tvær túrhestabækur, eina um London og aðra um Stóra-Bretland - getum því túrhestast á næstunni um svæðið og verðum með allt á hreinu þegar gestir koma í heimsókn!!
Allir annars hressir - Jóa heima að læra á daginn og Inga Huld á fullu í leikskólanum. Það er greinilega mikið að gera hjá henni í leikskólanum vegna þess að hún er orðin dauðþreytt og steinsofnar um kl. 8 á kvöldin og síðan þarf að vekja hana klukkan 8 á morgnana.
sunnudagur, janúar 04, 2004
Fórum í sunnudagsbíltúr í dag um sveitir Englands. Keyrðum nánar tiltekið á austurströndina í bæinn Margate sem er eins langt í austur frá London á hjara Englands og hægt er komist ... ekki var nú mikið um að vera þar. Húsin frekar illa farin og allt lokað - virtist þó samkvæmt upplýsingum okkar að bærinn hefði verið vinsæll á fyrri hluta aldarinnar sem baðstaður ríkra herramanna. En þarna voru sandstrandir og kannski meira um að vera þegar sólin er til staðar á sumrin. Löbbuðum aðeins þarna um ströndina og skoðuðum okkur um og fórum síðan á kaffihús og fengum okkur samloku og heitt súkkulaði. Súkkulaðið var þó einungis volgt kakó og afgreiðslukonurnar voru mjög uppteknar við ýmis verkefni. Ein var að ryksuga og restin var að reykja og spila í spilakassa - mjög huggulegt semsagt og minnti okkur um margt þegar við stoppuðum eitt sinn í Esso sjoppunni á Blönduósi til að fá okkur hamborgara. Vitum semsagt hvað við gerum næst þegar við fáum heimþrá ...
laugardagur, janúar 03, 2004
Mikið var um það í fréttunum í gær að það hafi þurft að fresta hinum ýmsu áramótaskemmtunum í Bretlandi vegna veðurs - einnig var einhverju frestað í London þó mest allt hafi farið fram samkvæmt dagskrá. Ástæða frestunar var veðurfarið - það var semsagt rok og rigning og kalt ... samkvæmt fréttunum - skiljum það ekki alveg þar sem ágætisveður var allavega hér hjá okkur og þegar við horfðum á BigBen slá áramótin inn í sjónvarpinu þá virtist nú ekki vera mjög slæmt veður. Þetta eru nú meiri aumingjarnir ... hefðu ekki dug í sér að skjóta upp flugeldum á klakanum í frostinu og hálkunni og snjónum !!!
Við héldum tvisvar uppá áramótin, ensk og íslensk - vorum nefnilega með dagskrána í ríkissjónvarpinu í gangi í tölvunni og var mun betra samband eftir að skaupinu lauk, líklega bara mikið álag á því. En semsagt klukkan 12:10 þá sáum við árið 2003 fara á íslenskan hátt og 2004 koma - þurfti þá náttúrulega að skála aftur og var þetta allt saman voðalega skemmtilegt. Inga Huld fór síðan fljótlega í bólið eftir þetta og var fljót að sofna - hún hafði farið út með stjörnuljós og skemmti sér konunlega um kvöldið. Fluttum stjörnuljósin með okkur frá Íslandi þar sem lítið er um svona áramótavarning hér - var reyndar selt hjá kaupmanninum á horninu eitthvað af svona drasli en það var frekar ómerkilegt og rándýrt !!
Fórum í bæinn í dag - löbbuðum Oxford og kíktum í búðir, Inga Huld fékk Nike skó í Nike búðinni ... rosa flotta. Höfðum séð skó í Nike búðinni á Íslandi og kostuðu þeir 4.990 krónur og fannst okkur það fullmikið. Sáum sömu tegund af skóm í búðinni hér og áttu þeir að kosta 20 pund en voru á 16 pund á útsölu og að auki þar sem þetta var gömul lína þá voru þeir ekki til í litnum sem við vildum !!! Okkur fannst verðið 4.990 krónur heldur mikið okur á gamalli skólínu á Íslandi. Við fundum þó aðra skó ... sem var ný lína á nýju verði ... Inga verður nú að vera smart í London !! - kostuðu 23 pund og fannst okkur það ekki slæmt, allavega ekki miðað við íslenskt verðlag. Spurning hvort flutningskostnaðurinn til Íslands sé 2000 krónur ...
Í matseðli gamlárskvölds gleymdist að fordrykkur kvöldsins var Mojito - því miður heppnaðist hann ekki alveg nógu vel hjá okkur (var þó vel drekkanlegur) og þess vegna ætlum við okkur að experimenta með hann í kvöld. Á Jamie dagatalinu hennar Jóu er nefnilega uppskrift af Mojito og þurfum við að prufa hana - semsagt næst þegar við fáum heimsókn þá getum við boðið uppá góðan Mojito !!