laugardagur, febrúar 21, 2004

Vorið sprettur úr spori

Ég og Inga Huld fórum í hjólatúr í dag - hjólaði Inga á leikvöllinn og síðan fórum við í hreinsunina að ná í fötin sem við fórum með um síðustu helgi. Aftur var mesta sportið að reyna að stinga mig af og þurfti ég einu sinni að grípa hana frá falli þegar hún fór á fullu niður smávegis halla, sem henni fannst hið mesta fjör. Í garðinum eru farin að spretta blóm og páskaliljur og laufblöð eru farin að koma á tréin. Ég gaf Jóhönnu einmitt páskaliljur og túlípana í gær í tilefni konudagsins sem er á morgun ... það er semsagt tiltölulega páskalegt hjá okkur.

Útigrillað lambalæri

Í kvöldmatinn var útigrillað lambalæri og í desert var ís og grilluð jarðarber, brómber og bláber með makkarónum og súkkulaði. Þetta var mjög íslenskt í okkar huga þó að ekkert af þessu væri upprunnið frá Íslandi. Síðan horfðum við á Spaugstofuna á netinu og sofnuðum síðan yfir upptöku af fréttunum - mjög íslenskt. Spaugstofan er nú eitthvað farin að slappast og fannst okkur hún ekki mjög fyndin. Planið er síðan að horfa á Sjakalann með Bruce Willis á BBC3.

Engin ummæli: