miðvikudagur, desember 27, 2006

Jólin voru haldin gleðileg heima á Íslandi - fórum í 4 jólaboð og var nóg etið og drukkið (þ.e.a.s. af jólaöli). Íslandsdvölin var góð og fengum við allar tegundir af veðráttu þennan stutta tíma sem við dvöldum heima ... það er náttúrulega partur af prógramminu. Við fórum einnig í gott partý, röltum Laugaveginn á Þorláksmessu, tókum kvöldrúnt um bæinn og kíktum í Kringluna ... allt virtist vera einsog það átti að vera þó að hægt væri að spotta nokkrar breytingar hér og þar. Kristján bróðir Jóu fylgdi okkur síðan með út og mun dvelja fram í miðjan janúar.

Herra Níels var bókaður í gistingu á meðan og var hann mjög ánægður að sjá alla aftur og komast heim - virtist hann kanna vel og vandlega hvort hann væri ekki örugglega kominn aftur heim á réttan stað. Okkur fannst nú leiðinlegt að skilja hann eftir svona aleinan yfir jólin en hann virðist sem betur fer hafa fyrirgefið okkur það fljótt.

þriðjudagur, desember 19, 2006

Jæja, þá líður bara að Íslandsferð ... verðum við mætt á svæðið eldsnemma á fimmtudagsmorgni og dveljum fram yfir jól. Mikill spenningur í liðinu og finnst Ingu Huld eiginlega ómögulegt að geta ekki verið aðeins lengur. Hér er búið að versla flestallar jólagjafir og er því nóg af farangri og öðru hafurtaski ... einnig þurfti að sjá til þess að enginn færi í jólaköttinn!

Herra Níels er afskaplega ánægður með allt jólaskrautið sem búið er að setja út um allt. Þegar Jóhanna kom heim í dag þá voru nokkrir jólasveinar komnir út um gólf og síðan finnst honum mjög skemmtilegt að taka jólakúlur af jólatrénu og rúlla þeim um íbúðina ... þegar reynt er að siða hann til þá stingur hann sér undir jólatrésmottuna eftir að hafa hlaupið nokkra hringi í kringum jólatréið ... hann veit sko alveg hvað á að gera við svona jólatré!

Einnig þarf sífellt að vera að vökva jólatréið en líklega er það Herra Níels sem svalar þar þorsta sínum mun meira heldur en jólatréið ... einhverra hluta vegna finnst honum vatnið þar mun girnilegra en það sem er í vatnsdallinum hans ...

Inga Huld er búin að reyna að útskýra í skólanum jólasveinana þrettán og skóinn í glugganum. Ekki komst það alveg rétt til skila þar sem að kennarinn hennar sagði okkur að allir krakkarnir í bekknum öfunduðu Ingu Huld svo af því að vera búin að halda jól ... hefur eitthvað misskilist þetta með pakkana frá jólasveinunum.

mánudagur, desember 18, 2006

Það var Winter Concert í BISNY eftir skóla í dag. Krakkarnir sungu og spiluðu og stóðu sig stórvel. Inga Huld flutti ljóð ásamt tveimur vinkonum sínum og var mjög ánægð með þetta allt saman. Á eftir var síðan matarhlaðborð þar sem hver og einn lagði sitt af mörkum. Okkar framlag var hangikjöt og laufabrauð ... nóg var af alls konar mat og var gott á fá Mince Pies úr Sainsbury´s sem ein breska mamman hafði fengið sent að heiman ... fleiri sem sakna Seinsbury´s! Ekki gekk nú mikið á okkar framlag en fólki fannst það þó forvitnilegt - það er allavega til nógur afgangur í einn kvöldmat ... ekki amalegt. Við fórum síðan á Hairy Monk og fengum okkur hamborgara og baunabrauð ... klikkar ekki.

cheers

sunnudagur, desember 17, 2006

Dagskráin í dag var þéttskipuð. Fyrst þurfti að baka fleiri smákökur þar sem það er farið að sjást í botninn á hinum boxunum. Síðan var jólatréið skreytt - erum við í fyrra fallinu til að vera með í amerísku stemningunni ... við erum þó ákveðin í því að vera í íslensku stemningunni í janúar og leyfa því að standa til þrettándans. Eftir jólatrésskreytinguna og smákökuát þá var lagt af stað í stuttan verslunarleiðangur í Bloomingdales og Fifth Avenue þar sem ég fékk gallabuxur og peysu, Jóa fékk gallabuxur en jogginggallinn sem kaupa átti á Ingu Huld í Nike búðinni eða GAP var ekki til. Þegar þessu var lokið á var stefnan tekin á Radio City þar sem við áttum miða á sýninguna Christmas Spectacular. Við pöntuðum miðana fyrir tveimur mánuðum og voru þá allar helgarsýningar fyrir jól nánast uppseldar en það var hægt að fá ágætis sæti á sýninguna í desember 2007 ... okkur sæti voru því uppi í rjáfri. Sætin voru bara fín þótt hátt væri setið og var sýningin alveg frábær ... þetta var dans- og söngleikur um jólasveininn og aðdraganda jólanna. Var þar tvinnað saman ballet, kabarett, skautum og bíói með 3D gleraugum. Fannst okkur og þá sérstaklega Ingu Huld mjög skemmtilegt en við ætlum þó ekki að fara aftur að ári í betri sæti ... reynum frekar að komast á eitthvað annað og vera þá aðeins fyrri til að kaupa miða ... kannski bara að fara að skoða í janúar.

Í kvöldmatinn var hangikjöt með uppstúf og laufabrauði ... ekki amalegt! ... hálfgerður Þorláksmessufílingur yfir þessum degi.

cheers

laugardagur, desember 16, 2006

Núna átti að taka slurk í jólaskreytingunum á þessu heimili enda lítill tími til stefnu þar sem við förum til Íslands á miðvikudaginn. Jóa var búin að endurnýja jólaseríurnar þar sem að þær frá Englandi virka ekki rafmagnsins vegna og síðan fjárfestum við í jólatréi. Var einn jólatréssali ekki svo langt frá okkur sem seldi Boston furu og eitthvað annað tré sem hann lofaði okkur að það þyrfti varla að vökva það en samt myndi það halda nálunum mjög vel ... var það líka helmingi dýrara en hin tréin ... við skelltum okkur á það svo það væri nú ekki alveg strípað þegar við komum aftur frá Íslandi. Þegar jólatréið var heim komið þá fengum við nóg af litla jólatrésfætinum sem við keyptum á Hrafnhólaárunum okkar og var ætlaður fyrir ca. metershá tré ... það þurfti yfirleitt sérstaka athöfn til að jólatrésfætur á tveggja metra trjám pössuðu þar ofan í. Keyptum nokkrar jólaseríur í leiðinni þar sem þær voru svo ódýrar ...

Í dag var jólaball íslenskuskólans og var það haldið heima hjá kennaranum í Brooklyn. Var þar dansað í kringum jólatréið, jólasveinninn kom og gaf epli og bangsa og síðan voru borðaðar piparkökur og kleinur. Skemmti Inga Huld sér mjög vel enda eru þær svo margar stelpurnar á svipuðum aldri og leika sér stórvel saman.

Þegar heim var komið af jólaballinu þá fengum við Jin til að koma og passa ... við hjúin vildum kíkja aðeins út í verslunarleiðangur og var helsta takmarkið að kaupa jólagjöf fyrir Ingu Huld. Það gekk nú ekki nógu vel og mælum við ekki með því að komið sé að versla hér svona stutt fyrir jól ... það var 10 mínútna röð til að komast inn í Toy´s R Us sem er á Times Square og síðan var jólagjöfin uppseld þar. Það voru raðir inní fleiri búðir þannig að verslun gengur ekki hratt fyrir sig. Eftir að hafa fundið aðra búð þar sem jólagjöfin var einnig uppseld þá fórum við niður á Union Square og fundum hana loks til þar í annarri tilraun ... eins gott að vera ekki að versla hér á síðustu stundu! Þar sem við vorum bara tvö þá fannst okkur upplagt að nota tækifærið og skella okkur út að borða. Fórum við á Tamarind sem er indverskur staður sem við höfum labbað nokkrum sinnum framhjá og litist vel á - nafnið heillaði líka þar sem við fórum í skemmtilega dinner siglingu, þegar við vorum í Kenýa, á bát sem hét Tamarind og sigldi á ánni við Mombasa. Við mælum hiklaust með þessum stað og gefum honum fjöldann allan af stjörnum!

sunnudagur, desember 10, 2006

Þá er enn ein helgin liðin ... og viti menn það er bara ein helgi eftir fyrir jól ... einhverra hluta vegna hefur desember verið mjög fljótur að líða. Það hefur hjálpað til að það er búið að vera nóg að gera en einungis er búið að baka tvær smákökuuppskriftir. Fann þó Stollen í gær í Garden of Eden en það er ekki nándar nærri því eins gott og Taste the Difference Stollenið úr Sainsbury´s ... líka erfitt að slá það út!

Ég og Inga Huld fórum í dag í jólaglöggspartý til Sigga skyrframleiðenda í Tribeca ... þar voru dýrindis veigar ásamt 30 lítrum af jölaglöggi í risastórum potti ... ég var með þeim fyrstu til að mæta og með þeim fyrstu til að yfirgefa svæðið og var potturinn ca hálfur og var því nóg eftir ... ekki slæmt að fá gott heitt jólaglögg í þessum kulda. Það var þó hlýrra í dag heldur en hefur verið undanfarna tvo daga ... hitastigið er aftur komið í plús.

Í gær var þvílíkt kalt en við vorum engu að síður farin snemma út til að kíkja á markaðinn á Union Square en þar er búið að bæta við jólamarkaði. Við byrjuðum á því að kaupa húfu á mig og Jóu ... ekki veitti af áður en eyrun dyttu af okkur. Ég held að það hafi ekki orðið svona hrikalega bítandi kuldi í London en það er þó allavega frískandi og hressandi að fara út samanborið við hitastækjuna sem var hér í sumar ... magnaðar hitasveiflur hérna fyrir ca 3-4 mánuðum var um 40 gráðum (á celsius) hlýrra. Inga Huld fór síðan í íslensku skólann í gær þar sem æft var fyrir jólaballið sem er framundan ... skreyttar voru piparkökur og íslenskt jólalög æfð. Hún ætlaði ekki að vilja að fara heim þar sem það var svo skemmtilegt í "klukk" eða öðru nafni "it" og var orðin móð og másandi.

cheers

föstudagur, desember 08, 2006

Stelpurnar komu til mín í vinnuna og hætti ég snemma um hálfsexleytið svo við gætum farið að rölta um bæinn ... þ.e.a.s. efri bæinn eða uptown að skoða jólaskrautið og í búðarglugga. Byrjuðum í Geox þar sem stelpurnar fengu skó og keypti Inga Huld eins skó og Þórunn Eva fékk um daginn nema það að þeir voru aðeins stærri. Við fórum svo niður Fifth og sáum jólatréið hjá Rockefeller Center þar sem myndin að neðan er tekin ... myndin ekki alveg nógu góð þar sem síminn virkar ekki alveg nógu vel sem myndavél þegar það er farið að dimma. Enduðum svo á því að fá okkur að borða á Turkish Kitchen sem er rétt hjá okkur eftir að hafa labbað alla leiðina heim ... vorum ekki komin þangað fyrr rétt fyrir níu og var Inga Huld því orðin þreytt þegar maturinn var búinn. Mjög góður matur hér - ég fékk mér innbakaða casserólu sem mér viðhæfandi í þessu kuldakasti sem gengur hér yfir ...

cheers

fimmtudagur, desember 07, 2006

Það er tekið að kólna í veðri og hitamælirinn nálgast frostmarkið ... allir komnir með húfu, trefil og vettlinga en samt er kalt og viti menn, þá datt þeim náttúrulega í hug að skipta um boilerinn þannig að enginn hiti er búinn að vera hér í um sólarhring en einhvern veginn tókst þeim þó að halda heita vatninu á þannig að hægt er að þrífa sig og aðra. Þeir koma því í góðar þarfir hitablásararnir sem ég keypti fyrr í haust og eru búnir að sanna og borga sig ... það er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og vera ekki lausgirtur heldur vera ávallt viðbúinn!

cheers

mánudagur, desember 04, 2006

Þá kom að því sem beðið hafði verið eftir með mikilli eftirvæntingu ... á fimmtudagskvöldið mætti Þórunn Eva á svæðið með sínu liði og voru fagnaðarfundir (eftir smátíma) hjá frænkunum. Hér voru sem sagt Palli, Hanna Sigga, Þórunn Eva og Tara Dís mætt í helgarferð til New York City og var meginmarkmið ferðarinnar að versla fyrir sig sem og aðra og var langur listi með í för. Það hjálpaði til að hér voru tvær tómar ferðatöskur hjá okkur sem máttu fá far til Íslands þannig að það var nóg af plássi fyrir allt versleríið. Ég tók Ingu Huld og Þórunni Evu að mér á laugardaginn þegar við fórum í bowling afmæli hjá bekkjarfélaga Ingu Huldar og skemmtu þær sér konunglega í bowling, borðuðu pizzur, snakk og ísköku ... margir voru undrandi og spurðu mig hvort ég ætti virkilega tvær dætur þar sem það er smá svipur með frænkunum og báðar með ljóst sítt hár. Á sunnudeginum fór ég síðan með þær í smáteiti hjá vinnufélögunum og hittu þær þar aðra stelpu sem þær gátu hlaupið og sprellað með. Á meðan gátu Palli, Hanna Sigga og Tara Dís verslað í "rólegheitunum" ... þau stóðu sig nú bara nokkuð vel, komu allaveganna heim með fulla kerru af pokum á hverjum degi og fylltu allar töskurnar þannig að það er sosum ekki hægt að kvarta yfir því ... það virtist meira að segja vera komin smávegis þreyta í liðið á þessu öllu saman.

Til að veita liðinu orku fórum við með þau á brasilískt steikhús á laugardagskvöldinu þar sem borgað er fast verð og síðan er hlaðborð með forréttum og meðlæti. Síðan ertu með miða hjá disknum þínum sem er grænn öðru megin og rauður hinu megin - grænt þýðir að þjónarnir bera fram steikur til þín á teinum og skera niður á diskinn þinn ef þú vilt fá hans tegund en rautt þýðri að þeir spyrja þig ekki. Í boði voru nokkrar tegundir af nautakjöti, (flank, sirloin, rif og prime rib), svínakjöt, lambkjöt, kalkúni og kjúklingur ... samtals voru þetta líklega um 15 tegundir sem maður hafði úr að velja - borðaði maður því á sig gat, einsog maður gat, og bragðaðist þetta flestallt saman bara mjög vel.

cheers

laugardagur, desember 02, 2006