Var að læra að setja inn vídeó - þetta er frá concert í BIS hjá Ingu Huld.
mánudagur, nóvember 27, 2006
sunnudagur, nóvember 26, 2006
Þar sem við eigum von á gestum á fimmtudaginn þá erum við byrjuð að byrgja okkur upp ... fórum því í dag uppá 46th street við 12th avenue í H&H bagels sem selur sem sagt beyglur í massavís og þykja þær mjög góðar. Eftir beygluleiðangurinn setti ég upp kokkahattinn ... eða öllu heldur bakarahattinn ... með Ingu Huld og bökuðum við piparkökur sem heppnuðust bara vel þó ég segi sjálfur frá.
cheers
laugardagur, nóvember 25, 2006
föstudagur, nóvember 24, 2006
Dagurinn í dag nefnist Black Friday sem er sem sagt dagurinn eftir Thanksgiving og flestar útsölurnar byrja sem gerir þennan dag að stærsta verslunardegi ársins ... Sumar útsölurnar byrjuðu á miðnætti og var fólk því að versla alla nóttina og síðan beið fólk í röðum klukkutímum saman þangað til að búðir einsog Macy´s opnuðu í morgun ... hálfklikkaðir þessir kanar ... Við ákváðum nú að kíkja aðeins á fjörið og komu stelpurnar til mín í vinnuna eftir hádegi og ég hætti snemma þar sem í dag er aftur "hálfur" dagur í vinnunni. Byrjuðum við að fara í Louis Vuitton á Fifth og 56th til að kíkja þar á verk eftir Ólaf Elíasson og síðan dóluðum við okkur niður Fifth í mannhafinu og kíktum í einstaka búðir ... hittum meðal annars Jólasveininn á efstu hæðinni í Saks og var hann bara hress, ég er þó ekki viss um það hvað hann er að gera hér svo snemma ... einnig fórum við í Macy´s og alls staðar var fólk að versla, spiluð voru jólalög og maður fer bara að komast í jólaskap við þetta allt saman.
Í gær fórum við í þennan líka eðal þakkargjörðarhátíðardinner til Sigurgeirs og co ... boðið var uppá kalkún með fyllingu, sætri kartöflumús, corn mash, zucchini brauði, gulrótum og baunum ... að sjálfsögðu var síðan epla pie í desert ásamt pumpkin pie í ábæti ... alveg meiriháttar og þökkum við kærlega fyrir okkur.
cheers
fimmtudagur, nóvember 23, 2006
HAPPY THANKSGIVING
Þrátt fyrir íslenskt sautjánda júní veður þá ákváðum við að kíkja á skrúðgönguna. Hún byrjaði klukkan 9 í morgun og horfðum við á byrjunina í sjónvarpinu og héldum síðan út í kuldann, rigninguna og rokið til að sjá herlegheitin og tókum með okkur regnhlífarnar. Við tókum metróinn uppá Grand Central og byrjuðum á að kíkja á jólatréið hjá Rockefeller Centre sem búið er að setja upp ... ég verð nú bara að segja það að þetta er langstærsta jólatré sem að ég hef nokkurn tímann séð ... það hefur nú verið maus að koma því fyrir þarna. Síðan héldum við í áttina að Times Square til að sjá skrúðgönguna. Vegna veðurs þá voru töluvert færri en búist var við þannig að það var ekki svo erfitt að komast nálægt til að sjá - sagt er að sumir séu mættir klukkan 6 um morguninn til að vera tilbúnir á besta stað. Blöðrurnar voru rosalega flottar en vegna vinds þá var ekki haft eins langt í böndunum og oft er þannig að þær svifu lágt en það var samt gaman að sjá þær og Ingu Huld fannst þetta meiriháttar.
Síðan er það kalkúnn í kvöldmatinn hjá Sigurgeiri og fjölskyldu ...
cheers - have a good one !!
miðvikudagur, nóvember 22, 2006
Dagurinn í dag var svokallaður "hálfur" dagur þar sem markaðirnir loka klukkan 2 þá hætta flestallir um það leyti. Ég sótti því Ingu Huld í skólann og að sjálfsögðu þar sem ég var á leiðinni þangað og í rauninni þegar fríið er að byrja þá byrjar að rigna og meira að segja kom smá haglél! Veðurspáin er heldur ekki glæsileg fyrir morgundaginn með kulda, rigningu og roki ... við sem ætluðum að kíkja á Thanksgiving Parade sem er skrúðganga með risastórum blöðrum en núna vegna roks þá verða líklega engar blöðrur þar sem að einhvern tímann þá fuku blöðrurnar og ollu óskunda víðs vegar um borg ...
þriðjudagur, nóvember 21, 2006
Það er komið jólaskraut útum allt! Búið er að skreyta skrifstofuna og setja upp jólaland í anddyrinu á byggingunni ... síðan sýndist mér að það væri verið að koma fyrir jólatréssölu á torginu á móti ... finnst mér það fullsnemmt á ferðinni ... það er einsog það sé 21 desember en ekki nóvember. Þetta tengist að sjálfsögðu Thanksgiving sem er á fimmtudaginn og skilst mér að flestir séu búnir að skreyta fyrir eða um Thanksgiving. Það er allt orðið frekar rólegt þar sem fólk tekur mikið af fríi þessa vikuna og hittist stórfjölskyldan og borðar fylltan kalkúna með cranberry sósu og epla pie í desert. Ég held því að það sé einfaldlega skynsamlegast að halda sig á Manhatta um þennan tíma og vera ekkert að hætta sér úti ferðatraffíkina.
cheers
sunnudagur, nóvember 19, 2006
Enn var haldið í leiðangur - núna var stefnan tekin á ellefta avenue og labbað í suðurátt í leit að nýrri byggingu eftir Frank Gehry. Hún fannst á 19da stræti og skar sig úr öllum öðrum einsog venjan er með hans byggingar.


Ballettsýningin var síðan meiriháttar skemmtileg en haldin var smásýning á hverju leveli fyrir sig fyrir utan Pre-Ballet ... þannig að því miður var ekkert frá Ingu Huldar leveli. Þrátt fyrir það var gaman að sjá muninn á milli ára og hversu mikið bætist við sporin. Síðan var endað á stórustóru krökkunum þar sem stelpurnar voru komnar í táskó og strákarnir lyftu og héldu á stelpunum ... það fannst Ingu Huld mjög skemmtilegt.
cheers
laugardagur, nóvember 18, 2006
Jóa þurfti að eyða deginum í skólanum í hópverkefni þannig að ég og Inga Huld sátum uppi með hvort annað. Við spiluðum Scrabble og versluðum svo í matinn - fyrir kaffið bökuðum við svo eplamuffins ... var það bara nokkuð gott hjá okkur, ég dró fram gömlu uppskriftabókina frá heimilisfræðitímum í grunnskóla og botna nú í rauninni ekkert í því hvernig þessi bók hefur fylgt okkur eftir í öll þessi ár. Allavega þá grunaði mig að okkur hlyti að takast að baka upp úr þessari bók þar sem mig minnir að ég hafi verið ansi lunkinn við það á mínum yngri árum. Kökurnar heppnuðust bara vel og fékk Jóa nýbakað muffins þegar hún kom heim sem var óvænt surprice. Í kvöldmatinn síðan grillsteiktur sverðfiskur með hot tomato salsa eftir uppskrift Jamie Olivers ... engar gamlar heimilisfræðibækur notaðar hjá henni Jóu!
cheers
sunnudagur, nóvember 12, 2006
Í dag var lagt af stað í gönguferð neðst suður á Manhattan en þegar við vorum komin á fimmta stræti þá skall á með hellidembu - eftir að hafa spáð og spuglerað í spilin var tekin ákvörðum um að gefast upp og snúa heim á leið. Það reyndist rétt ákvörðum þar sem það rigndi látlaust allan daginn. Fengum okkur heimabakaða köku og heitt súkkulaði til að hressa okkur við eftir alla dembuna og horfðum svo á Murel´s wedding. Ingu Huld fannst myndin voðalega sorgleg þegar að Muriel sá ekki mömmu sína þegar hún labbaði út úr kirkjunni og botnaði ekkert í þessu.
laugardagur, nóvember 11, 2006
þriðjudagur, nóvember 07, 2006
Það hlaut að koma að því ... á þetta heimili hefur sem sagt lengi lengi vantað vél til að gera ís, ísgerðarvél, þar sem ísinn ku vera mun betri þegar hann er hrærður þegar hann frystist ... allavega þá var Jóu bent á það um daginn að KitchenAid væri búið að útbúa ísgerðarvélarapparat sem hægt er að nota á KitchenAid hrærivélina sjálfa þannig að þetta krefst lágmarksaukapláss. Þetta er mikil og sniðug uppfinning frá þeim og pöntuðum við þetta strax frá Amazon svo hægt sé að hefja ísgerðina ... en þá komu slæmu fréttirnar ... semsagt þegar við fengum apparatið sem sagt var að myndi passa á allar tegundir KitchenAid hrærivéla þá semsagt passar það ekki á evrópsku útfærsluna ;( Ástæðan er víst sú að evrópskar reglugerðir fara fram á það að það sé aukalegur járnöryggishringur á hræripinnanum sem þvælist fyrir ísgerðarvélarapparatinu ... miður slæmar fréttir það ... ég stakk uppá að saga hringinn af en Jóu leist ekki á blikuna. Góðu fréttirnar eru þær að við fundum út að líklega er búið að taka tillit til þessa vandamáls og við ættum því fljótlega að geta pantað okkur nýju útfærsluna ...
Annars allt gott að frétta - hitastigið sveiflast upp og niður og er maður einn daginn með vettlinga og vetrarjakkann hnepptan uppí háls eða maður er að kafna úr hita með allt fráhneppt ...
cheers
sunnudagur, nóvember 05, 2006
Helgin er búin að vera afslappelsi og rólegheit. Í gær röltum við um hverfið á vesturhliðinni og stöldruðum á einu kaffihúsi og fengum okkur heitt súkkulaði og bakkelsi þar sem það er farið að kólna verulega hjá okkur. Við fundum aðra Whole Foods Market á 24 stræti og 6 avenue sem er ekki svo langt frá okkur ... þar versluðum við íslenskar framhryggjakótilettusneiðar sem smökkuðust mjög vel. Við fórum síðan í Garden of Eden á 23 stræti til að versla eitt og annað fyrir vikuna þar sem Jóu líkar svo agalega vel við þá búð. Íslenska lambakjötið klikkaði ekki og töfraði Jóa fram eitt og annað gómsætt meðlæti.
Í dag fórum við í annan göngutúr og röltum nú upp 5th avenue ... Inga Huld fékk trefil, húfu og vettlinga fyrir skólann. Við fundum FOA Schwartz dótabúð sem er mjög flott og fræg fyrir stórt gólfpíanó sem spilað er á með fótunum - fannst Ingu Huld það ekki leiðinlegt og gátum við drepið tímann lengi þar að skoða og bardúsa. Á heimleiðinni var síðan verslað bakkelsi í Grand Central Market en því miður var Siggi´s skyr uppselt.
cheers