Enn var haldið í leiðangur - núna var stefnan tekin á ellefta avenue og labbað í suðurátt í leit að nýrri byggingu eftir Frank Gehry. Hún fannst á 19da stræti og skar sig úr öllum öðrum einsog venjan er með hans byggingar.

Við löbbuðum síðan áfram niður eftir ánni þar sem klukkan 3 átti að byrja opið hús og sýning í ballettskólanum hennar Ingu Huldar. Á leiðinni stoppuðum við á einum leikvelli og áttuðum okkur síðan á því að við vorum ekki svo langt frá The Magnolia Bakery sem er Cupcake Heaven ... þar þurftum við að bíða í rúmt korter eftir því að geta keypt okkur kökur ... síðast þegar við komum þá var ekki alveg svona mikil röð. Allavega þá brögðuðust kökurnar alveg ljómandi vel og voru biðarinnar virði.

Ballettsýningin var síðan meiriháttar skemmtileg en haldin var smásýning á hverju leveli fyrir sig fyrir utan Pre-Ballet ... þannig að því miður var ekkert frá Ingu Huldar leveli. Þrátt fyrir það var gaman að sjá muninn á milli ára og hversu mikið bætist við sporin. Síðan var endað á stórustóru krökkunum þar sem stelpurnar voru komnar í táskó og strákarnir lyftu og héldu á stelpunum ... það fannst Ingu Huld mjög skemmtilegt.
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli