sunnudagur, febrúar 19, 2006

Allir komnir aftur heim í slotið ... við sóttum Ingu Huld út á flugvöll áðan og ekki var meira mál fyrir hana að fljúga núna tilbaka ... er hún búin að dvelja í góðu og miklu yfirlæti hjá ömmum sínum á Íslandi.

Við hjúin skemmtum okkur vel í rómantíkinni í París, vorum komin þangað seint á föstudagskvöldinu með Eurostar og síðan tilbaka eftir hádegi í dag ... erum reyndar frekar dösuð og þreytt ... erfitt að vera svona rómantískur! Nokkur atriði sem standa upp úr voru Sigurboginn, hádegismatur í Eiffelturninum, skoðunarferð í Notre Dame og óperuhúsinu, nokkur vel valin listaverk í Louvre (hæglega hægt að villast hér og týna heilum degi!), Moulin Rouge og eitt og annað eins og nokkur Pain au Chocolat og crepes ...

au revoir !!

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Enn erum við bara ein í kotinu. Fórum í gær útaðborða "ekki" í tilefni af Valentínusardeginum - ég hafði pantað borð á Sketch Library og var það alveg feikilega gott ... forrétturinn var þó ekkert spes en mjólkurlambið í aðalrétt sló í gegn ... desertarnir líka góðir og ég meina þá desertar í fleirtölu þar sem þeir voru 4 talsins, í raun var það aðeins of mikið af því góða í orðsins fyllstu merkingu. Við unnum síðan lengi í dag og hittumst á London Bridge og fengum okkur kvöldmatarsnarl á stað rétt hjá Borough Market ... erum eiginlega að "njóta" þess að þurfa ekki að drífa okkur beint heim eftir vinnu. Spurningin er síðan hvort þetta sé svona dæmigerð vika hjá okkur ef við værum barnlaus - erum búin að fara útaðborða þrisvar sinnum (1 sinni nokkuð gott, 1 sinni rosa flott og 1 sinni í lagi og ódýrt) og einu sinni keyptum við mat til að stinga í ofninn og borðuðum á meðan við horfðum á Sahara á DVD.

Allavega erum við búin að bóka rómantísku Parísarferðina og er semsagt lestarferð eftir vinnu á föstudagskvöldið - túristarúntur, -sigling og hádegismatur í Eiffelturninum á laugardaginn ásamt Moulin Rouge cabaret um kvöldið. Meira er í raun ekki planað þar sem erfitt er að fá borð á veitingastað á laugardagskvöldið en við erum að plana laugardagseftirmiðdaginn þar sem við fjárfestum í túristahandbók um París - stefnan er sett á þægilegan göngutúr um miðbæinn í rólegheitunum.

Inga Huld skemmtir sér annars vel á Íslandi þótt hún hafi nælt sér í einhverja magapest í dag - hún verður eflaust orðinn hraust og hress á morgun og til í slaginn.

cheers

laugardagur, febrúar 11, 2006

Þá erum við hjúin bara ein í kotinu þar sem Inga Huld er nú um þetta leytið að lenda í Keflavík. Við keyrðum hana áðan á Stansted og kvaddi hún okkur við öryggishliðið klukkutíma fyrir brottför þar sem starfsmaður fór með hana um borð. Var hún rosalega dugleg og knúsaði okkur og kyssti og var síðan bara stefnan sett á Ísland án þess að hika!! Amma og afi biðu líka heima á flugvellinum og hlakkaði hana mikið til að hitta alla heima ... einnig hjálpaði til að það var búið að fjárfesta í dvd spilara sem hún var búin að læra á þannig að hún ætlaði að horfa á Línu Langsokk á leiðinni og var með pening til að kaupa sér djús og snakk með því. Mjög íslenskt týpiskt var það að þegar einhver kona í röðinni heyrði að hún væri að fara heim þá bauðst hún til þess að fylgja henni og taka hana að sér - var hún mjög indæl og fékk hún sæti við hliðina á henni. Inga Huld kynntist henni því aðeins þarna og þegar við vorum síðan að bíða og fá okkur að borða þá sagði hún okkur að hún ætlaði að sýna henni dótið sitt og láta hana hjálpa sér með dvd spilarann ... það var því ágætt að hún var komin með vinkonu í flugvélinni. Við erum því bara tvö ein núna í rúma viku og vitum eiginlega ekki hvað við eigum að gera við okkur ... líklega skellum við okkur bara til Parísar ...

cheers

laugardagur, febrúar 04, 2006

Inga Huld var í sínu vanalega social lífi um helgina og fór í afmæli í Greenwich - bíó og síðan útaðborða á cafe rouge - og var það víst alveg meiriháttar gaman. Þegar við borðuðum desertinn í kvöld þá datt önnur framtönn hjá henni - var hún búin að vera laus dáldið lengi en var farin að vera mjög "wibbly wobbly" í dag. Líklega kemur þá tannálfurinn í nótt ... allavega verða mikil vonbrigði ef að tönnin verður ennþá undir koddanum þegar við vöknum í fyrramálið!

cheers

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Fórum á foreldrafund eða kennarafund í skólanum hennar Ingu Huldar í gær. Kennarinn var bara hæstánægður með Ingu Huld, sérstaklega hversu miklum framförum hún hefur tekið í lestri og hversu skemmtilegt henni þykir í stærðfræðinni. Hún er líka orðin duglegri og segir ekki eins oft "I´m soooo tired in my hand ..." ... þannig að það var bara ekki yfir neinu að kvarta og allir voðalega glaðir og kátir. Kennarinn var líka mjög ánægður með að heyra að Inga Huld uppfærir okkur um það sem hún er að læra í skólanum einsog t.d. þá sagði hún okkur allt um nýja árið í Kína sem var að koma og einnig að fólk á að hvíla sig á sunnudögum og fara í kirkju af því að guð kláraði að skapa heiminn á laugardeginum ... ágætis upprifjun fyrir okkur ...

Annars byrjaði hún í dag í klúbbi í skólanum sem kallast "Funky Monkey Key Skills" og er sem sagt hljómborðskennsla - alveg meiriháttar gaman og kom alveg heilluð heim í dag ... greinilegt að einhver tónlistaráhugi er fyrir hendi.

cheers