laugardagur, febrúar 11, 2006

Þá erum við hjúin bara ein í kotinu þar sem Inga Huld er nú um þetta leytið að lenda í Keflavík. Við keyrðum hana áðan á Stansted og kvaddi hún okkur við öryggishliðið klukkutíma fyrir brottför þar sem starfsmaður fór með hana um borð. Var hún rosalega dugleg og knúsaði okkur og kyssti og var síðan bara stefnan sett á Ísland án þess að hika!! Amma og afi biðu líka heima á flugvellinum og hlakkaði hana mikið til að hitta alla heima ... einnig hjálpaði til að það var búið að fjárfesta í dvd spilara sem hún var búin að læra á þannig að hún ætlaði að horfa á Línu Langsokk á leiðinni og var með pening til að kaupa sér djús og snakk með því. Mjög íslenskt týpiskt var það að þegar einhver kona í röðinni heyrði að hún væri að fara heim þá bauðst hún til þess að fylgja henni og taka hana að sér - var hún mjög indæl og fékk hún sæti við hliðina á henni. Inga Huld kynntist henni því aðeins þarna og þegar við vorum síðan að bíða og fá okkur að borða þá sagði hún okkur að hún ætlaði að sýna henni dótið sitt og láta hana hjálpa sér með dvd spilarann ... það var því ágætt að hún var komin með vinkonu í flugvélinni. Við erum því bara tvö ein núna í rúma viku og vitum eiginlega ekki hvað við eigum að gera við okkur ... líklega skellum við okkur bara til Parísar ...

cheers

Engin ummæli: