HALLOWEEN
Inga Huld fór í tvær "Halloween Parade" í dag - sú fyrri var í skólanum og komu allir með búning með sér og síðan eftir hádegi var Halloween party með "goody bags" og skrúðgöngu. Þegar ég kom heim úr vinnunni fórum við í stigaganginn í "trick or treat" ... sumir voru nú ekki tilbúnir með nammi en þeir gáfu pening í söfnunarbauk sem Inga Huld var að safna í fyrir börn sem eiga ekki pening. Síðan var haldið í seinni gönguna og var hún töluvert stærri en sú fyrri. Þessi ganga sem kallast New York´s Village Halloween Parade byrjar á Spring Street og kemur síðan upp 6th Avenue og endar á 21st Street - við röltum okkur þangað enda ekki langt að fara og horfðum í smá stund á herlegheitin áður en fólksmergðin varð okkur um megn ... þessi ganga er engin smásmíð og er talið að meira en 2 milljónir séu viðstaddir ... forðuðum við okkur því yfir á 7th Avenue og var í rauninni ekkert verra að labba þar vegna þess að nóg var af fólki í búningum og margir komu líka niður þessa götu eftir að hafa klárað gönguna ... þess vegna var nóg af fjöri. Við enduðum síðan kvöldið á MacDonalds þar sem einn grímuklæddur gæddi sér á hamborgara nánast í nærbrókunum einum fata ... fannst Ingu Huld hann ekki í mjög penum búning.
cheers
þriðjudagur, október 31, 2006
sunnudagur, október 29, 2006
Deginum var varið í verslunarleiðangur og var tilgangurinn tvennur ... í fyrsta lagi áttu sumir bara engin föt og í öðru lagi er kominn tími á að fara að kortleggja búðirnar hér þannig að hægt sé að guida fólki hér almennilega um svæðið ... fórum því í búðirnar í Soho og fundum ýmislegt og versluðum annað ... alveg hægt að fara á þessar slóðir aftur.
Ég og Jóa fórum svo í bíó á "The Queen" ... skemmtilegur breskur húmor og var hægt að hlæja að henni ... bjuggumst sosum ekki við neinni skemmtimynd. Myndin er sem sagt um það hvernig drottningin brást við andláti Díönu og spilaði Tony þar stóra rullu ... erfiðleikinn var að miklu leiti sá að það var bara ekkert fordæmi fyrir því að fyrrum konungsmeðlimur hefði dáið, þess vegna var svo erfitt að bregðast við þessu ...
cheers
laugardagur, október 28, 2006
Það var þvílík gleði í Whole Foods Market í dag þegar við ætluðum að kaupa lambalæri í kvöldmatinn og viti menn ... var ekki bara íslenskt lambakjöt í borðinu !! Við spurðum manninn hvað væri um að vera og upplýsti hann okkur um það að þeir kaupa íslenskt lambakjöt einu sinni á ári og eiga það yfirleitt til í ca 1 mánuð ... við keyptum að sjálfsögðu 1 stykki lambalæri en var ég hálfsvekktur með verðið. Kostaði það sem sagt jafnmikið og það nýsjálenska eða 7.99 dollara pr pund eða lbs sem er ca 1300 krónur pr kíló sem mér finnst alltof ódýrt fyrir íslenskt lambalæri í New York ... að sjálfsögðu á það að kosta allavega helmingi meira en það nýsjálenska þar sem það er að minnsta kosti tvisvar sinnum betra !!
Eftir matarinnkaupin var haldið í afmæli til Söndru sem var 7 ára í dag ... þar vorum við um eftirmiðdaginn og skemmtu stelpurnar sér konunglega og slúðruðu í baðkarinu hennar Söndru ... var Sandra í svörtum nornabúning og Inga Huld í hvítum ... mikið gaman það. Búið er að skreyta húsið þeirra fyrir Halloween einsog sjá má á myndinni sem er tekin úr anddyrinu á blokkinni ... ýmsar furðuverur þar.
Það tók síðan tvo tíma að galdra fram kvöldmatinn ... íslenskt lambalæri kryddað með hvítlauk, rósmarin, timjan, salti og pipar ... meðlæti var gulrótarmús sem voru soðnar gulrætur með smjöri og vatni og síðan maukaðar ... jurtakryddaðar bakaðar kartöfluskífur ... og koníaksrjómavillisveppasósa sem þarfnaðist slatta af fína koníakinu mínu ... þetta bragðaðist allt saman alveg súper súper vel og endaði síðan með kaldri berjasúpu borin fram með kókossorbet.
cheers
fimmtudagur, október 26, 2006
miðvikudagur, október 25, 2006
Það var concert í skólanum hennar Ingu Huldar - er búið að æfa mikið og undirbúa og vorum við búin að heyra öll lögin hjá henni nokkrum sinnum undanfarnar vikur. Þetta var bara þrælskemmtilegt og var síðan te, kaffi og kökur á eftir ... ekki var boðið uppá létta áfenga drykki hér einsog iðulega var gert í London ... Síðan fengum við okkur kvöldmat á lókalnum, "The Hairy Monk" sem er írskur pöbb hérna á götuhorninu ... er ég lengi búinn að ætla að bjóða stelpunum þangar en þær hafa nú ekki verið upprifnar yfir tilboðinu hingað til ... held þó að þeim hafi fundist maturinn þarna bara prýðisgóður og er alveg hægt að smella sér þangað svona í hallæri. cheers
þriðjudagur, október 24, 2006
Keypti mér um daginn Antonio Banderas rakspíra ... var það ekki planað og var ekki gerð mikil leit að þessum sérstaka spíra heldur var þetta sá eini sem til var í búðinni sem var minni en 3 flúid únsur sem eru 90 millilítrar. Ég var sem sagt í Chicago og var ekki með neinar baðvörur með mér þar sem ekki má taka með í handfarangur nema í "zip locked" poka og hver eining minni en 3 flúid únsur ... í rauninni var erfitt að finna tannkrem, svitalyktaeyði, rakspíra og hárgel í svona litlum einingum, en reddaðist þetta að lokum og get ég nú ferðast um með allt í handfarangri.
Jóa er búin að læra á Pay Per View á Direct TV systeminu okkar og horfum við nú á bíómyndir einsog okkur lystir ... ég hélt því þó fram að þetta myndi ekki virka þar sem leiðbeiningarnar segja að símasnúra þurfi að vera tengd til að geta keypt myndir ... en við erum ekki með neina símasnúru tengda, er ég því ekki klár á því hvernig við greiðum fyrir þetta ... sjáum til, alveg á hreinu að ekki er þetta frítt.
cheers
mánudagur, október 23, 2006
Fengum myndir frá Hörpu Hrund á stafrænu formi ... þessi er tekin í sófanum á Silfri á Hótel Borg og myndin af Ingu Huld er tekin í garðinum fyrir utan ÍTR. Þessi dagur var ógleymanlegur fyrir okkur og er mjög gaman að fara í gegnum myndirnar ... að auki gek ég ekki gleymt þessum magnaða mat sem var borðið uppá í brúðkaupinu ... þvílíkt lambakjöt ... útlendingarnir sem mættu skildu núna loksins hvað við meintum með því að íslenskt lambakjöt væri einfaldlega það besta.
Við gistum á Sea Creast on the Ocean sem bauð uppá nokkuð sumarbústaðalega gistingu ... var það skemmtilega íslenskt. Leiðina má sjá hér ... nema það að húsnúmerið er ekki 1899 heldur 2166 ... virðist ekki ná lengra í Google og reyndar náði það ekki heldur svona hátt í gps leiðsögukellunni. Það var reyndar skemmtilegt og í frásögur færandi að vínekran sem við heimsóttum var með húsnúmer 36255 og var það langt í frá hæsta númerið ...
Inga Huld missti eina tönn í viðbót á leiðinni heim í gær, hefur hún því misst tennurnar sitt hvoru megin við neðri framtennurnar. Tannálfurinn var óvenju gjafmildur í nótt og gaf stóran seðil ... voru ýmsar skýringar á því ... Inga Huld sagði að tönnin hefði verið aðeins brotin og því hefði hann gefið meira en ég vildi meina að tannálfurinn hefði einfaldlega ekki átt neitt smærra í þetta skiptið ... hvur veit hvað rétt er í þessu máli ...
sunnudagur, október 22, 2006
Við eyddum afmælishelginni í "The Hamptons", nánar tiltekið nálægt bænum Amagensett sem er um 110 mílur upp eftir ströndinni á Long Island - leigðum okkur þar litla íbúð og mættum þar á föstudagskvöldið eftir 4 tíma akstur sem var tafinn af umferðartöfum og kvöldmat á ítölskum veitingastað á leiðinni ... ætlunin var nú að fara bara á einhverja ameríska vegabúllu en lentum óvænt á einum ítölskum með hvítum dúkum.
Laugardagurinn tuttugastiogfyrsti október sem var upphafið að tuttugastaogníuanda aldursárinu mínu byrjaði með afslappelsi, afmælisgjöfum, afmæliskveðjum, morgunmat og að sjálfsögðu afmælisköku ... síðan var haldið í bíltúr um svæðið. Hann hófst á því að fara á slóðir Jackson Pollock sem eyddi síðustu árum ævi sinnar þarna frá árinu 1945 og málaði meistaraverk sín sem nú seljast á milljónir dollara áður en hann keyrði ölvaður á tré árið 1956 og lést harmlegum dauðdaga. Leiðið hans má sjá á einni myndinni fyrir neðan og síðan er búið að breyta heimilinu og stúdíóinu hans í safn og fórum við í túr um það ... var það bara skemmtilegt nema að Ingu Huld fannst konan tala of mikið. Næst á dagskrá var að skanna vínekrurnar á Long Island og stoppuðum við á einni sem var Bedell Vineyard ... mikið fjör var á svæðinu og nokkrar limmósínur í innkeyrslunni ... við skelltum okkur allavega í vínsmökkunina svona í rólegheitunum þar sem við vildum nú geta keyrt heim. Vínin þarna komu vel á óvart og keyptum við okkur nokkrar flöskur til að eiga - drukkum þó rauðvínið um kvöldið með nautasteikinni sem Jóa eldaði í afmæliskvöldmatinn ... var það góður endir á góðum degi.
Á sunnudeginum keyrðum við út á endann á Long Island þar sem bærinn Montauk er og elsti viti á strönd New York fylkis (skilst mér ...), allavega byggður 1796 ... skemmtilegt var að sjá að víða var hægt að kaupa grasker og sums staðar var hægt að kaupa þau beint af akrinum ... við lögðum þó ekki í að prófa eitt slíkt. Keyrslan heim gekk síðan betur þar sem ekki var eins mikið af umferðartöfum á leiðinni og lukum við síðan afmælishelginni á víetnamskri núðlusúpu á víetnömskum stað ekki langt frá okkur.
cheers
laugardagur, október 21, 2006
þriðjudagur, október 17, 2006
Við héldum uppá fyrsta í afmæli í dag og fórum út að borða á ítalskan veitingastað rétt hjá vinnunni hans Valda ... vorum við eina fjölskyldan þar á meðal jakkafataklæddra herramanna.
Bíðum nú eftir hiturunum sem ættu að koma í hús innan nokkurra daga og verða vonandi til þess að við króknum ekki úr kulda í vetur.
cheers
mánudagur, október 16, 2006
Það er farið að kólna hjá okkur og var dáldið kalt hér inni í morgun - ég treysti ekki alveg á kyndinguna að halda hita á okkur hér í vetur og er að spuglera í því að fara að skoða rafmagnshitara. Sá í fréttunum í gær að það var yfir 20 cm snjór í Buffalo sem er í New York fylki um 5 klukkutíma akstur frá okkur ... stærðin á þessu landi er alveg ótrúleg ... keyrir og keyrir og kemst ekki einu sinni út fyrir fylkið!!
Núna er ég búinn að nettengja líka gömlu fartölvuna okkar þar sem Jóa notar nýju fartölvuna sína svo mikið fyrir skólann að ég og Inga Huld fáum aldrei afnot. Við keyptum í gær þráðlausan "router" og netkort - sölumaðurinn seldi mér "N" útgáfuna sem ku vera mun hraðari og langdrægnari heldur en gamla "G" systemið ... hef nú ekki mikið vit á þessu og eyddi hálfu gærkvöldinu í því að klambra öllum þessum tengingum saman og gekk þetta upp að lokum. Mér finnst þó alltaf gaman að góðum sölumönnum sem vita svona nokkurn veginn hvað þeir eru að segja - leiðinlegt að labba inní búðir og fá aldrei aðstoð eða neinn vilja hjá starfsmönnum til að selja manni eitt eða neitt. Næst á dagskrá í tæknimálunum er að koma prenturunum inná þráðlausa netið þannig ekki þurfi að tengja þá með snúru við tölvuna ... aldeilis að tæknimenningin hefur tekið yfir hjá okkur ...
Hér styttist í Halloween og er byrjað að skreyta hér og þar - Inga Huld fékk einmitt miða heim úr skólanum og á hún að koma með búning í skólann á Halloween fyrir Halloween Costume Parade.
Annars sá ég að um þetta leyti árið 2003 þá var Eva í heimsókn hjá okkur á Lullingstone Lane ... ansi skemmtilegt það !!
cheers
sunnudagur, október 15, 2006
Ekki var mikil dagskrá fyrir sunnudaginn ... ég og Inga Huld lögðum þó af stað í leiðangur uppúr hádegi til að kaupa afmælisgjöf fyrir afmæli sem er framundan. Við vorum búin að finna á netinu að Toys´R Us ætti að vera ekki svo langt frá Empire State sem er stutt frá okkur. Eftir dáldla leit þar fundum við ekki búðina þannig að við héldum bara uppá Times Square þar sem við vissum um eina búð og Inga Huld rataði sko alveg þangað. Við gátum nú eytt rúmum klukkutíma þarna inni að skoða og spuglera og keypti Inga Huld sér Tamagotchi sem er eitthvað dýr í tölvu sem hún þarf að hugsa um ... það er greinilega ekki nóg að hugsa bara um Herra Níels. Jóa gaf sér síðan tíma til að hitta okkur í kaffi á Madison Square Park þar sem við fengum okkur heitt súkkulaði og amerískar pönnukökur með sýrópi og ávöxtum ... ekki amalegt ...
cheers
laugardagur, október 14, 2006
Það var heilmikil dagskrá í dag ... einfalt hjá Jóu sem þurfti að læra vegna skila á mánudaginn. Ég og Inga Huld byrjuðum því laugardaginn á því að versla og við vorum með það verkefni að kanna nýja búð á Union Square (ný í okkar augum en annars búin að vera þarna lengi). Þetta var Whole Food Market og leit hún ansi vel út - á tveimur hæðum með skemmtilegu færibandasystemi fyrir kerruna sem Ingu Huld fannst ansi sniðugt. Við versluðum fulla kerru og létum síðan senda pokana heim til að spara okkur burðinn ... tókum þó með okkur það allra nauðsynlegasta fyrir hollan og góðan brunch. Í leiðinni versluðum við mat og eitt dót í viðbót fyrir Herra Níels og svo þurfti að kaupa afmælisgjöf fyrir Candelu sem átti afmæli og var afmælispartí klukkan hálffimm seinna um daginn. Afmælið var þó ekki næst á dagskránni hjá okkur heldur var haldið út í Brooklyn þar sem Íslendingafélagið var með mannfögnuð og bauð uppá SS pylsur, íslenskt vatn og prins póló ... ekki amalegt það ... en það vantaði þó Myllu pylsubrauðin, kaninn kann bara ekki að gera góð pylsubrauð!! Þarna var margt góðra manna og kom okkur á óvart allur fjöldinn og í ljós kom að sumir bjuggu nú ekki svo langt frá okkur þannig að maður verður að passa hvað maður er að góla á íslensku úti á götu ... Við hittum þarna Sigurgeir og Co og var Inga Huld ánægð að sjá Söndru og Unni og gátu þær hlaupið úr sér vitleysuna þarna í garðinum ... skemmtu þær sér konunglega yfir hinum ýmsustu uppátækjum.
Eftir að hafa lóðsað liðið svo í metróið tilbaka yfir á Manhattan þá þurfti nú að hafa hraðan á til að geta mætt á réttum tíma í afmælið ... sem betur fer býr Candela í næstu götu þannig að við urðum ekki skammarlega sein. Þarna skemmti Inga Huld sér konunglega með bekkjarfélögum sínum og skilst mér að trúðurinn sem var líka töframaður hafi verið mjög sniðugur ...
Maturinn skilaði sér heim úr búðinni og gátum við grillað okkur nautalundir að hætti Valda og Jóu eftir uppskrift og hætti Sigga Hall ... það er þó að verða í það kaldasta til að grilla úti núna en maður lætur það nú ekki aftra sér til að geta fengið góða nautasteik!!
cheers
fimmtudagur, október 12, 2006
Það er mikil dagskrá framundan hjá Ingu Huld. Bekkjarsystir hennar Rosie ætlar að koma með heim eftir skóla til að leika og eru þær mjög spenntar fyrir því. Rosie var með Ingu Huld í bekk í Blackheath í fyrra og hittist það þannig á að hún ásamt sinni fjölskyldu flutti líka til NY í sumar og fór í sama skóla ... lítill heimur sem við búum í ... Síðan er afmæli á laugardaginn ásamt því að það er haustfagnaður Íslendingafélagsins þar sem boðið verður uppá SS pylsur, prins pólo og íslenskt vatn ... ekki amalegt!
Nú er nýja útlitið bara næstum því alveg tilbúið. Fliparnir uppi verða notaðir til að segja frá einhverju sérstöku og er einn nú þegar tileinkaður henni Ingu Huld. Einkar skemmtilegt er að allt bloggið er geymt og hægt er að skoða þá eftir ártali og mánuði - ég var t.d. að lesa fyrsta póstinn okkar frá 23. mars 2003. Þá vorum við stödd í Reading, Englandi. Ég hef verið mjög duglegur að skrifa það árið og telur það 120 pósta miðað við einungis 39 þetta árið ... ég verð greinilega að taka mig á!
cheers
miðvikudagur, október 11, 2006
Inga Huld missti tönn í gær og var henni snarlega stungið undir koddann fyrir tannálfinn ... ég náði rétt svo að biðja hana um að þurrka blóðið af henni svo að það færi ekki koddann og lakið. Tannálfurinn gaf tvo dollara og var hún ánægð með það. Ætlunin er að setja þá upp í bækur sem hún getur keypt í skólanum, þeir eru með tilboð þannig að ef við kaupum bók af þessum lista þeirra þá fá þeir eina gefins á bókasafnið líka.
Lítil flugvél flaug á háhýsi 45 strætum ofar á Manhattan frá okkur ... það er best að halda sig bara í láhúsunum. Það fór mikið fyrir umfjöllun um atvikið og í rauninni er ótrúlega mikil flugumferð í kringum og yfir Manhattan. Til dæmis er mjög flott þegar komið er til lendingar á La Guardia þá er flogið lágflug upp Manhattan á vesturhliðinni.
Horfði á Lost áðan í fyrsta skipti í langan tíma ... nafnið á þáttunum stendur fyrir sínu og ég var alveg lost ...
cheers
þriðjudagur, október 10, 2006
Stelpurnar eyddu seinni partinum af deginum á spítalanum ... hjúkkan úr skólanum hennar Ingu Huldar hringdi eftir hádegi og sagði að Inga Huld hefði slasað sig í olnboganum og henni fyndist öruggara að hún færi í röntgenmyndatöku. Þegar Jóa sótti hana í skólann þá virtist allt vera í himnalagi og ekkert mál að hreyfa olnbogann. Eftir næstum þriggja tíma bið eftir myndatökunni þá gáfust þær upp og fóru heim ... ekkert virðist heldur vera að olnboganum. Okkur þykir líklegt að skólinn neyðist til að mæla með því að farið sé með börn á spítala sem slasast ... ef hún hefði ekki mælt með því og síðan hefði komið seinna í ljós að hún væri handleggsbrotin þá væru hún ekki í góðum málum.
Þær stöldruðu svo við í fiskbúðinni á leiðinni heim og keyptu túnfiskhamborgara ... við ákváðum að prófa þá af því þeir eru alltaf svo girnilegir. Þeir smökkuðust betur heldur en laxahamborgararnir sem við keyptum fyrir þó nokkru síðan sem voru ekkert spes.
cheers
mánudagur, október 09, 2006
Það var skrítið að vera einn í fríi í dag. Jóhanna sá sér þó auman á mér og fór með mér í göngutúr í morgun - gengum yfir í Chelsea og svo niður í West Village, veðrið var mjög gott og hverfin skemmtileg. Fengum okkur svo kaffi, croissant og pain au chocolat á frönsku kaffihúsi á leiðinni heim ... Jóa fór svo í skólann og ég dundaði mér í ræktinni og sá í sjónvarpinu að það væri skrúðganga í tilefni dagsins á 5th Avenue. Ætlaði ég að kíkja á hana á heimleiðinni og mótmæla Columbusi en þegar ég mætti á svæðið þá var ekkert um að vera ... missti ég því af henni og var það ágætt.
Hér á síðunni eru nú aldeilis breytingar í gangi einsog glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir. Það eru einhver vandræði með íslenska letrið en það verður nú vonandi í lagi fljótlega ...
cheers
laugardagur, október 07, 2006
Fórum í þetta líka fína partý í gær hjá Sigurgeiri og Co ... það var sem sagt "Housewarming Party". Inga Huld kom með og lék hún með Söndru og Unni þangað til þær gátu ekki haldið sér lengur vakandi. Slatti af Íslendingum var á svæðinu og var því íslenskur partýfílingur yfir þessu ... mjög gaman.
Dagurinn byrjaði á því að Inga Huld þurfti að fara í sprautu hjá lækninum, er það hluti af bólusetningardagskránni hennar. Hún er ekkert voðalega ánægð með að þurfa að fá allar þessar sprautur. Við fengum síðan Gísla og collega hans Ásgeir í hádegismat í dag ... var boðið uppá scrambled eggs, beyglur og kleinuhringi frá Dunkin Donuts ... svipaður matseðill og þegar Maggi kom um síðustu helgi ... ekki amalegt.
Versluðum síðan lambafillet hjá kjötsalanum í kvöldmatinn ... eftir að hafa valið hálfan lambahrygg sem við ætluðum að grilla að íslenskum hætti í heilum bita þá kom í ljós þegar heim var komið að butchernum hafði tekist að skera hana niður í kótilettusneiðar ... vorum ekki alveg ánægð með það en kjötið var þó mjög gott að lokum hjá okkur ... sló þó ekki út íslenska lambakjötið sem við fengum í brúðkaupsmatinn ... hugsa að það sé mjög erfitt að gera betur en það.
cheers
föstudagur, október 06, 2006
Það er farið að kólna hjá okkur - hitastigið í dag fór alveg niður í 12 gráður en sem betur fer hlýnaði aðeins aftur seinni partinn og kominn var 16 gráðu hiti ... líður að því að taka þurfi fram vetrarúlpurnar!! Ekki er stefnt að því þessa helgina að borða jafn fínt úti og um síðustu helgi en það byrjar nú með "Housewarming Party" hjá Sigurgeiri og Co í kvöld - erum við að dressa okkur upp fyrir það. Vinnudagurinn í dag endaði snemma eða milli 15 og 16 þar sem það er frídagur á mánudaginn ... hefðin er alltaf að síðasta virka dag fyrir frídag þá er unnið stuttan dag. Ég vissi þó ekki fyrr en í gær að það væri frídagur ... það er sem sagt Columbus Day en það er þó ekki frídagur hjá Ingu Huld og Jóhönnu - einhver togstreita er hvort þetta eigi að vera almennur frídagur eða ekki ... ég verð því einn eitthvað að dunda mér á mánudaginn. Það er þó alveg á hreinu að ég ætti ekki að halda uppá Columbus Day heldur mæta galvaskur í vinnuna og mótmæla þessu sem frídegi þar sem það er ekkert merkilegt þegar Columbus fann Ameríku ... miklu nær væri fyrir mig að því að komast að því hvenær Leifur Eiríksson fann Ameríku og krefjast þá frídags ... Leif Eiriksson Day.
cheers
sunnudagur, október 01, 2006
Inga Huld er með tvær tennur lausar og virðist önnur þeirra alveg vera komin að því að detta - mikill spenningur er fyrir því hvað tannálfurinn gefur fyrir tönn í New York miðað við hvað hann gaf í London.
Við fengum gesti í gær - Maggi var á leið heim frá Chile og Bryndís kom frá Íslandi - hittumst seint og síðar meir á Nobu 57 þar sem mikil töf var á JFK. Ég og Jóa biðum þolinmóð og unnum okkur gegnum kokteillistann á meðan. Maturinn var alveg hreint meiriháttar og staðurinn mjög flottur líka, við fengum okkur meðal annars King Crab Tempura, Sashimi, Black Cod og snöggsteikt nautakjöt ... algjört namminamm ... mælum hiklaust með þessum stað en það þarf þó að panta með góðum fyrirvara eða svona ca 1 mánuð. Í kvöld er síðan stefnt á steikhús ... fólk getur ekki komið til New York án þess að fá góða steik!
cheers