laugardagur, október 14, 2006

Það var heilmikil dagskrá í dag ... einfalt hjá Jóu sem þurfti að læra vegna skila á mánudaginn. Ég og Inga Huld byrjuðum því laugardaginn á því að versla og við vorum með það verkefni að kanna nýja búð á Union Square (ný í okkar augum en annars búin að vera þarna lengi). Þetta var Whole Food Market og leit hún ansi vel út - á tveimur hæðum með skemmtilegu færibandasystemi fyrir kerruna sem Ingu Huld fannst ansi sniðugt. Við versluðum fulla kerru og létum síðan senda pokana heim til að spara okkur burðinn ... tókum þó með okkur það allra nauðsynlegasta fyrir hollan og góðan brunch. Í leiðinni versluðum við mat og eitt dót í viðbót fyrir Herra Níels og svo þurfti að kaupa afmælisgjöf fyrir Candelu sem átti afmæli og var afmælispartí klukkan hálffimm seinna um daginn. Afmælið var þó ekki næst á dagskránni hjá okkur heldur var haldið út í Brooklyn þar sem Íslendingafélagið var með mannfögnuð og bauð uppá SS pylsur, íslenskt vatn og prins póló ... ekki amalegt það ... en það vantaði þó Myllu pylsubrauðin, kaninn kann bara ekki að gera góð pylsubrauð!! Þarna var margt góðra manna og kom okkur á óvart allur fjöldinn og í ljós kom að sumir bjuggu nú ekki svo langt frá okkur þannig að maður verður að passa hvað maður er að góla á íslensku úti á götu ... Við hittum þarna Sigurgeir og Co og var Inga Huld ánægð að sjá Söndru og Unni og gátu þær hlaupið úr sér vitleysuna þarna í garðinum ... skemmtu þær sér konunglega yfir hinum ýmsustu uppátækjum.

Eftir að hafa lóðsað liðið svo í metróið tilbaka yfir á Manhattan þá þurfti nú að hafa hraðan á til að geta mætt á réttum tíma í afmælið ... sem betur fer býr Candela í næstu götu þannig að við urðum ekki skammarlega sein. Þarna skemmti Inga Huld sér konunglega með bekkjarfélögum sínum og skilst mér að trúðurinn sem var líka töframaður hafi verið mjög sniðugur ...

Maturinn skilaði sér heim úr búðinni og gátum við grillað okkur nautalundir að hætti Valda og Jóu eftir uppskrift og hætti Sigga Hall ... það er þó að verða í það kaldasta til að grilla úti núna en maður lætur það nú ekki aftra sér til að geta fengið góða nautasteik!!

cheers

Engin ummæli: