Ég held að þetta sé í fyrsta skiptið sem ég horfi á allan Óskarinn ... var dáldið þreytandi til lengdar en hann átti sína góðu spretti þó. Í gærkvöldi voru síðan þættir þar sem föt, útlit og framkoma voru gagnrýnd í minnstu smáatriðum á öllum á svæðinu ... sumir voru halló, aðrir gamaldags, einstaka glæsilegir en margir bara frekar venjulegir. Alltaf þegar minnst er á ljótt fatadress á Óskarnum þá var birt mynd af Björk í svanakjólnum sínum ... glæsileg og góð landkynning það!!
Hér fór svo að snjóa aftur ... það gekk yfir "stormur" aðfaranótt mánudags og það snjóaði 5-10 sentimetra. Aftur fór ýmislegt úr skorðum og var ýmsum skólum í úthverfum lokað ... einhver tjáði mér að kennarar ættu lögbundna frídaga vegna veðurs ... þannig að þeir verða að nota tækifærið og loka ... kýrhausinn geymir alltaf eitthvað merkilegt!
Mér sýndist síðan þessi "stormur" taka stefnuna norðaustur og gæti þess vegna gengið yfir klakann ... þegar næst kemur gola heima þá getið þið hugsað til þess að þessi vindur fauk kannski í gegnum íbúðina okkar.
cheers
þriðjudagur, febrúar 27, 2007
sunnudagur, febrúar 25, 2007
Inga Huld fór í íslenskuskólann í gær og síðan sáum við um kvöldmatinn þar sem Jóa þurfti að vera í skólanum að læra. Við buðum upp á túnfisk með baunasalati eftir fyrirmynd Jamie Oliver og í desert var ís sem við gerðum sjálf í ísgerðarskálinni. Inga Huld vildi endilega fá ís með piparmintubragði þannig að við fundum uppskrift sem mér sýndist hæfa mínum ísgerðarhæfileikum en bættum síðan við muldum piparmyntu-oreo kexkökum ... þetta kom bara mjög vel út, þó ég segi sjálfur frá.
Við fórum svo í keilu í dag ... þetta er í þriðja skiptið sem Inga Huld fer í keilu hér í NY þar sem hún hefur tvisvar farið í keiluafmæli. Henni finnst það svo skemmtilegt að við ákváðum að fara í dag þar sem Jóa var enn að læra. Ég hef ekki spilað keilu í mörg ár og því var hjálplegt að hafa hlífarnar á brautinni sem kemur í veg fyrir að kúlan rúlli af henni. Við fundum keilustað ekki svo langt frá okkur eða á Union Square, Bowlmor Lanes, nokkuð flottur keilustaður í sixties stíl. Í kvöld er síðan Óskarinn og ætli maður láti sig ekki hafa það að horfa í þetta skiptið þar sem tíminn er kristilegur.
cheers
fimmtudagur, febrúar 22, 2007
Það er skemmtilegt að fylgjast með umræðunni á Íslandi núna og mér sýnist ljóst hvað um er rætt í kaffi- og hádegispásum dagsins. Annars virðist ekkert minna af fyrirhyggjunni hér þar sem nýbúið er að banna hér að steikja mat úr ákveðinni tegund olíu og einhver þingmaðurinn er að fara leggja fram þá tillögu að banna fólki að ganga yfir umferðargötur á sama tíma og það hlustar á vasaspilara ... af því að það er að sjálfsögðu alveg stórhættulegt!
... það er gott að einhver hugsar fyrir manni ...
miðvikudagur, febrúar 21, 2007
Í dag er Ash Wednesday eða Öskudagur á íslenskunni, þetta er upphaf Lent sem hefst 40 (í rauninni 46) dögum fyrir páska. Þegar ég var á leið í vinnuna þá furðaði ég mig á sumu fólki sem var með svartlitaðan kross á enninu. Komst síðan að því að kaþólikkar fara í dag í kirkju og láta blessa sig og presturinn litar á þá svartan kross með ösku. Síðan eiga þeir að gefa eitthvað upp, fórna einhverju, þangað til páska ... t.d. borða ekki sætindi, sleppa óhollum mat, sofa ekki hjá makanum eða hvaðeina sem fólki dettur í hug.
Ýmislegt merkilegt í kýrhausnum ...
mánudagur, febrúar 19, 2007
Í dag var frí hjá mér og Ingu Huld í tilefni Forsetadagsins ... einhverra hluta vegna var ekkert frí í skólanum hjá Jóu. Forsetadagurinn er þriðja mánudag í febrúar og er til að fagna afmælisdegi Washington sem var 22. febrúar ... skilst mér að rétta nafn dagsins sé í raun Afmælisdagur Washingtons en núna er dagurinn þó orðinn almennari en það. Við Inga Huld dunduðum okkur því og hættum okkur eilítið út í kuldann til að fara í bíó og sáum Bridge to Terebithia. Ástæðan fyrir vali þessarar myndar var einfaldlega sú að þetta var eina barnamyndin sem var sýnd ... mér fannst það merkilegt þar sem að fyrir bara nokkrum vikum var fullt af barnamyndum í boði.
sunnudagur, febrúar 18, 2007
Fórum öll saman út að borða í gærkvöldi á franskan veitingastað, Fleur de Sel sem er hér í nágrenninu til að fagna því að eitt ár er liðið frá endurtrúlofun okkar í París. Þegar ég gekk í Citybakery í morgun þá spottaði ég þennan stað og eftir að hafa lesið um hann í Zagat þá leit þetta bara allt saman vel út. Við vorum mjög ánægð með staðinn og var maturinn mjög góður.
cheers
miðvikudagur, febrúar 14, 2007
Snjór og ís ... ís og snjór ... lítið talað um annað hér ... skólar lokaðir, tafir og öngþveiti ... allt í rugli. Þetta var nú í rauninni dáldið skrítinn snjór sem kom hér þar sem það var töluvert frost og úrkoma sem þeir kalla frostrigningu sem ég held bara að sé réttnefni. Þegar leið á daginn þá var kominn slatti af snjó og voru farnir að myndast skaflar við götukantana þar sem gangstéttar og götur voru ört skafnar og mikið af salti notað - mér skilst að snjókoman hafi verið um 1-3 inch hér í borginni sem er ca 2,54-7,56 cm. Norðvestar í New York fylki snjóaði töluvert meira eða um hálfan meter bara í dag og hefur einnig snjóað þar undanfarna daga. Okkur fannst þetta nú bara frískandi þó að Ingu Huld hafi einhverra hluta vegna fundist bagalegt að hafa snjó á sjálfan Valentínusardaginn - síðast þegar snjóaði hér á Valentínusardaginn var árið 1997. Spáin er enn köld framundan og spá þeir núll gráðum á fahrenheit ef tekið er tillit til vindkælingar ... það er samsvarandi 17,78 gráðu frosti á celcius ...
sunnudagur, febrúar 11, 2007
Leigðum okkur bíl í gær og keyrðum úr borgarstressinu út í sveitir Hudson dalsins. Í bænum Beacon hafði Jóu verið bent á áhugavert listasafn Dia sem sýnir samtímalist af stærri gerðinni eða XXL. Húsið er 240.000 ferfet (ca 22.296 fermetrar) og hýsti áður pakkaverksmiðju kexframleiðandans Nabisco. Þarna var ýmislegt áhugavert að sjá og annað ýmislegt óáhugavert að sjá. Rúntuðum síðan um Beacon og fundum okkur kaffihús þar sem við gátum fengið okkur í svanginn. Á bakaleiðinni stoppuðum við svo í IKEA ... alveg með ólíkindum hvað manni vantar alltaf eitthvað úr IKEA ... Þegar við komum tilbaka í bæinn og skiluðum bílnum fengum við okkur kvöldmat á Tibetan Kitchen sem er ekki langt frá okkur ... Inga Huld vildi endilega prófa þennan stað og var hann alveg ágætur.
Í dag var okkur svo boðið óvænt í afmæli til Unnar sem hélt upp á það í Leisure Time Bowl sem er rétt hjá Times Square ... meiriháttar fjör hjá stelpunum og fannst Ingu Huld gaman í keilu. Þetta var í annað skipti sem hún fer í keilu ... hún náði einni fellu og tveimur feykjum ... var hæstánægð með þetta!
cheers
mánudagur, febrúar 05, 2007
Ég og Jóa fórum á Pianos í kvöld, sem er ca 25 götum sunnar, og fengum okkur snarl í kvöldmatinn og hlustuðum svo á Ampop spila sem er sem sagt íslensk hljómsveit og spilar tvö kvöld hér í NY. Höfðum aldrei heyrt um þetta band fyrr en Kristján keypti diskinn þeirra á leiðinni hingað eftir jólin og kynnti okkur því fyrir þeim. Þetta hljómaði bara mjög vel og var á köflum einsog Sigurrós nema bara mun rokkaðri og var þess vegna virkilega flott. Við vorum mætt snemma á svæðið og í upphafi voru allir áhorfendur íslenskir og tveir af þessum áhorfendum vorum við tvö ... hmmm ... það bættist nú fljótt við í hópinn ... en að vera fyrsta hljómsveit klukkan 8 á mánudagskvöldi er nú ekki það auðveldasta.
cheers
sunnudagur, febrúar 04, 2007
Inga Huld skemmti sér vel í dag á Children´s Museum of Art sem við fundum út að er ekki safn heldur geta krakkar komið þar og málað, leirað, föndrað, spriklað og sprellað að vild sinni ... ljóst að hún á eftir að biðja um að fara þangað aftur. Við vorum ekki mikið úti við þar sem það er svo ansi kalt úti ... í 10 stiga frosti og smá vindi þá er maður alveg að frjósa!
Í dag er Super Bowl þar sem the Colts og the Bears takast á í Miami í úrslitaleik ameríska fótboltans ... sjónvarpsútsendingin frá leiknum ku vera sú sem fær mest áhorf í ameríska sjónvarpinu. Það er líka búið að byggja upp mikla spennu fyrir leikinn og mikill undirbúningur í gangi ... sérstaklega varðandi hvað á að bjóða uppá í Super Bowl partýum sem mér skilst að sé yfirleitt pizzur, kjúklingavængir og bjór ... í rauninni ekki mjög flókið. Við ákváðum nú að þiggja ekki boð í þannig partý ... ætla þó að horfa aðeins á þetta í sjónvarpinu og byrjar leikurinn klukkan hálfsjö en útsending er búin að vera í gangi í allan dag.
Ég fór á fimmtudaginn á skemmtilegan körfuboltaleik í Madison Square Garden þar sem tvö háskólalið tókust á ... Georgetown burstaði St. Johns en í Georgetown leikur sonur Patrick Ewing sem ég man eftir að var á sínum tíma með Knicks í NBA þegar það var vinsælt heima fyrir fjölda ára.
cheers