fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Inga Huld var með flensu í vikunni - á fimmtudaginn var hún laus við hitann og var hjá mér hálfan dag í vinnunni þar sem Jóa þurfti að fara í skólann. Inga dundaði sér mest allan tímann á internetinu á ceebeebies síðunni.


cheers

miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Fyrsti sólarhringurinn hjá kisa gekk bara nokkuð vel - hann var þó dáldið hissa á þessu öllu saman og kannaði alla íbúðina mjög vel og mjálmaði með hálfgerðum vælistón. Fyrst héldum við að hann vildi sofa undir rúmi hjá Ingu Huld og virtist sem hann væri dáldið öruggur með sig þar undi en hann sættist síðan seint um kvöldið að leggja sig á teppi og púða sem við útbjuggum fyrir hann inni í horni hjá Ingu Huld. Hann vaknaði þó nokkrum sinnum og hálfgrét en komst þó loks í gegnum nóttina - vildi svo snemma í morgun sofa uppí hjá okkur eða Ingu Huld. Það er bara ansi mikið fjör í honum og hoppar hann hér og skoppar um allt - Inga Huld sér um að hann sé ekki uppi í stólum og rúmum og reynir að siða hann til og svo leika þau sér saman með bolta og tuskumýs. Núna er hann sofandi uppí í sófa og Inga Huld er að horfa á barnaefni - við keyptum einhvern standard pakka af sjónvarpsrásum og það þýðir aðgangur að 125 stöðvum, þar af slatti af barnastöðvum ... þetta ætti að duga okkur eitthvað frameftir hausti.

Inga Huld nýtur þess þó ekki nógu vel að vera með honum þar sem hún er komin með hita og er ekki í neitt miklu stuði - hún jafnar sig þó fljótlega á þessu og tekur upp fyrri gleði.

Fyrstu helgina okkar hérna þá leigðum við okkur bíl til að keyra aðeins um svæðið og kíkja út fyrir Manhattan með það að markmiði að stoppa í nokkrum búðum - þægilegra að versla svoleiðis og stærri verslunarmiðstöðvar. Að sjálfsögðu var fyrsti viðkomustaðurinn IKEA á Long Island og við þurftum reyndar að fara einnig í IKEA í New Jersey þar sem ekki var allt til sem okkur vantaði í fyrri búðinni ... mér fannst það dáldið skondið að oft er sett út á kanana sem koma til Evrópu og leita sér uppi McDonalds til að borða á ... hef ekki efni á því að setja útá það lengur þar sem það fyrsta sem við leitum okkur uppi hér í Ameríku er einmitt IKEA.

cheers

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Jæja, þar kom að því ... loksins fjölgun í fjölskyldunni!! Hér fyrir neðan má sjá nýjasta fjölskyldumeðliminn sem fæddist þann 17. júní 2006. Kisinn sem enn hefur ekki fengið nafn var sóttur til Brooklyn núna í kvöld og er karlkyns af exótísku stutthára kyni sem er afbrigði af persnesku kattakyni. Hann hefur alla sömu eiginleika og skapgerð og sá persneski nema hann er með styttri og viðhaldsminni feld. Inga Huld var og er einkar spennt fyrir honum og tókst henni að leika við hann með bolta og tuskumús í bandi. Þau eru núna farin að sofa bæði tvö.


Best að halda svo áfram að kjósa hann Magna í Rockstar Supernova ... það verður að standa með sínum löndum!!

mánudagur, ágúst 28, 2006

Vorum að kíkja á addressuna okkar í Google Earth og kemur hún ekki alveg rétt þar ... við erum sem sagt 5 húsum til hægri en þar sem Google Earth staðsetur okkur. Hægt er að fletta okkur upp með addressunni 214 East 25th Street, NY 10010. Ef einhver mundi síðan vilja senda okkur bréfapóst þá þarf að bæta við íbúðarnúmeri 5RE - Google Earth kemst ekkert nær okkur með því að bæta íbúðarnúmerinu við!

Inga Huld var annars hress og kát í dag eftir að hafa leikið sér við Söndru og Unni. Ég sótti hana þar sem Jóa var í skólanum frameftir kvöldi og tókum við núðlur með okkur heim í kvöldmatinn. Inga Huld hafði valið að hafa lasagna en breytti snarlega um skoðun þegar ég bauð henni núðlur. Síðan beið okkar pakki heima með fjórðu seríu Simpson sem við byrjuðum svo að horfa á.

cheers

sunnudagur, ágúst 27, 2006

Fórum í heimsókn til Sigurgeirs og co í dag að sjá nýja pleisið þeirra á áttugustaogáttunda stræti við fyrsta avenue á fertugastuogannarri hæð, nánar má sjá um það á heimasíðu þeirra sem er hér á vinstri hliðinni. Fórum svo með þeim í kvöldmat út að borða á mjög góðan ítalskan stað þar sem þeirra gámur frá London er ekki kominn enn og því lítið um húsgögn í íbúðinni þeirra ... einungis flygill, sófasett, sjónvörp og dýnur ... hvað þarf maður sosum meira?? Ingu Huld fannst meiriháttar gaman að hitta Söndru og Unni og ætlar að fara aftur í heimsókn til þeirra á morgun á meðan Jóa byrjar í skólanum.

Tók eftir því áðan að veðurmyndin hér á hægri hliðinni sýndi sól og blíðu en þegar ég leit út um gluggann þá var bara rigning og leiðindi. Áttaði ég mig þá á því að myndin var að sýna veðurfarið í London en ég er náttúrulega staddur núna í New York ... fljótlega lagfærði ég þetta og núna sjáið þið því rétt veðurfar hér hjá okkur, nánar tiltekið er þetta samkvæmt veðrinu í Central Park sem er ca. 40 mínútna gangur frá okkur.

cheers

Fórum í gær í Chinatown - höfðum nefnilega lesið að þar væri að finna ferskasta fiskinn á Manhattan. Fundum allavega tvo flotta fisksala og keyptum við hjá þeim lúðu og rækjur en mjög girnilegt hjá þeim voru líka humrar, krabbar og allskyns skelfiskur. Ingu Huld leist þó ekkert á krabbana sem klipu út í loftið með klónum sínum. Röltum síðan um hverfið og fengum okkur Dim Sum í kaffinu. Versluðum okkur einnig ýmislegt annað í kvöldmatinn sem var með asísku ívafi - experimentuðum með Dim Sum og sashimi. Á heimleiðinni fórum við í gegnum litlu Ítalíu og merkilegt að sjá mismunandi stemninguna í þessum nærliggjandi hverfum.

Hitastigið er orðið viðunandi hér og var næstum langermaveður með hitastigi bara um 20 gráðurnar. Loftkælingin heima fer sjaldnar í gang sem er ágætt þar sem það eru töluverð læti í henni.

cheers

föstudagur, ágúst 25, 2006

Þetta er nú meira draugabloggið ... greinilega ekkert um að vera á þessum bænum!! ... eða hvað?? Í stuttu máli sagt þá:
- endurtrúlofuðum við okkur í París og ákváðum loks giftingu.
- Valdi fluttur til í vinnu til New York.
- Heather Close í London seld til Indverjanna í þarnæsta húsi.
- öllu pakkað í gám og sent þvert yfir Atlantshafið á afmælisdaginn hennar Ingu Huldar.
- gifting með pomp og prakt á Íslandi þann 15. júlí 2006.
- ógleymanleg brúðkaupsferð til Kenýa í ævintýralegt safarí og rómantíska stranddvöl.
- íslensk sumarbústaðadvöl og veiðiferð (3 laxar þetta sumarið).
- allsherjarflutningur til New York þann 6. ágúst frídag verslunarmanna og tekið á móti gámnum þann 7. ágúst.

Síðan hefur New York verið könnuð og skönnuð og við verið að koma okkur fyrir í nýja pleisinu. Skólinn að byrja hjá frúnni og Ingu Huld og við loksins komin með nettengingu heima eftir töluverða bið.

Látum þetta duga að sinni - vonum að einhver sé enn að líta hér við.

Með kveðju frá New York
Valdi, Jóa og Inga Huld