miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Fyrsti sólarhringurinn hjá kisa gekk bara nokkuð vel - hann var þó dáldið hissa á þessu öllu saman og kannaði alla íbúðina mjög vel og mjálmaði með hálfgerðum vælistón. Fyrst héldum við að hann vildi sofa undir rúmi hjá Ingu Huld og virtist sem hann væri dáldið öruggur með sig þar undi en hann sættist síðan seint um kvöldið að leggja sig á teppi og púða sem við útbjuggum fyrir hann inni í horni hjá Ingu Huld. Hann vaknaði þó nokkrum sinnum og hálfgrét en komst þó loks í gegnum nóttina - vildi svo snemma í morgun sofa uppí hjá okkur eða Ingu Huld. Það er bara ansi mikið fjör í honum og hoppar hann hér og skoppar um allt - Inga Huld sér um að hann sé ekki uppi í stólum og rúmum og reynir að siða hann til og svo leika þau sér saman með bolta og tuskumýs. Núna er hann sofandi uppí í sófa og Inga Huld er að horfa á barnaefni - við keyptum einhvern standard pakka af sjónvarpsrásum og það þýðir aðgangur að 125 stöðvum, þar af slatti af barnastöðvum ... þetta ætti að duga okkur eitthvað frameftir hausti.

Inga Huld nýtur þess þó ekki nógu vel að vera með honum þar sem hún er komin með hita og er ekki í neitt miklu stuði - hún jafnar sig þó fljótlega á þessu og tekur upp fyrri gleði.

Fyrstu helgina okkar hérna þá leigðum við okkur bíl til að keyra aðeins um svæðið og kíkja út fyrir Manhattan með það að markmiði að stoppa í nokkrum búðum - þægilegra að versla svoleiðis og stærri verslunarmiðstöðvar. Að sjálfsögðu var fyrsti viðkomustaðurinn IKEA á Long Island og við þurftum reyndar að fara einnig í IKEA í New Jersey þar sem ekki var allt til sem okkur vantaði í fyrri búðinni ... mér fannst það dáldið skondið að oft er sett út á kanana sem koma til Evrópu og leita sér uppi McDonalds til að borða á ... hef ekki efni á því að setja útá það lengur þar sem það fyrsta sem við leitum okkur uppi hér í Ameríku er einmitt IKEA.

cheers

Engin ummæli: