Inga Huld var í "sleep over" hjá Rosie vinkonu sinni ... var mikið fjör og farið seint að sofa og vaknað snemma ... því var farið snemma að sofa í kvöld. Við nýttum tímann vel bara tvö saman, klæddum okkur í okkar fínasta púss og byrjuðum að fara út að borða á Aquavit sem er sænskur veitingastaður ... mjög smekklegur með mikla skandinavíska hönnun. Ég fékk mér önd og Jóa lúðu og smakkaðist þetta allt saman alveg súper vel ... staðurinn fær slatta af stjörnum frá okkur. Síðan lá leiðin í the Met Opera, öðru nafni the Metropolitan Opera að sjá La Boheme sem er frumraun okkar í óperuheiminum. Sýningin kom skemmtilega á óvart og var allt saman alveg meiriháttar flott með frábærri tónlist, skemmtilegum búningum og sviðsmynd ... í stuttu máli fjallar óperan um raunir og þrautir skáldsins Rodolfo og saumakonunnar Mimi. Ég hugsa að við eigum eftir að fara aftur í óperuna.
sunnudagur, janúar 28, 2007
föstudagur, janúar 26, 2007
miðvikudagur, janúar 24, 2007
Inga Huld byrjaði í tveimur nýjum after-school klúbbum þetta árið, annar er fótbolti og hinn Tae Kwon Do ... henni fannst fullmikið "action" í þessum klúbbum og of mikið af strákum með fíflalæti ... hún er t.d. eina stelpan í Tae Kwon Do og finnst það ekki eitthvað sem vert er að sækjast eftir. Hún ætlar samt að reyna að þrauka eilítið og sjá hvort henni finnist þetta ekki skemmtilegt.
Þegar maður les fréttirnar núna frá klakanum og fylgist með rosalegri velgengni íslenska landsliðsins í handbolta er ekki laust við að það geri vart við sig eilítil heimþrá ... það vantar alveg spenninginn og þjóðarstoltsfílinginn þegar staðið er við bakið á "strákunum okkar" !!! Ekki bætir úr skák að þegar ég segi samstarfsfélögum frá afrekum íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu þá brosa menn eilítið út í annað ... hér er handboltinn ekki hátt skráður ...
mánudagur, janúar 22, 2007
Það er orðið eitthvað lítið af matnum hans Herra Níelsar þar sem okkur yfirsást að kaupa fyrir hann um helgina ... við ákváðum því að drýgja hann eilítið í kvöld með harðfisk sem við áttum í frystinum. Hann hefur fengið mjög litla bita áður og líkað mjög vel og orðið allur æstur yfir þessum nýja mat. Núna var hann líka mjög ánægður og gúffaði harðfiskbitunum í sig ... vonum að hann fái ekki í magann. Harðfiskurinn er allavega þurrfóður sem er einmitt hans mataræði ... hann fær hann þó ekki með smjöri!
sunnudagur, janúar 21, 2007
Við fórum í göngutúr í frostinu í dag ... byrjuðum á því að taka metróið niður á Canal Street í Soho og gengum síðan uppá Union Square þar sem við fórum í Garden of Eden ... þetta var töluvert styttra en við bjuggumst við, sem betur fer þar sem frostið var farið að bíta í gegnum húfur, trefla og vettlinga.
Hér snjóaði dáldið í vikunni ... ég sá það ekki með eigin augum þar sem ég var staddur á ráðstefnu á Boca Raton, Flórída í þægilegum stofuhita og sólskini. Þegar ég kom heim á laugardaginn þá bauð Jóa uppá Porterhouse steik í tilefni bóndadagsins sem ég missti reyndar af þar sem hann var á föstudaginn ... Ingu Huld fannst ég ekki eiga neitt sértrítment skilið þar sem ég hefði einfaldlega misst af bóndadeginum !
Það tekur tvo og hálfan klukkutíma að fljúga til Flórída og drap ég tímann í vélinni með því að lesa jólabók frá Jóu ... Sér grefur gröf eftir Yrsu ... bókin var um margt ágæt og var fléttan skemmtileg ... ættartréið og fjölskyldutengslin voru þó orðin dáldið flókin svona undir lokin ... best var þó að textinn rann létt niður og var ágætis húmor inná milli þótt mér fyndist bæði húmorinn og textinn dáldið einfaldur á stundum. Næst liggur fyrir að lesa Aldingarðinn eftir Ólaf Jóhann og verður það mín önnur bók eftir hann þar sem ég las Sniglaveisluna einhvern tímann í Versló. Síðan kemur að Ég er ekki dramadrottning eftir Sif, sem Jóa og mamma eru búnar að lesa og ku hún vera mjög skemmtileg lesning ... ég er þó ekki alveg viss hvort ég geti tekið hana með mér út úr húsi þar sem hún er svo ofsalega bleik á litinn.
cheers
mánudagur, janúar 15, 2007
Fórum öll saman í bíó í gær á Night At The Museum þar sem Ben Stiller leikur nýjan næturvörð á American Museum of Natural History. Þarna sem sagt lifnar allt við á nóttunni og er mikið um fjör og óvæntar uppákomur ásamt dramatískri ástarsögu og eilitlu af fjölskylduvandræðum. Allavega þá var það ekki síður spennandi að safnið er statt einmitt hér í New York á West 79th við Central Park og í morgun var ferðinni heitið þangað. Ingu Huld fannst það mjög skemmtilegt en var þó pínu svekkt að þetta leit ekki alveg eins út og í bíómyndinni. Safnið er mjög áhugavert ... gamlar indíánagínur minna að sumu leiti á Þjóðminjasafnið ... en nýgerð fjórða hæðin með þróu dýra og mannkyns frá risaeðlum til nútímans var nokkuð flott.
laugardagur, janúar 13, 2007
Það er löng helgi hjá okkur þar sem á mánudaginn er haldið uppá fæðingardag Martin Luther King með almennum frídegi. Föstudagurinn endaði meira að segja snemma þar sem ég flaug um miðja nóttina til Boston til að ná morgunfundum ... fékk síðan flug heim fyrr en áætlað var, sem varð til þess að ég náði í kaffiboð hjá stelpunum þar sem Rosie og fjölskyldu var boðið eftir skóla í heitt súkkulaði og pönnukökur. Það var ákveðið að taka það bara rólega þessa löngu helgi ... við röltum því um Soho í morgun og flíkkuðum aðeins uppá vinnufataskápinn minn á janúarútsölunum og Inga Huld fór í íslenskuskólann seinni partinn. Á meðan kíktum við tvö á "Tea Box cafe" sem er í kjallara Takashimaya versluninni á Fifth þar sem við fengum okkur "Bento Box" með ýmsu góðgæti.
Fundum fyrir því sérstaklega núna að Kristján væri farinn þar sem pokaburðurinn þyngdist og vantaði tvær aukahendur til að bera upp alla stigana. Inga Huld hafði sérstakt orð á þessu og fannst þetta hálfómögulegt.
Drukkum svo loks Bedell hvítvínið sem við keyptum á víngarðinum á Long Island þegar við vorum þar á afmælinu mínu. Það var búið að geyma það fyrir gott tilefni og var kvöldið í kvöld sosum jafngott tilefni og hvert annað ... smakkaðist það mjög vel enda átti þetta að vera flaggskipið þeirra og voru bara 200 kassar framleiddir.
cheers
fimmtudagur, janúar 11, 2007
Stjáni fór heim í dag og erum við bara þrjú aftur en það höfum við ekki verið síðan fyrir jól eða í ca 3 vikur ... það er því tómlegt hjá okkur en nú dettur lífið í sinn vanagang. Jóa tók að sér að hjálpa bróður sínum að endurnýja fataskápinn sinn og verslaði hann allt mögulegt og ómögulegt ... það virtist alveg kominn tími til að fata drenginn upp! Hann sá líka ýmislegt af Manhattan og hefur ekki gengið jafnmikið í fleiri fleiri ár ... enda var hann líka dauðuppgefinn.
Í gær fórum við á Hairy Monk eða Háruga Munkinn og fengum okkur hamborgara áður en ég og Stjáni skelltum okkur á Knicks leik í Madison Square Garden, sem er hér handan hornsins, þar sem þeir tóku á móti Philadelphia Sixers ... bæjarliðið sigraði sinn þriðja leik í röð og var mikið fjör í höllinni ... þetta var alveg þrælskemmtilegt og er alveg á hreinu að ég fer aftur og þá ætlar Jóa að koma með. Ekki svo að skilja að hún hafi mikinn áhuga á körfubolta heldur er það frekar vegna þess að við sáum Matthew McConaughey á fremsta bekk ... blasti skallinn á honum við okkur allan tímann ... ég hefði nú reyndar ekki þekkt hann nema af því að hann var kynntur sérstaklega og mynd af honum skellt á skjáinn þar sem hann kyssti einhverja konu sem var með honum. Einhverjir fleiri "frægir" voru kynntir en það voru nöfn sem við höfðum aldrei heyrt áður.
cheers
þriðjudagur, janúar 09, 2007
Fengum góða gesti þegar Bjössi og Ólafía komu til okkar í kvöldmat ásamt syninum Benedikt sem er eins og hálfs árs og sýndi Herra Níelsi mikinn áhuga ... Við buðum uppá crostini í forrétt, í aðalrétt pasta með smokkfisk að hætti meistara Jamie Olivers og hann átti einnig sinn þátt í desertinum sem var lime og peru sorbet. Jóa notar nýju ísgerðarskálina óspart og er alveg ljóst að hún virkar vel.
cheers
sunnudagur, janúar 07, 2007
Lögðum af stað í gærmorgun rúmlega klukkan 7 til Washington DC ... framundan voru ca 230 mílur og var stefnt á að mæta á svæðið um hádegi og myndum við þá hafa um einn sólarhring til að skoða okkur um og sjá gersemar Ameríku. Byrjuðum á rútutúr um svæðið sem sýndi okkur allt það helsta ... Capitol Hill, Washington Monument, Lincoln Memorial, Arlington Cemetary, Hvíta Húsið ... alls konar stríðsminnismerki einsog um Víetnam, Kóreustríðið, seinni heimsstyrjöldina og náttúrulega ýmsar ríkisstofnanir og sendiráð allra mögulegra landa. Í morgun gengum við síðan um svæðið frá Capitol Hill í gegnum National Mall að Washington Monument og að 1600 Pennsylvania Avenue, öðru nafni Hvíta Húsinu ... kíktum á risaeðlubein í leiðinni á National History Museum ásamt stærsta bláa demant heims og stærsta uppstoppaða fíl heims og stærsta Topaz stein heims og ýmislegt annað stærst í heimi ...Veðrið hjá okkur var frábært með um 20 stiga hita og það besta var að það voru mjög fáir túristar á ferðinni að þvælast fyrir.
föstudagur, janúar 05, 2007
Kristján er búinn að sjá hitt og þetta í New York og er Jóa búin að láta hann versla dáldið líka og flíkka upp á fataskápsinnihaldið sitt ... gott að við eigum eina auka tuðru sem hann má fá lánaða á heimleiðinni. Við sýndum honum líka menninguna og stóðum við í einn klukkutíma í röð fyrir utan MoMA ... og eyddum síðan ca klukkutíma inni og sugum í okkur menninguna. Fórum í áhugaverðan túr um byggingu Sameinuðu Þjóðanna og sáum fundarsalina þar sem allar þessar "mikilvægu" ákvarðanir um heimsmálin eru teknar ... Inga Huld heillaði guide-inn með athyglisverðum spurningum sem lágu henni á hjarta. Að sjálfsögðu fékk hann ameríska steik sem olli ekki vonbrigðum og gerði Jóa fyrir hann nautafillet að hætti hússins ...
mánudagur, janúar 01, 2007
GLEÐILEGT NÝTT ÁR !!
Þá er enn eitt árið byrjað ... við héldum uppá áramótin heima við með því að snæða dýrindis mat ... skipulagningin hjá Jóu hefur tekið sinn tíma og með aðstoð Jamies og landsliðsins setti hún saman súper matseðil.
Við byrjuðum klukkan 7 á því að skála inn íslensku áramótin í kampavíni ásamt lystauka sem var hörpudiskur og mango. Í forrétt voru steiktar rækjur með baby zucchini og chilli - með því var Poully Foussy hvítvín. Aðalrétturinn var gómsætt dádýrafillet ásamt ofnbökuðum kartöflu- og rauðbeðusneiðum - þessu var skolað niður með Pomerol rauðvíni. Í desert var dýrindis heit súkkulaðikaka ásamt heimagerðum vanilluís. Þessi athöfn stóð yfir í ca 3.5 klukkutíma og var algjört namminamm ... ekki hægt að lýsa því nánar. Við horfðum svo á skaupið á netinu ... einhverra hluta vegna var ekki mikil lyst á snakki yfir því en sumir gátu fengið sér kaffi og koníak. Á miðnætti horfðum við á Times Square í sjónvarpinu telja niður í amerísk áramót ... gátum við þá skálað aftur í kampavíni. Sumir enduðu á smávegis "natmad" sem voru bliniskökur með sýrðum rjóma, kavíar og reyktum laxi ... (komum með reykta laxinn með okkur frá Íslandi ... var veiddur í Flekku).
Ekki mátti skjóta upp flugeldum en ég held þó að okkur hafi tekist að sprengja hann Kristján af góðum mat ... einnig höfðum við nælt okkur í draslbombur í Chinatown. Kaninn er lélegur með flugeldana ... það hjálpar heldur ekki til að þeir eru ólöglegir í New York ... það er eitthvað sprengt á fjórða júlí en á áramótunum sáum við ekki neitt. Draslbomburnar okkar eru nákvæmlega einsog nafnið gefur til kynna eingöngu draslbombur - þetta eru ca meters hólkar og snýr maður botninum eilítið og er þá þrýstiloft sem skýtur útí loftið fullt af pappadrasli ... þessu skutum við upp af svölunum eftir miðnætti við mikinn tilfögnuð enda voru þetta einu bomburnar þessi áramótin!
Árið hjá okkur er búið að vera ríkt viðburða og búið er að bralla ýmislegt - helst má nefna endurtrúlofun í París, giftingu á Íslandi, brúðkaupsferð til Kenýa, flutning á fjölskyldunni frá London til New York og innkomu Herra Níelsar í fjölskylduna ... árið 2006 var gott og verður spennandi að vita hvað árið 2007 ber í skauti sér.
Cheers!