Ótrúlegt hvað við erum þreytt eftir daginn, við erum eiginlega bara alveg búin að vera. Það er miklu erfiðara heldur en það hljómar að máta rúm. Við fórum í slatta af rúmbúðum og prófuðum þar hinar ýmsu tegundir rúma og hlustuðum á misvitra rúmsölumenn lýsa fyrir okkur mismunandi gormategundum og mýkingarefnum og svo framvegis, o.s.frv... Núna er síðan verið að athuga með málningarliti þar sem versla á málningu á morgun þar sem skvísurnar eru á heimleið til klakans á þriðjudaginn.
laugardagur, júlí 24, 2004
laugardagur, júlí 17, 2004
Borðuðum þennan líka fína kvöldmat - ákváðum sem sagt loks að prófa sverðfiskinn sem við höfum svo oft séð í fiskborðinu í Sainsbury. Vorum reyndar mikið að spá í túnfisknum en tókum loks af skarið og keyptum marineraðan sverðfisk. Grillaði hann á útigrillinu (aftur kom demba á meðan grillið var að hitna ...) ásamt ferskum ananassneiðum, mjög gott, mjög gott !
Líður annars að heimferð Jóu sem er sem sagt 27 júlí - til að stytta okkur stundirnar þangað til þá fáum við tvær heimsóknir í þessari viku, nóg að gera sem sagt ...
Skoðuðum í dag málningu fyrir nýju íbúðina sem styttist óðum í að við fáum. Planið er þannig að ég á að mála áður en ég kem heim til klakans, ansi gott plan hjá Jóu ! og þarf því að kaupa málninguna áður en Jóa fer þannig að það verði nú ekki einhver vitlaus litur á stofunni ...
mánudagur, júlí 12, 2004
Iceland Express er alvarlega farið að trufla nætursvefn fjölskyldunnar. Núna voru það langamma og langafi sem lentu í hálfrardags seinkun og þurfti því að sækja þau á Stansted klukkan 4 aðfaranótt laugardagsins !!! Í gær, sunnudag, keyrðum við síðan til Reading til að sýna þeim skólann og bæinn þar sem við bjuggum í fyrra. Þar gistum við svo í eina nótt og á leiðinni tilbaka í dag þá var komið við í Legolandi. Völdu þau sem sagt heimsókn í Legoland framyfir að skoða Windsor kastala. Inga Huld var að sjálfsögðu hæstánægð með valið. Alveg mögnuð heimsókn - fullt af tækjum til að fara í og dót til að skoða og síðan náttúrulega kubbaland með hinum ýmsustu byggingum. Vorum í Legolandi í 7 klukkutíma, allt var tekið mjög rólega þar sem Inga Huld, langamma og langafi eru á mjög svipuðum gönguhraða þegar ganga þarf. Hún fékk síðan að hlaupa mikið úr sér og skemmti sér konunglega þarna og vildi fara í hvert tækið á fætur öðru. En nú er komið að svefni þar sem vinnudagur er á morgun og kominn háttatími hjá gestunum ...
cheers
miðvikudagur, júlí 07, 2004
Fékk símtal um það hvað það væri vont veður hjá mér hér í Englandi !! Las einnig um það á netinu að það væri bara vitlaust veður í nágrenni London. Fór nú eitthvað framhjá okkur - reyndar var hálftíma seinkun á lestinni minni og hálf girðingin fokin niður í garðinum þegar ég kom heim en einhvern veginn fann ég ekki mikið fyrir rokinu. Sáum einnig glampa í eina eldingu og heyrðum síðan í einni þrumu. Óveðrið fór því fyrir lítið hjá okkur ... nema þá bara í fréttunum.
Fengum óvænt næturgesti í kvöld - ekki óvæntir gestir heldur einungis óvænt að þeir dveldu hér næturlangt... í raun verða þeir ekki næturlangt heldur eiginlega bara næturstutt. Þeir voru búnir að boða komu sína í 2 klukkutíma í dag á meðan beðið var eftir tengiflugi en óvænt þá lengdist sú vænta dvöl. Ástæðan var 7 klukkutíma seinkun á flugi Iceland Express, sem er ekki svo óvænt, og þar af leiðandi riðlaðist tengiflug í framhaldinu. En gaman var að fá vænta gesti í óvæntan kvöldmat og næturgistingu. Jóa skutlar síðan gestunum óvænt eldsnemma í nótt um kl. fjögur á Stansted þar sem við væntum þess að tengiflug verði á áætlun !!
cheers
sunnudagur, júlí 04, 2004
Þá er stelpan bara orðin fjögurra ára ... alveg magnað ... Inga Huld átti sem sagt fjögra ára afmæli í gær og var ýmislegt gert í tilefni dagsins. Hún byrjaði nú reyndar á því á föstudaginn að fara með sveppaköku í leikskólann, (vil taka það fram að sveppir komu ekkert við sögu í innihaldi kökunnar, heldur var það einungis lag kökunnar sem var einsog sveppur í laginu), vakti hún mikla lukku og var sungið og allt. Á laugardagsmorgninum var náttúrulega vaknað snemma eða kl. 7:30 og var ekki hægt að sofna eftir það. Tilbúinn var þriggja hæða pakki í svefnherberginu með blöðrum og ýmsum skreytingum sem var fljótlega tekinn í sundur og skoðaður. Þar leyndist ýmislegt sem búið var að óska sér þ.e. Playmo, bleik regnhlíf og síðan bættust sundföt við sem hún var einnig ánægð með. Síðan réðst hún á pakkana frá ömmum sínum og voru þar stuttermabolur og stuttbuxur á Babyborn sem var búið að vanta lengi og einnig Barbie kall sem var prins, passaði hann því vel í giftingaleikinn hennar og var hann umsvifalaust nefndur King Louie. Var hún voða ánægð með þetta allt saman. Við fórum síðan í bæinn eftir hádegi í leikhús og sáum við Lion King - alveg frábær sýning og má mæla með henni fyrir alla aldurshópa. Við sáum töluvert af fólki sem var ekki með börn með sér og má dást að ýmislegu í sýningunni og hefur mikið verið lagt í sviðsmynd, búninga og tónlistina. Leikritið er sett upp nákvæmlega einsog teiknimyndin þannig Inga Huld þekkti söguþráðinn og persónurnar og sat stjörf yfir sýningunni. Vildi reyndar fara heim þegar ljónakóngurinn dó ... fannst það frekar dapurlegt. Var einnig orðin þreytt þegar seinni hálfleikur var hálfnaður enda var þetta tæpra þriggja tíma sýning. Ég og Jóhanna skemmtum okkur einnig stórvel yfir sýningunni og var þetta bara alveg meiriháttar fjör. Í kvöldmatinn heima voru síðan grillaðar SS pylsur með afmælistertu í desert. Var Inga Huld ánægð og þreytt eftir daginn, en bíður nú spennt eftir að halda afmælisveislu á Íslandi fyrir alla saman.
föstudagur, júlí 02, 2004
Er vikan virkilega búin ...
Það er nú aldeilis búið að vera nóg að gera og nóg að gerast í vikunni. Við fórum t.a.m. í Toys´r Us síðasta laugardag til að leyfa Ingu Huld að skoða dót og þvíumslíkt svo að hún gæti sýnt okkur hvað hana langaði í afmælisgjöf. Þar var hún voða hrifin af Playmo, kubbum, Babyborn og Barbie - af nógu var að taka. Hún þurfti t.d. endilega að fá Ken ... það var nefnilega búið að vera dáldið giftingarvandamál með Barbie undanfarið af því að enginn Barbie kall er til á heimilinu. Í eitt skiptið þá setti hún eina Barbie í buxur og hún gekk svo með brúðakjólabarbie upp að altarinu ... en það var samt eitthvað hálfómögulegt - að loknum miklum pælingum endaði hún á því að gifta Barbie einum Playmó kallinum !! ... en hún var samt ekki fullkomlega sátt við þetta og vildi endilega fá Barbie kall. Held síðan að amma hafi reddað því og að hann bíði nú í pakka eftir því að verða tekinn upp í fyrramálið. Það komu nefnilega tveir pakkar í vikunni og er mikill spenningur. Við laumuðumst til að kaupa Playmo í búðinni á meðan Inga Huld eldaði í eldhússamstæðunum - keyptum handa henni ávaxta- og grænmetisborð til að hafa í búð, búðarkassa og síðan eldhús með borði, vaski, eldavél, ísskáp og öllu saman - þetta var eitthvað sem henni hafði litist vel á.
Hvaða túba ?
Túbuverkfallið hafði sem betur fer ekki áhrif á okkur þar sem við þurfum ekki að nota hana. Ég tek bara venjulega lest í bæinn og labba síðan í vinnuna þannig að það var ánægjulegt að lenda ekki í einhverjum bölvuðum töfum. Einu áhrifin voru þau að það virtist vera fleira fólk á ferðinni svona snemma morguns - eflaust fólk sem gerði ráð fyrir að vera lengi á leið í vinnu.
Herra grís
Einræðisherrann var kosinn á Íslandi með meirihluta atkvæði ... alveg magnað ... en mér finnst nú samt gaman að geta talað nú einsog vinstri maður og segi að "þjóðin hafi talað sínu máli með öllum auðu atkvæðunum" ... ótrúlegt að Óli grís sé ekki að hlusta þegar að "þjóðin talar svona hátt" þar sem að hann er nú að fylgjast með því sem "þjóðin segir". Óli grís, tákn þjóðarinnar ... kannski er það viðeigandi þar sem bónusgrísinn fer hamförum erlendis og kaupir og kaupir ...
Hvað gerist eftir EM?
Hver hefði getað giskað á það að Portúgal og Grikkland myndu spila saman úrslitaleikinn á EM ?? Ég er ekki einu sinni viss um að það hafi verið boðið upp á að veðja á svoleiðis vitleysu. Bretar voru að vonum svekktir og skilst mér að Svissarar séu ekki hlutir lengur í landi Breta ... hélt alltaf að Sviss væri svo hlutlaus þjóð ...