Er vikan virkilega búin ...
Það er nú aldeilis búið að vera nóg að gera og nóg að gerast í vikunni. Við fórum t.a.m. í Toys´r Us síðasta laugardag til að leyfa Ingu Huld að skoða dót og þvíumslíkt svo að hún gæti sýnt okkur hvað hana langaði í afmælisgjöf. Þar var hún voða hrifin af Playmo, kubbum, Babyborn og Barbie - af nógu var að taka. Hún þurfti t.d. endilega að fá Ken ... það var nefnilega búið að vera dáldið giftingarvandamál með Barbie undanfarið af því að enginn Barbie kall er til á heimilinu. Í eitt skiptið þá setti hún eina Barbie í buxur og hún gekk svo með brúðakjólabarbie upp að altarinu ... en það var samt eitthvað hálfómögulegt - að loknum miklum pælingum endaði hún á því að gifta Barbie einum Playmó kallinum !! ... en hún var samt ekki fullkomlega sátt við þetta og vildi endilega fá Barbie kall. Held síðan að amma hafi reddað því og að hann bíði nú í pakka eftir því að verða tekinn upp í fyrramálið. Það komu nefnilega tveir pakkar í vikunni og er mikill spenningur. Við laumuðumst til að kaupa Playmo í búðinni á meðan Inga Huld eldaði í eldhússamstæðunum - keyptum handa henni ávaxta- og grænmetisborð til að hafa í búð, búðarkassa og síðan eldhús með borði, vaski, eldavél, ísskáp og öllu saman - þetta var eitthvað sem henni hafði litist vel á.
Hvaða túba ?
Túbuverkfallið hafði sem betur fer ekki áhrif á okkur þar sem við þurfum ekki að nota hana. Ég tek bara venjulega lest í bæinn og labba síðan í vinnuna þannig að það var ánægjulegt að lenda ekki í einhverjum bölvuðum töfum. Einu áhrifin voru þau að það virtist vera fleira fólk á ferðinni svona snemma morguns - eflaust fólk sem gerði ráð fyrir að vera lengi á leið í vinnu.
Herra grís
Einræðisherrann var kosinn á Íslandi með meirihluta atkvæði ... alveg magnað ... en mér finnst nú samt gaman að geta talað nú einsog vinstri maður og segi að "þjóðin hafi talað sínu máli með öllum auðu atkvæðunum" ... ótrúlegt að Óli grís sé ekki að hlusta þegar að "þjóðin talar svona hátt" þar sem að hann er nú að fylgjast með því sem "þjóðin segir". Óli grís, tákn þjóðarinnar ... kannski er það viðeigandi þar sem bónusgrísinn fer hamförum erlendis og kaupir og kaupir ...
Hvað gerist eftir EM?
Hver hefði getað giskað á það að Portúgal og Grikkland myndu spila saman úrslitaleikinn á EM ?? Ég er ekki einu sinni viss um að það hafi verið boðið upp á að veðja á svoleiðis vitleysu. Bretar voru að vonum svekktir og skilst mér að Svissarar séu ekki hlutir lengur í landi Breta ... hélt alltaf að Sviss væri svo hlutlaus þjóð ...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli