Ég og Inga Huld gerðum okkur klár eldsnemma um morguninn þar sem 4 skóla fótboltakeppni átti að hefjast klukkan 10 í Hunter skólanum sem er lengst uppá east side. Hún er búin að vera að æfa fótbolta í vetur í skólanum í after-school club og var mjög spennt ... sumargjöfin var fótbolti og höfum við farið stundum út í garð og svoleiðis til að sparka bolta. Annars er dáldið spaugilegt stundum heima að sjá hana í bleikum kjól og háhæluðum inniskóm með fjöðrum að æfa sig með boltann ... ekki viss hvað þjálfarinn segði við því. Keppnin var skemmtileg á að horfa ... það voru 11 í hvoru liði og var spilað í 10 mínútur hver leikur ... Inga Huld spilaði 3 leiki og gerðu þau 2 jafntefli og töpuðu einum leik.
Hún stóð sig vel og var "defender" sem skilaði sér í því að þau fengu bara 1 mark á sig sem risastór 7 ára strákur skoraði ... virtist hann vera einn af fáum þarna sem gat höndlað boltann almennilega. Ég heyrði að foreldrunum leist ekkert á þennan skrítna leik og voru þessir amerísku ekkert að botna í reglunum og ráðfærðu sig við útlendingana um málið ... leikurinn var líka stundum dáldið þvögukenndur þar sem allir á vellinum eltu boltann stundum hvert sem hann fór og ég held að næsta mál á dagskrá sé að kaupa legghlífar þar sem allir eru duglegir að sparka en hitta ekki alltaf boltann. En þetta er náttúrulega málið ef Bandaríkin ætla einhvern tímann að komast á kortið í fótboltanum að þá þarf að byggja allt upp frá grunni og því tekur þetta tug ára að fá almennilegt lið ... þeir mættu þó kannski athuga það að bjóða ekki uppá Krispy Kreme kleinuhringi á milli leikja ...
cheers
sunnudagur, apríl 29, 2007
þriðjudagur, apríl 24, 2007
mánudagur, apríl 23, 2007
Síðastliðin vika er búin að vera erfið á þessu heimili en með aðstoð langrar framlengingarsnúru, kertaljósa og góðra veitingastaða í nágrenninu þá léttist lífið töluvert ... hmmm hér á bænum var sem sagt ekkert rafmagn vegna ákveðins misskilnings og tók um viku að koma málinu aftur í lag. Við fengum rafmagn lánað af sameigninni með aðstoð framlengingarsnúrunnar og gátum þar með komið mikilvægu heimilistæki í gagnið sem var sjónvarpið ... kertaljósin sáu um upplýsinguna og var þetta orðið mjög rómantískt hjá okkur ... ok, nóg um það ... veitingastaðirnir sáu síðan um kvöldmatinn. Ég ætla að leyfa mér að giska á það að ef einhvers staðar er hægt að lifa af án rafmagns þá er það hér þar sem öll þjónusta er í seilingarfjarlægð ...
þriðjudagur, apríl 17, 2007
Ég var sendur óvænt á ráðstefnu til Las Vegas ... lagði af stað eldsnemma á mánudagsmorgni og kom aftur seint á þriðjudagskvöldi. Það er um 5 tíma flug frá New York og dáldið merkilegt að lenda í þessum bæ þarna í eyðimörkinni sem byggist utan um spilavítin og er aðalgatan um 5-10 mínútur frá flugvellinum ... næstum því svipað langt og frá Reykjavíkurflugvelli og í miðbæinn. Það væri skemmtilegt að koma þarna aftur í meiri rólegheitum og hafa tækifæri til að slaka á, njóta lífsins og spandera dáldið af peningum en það leit út fyrir að það væri frekar auðvelt þarna.
sunnudagur, apríl 15, 2007
Hér hefur hellirignt látlaust í allan dag ... þegar það rignir hérna þá er það alltaf einsog hellt sé úr fötum (í fleirtölu ...) mér skilst á fréttum að hundruðum fluga hafi verið frestað, þak fauk af húsi á Long Island, þar varð einnig rafmagnslaust og einhverjum vegum var lokað ... ég vona að veðrið verði eitthvað gengið niður á morgun þar sem ég fer í flug eldsnemma í fyrramálið.
Við héldum okkur innandyra frameftir degi en drifum okkur svo út seinnipartinn og tókum leigubíl á Whitney Museum sem sýnir ameríska list og kíktum þar á sýningu Gordon Matta Clark ... mjög áhugavert ... einna frægasta verkið hans, Splitting, var hús sem hann sagaði í sundur og losaði síðan undirstöðuna öðru megin þannig að sú hlið hallaðist niður.
cheers
laugardagur, apríl 14, 2007
Tengdó fóru á þriðjudaginn og er lífið hér komið í sin vanagang. Jóa er að læra á fullu þannig að ég og Inga Huld versluðum í Whole Foods og buðum svo uppá þríréttaða máltíð í kvöldmatinn ... keyptum einnig bollakökur í Cupcake Cafe á átjánda stræti sem voru nokkuð góðar en slógu samt ekki alveg út bollakökurnar frá Magnolia nema að þær voru meira fallega skreyttar. Kvöldmaturinn byrjaði með reyktum laxi og laxapate og síðan var grillað ribeye á beini með kartöflum í ofni að hætti Jamie ... og í eftirrétt var ostaveisla ... einn franskur, einn kanadískur og svo tveir íslenskir, Höfðingi og Stóri Dímon sem byrjað er að selja í Whole Foods ... dáldið skemmtilegt að geta keypt íslenskar vörur hér.
cheers
mánudagur, apríl 09, 2007
Á föstudaginn langa lögðum við af stað í páskafrísferð um sveitir og náttúru nærliggjandi svæða við New York. Ákveðið var að halda frekar í suðurátt heldur en norðurátt þar sem við töldum að það væri kannski hlýrra þar. Þetta með hitastigið reyndist nú rétt þar sem að um páskana snjóaði töluvert á svæðum norðan New York ... þannig að við fengum bara smávegis frost og snjófjúk ... við vorum sem betur fer vel græjuð og viðbúin lágu hitastigi.




Frá New Hope keyrðum við til Cape May sem er á syðsta odda New Jersey og er eflaust vinsæll sumardvalarstaður með langri og flottri sandströnd ... ekki var hægt að fara á ströndina í frostinu og rokinu sem dundi á okkur allan tímann þannig að við héldum okkur við rúntinn. Fundum þarna einn vita og slatta af gömlum Victorian style húsum í fallegum pastel páskalitum þar sem sumir bættu um betur með risastórum uppblásnum páskakanínum úti í garði. Við gátum allavega fengið okkur að borða þarna og var sæmilegasti humarstaður, Lobster House, þar sem við fengum okkur humar og krabbakökur og meginuppistaðan í morgunmatnum hjá okkur voru síðan amerískar pönnukökur með slatta af sírópi. Annars var sosum ekki mikið við að vera þarna þannig að við lögðum tiltölulega snemma af stað heim - leiðin var um 160 mílur og stoppuðum við í skólanum hennar Jóu í Brooklyn á heimleiðinni og fundum þar einnig Garden of Eden þar sem gátum keypt páskalambalæri. Lambið var bara mjög gott enda dúllaði Jóa við það að fyrirmynd Jamie og var síðan dýrindis Tiramisu í desert (sem mun duga okkur alla vikuna ...).

fimmtudagur, apríl 05, 2007
Kynntum tengdó fyrir amerískri steik og fórum á Smith & Wollensky Steakhouse sem er ekki langt frá vinnunni ... fengum Filet Mignon, Porterhouse og lúðu ... allt saman var þetta alveg eðal gott og desertkökurnar voru af almennilegri stærðargráðu, ég fékk mér risastóra gulrótarkökusneið og amma, Jóa og Inga Huld skiptu á milli sín súkkulaðimúsköku sem þær náðu varla að klára.
Svo á að leggja af stað í ferðalag niður til Delaware í fyrramálið og síðan til Cape May sem er syðsti hluti New Jersay ... þetta ku vera skemmtilegir staðir með gömlum Victoriu húsum og skemmtilegum karakter ...
cheers
miðvikudagur, apríl 04, 2007
Rúmbi ryksuga virkar þrælvel og mun betur en ég gerði ráð fyrir ... vakti hann líka mikla athygli þegar hann fór í gang í fyrsta skiptið og þeystist hér um öll gólf og tók allt sem steini var léttara. Það var mikil áhersla lögð á það við Ingu Huld að nú má ekkert smádót vera á gólfinu ellegar mun það hverfa þar sem Rúmbi fer af stað þrisvar í viku ...
Tengdó fóru með Ingu Huld á rosalega skemmtilegan sirkus í Madison Square Garden ... þar voru m.a. fílar og tígrisdýr ásamt loftfimleikamönnum, trúðum og ýmsu öðru sem tilheyrir sirkús.
mánudagur, apríl 02, 2007
Tengdó heldur áfram að þramma Manhattan þvera og endilanga og Inga Huld platar þau til að kaupa ís og McDonalds á hverjum degi. Búið er að senda þau í hinar og þessar búðir til að versla eitt og annað t.d. beyglur í H&H Bagels og bollakökur í Cupcake Heaven og eitthvað af fötum og rafmagnstækjum. Ég yfirgaf liðið um helgina og skellti mér á skíði í Killington sem er eilítið norðar en Stratton þar sem við vorum um daginn. Það er orðið lítið af snjó og var hann vel frosinn á morgnana en bráðnaði síðan með deginum og var orðið slabb seinnipartinn ... semsagt dáldið erfitt færi en samt alveg þrælfínt. Á meðan lóðsaði Jóa og Inga Huld liðið um neðsta hluta Manhattan og skoðuðu þau einnig dýragarðinn í Bronx sem er alveg á hreinu að þarf að fara aftur í til að skoða betur ... górillurnar slógu í gegn og sýndu skemmtilega tilburði.
Annars er Herra Níels er búinn að heilla ömmu upp úr skónum og erum ég og Inga Huld búin að ákveða jólagjöfina fyrir hana um næstu jól.