Hér hefur hellirignt látlaust í allan dag ... þegar það rignir hérna þá er það alltaf einsog hellt sé úr fötum (í fleirtölu ...) mér skilst á fréttum að hundruðum fluga hafi verið frestað, þak fauk af húsi á Long Island, þar varð einnig rafmagnslaust og einhverjum vegum var lokað ... ég vona að veðrið verði eitthvað gengið niður á morgun þar sem ég fer í flug eldsnemma í fyrramálið.
Við héldum okkur innandyra frameftir degi en drifum okkur svo út seinnipartinn og tókum leigubíl á Whitney Museum sem sýnir ameríska list og kíktum þar á sýningu Gordon Matta Clark ... mjög áhugavert ... einna frægasta verkið hans, Splitting, var hús sem hann sagaði í sundur og losaði síðan undirstöðuna öðru megin þannig að sú hlið hallaðist niður.
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli