Enn ein helgin sem notuð var til rólegheita og afslappelsis ... við þurftum þó aðeins að dressa okkur upp fyrir Íslandsferðina um næstu helgi, sumir fengu kjól og aðrir hlýja peysu ... ég og Inga Huld hlupum/hjóluðum niður að Brooklyn Bridge, vorum ekki á svo góðum tíma núna þar sem við tókum nokkra útúrdúra á leiðinni til að breyta aðeins til ... einnig fórum við í bíó og sáum The Gameplan með Rock, var hún bara glettilega skemmtileg og alveg hægt að hlæja öðru hvoru að henni. Grilluðum okkur ljúffenga nautalund í gærkvöldi ... um að gera að nota grillið áður en það verður of kalt, hitastigið er nefnilega að detta niður fyrir 20 gráðurnar hér ...
cheers
sunnudagur, september 30, 2007
þriðjudagur, september 25, 2007
Skelltum okkur á tónleika með Björk í Madison Square Garden þar sem hún spilaði fyrir nánast fullum sal í stóru höllinni sem tekur hátt í tuttugu þúsund manns. Vorum mætt á svæðið rétt rúmlega átta og tókum með okkur sushi á leiðinni til að borða í kvöldmatinn ... Björk byrjaði ekki fyrr en klukkan tíu þannig að við þurftum að hlusta í misskemmtileg upphitunarbönd á meðan biðinni stóð. Tónleikarnir voru stórskemmtilegir og stóð fólk nærri allan tímann og dansaði og söng á meðan hún spilaði í tvo klukkutíma. Lögin voru mjög fjölbreytt og ýmis þeirra sem við höfum ekki heyrt áður sem er kannski ekki skrítið þar sem við höfum ekki keypt nýju plötuna Volta en það er núna komið á dagskrána. Einni var showið flott og voru smávegis sjónhverfingar, ljósashow og bombur notaðar til að bæta stemninguna. Okkur fannst orðið tímabært að við færum á tónleika með frægustu persónu Íslands þar sem eitt af því fáa sem margir þekkja um Ísland er að þaðan er Björk.
cheers
sunnudagur, september 23, 2007
Helgin hjá okkur var róleg þar sem Jóa þurfti að læra mikið. Það hefur hlýnað aftur hjá okkur og er loftkælingin komin aftur í gang þar sem hitastigið er farið að nálgast þrjátíu gráðurnar aftur og er spáð hlýju og góðu veðri út þessa viku. Ég var farinn að fara í jakkafatajakkanum í vinnuna þar sem það var orðið dáldið svalt á morgnana í síðustu viku en líklega fær hann að vera heima næstu vikuna ...
Við kíktum þó aðeins í nokkrar búðir í Soho í gær og fundum meðal annars Soy bean paste í asískri sérvörubúð sem samkvæmt uppskrift Jamie Olivers er notað til að gera Miso paste sem er síðan notað til að marinera hinn rómaða og margsnædda Black Cod ... ég sá nefnilega svartan þorsk í fiskborðinu hjá Whole Foods um síðustu helgi og keypti þar sem hann er ekki oft til ... okkur hefur nefnilega lengi langað til að búa til þennan rétt sjálf frá grunni. Fyrir nokkrum vikum sáum við Miso marineringu sem við prófuðum á seabass frá Chile og bragðaðist það vel en var ekki nógu líkt orginalnum. Þar sem fiskurinn þurfti 24 tíma í mareneringunni þá var ekki hægt að hafa þennan rétt í laugardagsmatinn heldur keypti ég kálfa-rifjasneiðar ... um síðustu helgi sá ég kálfa-tbone en lagði ekki í að kaupa þá en núna skellti ég mér á rifjasneiðarnar, við marineruðum þær aðeins í olíu og tarragon samkvæmt uppskrift úr Larousse Gastronomique og grillaði ég þær uppi á grillinu í 14 mínútur ... með þessu voru svo ofnbakaðir kartöflubitar og salat og boðið var uppá kalt rósavín með sem okkur fannst við hæfi með kálfakjöti. Þvílíkt nammi ... kálfakjötið var svo mjúkt og ljúffengt undir tönn að það var einsog hin besta lund ... reyndar dáldið feitt en það var af því að rifjasneiðarnar eru líkar rib-eye´inu. Í desert var síðan heitt Farmer´s Apple Pie sem við fengum á markaðnum á Union Square og bárum við fram léttan vanillu Haagen Daz ís ... mjög gott þar sem eplauppskerutíminn er genginn í garð þá er mikið af uppskeru núna frá nálægum bændum. Við sulluðum svo saman Miso marineringunni sem þurfti að sjóða með sake og fleira ílæti og lögðum þorskinn í marineringuna sem mátti svo bíða til sunnudagskvölds.
Í dag gátum við keypt nokkrar afmælisgjafir og ég og Inga Huld fórum í nótna og músíkbúð, Colony, þar sem við þurftum að kaupa píanóbækur fyrir Ingu Huld vegna þess að hún er byrjuð að læra á píanó í skólanum sínum ... mjög skemmtileg búð sem virtist eiga allar mögulegar nótnabækur sem manni gæti vantað. Ég hljóp svo túrinn okkar en Inga Huld vildi vera heima þar sem það var tea party picknic hjá dúkkunum hennar ... mér tókst að bæta tímann okkar um 6 mínútur og var sem sagt 68 mínútur á leiðinni ... það sem flýtti dáldið fyrir var að núna þurfti ég ekki að stoppa við umferðargötuljósin og leiða hjólið yfir fyrir Ingu Huld og bera það yfir göngubrúnna yfir FDR ... líklega hef ég ekkert bætt hlaupatímann sjálfan en var þó nokkuð ánægður með árangurinn. Það var náttúrulega alveg ákveðið hvað átti að vera í matinn í kvöld, allt saman að forskrift Jamie´s ... gufusoðið Pak Choi og agúrkur ásamt Black Cod. Þetta bragðaðist mjög vel og var þorskurinn mjúkur og safaríkur og vel hægt að borða með prjónum ... við vorum þó ekki alveg 100% ánægð með árangurinn, líklega ekki nema svona 75% en lærðum heilmikið af reynslunni og ætlum að betrumbæta þetta næst t.d. á að reyna að nota hvítvín en ekki sake næst og reyna að þynna marineringuna meira þar sem hún var mjög bragðsterk.
cheers
laugardagur, september 15, 2007
I Trulli
Okkur langaði í gott pasta í kvöldmatinn og leist vel á að prófa stað í nágrenninu á 27th milli Park og Lex. Staðurinn er með formlegan veitingastað og einnig huggulegan vínbar við hliðina og hinum megin vð götuna er vínbúð eingöngu með ítölsk vín. Við byrjuðum á því að deila anda-prosciutto með þurrkuðum fíkjum ... sem betur fer fengum við okkur bara einn forrétt þar sem skammturinn var vel stór. Við fengum okkur síðan pasta og risotto og bragðaðist það mjög vel. Tiramisu og gelato í desert var síðan vel við hæfi. Þægilegur og góður staður sem við eigum eflaust eftir að stoppa við á aftur ... gef honum fjórar stjörnur.
Í gærkvöldi fórum við í partý yfir til New Jersey ... þetta var heljarinnar ferðalag og þurfti að taka ferju sem var nú bara skemmtilegt þar sem hægt var að sjá ljósadýrðina á Manhattan á meðan siglt var yfir. Við dvöldum ekki of lengi þar sem Jóa þurfti að halda áfram lærdómnum í dag. Ég og Inga Huld fórum enn einu sinni niður að Brooklyn Bridge og settum nýtt met sem var einn klukkutími og fjórtán mínútur. Síðan þar sem ég nennti ekki að elda kvöldmat þá var fórum við út að borða á ítalskan hér í nágrenninu sem var bara mjög góður. Eftir matinn kíktum við í Macy´s og gátum við verslað eitt og annað.
miðvikudagur, september 12, 2007
Insieme
Þessi staður opnaði nýlega á Times Square á 7th Avenue milli 50th og 51st. Kemur í rauninni á óvart að finna flottan, modern ítalskan stað hér þar sem flest er ofur-amerískt og stílað inná túristann. Sömu eigendur eru með Hearth sem er einnig ítalskur staðsettur í Lower East Village á 12th, ekki svo langt frá okkur. Við báðum þjóninn að setja saman matseðil fyrir okkur og stóð hann sig vel í því, einnig skemmtilegt að mörgum réttunum er hægt að deila. Til að byrja með fengum við kálfapate og Fish Crudo sem samanstóð af bass, yellowfin tuna og white tuna. Í millirétt var Potato Gnocchi og Ravioli di Spinaci et Ricatta ... bæði var mjög gott og mæli sérstaklega með þessum tveimur réttum. Eftir þetta var borin fram svínalund og Piemontese t-bone steak sem var mjög mjúk og safarík, jafnvel betri en á mörgum steikhúsunum. Ég hafði því miður ekki mikla lyst á desert eftir allar þessar kræsingar en það var þó látið vaða á ricotta og appelsínu ostaköku, nokkra Bombolonis og að sjálfsögðu smávegis Gelato með. Mæli sterklega með staðnum og kemur hann verulega á óvart miðað við staðsetninguna ... líklega mjög gott að fara þarna fyrir söngleik eða leikhús. Ég gef staðnum fjórar og hálfa stjörnu.
sunnudagur, september 09, 2007
Það var stefnt á stóran brunch í dag með fullt af fólki ... við pöntuðum borð í kjallara Blue Water Grill fyrir 13 manns þar sem live djazz músík var í gangi, sem sagt jazz brunch. Á svæðið mættu, Gísli, Habbý, Sveinn, Sigurgeir og fjölskylda ásamt þeirra gestum. Brunchinn heppnaðist vel og var staðurinn góður. Við fengum svo Gísla og Habbý í heimsókn seinnipartinn og fengum við okkur bjór, hvítvín og heilsusamlegt snakk uppi á palli ... þau tóku svo pakkann leyndardómsfulla með sér í sérflutning ...
Hér er annars búið að vera hrikalega gott veður í gangi ... stöðugt glampandi sól og yfir þrjátíu stiga hiti ... nú er spáð að það eigi að fara að detta niður í tuttuguogeitthvað gráður sem verður bara frískandi og gott.
cheers
Blue Water Grill
Blue Water Grill er á 16th og Broadway alveg við Union Square og hefur okkur oft fundist girnilegt að setjast þarna niður þar sem þeir eru með borð úti. Eigandi þessa staðar á einmitt líka Dos Caminos ásamt fleiri stöðum þannig að við þekktum aðeins til. Okkur datt í hug að það gæti verið sniðugt að fara hér í jazz brunch þegar við vorum spurð hvort að það væri einhver áhugaverður staður sem við vissum um. Matseðillinn býður upp á mjög áhugaverðan brunch þar sem við sáum suma fá sér kampavín og ostrur en það var ekki alveg það sem ég var allavega að leita að ... af löngum lista af ommelettum fékk ég mér Farmers´ Market Egg White Omelette með kalkúnabeikonu og tómatasalsa sem bragðaðist mjög vel, Jóa fékk sér mjög góða Open Face Potato Omelette og Inga Huld fékk sér Strawberry & Mascarpone French toast sem bragðaðist einsog nammi ... það sem virtist þó vekja lukku á borðinu var Filet Mignon Benedict með Hollandaise sósu, leit vel út og get ímyndað mér að hafi bragðast vel. Síðan var í boði alls konar skelfiskur, sushi, sashimi og að sjálfsögðu kavíar ... það var því hægt að belgja sig út. Góður brunch í skemmtilegu umhverfi með frábærum live jazz ... allt í lagi að koma hér ... fær 4 stjörnur.
laugardagur, september 08, 2007
Hittum í gærkvöldi Gísla, Habbý og Svein á Jewel Bako sem er ofboðslega góður sushi staður í Lower East Village. Annað skiptið sem ég kem þangað og Chef´s Omakase Tasting Menu klikkaði ekki ... fórum svo á þakgarðsbarinn á Hotel Gansevoort í Meatpacking district þar sem við sátum úti í góðu yfirlæti frameftir nóttu.
Vorum því ekkert alltof hress í morgun en Jóa þurfti þó að læra ... einsog alltaf ... og svo drifum við okkur út í göngutúr á Upper East Side þar sem við þurftum að ná í kjól fyrir vinkonu Jóu sem á að fá far heim á mánudaginn ... lúxusheimsendingarþjónusta fyrir þá sem þurfa fötin sín frá Manhattan :-) ... Ég og Inga Huld skelltum okkur svo í hjóla/hlaupa túrinn okkar ... náðum ekki metinu okkar frá fimmtudeginum sem var 1 klukkutími og 17 mínútur ... vorum þó einungis þremur mínútum lengur sem mér fannst í rauninni ekki svo slæmt miðað við þreytleikann eftir gærkvöldið. Pöntuðum okkur svo bara dominos í kvöldmatinn ... voða þægilegt að panta bara á netinu, þarf ekki að tala við neinn eða svoleiðis og er síðan þeirra háþróuð þar sem hægt er að velja hvort maður vill áleggið á vinstri eða hægri hliðina eða þá báðar hliðarnar og hvort það eigi að vera í litlu, miklu eða passlegu magni. Var ekki alveg að treysta því að þetta myndi virka en þetta gekk allt saman upp og fengum við pizzuna fljótlega.
mánudagur, september 03, 2007
Eldsnemma í gærmorgun var tekinn leigubíll út á LaGuardia þar sem við áttum pantaðan bílaleigubíl ... ákveðið var að taka convertible til að spóka sig aðeins á í blíðunni. Leiðin lá fyrst í út á Long Island í IKEA ... við lifum svoooo spennandi lífi hérna ... þar sem það vantaði hillur og þvíumslíkt fyrir prinsessuna á heimilinu. Það var nefnilega pantað skrifborð fyrir skvísuna sem hún fékk í afmælisgjöf í sumar og styttist í að það komi ... þarf því að gera dáldið huggulegt í kringum það. Eftir þetta var stefnan tekin í norður í áttina að ströndinni þar sem við hittum Íslendinga í sveitinni ... dóttir þeirra Brynja var með Ingu Huld í íslenskuskólanum og náðu þær vel saman ... það var mikið fjör hjá okkar stelpu sem fékk að hoppa á trampólíni, synda í sjónum, leika sér í sandinum og safna tonni af steinum sem þurftu einhverra hluta vegna allir að fara svo uppí hillu sem skraut ... það var gott að fá að sprikla dáldið áður en skólinn byrjaði ... síðan var grillað í sveitasælunni og vorum við komin heim rétt fyrir miðnættið í skarkalann í borginni. Þá var búið að loka bílaleigunni þannig að við fundum stæði og lögðum bílnum og vonuðum að hann yrði í heilu lagi daginn eftir ...
Þar sem ég mátti hafa bílinn síðan til klukkan 10 í morgun þá var rokið enn einu sinni eldsnemma á fætur í fríinu til að taka rúntinn um Manhattan. Með blæjuna niðri og Ingu Huld að frjósa í aftursætinu í rokinu þá keyrðum við upp Madison til 112th strætis þar sem við beygðum yfir á Central Park West og keyrðum hana sem leið lá niður á Columbus Circle ... vorum við þá komin hringinn í kringum Central Park ... mér hefur alltaf verið sagt að Columbus Circle sé eina hringtorgið á Manhattan en ég hefði samt haldið að ég hafi lent á hringtorgi uppi í norðvesturhorni Central Park. Við keyrðum svo niður Broadway í gegnum Times Square og enduðum á Union Square þar sem við gátum skilað bílaleigubílnum ... mjög skemmtilegur rúntur.
Jóa þurfti svo að læra og fara í skólann seinni partinn þannig að ég og Inga Huld skelltum okkur einu sinni enn leiðina okkar niður að Brooklyn Bridge ... hún á hjólinu og ég á tveimur jafnfljótum. Vorum núna 15 mínútum fljótari en á fimmtudaginn þannig að framfarirnar voru sæmilegar ... Inga Huld sparaði sig á leiðinni niður að brúnni en svo á leiðinni tilbaka þá setti hún upp "race" þar sem við þurftum reglulega að keppa á milli tveggja ákveðinna staðarleita. Vann Inga Huld 5 sinnum, ég 2 sinnum og gerðum við 2 jafntefli ... var Inga Huld því champion og vann the big cup ... vegna þessa kappsemi þá vorum við töluvert fljótari á heimleiðinni og var engin miskunn!!
laugardagur, september 01, 2007
Það er löng helgi hjá okkur núna ... Labor Day weekend hefst á hálfum degi á föstudegi þ.e.a.s. markaðurinn lokar klukkan tvö og svo er Labor Day sjálfur á mánudaginn og þá er frí. Við byrjuðum þessa helgi, sem er ein mesta ferðahelgi ársins með tilheyrandi töfum og vitleysu á flugvöllum og hraðbrautum, með því að bjóða Sigurgeiri og fjölskyldu í mat ásamt Sigga skyrframleiðanda í gærkvöldi. Við grilluðum ribeye á beini sem lukkaðist stórvel að því mér finnst og pavlovan í desert klikkaði ekki ... skemmtum okkur konunlega frameftir nóttu og fannst Ingu Huld gaman að fá stelpurnar í heimsókn til að leika við.
Vöknuðum ekkert alltof hress í morgun en drösluðumst út eftir brunch og fór Inga Huld á scooternum og sýndum við mömmu gönguleiðina niður að Brooklyn Bridge ... fórum aðeins lengra í þetta skiptið eða alveg niður að Pier 17 og gátum að sjálfsögðu fundið Haagen Dazs búð þar sem hægt var að fá sér hressingu. Planið var svo að labba inn á Wall Street og taka metro heim en Inga Huld fékk þá hugmynd að fara bara sömu leið tilbaka þannig að úr varð heljarinnar göngu- og scootertúr. Grilluðum okkur svo kalkúnaborgara í kvöldmat og snæddum uppi á palli í blíðunni ...
cheers