miðvikudagur, desember 31, 2003

Gleðilegt nýtt ár !!!!!!!

Matseðill kvöldsins.

Forréttur - Grillaður humar.
Aðalréttur - Innbökuð nautalund ásamt Bordeaux, Chateau Larrivet-Haut-Brion 1998.
Eftirréttur - Tiramisu.

Allt saman meiriháttar gott. Horfðum síðan á skaupið á netinu en náðum reyndar bara að horfa á ca. helminginn þar sem sambandið var svo slæmt - frekar leiðinlegt en náðum svona aðalatriðunum. Skaupið var samt skemmtilegt eða virtist allavega vera nokkuð gott - hlökkum til að fá það sent frá klakanum til að horfa á. Þarf núna að fara að opna kampavínið þannig að ekki verður það lengra á árinu tvöþúsundogþrjú.

CHEEEEERS

Áramótakveðjur frá Lullingstone Lane fiftífæf ....

fimmtudagur, desember 11, 2003

Það er búið að vera óskaplega mikið að gera og lítill tími til að rita á bloggið. Heilmikil saga bíður eftir því að komast á blað sem spannar ferðasögu tengdó sem komu hér síðasta laugardag og dvöldu í miklu yfirlæti fram á þriðjudag. Þessi vika er búin að vera mjög viðburðarrík þar sem mikið er að gera hjá Jóu í skólanum sem lýkur í næstu viku og einnig eru bjartari tímar hjá mér !! Á morgun koma síðan mamma og pabbi og fara beint til Reading og munum við síðan keyra til þeirra um kvöldið - tilefnið er útskrift mín með MSc í Financial Engineering and Quantitative Analysis frá ISMA Centre sem er á laugardaginn. Dvelja á þar fram á sunnudag og verður spennandi að koma aftur til Reading.

Annað verður að bíða þar til seinna og spurning er hvað situr eftir af heimsókn tengdó þegar tími gefst til að koma henni úr hausnum ...

cheers

föstudagur, desember 05, 2003

CHEERS - where everybody knows your name.

Þvílíkir snilldarþættir Cheers - eru sýndir hér í hádeginu (nema á föstudögum og um helgar) þannig að hvað er betra heldur en að horfa á þetta yfir hádegismatnum. Var búinn að gleyma hvað húmorinn er mikil snilld.

miðvikudagur, desember 03, 2003

Ég og Inga Huld byrjuðum að skreyta jólatréð í stofunni eftir kvöldmatinn. Fannst henni það mikið sport þó að þetta tré sé einungis um hálfur meter (líklega minna en það) að hæð. Einnig er búið að kaupa jólakort sem hún gefur krökkunum á leikskólanum og það á að skrifa á þau á morgun - finnst henni það einkar skemmtilegt þar sem hún er nú þegar búin að fá 3 kort frá leikfélögum sínum.

Skemmtilegur þáttur í útvarpinu í dag þar sem tekið var viðtal við rannsóknarblaðamann sem var að rannsaka það hvernig hinir ríku og velmenntuðu misnotuðu fátæka fólkið til að selja sér líffæri sem það vantaði. Var það allt frá hinum ýmsu innyflum einsog nýrum í það að vera hinir ýmsu útlimir. En þetta er einmitt ólöglegt hér í Bretlandi og má einungis þiggja líffæri frá aðila sem er þér skyldur. Þess vegna er í gangi svartur markaður með líffæri þar sem fátækt fólk freistast til að selja nýrað sitt fyrir svona sirka tíu milljónir króna. Þáttastjórnandinn grillaði rannsóknarblaðamanninn dáldið vel og hann þurfti virkilega að vanda sig - var þetta dáldið öðruvísi heldur en þessir fréttaþættir heima þar sem þáttastjórnandi er yfirleitt sammála viðmælanda sínum. Allavega fannst þáttastjórnanda að fólk ætti bara að fá að gera það sem því sýnist við sinn líkama og sagði að ef að þessi markaður yrði leyfður með lögum þá væri hægt að fylgjast betur með honum og sérstaklega líffæragjafanum þar sem hann tekur að sjálfsögðu töluverða áhættu með því að losa sig við einsog eitt stykki líffæri. Ég hafði í rauninni aldrei hugsað útí það að ég gæti átt yfir höfði mér refsingu ef ég myndi selja nýrað úr mér fyrir 10 milljónir eða hvaða verð sem ég gæti nú fengið fyrir það. Myndi ekki telja að kaupandi væri að misnota mig en svona þurfa nú sumir að hafa vit fyrir öðrum.

þriðjudagur, desember 02, 2003

Íslenskt gómsæti!

Við sóttum Jóu á flugvöllinn í gærkvöldi og gekk það vel - um kvöldið var síðan veisla þar sem á borð var borið: malt og appelsín, síld og rúgbrauð, flatkökur og hangiket, íslenskur graflax, skyr, smákökur og íslenskur lakkrís !!! Heldur betur gotterí og undir var spilaður íslenskur jóladiskur sem Inga Huld fann ofan í poka hjá mömmu sinni sem átti reyndar að vera einhvern tímann í skóinn til hennar - það er svona dáldið grams á þeirri litlu. Mjög jólalegt hjá okkur sem sagt - síðan getum við farið að jólaskreyta í vikunni þar sem Jóa kom með jólaskrautið okkar frá Íslandi - verðum snemma í þessu í ár þar sem við fáum heimsókn næstu tvær helgar og erum síðan að koma heim um jólin.

Með kveðju frá öllum á Lullingstone Lane með mettaðan íslenskan maga ...