miðvikudagur, desember 03, 2003

Ég og Inga Huld byrjuðum að skreyta jólatréð í stofunni eftir kvöldmatinn. Fannst henni það mikið sport þó að þetta tré sé einungis um hálfur meter (líklega minna en það) að hæð. Einnig er búið að kaupa jólakort sem hún gefur krökkunum á leikskólanum og það á að skrifa á þau á morgun - finnst henni það einkar skemmtilegt þar sem hún er nú þegar búin að fá 3 kort frá leikfélögum sínum.

Skemmtilegur þáttur í útvarpinu í dag þar sem tekið var viðtal við rannsóknarblaðamann sem var að rannsaka það hvernig hinir ríku og velmenntuðu misnotuðu fátæka fólkið til að selja sér líffæri sem það vantaði. Var það allt frá hinum ýmsu innyflum einsog nýrum í það að vera hinir ýmsu útlimir. En þetta er einmitt ólöglegt hér í Bretlandi og má einungis þiggja líffæri frá aðila sem er þér skyldur. Þess vegna er í gangi svartur markaður með líffæri þar sem fátækt fólk freistast til að selja nýrað sitt fyrir svona sirka tíu milljónir króna. Þáttastjórnandinn grillaði rannsóknarblaðamanninn dáldið vel og hann þurfti virkilega að vanda sig - var þetta dáldið öðruvísi heldur en þessir fréttaþættir heima þar sem þáttastjórnandi er yfirleitt sammála viðmælanda sínum. Allavega fannst þáttastjórnanda að fólk ætti bara að fá að gera það sem því sýnist við sinn líkama og sagði að ef að þessi markaður yrði leyfður með lögum þá væri hægt að fylgjast betur með honum og sérstaklega líffæragjafanum þar sem hann tekur að sjálfsögðu töluverða áhættu með því að losa sig við einsog eitt stykki líffæri. Ég hafði í rauninni aldrei hugsað útí það að ég gæti átt yfir höfði mér refsingu ef ég myndi selja nýrað úr mér fyrir 10 milljónir eða hvaða verð sem ég gæti nú fengið fyrir það. Myndi ekki telja að kaupandi væri að misnota mig en svona þurfa nú sumir að hafa vit fyrir öðrum.

Engin ummæli: