mánudagur, apríl 09, 2007

Á föstudaginn langa lögðum við af stað í páskafrísferð um sveitir og náttúru nærliggjandi svæða við New York. Ákveðið var að halda frekar í suðurátt heldur en norðurátt þar sem við töldum að það væri kannski hlýrra þar. Þetta með hitastigið reyndist nú rétt þar sem að um páskana snjóaði töluvert á svæðum norðan New York ... þannig að við fengum bara smávegis frost og snjófjúk ... við vorum sem betur fer vel græjuð og viðbúin lágu hitastigi.


Fyrst var haldið til New Hope í Pennsylvani sem er lítill huggulegur bær í um 75 mílna fjarlægð frá New York. Á leiðinni skoðuðum við eitt af fyrstu steinsteyptu húsunum í Bandaríkjunum, Fonthill í Bucks County, sem byggt var árið 1910 af Henry Mercer sem framleiddi einnig flísar og var frægur og viðurkenndur fyrir ... til gamans má geta að fyrsta steinsteypta húsið á norðurlöndunum var reist í Sveinatungu í Borgarfirði árið 1895 ...

Í New Hope gistum við á heimilislegu B&B og bærinn bauð síðan uppá rólegheit með töluverðu magni ýmislegra listmunabúða ... það var því nóg að skoða og vafra.



Frá New Hope keyrðum við til Cape May sem er á syðsta odda New Jersey og er eflaust vinsæll sumardvalarstaður með langri og flottri sandströnd ... ekki var hægt að fara á ströndina í frostinu og rokinu sem dundi á okkur allan tímann þannig að við héldum okkur við rúntinn. Fundum þarna einn vita og slatta af gömlum Victorian style húsum í fallegum pastel páskalitum þar sem sumir bættu um betur með risastórum uppblásnum páskakanínum úti í garði. Við gátum allavega fengið okkur að borða þarna og var sæmilegasti humarstaður, Lobster House, þar sem við fengum okkur humar og krabbakökur og meginuppistaðan í morgunmatnum hjá okkur voru síðan amerískar pönnukökur með slatta af sírópi. Annars var sosum ekki mikið við að vera þarna þannig að við lögðum tiltölulega snemma af stað heim - leiðin var um 160 mílur og stoppuðum við í skólanum hennar Jóu í Brooklyn á heimleiðinni og fundum þar einnig Garden of Eden þar sem gátum keypt páskalambalæri. Lambið var bara mjög gott enda dúllaði Jóa við það að fyrirmynd Jamie og var síðan dýrindis Tiramisu í desert (sem mun duga okkur alla vikuna ...).


cheers

Engin ummæli: