mánudagur, apríl 02, 2007

Tengdó heldur áfram að þramma Manhattan þvera og endilanga og Inga Huld platar þau til að kaupa ís og McDonalds á hverjum degi. Búið er að senda þau í hinar og þessar búðir til að versla eitt og annað t.d. beyglur í H&H Bagels og bollakökur í Cupcake Heaven og eitthvað af fötum og rafmagnstækjum. Ég yfirgaf liðið um helgina og skellti mér á skíði í Killington sem er eilítið norðar en Stratton þar sem við vorum um daginn. Það er orðið lítið af snjó og var hann vel frosinn á morgnana en bráðnaði síðan með deginum og var orðið slabb seinnipartinn ... semsagt dáldið erfitt færi en samt alveg þrælfínt. Á meðan lóðsaði Jóa og Inga Huld liðið um neðsta hluta Manhattan og skoðuðu þau einnig dýragarðinn í Bronx sem er alveg á hreinu að þarf að fara aftur í til að skoða betur ... górillurnar slógu í gegn og sýndu skemmtilega tilburði.



Annars er Herra Níels er búinn að heilla ömmu upp úr skónum og erum ég og Inga Huld búin að ákveða jólagjöfina fyrir hana um næstu jól.

Engin ummæli: