fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Það er skemmtilegt að fylgjast með umræðunni á Íslandi núna og mér sýnist ljóst hvað um er rætt í kaffi- og hádegispásum dagsins. Annars virðist ekkert minna af fyrirhyggjunni hér þar sem nýbúið er að banna hér að steikja mat úr ákveðinni tegund olíu og einhver þingmaðurinn er að fara leggja fram þá tillögu að banna fólki að ganga yfir umferðargötur á sama tíma og það hlustar á vasaspilara ... af því að það er að sjálfsögðu alveg stórhættulegt!

... það er gott að einhver hugsar fyrir manni ...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það veitir nú ekki af því að einhver hugsi um þessa kana, ekki eru þeir allavega færir um það!!!