Það er farið að kólna hjá okkur og var dáldið kalt hér inni í morgun - ég treysti ekki alveg á kyndinguna að halda hita á okkur hér í vetur og er að spuglera í því að fara að skoða rafmagnshitara. Sá í fréttunum í gær að það var yfir 20 cm snjór í Buffalo sem er í New York fylki um 5 klukkutíma akstur frá okkur ... stærðin á þessu landi er alveg ótrúleg ... keyrir og keyrir og kemst ekki einu sinni út fyrir fylkið!!
Núna er ég búinn að nettengja líka gömlu fartölvuna okkar þar sem Jóa notar nýju fartölvuna sína svo mikið fyrir skólann að ég og Inga Huld fáum aldrei afnot. Við keyptum í gær þráðlausan "router" og netkort - sölumaðurinn seldi mér "N" útgáfuna sem ku vera mun hraðari og langdrægnari heldur en gamla "G" systemið ... hef nú ekki mikið vit á þessu og eyddi hálfu gærkvöldinu í því að klambra öllum þessum tengingum saman og gekk þetta upp að lokum. Mér finnst þó alltaf gaman að góðum sölumönnum sem vita svona nokkurn veginn hvað þeir eru að segja - leiðinlegt að labba inní búðir og fá aldrei aðstoð eða neinn vilja hjá starfsmönnum til að selja manni eitt eða neitt. Næst á dagskrá í tæknimálunum er að koma prenturunum inná þráðlausa netið þannig ekki þurfi að tengja þá með snúru við tölvuna ... aldeilis að tæknimenningin hefur tekið yfir hjá okkur ...
Hér styttist í Halloween og er byrjað að skreyta hér og þar - Inga Huld fékk einmitt miða heim úr skólanum og á hún að koma með búning í skólann á Halloween fyrir Halloween Costume Parade.
Annars sá ég að um þetta leyti árið 2003 þá var Eva í heimsókn hjá okkur á Lullingstone Lane ... ansi skemmtilegt það !!
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli