þriðjudagur, október 31, 2006

HALLOWEEN

Inga Huld fór í tvær "Halloween Parade" í dag - sú fyrri var í skólanum og komu allir með búning með sér og síðan eftir hádegi var Halloween party með "goody bags" og skrúðgöngu. Þegar ég kom heim úr vinnunni fórum við í stigaganginn í "trick or treat" ... sumir voru nú ekki tilbúnir með nammi en þeir gáfu pening í söfnunarbauk sem Inga Huld var að safna í fyrir börn sem eiga ekki pening. Síðan var haldið í seinni gönguna og var hún töluvert stærri en sú fyrri. Þessi ganga sem kallast New York´s Village Halloween Parade byrjar á Spring Street og kemur síðan upp 6th Avenue og endar á 21st Street - við röltum okkur þangað enda ekki langt að fara og horfðum í smá stund á herlegheitin áður en fólksmergðin varð okkur um megn ... þessi ganga er engin smásmíð og er talið að meira en 2 milljónir séu viðstaddir ... forðuðum við okkur því yfir á 7th Avenue og var í rauninni ekkert verra að labba þar vegna þess að nóg var af fólki í búningum og margir komu líka niður þessa götu eftir að hafa klárað gönguna ... þess vegna var nóg af fjöri. Við enduðum síðan kvöldið á MacDonalds þar sem einn grímuklæddur gæddi sér á hamborgara nánast í nærbrókunum einum fata ... fannst Ingu Huld hann ekki í mjög penum búning.

cheers

Engin ummæli: