laugardagur, október 28, 2006

Það var þvílík gleði í Whole Foods Market í dag þegar við ætluðum að kaupa lambalæri í kvöldmatinn og viti menn ... var ekki bara íslenskt lambakjöt í borðinu !! Við spurðum manninn hvað væri um að vera og upplýsti hann okkur um það að þeir kaupa íslenskt lambakjöt einu sinni á ári og eiga það yfirleitt til í ca 1 mánuð ... við keyptum að sjálfsögðu 1 stykki lambalæri en var ég hálfsvekktur með verðið. Kostaði það sem sagt jafnmikið og það nýsjálenska eða 7.99 dollara pr pund eða lbs sem er ca 1300 krónur pr kíló sem mér finnst alltof ódýrt fyrir íslenskt lambalæri í New York ... að sjálfsögðu á það að kosta allavega helmingi meira en það nýsjálenska þar sem það er að minnsta kosti tvisvar sinnum betra !!

Eftir matarinnkaupin var haldið í afmæli til Söndru sem var 7 ára í dag ... þar vorum við um eftirmiðdaginn og skemmtu stelpurnar sér konunglega og slúðruðu í baðkarinu hennar Söndru ... var Sandra í svörtum nornabúning og Inga Huld í hvítum ... mikið gaman það. Búið er að skreyta húsið þeirra fyrir Halloween einsog sjá má á myndinni sem er tekin úr anddyrinu á blokkinni ... ýmsar furðuverur þar.

Það tók síðan tvo tíma að galdra fram kvöldmatinn ... íslenskt lambalæri kryddað með hvítlauk, rósmarin, timjan, salti og pipar ... meðlæti var gulrótarmús sem voru soðnar gulrætur með smjöri og vatni og síðan maukaðar ... jurtakryddaðar bakaðar kartöfluskífur ... og koníaksrjómavillisveppasósa sem þarfnaðist slatta af fína koníakinu mínu ... þetta bragðaðist allt saman alveg súper súper vel og endaði síðan með kaldri berjasúpu borin fram með kókossorbet.

cheers

Engin ummæli: