Það er farið að kólna hjá okkur - hitastigið í dag fór alveg niður í 12 gráður en sem betur fer hlýnaði aðeins aftur seinni partinn og kominn var 16 gráðu hiti ... líður að því að taka þurfi fram vetrarúlpurnar!! Ekki er stefnt að því þessa helgina að borða jafn fínt úti og um síðustu helgi en það byrjar nú með "Housewarming Party" hjá Sigurgeiri og Co í kvöld - erum við að dressa okkur upp fyrir það. Vinnudagurinn í dag endaði snemma eða milli 15 og 16 þar sem það er frídagur á mánudaginn ... hefðin er alltaf að síðasta virka dag fyrir frídag þá er unnið stuttan dag. Ég vissi þó ekki fyrr en í gær að það væri frídagur ... það er sem sagt Columbus Day en það er þó ekki frídagur hjá Ingu Huld og Jóhönnu - einhver togstreita er hvort þetta eigi að vera almennur frídagur eða ekki ... ég verð því einn eitthvað að dunda mér á mánudaginn. Það er þó alveg á hreinu að ég ætti ekki að halda uppá Columbus Day heldur mæta galvaskur í vinnuna og mótmæla þessu sem frídegi þar sem það er ekkert merkilegt þegar Columbus fann Ameríku ... miklu nær væri fyrir mig að því að komast að því hvenær Leifur Eiríksson fann Ameríku og krefjast þá frídags ... Leif Eiriksson Day.
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli