Enn erum við bara ein í kotinu. Fórum í gær útaðborða "ekki" í tilefni af Valentínusardeginum - ég hafði pantað borð á Sketch Library og var það alveg feikilega gott ... forrétturinn var þó ekkert spes en mjólkurlambið í aðalrétt sló í gegn ... desertarnir líka góðir og ég meina þá desertar í fleirtölu þar sem þeir voru 4 talsins, í raun var það aðeins of mikið af því góða í orðsins fyllstu merkingu. Við unnum síðan lengi í dag og hittumst á London Bridge og fengum okkur kvöldmatarsnarl á stað rétt hjá Borough Market ... erum eiginlega að "njóta" þess að þurfa ekki að drífa okkur beint heim eftir vinnu. Spurningin er síðan hvort þetta sé svona dæmigerð vika hjá okkur ef við værum barnlaus - erum búin að fara útaðborða þrisvar sinnum (1 sinni nokkuð gott, 1 sinni rosa flott og 1 sinni í lagi og ódýrt) og einu sinni keyptum við mat til að stinga í ofninn og borðuðum á meðan við horfðum á Sahara á DVD.
Allavega erum við búin að bóka rómantísku Parísarferðina og er semsagt lestarferð eftir vinnu á föstudagskvöldið - túristarúntur, -sigling og hádegismatur í Eiffelturninum á laugardaginn ásamt Moulin Rouge cabaret um kvöldið. Meira er í raun ekki planað þar sem erfitt er að fá borð á veitingastað á laugardagskvöldið en við erum að plana laugardagseftirmiðdaginn þar sem við fjárfestum í túristahandbók um París - stefnan er sett á þægilegan göngutúr um miðbæinn í rólegheitunum.
Inga Huld skemmtir sér annars vel á Íslandi þótt hún hafi nælt sér í einhverja magapest í dag - hún verður eflaust orðinn hraust og hress á morgun og til í slaginn.
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli