laugardagur, nóvember 18, 2006

Jóa þurfti að eyða deginum í skólanum í hópverkefni þannig að ég og Inga Huld sátum uppi með hvort annað. Við spiluðum Scrabble og versluðum svo í matinn - fyrir kaffið bökuðum við svo eplamuffins ... var það bara nokkuð gott hjá okkur, ég dró fram gömlu uppskriftabókina frá heimilisfræðitímum í grunnskóla og botna nú í rauninni ekkert í því hvernig þessi bók hefur fylgt okkur eftir í öll þessi ár. Allavega þá grunaði mig að okkur hlyti að takast að baka upp úr þessari bók þar sem mig minnir að ég hafi verið ansi lunkinn við það á mínum yngri árum. Kökurnar heppnuðust bara vel og fékk Jóa nýbakað muffins þegar hún kom heim sem var óvænt surprice. Í kvöldmatinn síðan grillsteiktur sverðfiskur með hot tomato salsa eftir uppskrift Jamie Olivers ... engar gamlar heimilisfræðibækur notaðar hjá henni Jóu!

cheers

Engin ummæli: