sunnudagur, nóvember 05, 2006

Helgin er búin að vera afslappelsi og rólegheit. Í gær röltum við um hverfið á vesturhliðinni og stöldruðum á einu kaffihúsi og fengum okkur heitt súkkulaði og bakkelsi þar sem það er farið að kólna verulega hjá okkur. Við fundum aðra Whole Foods Market á 24 stræti og 6 avenue sem er ekki svo langt frá okkur ... þar versluðum við íslenskar framhryggjakótilettusneiðar sem smökkuðust mjög vel. Við fórum síðan í Garden of Eden á 23 stræti til að versla eitt og annað fyrir vikuna þar sem Jóu líkar svo agalega vel við þá búð. Íslenska lambakjötið klikkaði ekki og töfraði Jóa fram eitt og annað gómsætt meðlæti.

Í dag fórum við í annan göngutúr og röltum nú upp 5th avenue ... Inga Huld fékk trefil, húfu og vettlinga fyrir skólann. Við fundum FOA Schwartz dótabúð sem er mjög flott og fræg fyrir stórt gólfpíanó sem spilað er á með fótunum - fannst Ingu Huld það ekki leiðinlegt og gátum við drepið tímann lengi þar að skoða og bardúsa. Á heimleiðinni var síðan verslað bakkelsi í Grand Central Market en því miður var Siggi´s skyr uppselt.

cheers

Engin ummæli: