fimmtudagur, desember 30, 2004

Erum nú stödd í veldi Dana! Komum hingað á mánudeginum eftir 1230 km akstur - lögðum af stað á sunnudeginum eldsnemma um morguninn þar sem við áttum ferju kl. 9 yfir sundið. Brunuðum síðan beint til Dusseldorf þar sem við vorum mætt á svæðið um 5 leytið á þetta líka fína Renaissance hótel - mjög rólegt var á hótelinu og varla nokkur önnur sála að flækjast þar. Borðuðum kvöldmat í 180 metra hæð í turni sem gnæfði yfir borginni - útsýnið var þó ekki sem best þar sem mikil þoka var yfir borginni og sást ekki einu sinni í toppinn á turninum þegar staðið var fyrir neðan. Merkilegt var að þegar við komum á svæðið og ég tjáði manninum í afgreiðslunni niðri að við værum að fara á veitingastaðinn uppi, þá rukkaði hann okkur um 6 evrur pr mann fyrir það að taka lyftuna upp ... fannst mér það skrítið og spurði hvort miðinn gilti upp og niður ... komst þá að því að miðinn gilti upp en frítt væri að fara niður ... ekki fannst mér það mjög traustvekjandi og spáði í því hvort að það þyrfti þá að fara einhverja aðra leið en lyftuna niður ...

Við þeystum síðan á mánudeginum um hraðbrautir Þýskalands til hennar Evu í Odense - stoppuðum lítillega til að fá okkur kaffi og teygja úr okkur en helsta stoppið var á grensunni margfrægu. Fórum þar í Citti til að fylla á vínskápinn hennar Evu og skoða okkur um þennan margumtalaða stað. Þegar komið var til Danmerkur var meiri þoka og hitastigið komið niður fyrir frostmark - gekk því umferðin aðeins hægar fyrir vikið en við mættum á svæðið til Evu um kl. 19.45 ... og var þá tekið á móti okkur með jólabjórsmökkun og var byrjað á einum 7% sem rann vel niður eftir þreytandi aksturinn. Í matinn var síðan þessi líka fína svínapörusteik fyllt að hætti Jamie Olivers ... alveg svaðalega gott. Drukkum einnig dáldið meira af jólabjór, Tuborg og Fisherman ...

Inga Huld var nú bara nokkuð góð í bílnum þó ferðin hafi verið þreytandi - hún hlustaði á vasadiskóið sitt, las bækur og lék sér með dúkkur - við reyndum síðan að spila fyrir hana prúðuleikara DVD í fartölvunni en batteríið er orðið slappt og dugði bara í 40 mínútur en ætti að duga í 2 klukkutíma.

Þriðjudagurinn var notaður til að skoða miðbæ Odense - kom á óvart hversu fínn og flottur bærinn er ... minnti dáldið á Ísland þar sem allt er voðalega afslappað og rólegt hérna. Eva þrammaði með okkur í helstu búðir og sýndi okkur merkustu staðina og hlutina.

Í gær, miðvikudag, var síðan stefnan tekin til Kóngsins Köben í lestinni - danska veðrið var nú ekki uppá marga fiska þar sem kalt var og þoka ... okkur tókst þó að skoða okkur um í borginni og byrjuðum á smörrebröd í Nyhavn - ekki amalegt það. Gott var að hafa Evu þar sem hún dró okkur um svæðið og rataði allt einsog herforingi. Strikið var síðan arkað og danskt jólaskraut og Georg Jensen verslað - Inga Huld var líka heppin þar sem að það var 50% afsláttur í Lego-fatabúðinni og var hún dressuð upp.

Í dag er svo farið að rigna þannig að snjórinn sem kom á þriðjudagskvöldið er farinn ... Ingu ekki til mikillar skemmtunar ... við byrjuðum daginn á dönsku bakkelsi, sem er töluvert betra en það breska, og ætlum svo í bíltúr um Fjón um eftirmiðdaginn. Síðan þarf að versla rakettur og bombur fyrir gamlárskvöld - búið er að skanna markaðinn lítillega og er verðið hagstætt. T.d. er hægt að kaupa 9 stórar rakettubombur í pakka fyrir 100 dkr ... þannig að það þarf að versla dáldið ... Við verðum í gamlárskvöldmat hjá foreldrum Evu, Elínu og Palla, sem búa hér í Odense þannig áramótin verða íslensk.

Annars mikið um að vera og tíminn fljótur að líða - þurfum bráðlega að gera okkur klár fyrir heimferðarakstur þann 1. janúar 2005 !!

Engin ummæli: