laugardagur, desember 11, 2004

Það var nú góður matur í gærkvöldi - ákváðum að hafa jólahlaðborð með öllu tilheyrandi. Reyndar ekki alveg öllu tilheyrandi þar sem að það mátti ekki opna maltið og appelsínið heldur á að geyma það nær jólum ... Við vorum annars með íslenska jólasíld, graflax (grafinn hér heima - við erum bara orðin nokkuð góð í því!), pate og jólaosta. Algjört nammi og mjög jólalegt. Fyrir kvöldmat ætlum við síðan að gera okkur ferð og kaupa jólatré og fá okkur hamborgara í kvöldmatinn. Jólatréið verður síðan sett upp um næstu helgi og skreytt - dáldið í fyrri kantinum á íslenskum mælikvarða en bretarnir eru mjög fljótir í þessu og sjáum við víða inn um stofugluggann skreytt jólatré. Þess vegna förum við dáldin milliveg að þessu.

Fengum skemmtilega sendingu um daginn. Þegar ég var á þriðjudeginum í leigubíl á leiðinni á Heathrow þar sem ég var að fara í flug til Amsterdam þá hringdi Jóa mjög spennt og spurði mig hvað ég hefði verið að panta þar sem það væri komin sending til mín. Ég tjáði henni að það væri nú bara leyndó (hafði ekki hugmynd um hvað þetta var) og þyrfti að geyma kassann þar til ég kæmi heim aftur á fimmtudagskvöldið frá Frankfurt. Ekki leist Jóu minni vel á það og fannst það frekar súrt - fékk hún á endanum að opna kassann og viti menn ... upp úr honum kom heilmikið af bóluplasti og að lokum fann hún pakkann og kort sem á stóð að þar sem við hefðum verið meðal 20 fyrstu til að bóka ferju og hótelgistingu í gegnum ferry.to þá hefðum við unnið þessa líka forláta kampavínsflösku !! Vorum ánægð með það þar sem þetta kom mjög á óvart og höfðum ekki hugmynd um að við værum að tilraunakeyra einhverjar bókanir í kerfinu þeirra og vonum því í framhaldi af þessu að hótelgistingin og ferjan sé allt skráð rétt.

Annars tókst Ingu Huld loks að smita mig og Jóu af kvefi og hósta og erum við því öll orðin lasin! Inga Huld er þó einna skást þar sem henni er tekið að batna ...

cheers

Engin ummæli: