Þetta árið var ákveðið að vera eins og hver annar Ameríkani og skyldi kaupa grasker fyrir Halloween. Við fórum því á Farmers market í morgun á Union Square til að kaupa stórt og fallegt grasker. Nú er tíminn fyrir squash og annað furðulegt grænmeti sem kemur frá bændum í nágrenni New York borgar.

Við fundum okkur sæmilega stórt grasker sem okkur leist vel á. Fundum okkur leiðbeiningar í graskersútskurði til að gera ekki bara einhverja vitleysu. Fyrst þurfti að opna það á toppnum með því að skera lok af og hreinsa út steina og annað gums. Síðan átti að taka kjöt innan úr því þangað til það var orðið um 1,5-2 cm þykkt.


Okkur fannst hann bara dáldið flottur og prýðir hann nú heiðurssess í stofunni okkar !!

Kjötið innan úr var síðan notað í ljúffenga graskerssúpu ...
2 ummæli:
Auður og co úr sveitinni, ótrúlega flott grasker hjá ykkur, eigum eftir að gera þetta í ár. Er þetta misskilningur eða er þetta glott frá MR. Brown.
Inga Huld þú ert greinilega talent í þessu.
kveðja
Auður, Pétur, Sæunn og Brynja Sif
Hann er nú orðinn dáldið lúinn núna eftir 5 daga, greyið ... farið að grafa í augunum á honum og hann allur orðinn grár og gugginn ... kannski hann líkist MR. Brown meira með hverjum deginum :)
mkv
Valdi
Skrifa ummæli