Við eyddum afmælishelginni í "The Hamptons", nánar tiltekið nálægt bænum Amagensett sem er um 110 mílur upp eftir ströndinni á Long Island - leigðum okkur þar litla íbúð og mættum þar á föstudagskvöldið eftir 4 tíma akstur sem var tafinn af umferðartöfum og kvöldmat á ítölskum veitingastað á leiðinni ... ætlunin var nú að fara bara á einhverja ameríska vegabúllu en lentum óvænt á einum ítölskum með hvítum dúkum.
Laugardagurinn tuttugastiogfyrsti október sem var upphafið að tuttugastaogníuanda aldursárinu mínu byrjaði með afslappelsi, afmælisgjöfum, afmæliskveðjum, morgunmat og að sjálfsögðu afmælisköku ... síðan var haldið í bíltúr um svæðið. Hann hófst á því að fara á slóðir Jackson Pollock sem eyddi síðustu árum ævi sinnar þarna frá árinu 1945 og málaði meistaraverk sín sem nú seljast á milljónir dollara áður en hann keyrði ölvaður á tré árið 1956 og lést harmlegum dauðdaga. Leiðið hans má sjá á einni myndinni fyrir neðan og síðan er búið að breyta heimilinu og stúdíóinu hans í safn og fórum við í túr um það ... var það bara skemmtilegt nema að Ingu Huld fannst konan tala of mikið. Næst á dagskrá var að skanna vínekrurnar á Long Island og stoppuðum við á einni sem var Bedell Vineyard ... mikið fjör var á svæðinu og nokkrar limmósínur í innkeyrslunni ... við skelltum okkur allavega í vínsmökkunina svona í rólegheitunum þar sem við vildum nú geta keyrt heim. Vínin þarna komu vel á óvart og keyptum við okkur nokkrar flöskur til að eiga - drukkum þó rauðvínið um kvöldið með nautasteikinni sem Jóa eldaði í afmæliskvöldmatinn ... var það góður endir á góðum degi.
Á sunnudeginum keyrðum við út á endann á Long Island þar sem bærinn Montauk er og elsti viti á strönd New York fylkis (skilst mér ...), allavega byggður 1796 ... skemmtilegt var að sjá að víða var hægt að kaupa grasker og sums staðar var hægt að kaupa þau beint af akrinum ... við lögðum þó ekki í að prófa eitt slíkt. Keyrslan heim gekk síðan betur þar sem ekki var eins mikið af umferðartöfum á leiðinni og lukum við síðan afmælishelginni á víetnamskri núðlusúpu á víetnömskum stað ekki langt frá okkur.
cheers
2 ummæli:
Hæ elsku bestu vinir
Til hamingju með afmælið Valdi minn.
Frá þinni vinkonu
Halldóru
Takk fyrir það Halldóra !!
Skrifa ummæli