mánudagur, mars 03, 2008

Þar kom að því að við værum rænd!! Það var þó farið mjög pent í það og biðum við ekki neinn sálrænan skaða af ráninu. Ránið fór sem sagt fram að mestu rafrænt ... á föstudaginn þegar ég fór í hraðbankann þá var engin heimild til úttektar þar sem hámarkinu hafði verið náð þann daginn í hraðbankaúttekt. Ég hélt að Jóa hefði tekið út pening til að kaupa eitthvað fallegt handa mér og minntist ekki á þetta fyrr en á laugardaginn í rólegheitunum þar sem ég var ekki búinn að fá neinn pakka. Hún þvertók fyrir að hafa farið í hraðbankann á föstudaginn og kíkti ég því í heimabankann sem ég kíki nú reglulega í til að tékka á stöðunni einmitt til að koma auga á svona lagað snemma. Þá kom í ljós að á hverjum degi síðan á þriðjudaginn var búið að taka út hámarksfjárhæð í hraðbankanum af kortinu okkar!!! Hringdi snarlega í þjónustuver Citibank og urðu þeir afskaplega leiðir yfir tilvikinu ... komumst að því að ef til vill var kortið afritað í sjálfsala sem selur kort til að nota í lestarnar hér. Þeir lokuðu kortinu strax og gáfum við sérstakri deild hjá þeim skýrslu ... fáum síðan pappíra sem við skrifum undir og sendum tilbaka með samþykki að þeir megi nota upplýsingarnar til að lögsækja aðilann ef hann finnst. Að þessu loknu þá endurgreiða þeir okkur stuldinn hvort sem þeir finna þjófinn eða ekki ...

... betra að fara varlega ...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá,, þú ert mikill herramaður, ég er viss um að minn maður hefði imprað á því að ég hefði tekið allt!!!... Gott að þetta var ekki verra.
Og takk fyrir okkur síðast,, þvílíkt ljúffeng heimsókn.
kv.
Auður og co

Nafnlaus sagði...

Já ... maður er greinilega góðu vanur :) ... takk sömuleiðis fyrir komuna, alltaf gott að hafa tækifæri til að bjóða uppá góðan mat.
Valdi