Laugardagur í dag - ekki mikil tilbreyting fyrir okkur þar sem við erum hvort sem er ekki að gera neitt. Fórum þó í bæinn í morgun á The Farmers Market þar sem bændur í nágrenni Reading koma saman og selja vörur sínar. Þar var hægt að fá allt mögulegt heimagert; heimabakað, heimabruggað, heimablandað, heimaplantað og heimaslátrað og ýmislegt fleira. Keyptum ýmislegt þarna til að styrkja grey bændurnar hér ... keyptum í sunnudagsmáltíðina, lambakjöt (neck fillet), sveppi, kartöflur, rauðvín, bjór og eplaböku - verður mjög enskur matur. Þetta er mjög sniðugt og byrjaði fyrir nokkrum árum hjá Bath og breiddist þetta þaðan til annarra bæja í Englandi að hafa svona markað. Rauðvínið sem við keyptum er frá ´96 Boze Down - ekki mikið gert af rauðvínum á Englandi en eitthvað er gert af hvítvínum, fengum við að smakka hjá vínbóndanum og var þetta bara alveg ágætt.
Síðan var tekið til við sokkaleit fyrir dótturina og eftir 5 búðir fundust loksins réttir litir og voru keyptir sokkar þar - eru þeir reyndar í stærra lagi en hún stækkar svo hratt núna. Einnig þurfti að bæta við í leirtauið þar sem við fáum svo marga gesti yfir páskana en seinna um daginn tókst Jóu svo að brjóta disk þannig að það þarf að fara aftur á morgun og kaupa disk !!
Horfði á leik á lókalnum sem var alveg skelfilegur - leiðinlegt þegar dómarinn tekur sig svona til og skemmir heilan leik sem ætti að geta verið skemmtilegur ... en það verður víst bara að hafa það - unnum bikar af þeim nýlega !!
Eftir þetta var bara slakað á í garðinum og sólskinið sleikt - erum að verða ansi sóluð og þurftum við að vinna sólvörn á hana Ingu þar sem hún var orðin ansi rauð á kinnunum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli