laugardagur, apríl 26, 2003

Sendi liðið til London í dag þar sem Jóhanna lóðsaði þau um Portobello markaðinn og sá um að þau gátu verslað eitt og annað. Komu þau úr þessari ferð með sitthvorn leðurjakkann og voru hæstánægð !! Leðurjakkasalinn var mjög góður og ekta sölumaður - engar verðmerkingar voru í búðinni heldur mældi sölumaðurinn fólk út þegar það spurði um verð og kvótaði svo ... "for you my friend ... only ... pounds". Gamli keypti fyrst jakka á sig og síðan á leiðinni úr búðinni fóru þau að skoða annan jakka sem þau létu manninn pranga inná sig þar sem hann gaf þeim svo mikinn afslátt af því að þau voru þegar búin að kaupa einn jakka. Fannst þeim markaðurinn mjög flottur og skemmtilegur og enduðu þau á að skoða Trafalgar Square. Tengdó er núna á fullu að rembast við að klára Fosters kassann sem hann keypti í Safeway í gær (eða um daginn) á 13 pund svo hann þurfi ekki að skilja neitt eftir ... vegna þess að í fyrramálið er plönuð heimferðin. ; ( Sem betur fer keyptu þau nýja ferðatösku í gær þannig að þau geta komið heim öllu dótinu sem þau hafa verslað í ferðinni.

Engin ummæli: