miðvikudagur, júní 25, 2003

Ég held að Grikkjanum Nickolas sem er hér við hliðina á mér lítist ekkert á mataræðið mitt - þegar ég kem fram á daginn og fæ mér samloku með skinku og osti eða eitthvað svona einfalt þá horfir hann bara á mig, glottir og hristir hausinn og síðan borðar hann og Frakkinn einhvern rosalegan mat sem þeir elda sér í hádegismat !!! Nickolas er reyndar með bróðir sinn í heimsókn og kom hann með hálfa tösku af tilbúnum mat frá mömmu ásamt súkkulaðiköku - með fylgdu einnig nokkur stykki af Feta osti og eru þeir duglegir að borða hann með hverju sem er - útá salat, ofan á kjötrétti, ofan á brauð og guðmávitahvaðogekkihvað. Þannig að þeir bræðurnir borða núna mat frá mömmu og eru sífellt að bjóða mér eitthvað - finnst greinilega ekki nógu gott að ég fái bara brauð með skinku og osti eða tilbúnar pizzur úr ofninum.

Inga Huld er búin að ákveða hvað á að vera á boðstólnum í afmælinu sínu ... semsagt: vínber, engjaþykkni og súkkulaðikaka með litlum kertum, ekki stórum og kakan á helst að vera hjólakaka. Þetta er sem sagt allt planað hjá henni en spurning hvað úr verður. Einnig tjáði hún mömmu sinni um daginn að það væru bara þrjár mínútur þar til pabbi væri kominn heim !! Hún virðist ekki alveg átta sig á tímanum vegna þess að þegar mamma sagði í dag að núna væru bara sjö dagar þar til pabbi kæmi heim þá sagði hún, nei mamma það eru fimmtán dagar - hefði nú ekki verið ánægð ef hún hefði fattað muninn þar á. Hún fer í pössun til ömmu Helgu á daginn og finnst það voða gaman, allavega virðist hún hafa nóg að gera þar sem hún er yfirleitt steinrotuð fyrir klukkan átta og vaknar svo um sjö (held ég) - skilst að það þurfi að drösla á henni á fætur og sé þetta bölvað maus á morgnana að koma krakkanum í föt og útí bíl !! Heimtaði síðan í morgun að hafa með sér nesti til ömmu einsog mamma tekur með í vinnuna, fékk vínber og melónu í nesti en lét tilleiðast að taka ekki með sér brauð gegn því að vera sannfærð um það að amma Helga ætti eflaust brauð hjá sér.

Sem sagt allt í góðu útum allt.

Engin ummæli: