miðvikudagur, júní 11, 2003

Hér er alltaf sama blíðan - stuttermabolaveður og fínerí, klikka oftast á því að vera of mikið klæddur þegar maður þá kíkir útfyrir hússins dyr. Fór nú í C++ tíma í gær að læra alvöru forritun, lærði á Excel/VBA í vetur og núna er verið að kenna grunnatriðin í C++ og hvernig við getum snúið VBA kódanum yfir í C++ kóda. Er það hentugt vegna þess að C++ er margfalt hraðvirkara heldur en Excel/VBA en er að sama skapi margfalt flóknara !! Þannig að þetta er áhugavert sérstaklega ef búa þarf til módel sem þurfa að reikna mikið eða gera hlutina oft, þ.e.a.s. hermanir. Er einnig byrjaður að lesa fyrir próf sem ég fer í þann 26., fer í tvo tíma fyrir það í næstu viku - er þetta próf sem gefur ákveðin réttindi til starfa í London, gæti verið jákvætt að hafa það þegar sótt er um vinnu. Þannig að það er nóg að gera - svo ekki sé minnst á líkamsræktina, er reyndar ansi þreyttur í líkamanum þar sem ég tók vel á því í gær og í fyrradag fór ég að hlaupa með Grikkjunum og þurfti ég að hlaupa tvo hringi þar sem við ætluðum að hittast kl. 7 en bara Costas kom þá þar sem Grikkirnir voru að sjálfsögðu alltof seinir. Ég og Kostas tókum þá einn hring og þegar við komum tilbaka þá voru þeir klárir í slaginn - annar hringur var þá farinn þannig að það var vel tekið á því. Ég verð klár í Reykjavíkurmaraþonið árið 2005 með þessu áframhaldi !!

Er alveg að klára bók sem kallast "F.I.A.S.C.O. Guns, Booze and Bloodlust: - (humm, spurning um hvað þessi bók er um hugsa eflaust einhverjir en að sjálfsögðu er hún um fjármál) ... The truth about high finance". Fjallar hún um sölumann afleiða hjá Morgan Stanley á árunum 1993 - 1995 sem sérhæfði sig í "emerging markets". (Emerging markets er í raun bara fancy orð fyrir markaði í vanþróaðri löndunum en hver vill kaupa vöru frá less developed countries ??) Þar lýsir hann hvernig þeir seldu flókin skuldabréf tengdum hinum ýmsu gjaldmiðlum í Suður-Ameríku, t.d. Argentínu og sérstaklega kom mexíkanski pesóinn við sögu. Það fór síðan að hrikta í þegar stórfyrirtæki einsog Proctor&Gamble fór að birta stór töp vegna svona fjárfestinga. Árið 1994 fór síðan Orange County á hausinn einsog frægt var þegar þeir töpuðu vel yfir milljarði dollara eftir að hafa keypt mikið af svona skuldabréfum. Þarna er t.d. sagt frá því að stórir kaupendur voru oft lífeyrissjóðir, sveitarfélög og aðrir sjóðir sem hefðu átt að vera að kaupa ríkisskuldabréf en höfðu ekki hugmynd um hversu áhættusamar vörur þeir keyptu. Einn kafli er t.d. um afleiður sem þeir seldu til Japan til að hjálpa bönkunum þar við að fela tap sem þeir höfðu orðið fyrir - var afleiðan hönnuð þannig að hún sýndi mikinn hagnað í upphafi sem hægt var að bóka og síðan var tapið ekki realiserað af afleiðunni fyrr en eftir kannski 20 - 30 ár !!! - þannig var tapinu velt áfram frá ári til árs án þess að nokkur vissi af. Þessi bók er í rauninni einsog skáldsaga og magnað að margt af þessu skuli hafa átt sér stað. Í dag hefði maður kannski haldið að fjármálageirinn væri nú eitthvað farinn að læra af reynslunni en viti menn þegar ég las mbl.is í dag þá voru tvær fréttir varðandi fjármálahneyksli ... ein um að hið stóra fyrirtæki með íbúðalán í Bandaríkunum, Freddie Mac, hefði eitthvað verið að kokka bækurnar og síðan um bíræfna stjórnendur WorldCom sem einnig voru að kokka ýmislegt. Þessi lesning á því vel við og um að gera að þekkja söguna - þetta er líka þrælskemmtileg bók og hægt að hlægja mikið ...þó hún sé á stundum grátleg.

Engin ummæli: