föstudagur, nóvember 14, 2003

The Big Chill

Í gær byrjaði ný sería þátta á BBC sem kallast Horizon og á að fjalla um vísindi líðandi stundar. Fyrsti þátturinn nefndist The Big Chill og fjallaði um lækkandi hitastig á Bretlandi næstu árin vegna hækkandi hitastigs í heiminum. Var skemmtilegt að horfa á þennan dramatíska þátt sem var með undirspili eins og í sérstæð sakamál - ef að þátturinn verður gerður á íslensku þá er nauðsynlegt að Þorsteinn Másson (hét hann það ekki ??) tali undir. Fyrst var rætt við aðila sem hafði borað í gegnum Grænlandsjökul og komst að því að hitastigsbreytingar hefðu gerst hratt í fortíðinni og gæti þess vegna verið komið Íslandsveðurfar hér eftir 10-20 ár. Næsti aðili hafði varið ævi sinni í það að rannsaka lítil skeldýr á sjávarbotni og komst að því golfstraumurinn getur tekið upp á því að hætta að streyma og byrjar síðan aftur á því öllum að óvörum. Síðan var það þriðji aðili sem gerði þá stórmerku uppgötvun að tengja þessa tvo atburði saman og sagði eitthvað á þessa leið: "Þegar golfstraumurinn hættir skyndilega að streyma þá lækkar hitastigið mjög skyndilega". Þessi maður virtist vera stórmerkilegur og eflaust mjög virtur af sínum samstarfsfélögum. Þetta var allt saman voðalega flókið og einhverjar skýringar þurfti að finna fyrir þessum snöggu hitafarsbreytingum - að sjálfsögðu voru síðan hitafarsbreytingarnar núna raktar til mengunar mannanna og því til rökstuðnings voru sýndar nokkrar skítugar verksmiðjur spúandi reyk út í himinhvolfið. Þegar hér var komið við sögu í þættinum var ég orðinn svo áhugasamur að ég steinsofnaði og missti ég því af endalokunum og komst því ekki að því hvað olli hitafarsbreytingunum í fortíðinni þar sem líklega er ekki hægt að kenna mengun mannanna um það ...

Engin ummæli: