fimmtudagur, janúar 20, 2005

Ég og Inga Huld erum bara tvö í slotinu núna þar sem Jóa er í rannsóknarleiðangri á Íslandi vegna náms síns. Við keyrðum hana upp á Stansted flugvöll í gærkvöldi og vorum um 2 tíma uppeftir frá vinnunni minni en ekki nema 1 tíma heim, að meðtöldu stoppi á McDonalds takeaway. Það þarf alltaf að gera ráð fyrir seinkunum þegar ferðast er um hérna og heyrðum við t.d. í útvarpinu að það væru verulegar seinkanir á hluta M25 vegna þess að 20 tonn (... já ... 20 tonn) af appelsínum (... já ... appelsínum) voru að flækjast fyrir á veginum og tók það sinn tíma að koma þeim burt.

Að sjálfsögðu síðan núna þegar við erum bara tvö þá vaknaði Inga Huld með hita í morgun og var ferlega slöpp og lasin greyið. Við erum því bara heima og látum okkur leiðast og verðum líklega heima í veikindafríi á morgun. Annars er matseðillinn klár hjá okkur á meðan frúin er ekki heima, það er sem sagt brauð með baunum og osti (nefnt baunabrauð) í kvöld, kjúklingabringur í Tikka Masala á morgun og síðan á laugardaginn eru kjúklingavængir eða -leggir með barbecue sósu ... hljómar ekki illa!!

Það er orðið svo bjart hjá okkur snemma núna - á leiðinni í vinnuna klukkan hálfátta á morgnana er sólin komin upp og farið að birta ... en á kvöldin einsog núna klukkan fimm er komið niðamyrkur.

Engin ummæli: