föstudagur, febrúar 04, 2005

Búið er að koma upp bankaranum (e. bankerinn) !! Það tók dáldinn tíma að festa bankarann á útidyrahurðina þar sem hún er úr málmi en ekki timbri - það þurfti sem sagt að fjárfesta í málmskrúfum (þ.e.a.s. skrúfur sem hægt er að skrúfa í málm) til að hægt væri að ljúka verkinu. Núna fer sem sagt ekkert á milli mála ef einhver er að banka á hurðina þar sem það glymur í öllu húsinu ...

Nú styttist annars í að tengdó mæti í heimsókn en koma er áætluð föstudagskvöldið 11ta - ætli það þurfi ekki að snyrta dáldið til hér áður ... hmmm ...

Engin ummæli: