laugardagur, mars 26, 2005

Föstudagurinn Langi
Dagurinn stóð undir nafni og var mjög langur - áttum við bókað flug frá Stansted kl. 19.50 til Íslands en fréttum fljótlega af því að sá tími myndi ekki standast þar sem það var þoka í Köben! Við tókum okkur því langan tíma í að pakka og vorum bara í rólegheitunum - þegar vélin loks lagði af stað frá Köben var áætluð brottför kl. 22.30 ... við stoppuðum því á veitingastað á leiðinni á völlinn sem er nálægt skólanum hennar Jóu, hann var bara nokkuð góður ... kínverskur staður Yi Ban og var með mjög gott Dim Sum, mælum hiklaust með því. Mættum síðan á völlinn við tékkinnið kl. 20.30 og fannst við bara góð en fundum þá út að búið var að loka öllu þar. Kona sem við fundum í afgreiðslunni skildi ekkert í okkur og sagði að tékkinnið hefði lokað kl. 19.20!!! Okkur leist nú ekki á blikuna og tilkynntum konunni það að það hefði verið ljóst í allan dag að það yrði löng seinkun á vélinni og að við hefðum ekki ætlað að koma á völlinn eldsnemma til að hanga þar í marga klukkutíma ... að lokum ræsti kellan út einhvern til að tékka okkur inn og var þetta allt í gúddí að lokum.

En það kom þá í ljós að Stansted hafði ekki hugmynd um þessa seinkun í Köben hjá Iceland Express og höfðu engar upplýsingar um að það væri seinkun á fluginu! Var það eingöngu vegna upplýsingagjafar frá tengdó og íslenska textavarpinu að við vorum svona vel upplýst ...

Við vorum síðan lent kl. 1.30 í hávaðarok og rigninu ... týpískt íslenskt veður semsagt ... og komin í Unufellið kl. 3.00 ... langur föstudagur semsagt ...

Skírdagur

Páskafríið mitt hálfhófst á Skírdag - hætti snemma í vinnunni klukkan 1 og kom Jóa í bæinn og fengum við okkur hádegismat saman áður en við sóttum Ingu Huld í skólann. Hún var mjög ánægð að sjá okkur bæði koma og sækja sig og enn glaðari með lífið þegar við fórum á kaffihús og fengum okkur kaffi í Blackheath ... þegar heim var komið þá var tekið til við garðvinnuna þar sem allt er að spretta úr sér. Garðklippurnar sem fjárfest var í um síðustu helgi komu að góðum notum við að sníða runnana að okkar óskum ... þetta var ágætisbyrjun á páskafríinu þar sem það var sól og 15 stiga hiti ... vöknuðu því ýmsar hugmyndir um það hvað gera þarf við garðinn t.d. setja pall svo hægt sé að grilla og borða úti og hafa það notalegt.

Engin ummæli: